Morgunblaðið - 29.05.1983, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. MAÍ 1983
53
• Slakad á í miðdegishléinu og aflinn skoöaður. Sá stóri er 12 punda.
Myndir: — gg.
Færeyinga geti ekki haft áhrif
annars staðar.
En hvað um framtíð laxveiða í
Álftá?
Páll: — Ja, hún er náttúrulega
ekkert annað en björt, a.m.k. get-
ur maður ekki annað sagt meðan
að veiðin eykst. Ég tel að áin gæti
gefið enn meira þó ég geti ekki
gert mér grein fyrir hvað gæti
veiðst mest.
Sigurður: — Við erum búnir að
setja kvóta á ána, enginn má veiða
meira en 10 laxa á dag. Það er
vegna þess að nokkra daga í fyrra
þótti okkur veiði keyra úr hófi
fram. Ég átti sjálfur dag í júlí, en
var óheppinn með veður. Veðrið
var kolvitlaust og áin snarvitlaus.
Ekki hundi út sigandi. En er veðr-
ið gekk niður var veiðin stórkost-
leg. Þeir fengu 30 laxa daginn eftir
og 24 eða 26 stykki næsta dag. Áin
var þá minnkandi, en þó dálítið
lituð. Það virtist sama hvert kast-
að var, alls staðar var lax og það
gráðugur lax.
Veiðisaga
Hér þykir undirritðum tilhlýði-
legt að bæta við veiðisögu frá
Álftá, til að slá botninn í grein um
einhverja merkilegustu laxveiðiá
landsins, þótt vatnslítil sé.
Atvikið sem um getur átti sér
stað á síðasta sumri. Feðgar, þrír
bræður og gamli maðurinn, eru
við veiðar. Yngsti bróðirinn er
ekki nema 12 ára gamall og hefur
aldrei veitt lax áður. Bræður hans
eru hins vegar þaulvanir og árum
saman hefur sá litli verið að suða
um að fá að vera með. Nú loksins
var dagurinn runninn upp.
Þetta var seint í júlí og fyrir
nokkru orðið kvikt af fiski í ánni.
Þeir feðgarnir höfðu víða rennt og
gengið yfirleitt vel, er yngsti bróð-
irinn og sá elsti komu að Hrafns-
hyl við Brúarland. Hafði sá yngsti
ekkert veitt, en hinir frá einum og
upp í þrjá laxa hver. Það varð því
úr að yngsti bróðirinn fékk að
byrja. Hann kom orðið flugunni
sæmilega frá sér og hafði hug-
mynd um hvernig hún skyldi
synda í vatninu. En reynsluleysið
hafði háð honum til þessa. Hann
var með Skrögg nr. 8 og í fyrsta
kasti mátti sjá ólgu undir flug-
unni, síðan glampa á langan,
furðulangan, búk. Því næst stríkk-
aði á línunni og sá fyrsti var á. Og
þetta var stór fiskur, mjög stór.
Nú hófst mikil rimma, laxinn
hafði yfirleitt hægt um sig, en tók
öðru hvoru rokur til og frá um
hylinn. Hvað eftir annað sást vel
til laxins, enda áin vatnslítil.
Áætluðu feðgarnir að fiskurinn
myndi vera um 15—20 pund.
Sýndist það sanngjörn ályktun
miðað við reynslu þeirra félaga.
Og þol og styrkur laxins dró ekki
úr sannfæringu þeirra að hann
væri heldur nær 20 pundum en 15
pundum.
Sá litli tók að þreytast mun fyrr
en laxinn og oft kom slaki á lín-
una. Bræður hans og faðir treystu
sér ekki til að taka við stönginni,
vildu ekki halda á henni ef laxinn
hristi sig af og þurfa að svara
fyrir það. Auk þess vildi sá ungi
það alls ekki. Þetta var hans lax
og hann ætlaði að ná honum.
Svo fór að safnast saman tals-
verður mannfjöldi á brúnni, enda
liggur þjóðvegurinn yfir ána á
þessum slóðum. Fyrst var aðeins
um nokkra ferðalanga að ræða, en
um stemmningu var ekki að ræða
fyrr en rúta full af útlendingum
lét staðar numið og hleypti farm-
inum út. „Hey, he must be five
pounds at least" og „look there he
is, what a beauty" mátti heyra
mælt hátt og snjallt með Texas-
hreim. En auðvitað var laxinn
miklu stærri en fimm pund. Tók
áhorfendaskarinn mikinn þátt í
leiknum, stundi í kór ef slaknaði á
línunni, en klappaði í kór þegar
stríkkaði á aftur og laxinn var enn
fastur á króknum.
Eftir rúman hálftíma var lítið
lát að finna á laxinum. Þrjú korter
liðu og enn synti hængurinn um
eins og sá sem valdið hefur. Komið
var fram yfir hádegi og húsfreyj-
an á Brúarlandi kallaði út um
gluggann hvort þeir vissu ekki að
það ætti að hætta að veiða klukk-
an 13.00? Þegar hún frétti hvernig
á öllu stóð var hún fljót að veita
leyfi fyrir áframhaldandi skaki í
ánni. Én þetta virtist dæmt til að
enda illa (fyrir veiðimennina).
Laxinn var afar stór, nýrunninn,
flugan lítil, veiðimaðurinn bæði
óreyndur og farinn að lýjast. Eftir
því sem á leikinn leið náði laxinn
æ oftar að snúa á veiðimanninn,
aftur og aftur náði hann slaka og
það losnaði um fluguna jafnt og
þétt. Eftir þriggja kortera barning
kom svo uppgjörið. Skyndilega
þaut laxinn upp undir brú í einni
lotu og áhorfendaskarinn saup
hveljur. Það söng í hjólinu og sá
ungi hóf eftirför. En leið hans upp
undir brú var ekki hálfnuð er lax-
inn þaut til baka á enn meiri ferð,
það slaknaði á línunni og hún
hlykkjaðist um alla á. Veiðimað-
urinn elti hrasandi og spólaði inn
eins hratt og veikir burðir hans
megnuðu og loks stríkkaði á ný.
Laxinn var enn á, en nú var ekki
aftur snúið, flugan var orðin svo
laus að um 30 sekúndum síðar
kom hún þjótandi upp úr vatninu,
en laxinn var þar eftir. Áhorfend-
ur stundu af vonbrigðum, en gáfu
hinu unga vonsvikna veiðimanni
síðan gott og verðskuldað klapp.
Hann hafði staðið sig vel og tárað-
ist ekki einu sinni þó bræður hans
og faðir gerðu svo fyrir hans hönd.
Fyrsti laxinn. Fyrsti flugulaxinn.
Þó þetta endaði svona að þessu
sinni má segja að hinn ungi maður
hafi einungis tapað orrustu, en
ekki stríði. Hann veiddi sinn
fyrsta lax seinna um daginn, smá-
lax að vísu. Og að vísu á maðk. En
það skipti ekki öllu máli. Hann gat
ekki beitt vinstri handlegg sínum
þrjá næstu dagana vegna verkja
og það varð að gefa honum verkja-
töflur svo hann gæti sofið.
En viku síðar var hann alheill
og hann fékk að fara með í Leir-
vogsá. Þar veiddi hann sinn fyrsta
flugulax, 4 punda silfraðan hæng í
Efri-Skrautá. Flugan var Alex-
andra, stórt númer. Hana hafði
hann hnýtt sjálfur. __
Styrkið og fegrið líkamann
Síðasta námskeið fyrir sumarfrí
Ný 2ja vikna námskeið hefjast 6. júní.
Leikfimi fyrir konur á öllum aldri.
Hressandi — mýkjandi — styrkjandi — ásamt megrandi æfingum. Sértím-
ar fyrir konur sem vilja léttast um 15 kg eda meira. Sértímar fyrir eldri
dömur og þær sem eru slæmar í baki eda þjást af vödvabólgum. Vigtun
mæling — sturtur — gufuböd — kaffi og hinir vinsælu sólaríumlampar.
Innritun og upplýsingar alla virka daga
frá kl. 13—22 í síma 83295.
Júdódeild Ármanns
Ármúla 32.
Knattspyrnuskóli Vals
Knattspyrnuskóli Vals hefst mánudaginn 30. maí og
stendur til 30. ágúst. Haldin verða 12 tveggja vikna
námskeið og verða tvö námskeið í gangi í einu.
Þátttaka tilkynnist í síma 11134 eða á félagssvæöi Vals
aö Hlíðarenda við Laufásveg.
Knattspyrnudeild Vals.
ÓDí'RAR
FŒREYJAFERÐIR
MEÐ
FIDGLEIÐUM!
Átján eyjar og hundrað þorp
Öllum íslendingum, sem hala heimsótt Fœreyjar. ber
saman um að þangað sé gaman að koma. Landslagið
er ekki afskaplega ólíkt því íslenska. Aðaleyjamar 18
eru grasi vaxnar frá fjöruborði upp í fjallstinda. en d
eyjunum eru 100 þorp og bœir. Fœreyingar eru
ákaflega gestrisnir og því góðir heim að sœkja. Þeir
halda fast i ýmsa gamla og góða siði, dansa og syngja
upp á gamla mátann, klœðast þjóðbúningi til hátíðar-
brigða og stunda kappróðra.
Sérstakt íerðatilboð
í tilefni opnunar Norrœna hússins í Fœreyjum bjóða
Flugleiðir sérstakt verð á Fœreyja-ferðum. Miðað er við
4ra daga dvöl í Fœreyjum með brottíör írá Reykjavík.
Verð kr. 6.680.-. en þá er miðað við flugferðir. gistingu
i 3 nœtur á hinu nýja vistlega Hotel Foroyar í 2ja manna
herbergi og morgunverð. Flugvallaskattur er innifalinn
en ekki ferð írá ílugvelli til Þórshafnar. Þetta tilboð
stendur til 15. júlí n.k.
FaBreyjaferð er ódýi og einiöld fyiii alla, - og ekU
veldur tungumálið eiHðleikum!
Upplýsingar um Fœreyjalerðir Flugleiða fást hjá Q
söluskrifstofum og umboðsmönnum Flugleiða og einnig >
hjá ferðaskriístofunum.
FLUGLEIÐIR /BT
Gott tólk hjé traustu télagi M