Morgunblaðið - 29.05.1983, Page 6
. . . verdur sýnd á næstunni. . .
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. MAÍ 1983
„Ég myndi aldrei mæla með aö fólk færi meö börnin sín í myndina," sagði Parton og stendur ekki
alveg á sama um berbrjósta kvenfólkið í myndinni.
Besta litla
hóruhúsið
í Texas
Dolly Parton „mellumamma" í myndinni „Besta litla hóruhúsiö í Texas“.
Hún er ein frægasta dreifbýlissöngkona Bandaríkjanna.
Besta litla hóruhúsið í Texas, er
heitið á kvikmynd sem væntanleg
er í Laugarásbíó á næstunni. Par
fara með aðalhlutverk söngkonan
Dolly Parton og hjartaknúsarinn
Burt Reynolds. Myndin segir frá
mellumömmu (Parton) og lög-
reglustjóra (Reynolds), ástarævin-
týrum þeirra, afskiptum lögregl-
unnar af hóruhúsinu og sjón-
varpsfréttamanns (DeLuise), sem
staðráðinn er í að stinga á kýli
siðspillingarinnar hvar sem hann
nær í það.
— Dolly ekki
skemmt —
Það er kannski best að segja það
strax að Dolly Parton er ekki alls-
kostar hrifin af myndinni. Henni
finnst að framleiðendurnir hafi
svikið sig. Þeir lofuðu henni nefni-
lega að þeir myndu gæta alls vel-
sæmis við gerð hennar og forðast að
hafa í henni nektaratriði (sem ef-
laust er auðvelt að svíkja því mynd-
in gerist öll í hóruhúsi). Dolly sá
berbrjósta kvenfólk, og karlmenn
eflaust líka, í myndinni þegar hún
var frumsýnd, og hún fór hjá sér.
„Mér stóð ekki alveg á sama,“
segir hún. „Ég myndi aldrei mæla
með því að fólk færi með börnin sín
að sjá hana. Þetta er ekki beint
fyrir alla fjölskylduna. Ég er í öng-
um mínum út af þessu."
Ein af ástæðum þess að Dolly
Parton féllst á að leika í myndinni
var sú að framleiðendurnir höfðu
lofað henni að nakið kvenfólk sæist
ekki í henni. Hún sýndi fjölskyldu
sinni handritið og þeim fannst það
fyndið. Afi hennar, prestur, sagði
við hana, „ef þér finnst þetta vera í
lagi, og Herrann getur fyrirgefið
þér, get ég það iíka.“
— Reynolds hótar
að kýla —
Herrann hefur eflaust fyrir löngu
síðan fyrirgefið Dolly Parton, en
I^arry King, handritahöfundurinn
að Broadway-söngleiknum, sem
myndin er gerð eftir, hefur ekki
fyrirgefið framleiðendunum hvern-
ig þeir hafa farið með handritið
hans.
Að auki reyndist honum erfitt að
sjá Burt Reynolds fyrir sér leika
sjötugan karlskarf, eins og lög-
reglustjórinn í upprunalega hand-
ritinu á að vera. Við því sagði Reyn-
olds: „Ég get bara ekki séð fyrir mér
sjötugan kall gera hosur sínar
grænar fyrir Dolly Parton."
Larry King hótaði að fella niður
hlutverk Reynolds og Reynolds
bauð honum upp á hótel til sín, í
svítu sína þar, og sagði við hann, í
fjarveru öryggisvarðar, að hann
myndi „kýla King svo fast að for-
eldrar hans dæju“.
Á meðan á töku myndarinnar
stóð veiktist Dolly og var flutt á
spítaia, og hún segir nú, að hún geti
ekki átt börn. Gróusöguvertíðin
blómstraði á meðan á tökum stóð.
Reynolds á að hafa lent í slagsmál-
um við framleiðendurna og Dolly og
Reynolds áttu að hafa átt í pínulitlu
ástarævintýri.
„Fáránlegt", segir Burt.
„Ekki rétt,“ segir Dolly og bætir
við, „Burt gæti höfðað til mín ef ég
væri í karlmannsleit. Ég er viss um
að ef ég sæi Burt í því ljósi, væri
hann mjög kynæsandi." Þar sem
hún er gift er hún ánægð með að
hafa aðeins samskipti við Burt á
viðskiptasviðinu. Hún er viss um að
þeu eigi eftir að gera aðra kvik-
mynd.
— Fjölskyldan —
Eiginmaður Parton, Carl Dean er
líka óhress með „nektarsenurnar" í
myndinni. Dean er hægláti félaginn
hennar Dollyar. Það er engin þekkt
mynd til af þeim saman og hún er
ekkert að halda honum í sviðsljós-
inu. Hann einn sér hana án farðans
og hárkollunnar.
„Við hittumst þegar ég var 18 ára
og hann 22. Við vorum svo sannar-
lega ástfangin hvort af öðru þegar
við giftumst. Hann var fyrsti mað-
urinn minn og ég var fyrsta konan
hans. Við vorum svo mikið saman
að við urðum bæði sjálfstæð. Núna
höfum við enga þörf fyrir að núa
sagði um hana: „Hún á eftir að
verða stærsta stjarna níunda ára-
tugarins.“ Eftir að hafa unnið með
henni við gerð myndarinnar „The
Best Little Whorehouse in Texas“,
sagði Burt Reynolds: „Hún er all-
sérstakur persónuleiki."
Dolly Parton hefur við ýmis tæki-
færi verið líkt við Mae West, og hún
viðurkennir að margt sé líkt með
þeim. Hún veit um veikleika sinn
(matur og aftur matur) og hún veit
hvar hún er sterk fyrir (hæfileikar
og kraftur). Frægðin hefur líka sín-
ar slæmu hliðar fyrir fjölskyldu
hennar. Bæði móður hennar óg föð-
ur hefur verið hótað öllu illu og
brotist hefur verið inn á heimili
þeirra. Og ef bræðrum hennar og
systrum gengur ekki allt í haginn, á
fólk það til að segja: „Hvað ertu að
gera í þessari vinnu þar sem Dolly
Parton er systir þín?“ Stella s.vstir
hennar sá sig nýlega knúna til að
kaupa lúxusrútu þó hún hafi ekki
haft nokkur efni á því, til að hafa
áhorfendur sína ánægða í söng-
ferðalögum sínum. „Eg get ekki
lengur látið sjá mig í bíl, vegna þess
að þá segir fólk, „Vá, þarna er systir
Dolly Partons, hvílíkur auli.“
Dolly hefur ekki áhyggur af því
að geta ekki átt börn. „Þar sem ég
var ein af tólf systkinum, ég ól upp
fjögur þeirra, finnst mér ég þegar
hafa átt börn. Og góðir foreldrar
eru ekki á hverju strái. Að ala upp
börn er mikið starf. Ef ég ætti börn,
þyrfti ég að fórna öllu öðru fyrir
þau, eða ég þyrfti að draga þau með
mér um landið. Það hefði aldrei
gengið. Ég kann líka ágætlega við
að skemmta annarra manna börn-
um.“
Dolly er 37 ára gömul og 151 á
hæð. Og hún er glysgjörn í meira
lagi. Um það sagði hún í sjón-
varpsviðtali við Barböru Walters.
„Þannig kýs ég að koma fram. Ég
vil aldrei leggjast svo lágt að klæða
mig eftir tískustefnum, því það er
það ömurlegasta í heimi. Og ég veit
að þegar fólk hefur náð sér eftir að
hafa séð mig í fyrsta skipti er útlit-
ið einn hluti af mér sem það vill
varðveita."
— ai.
Burt Reynolds tekui
Má vera að aðdáendum hans hafi eitthvað fækkað við það.
saman nefjum í 24 tíma sólar-
hrings," segir Dolly Parton.
Fjölskylda hennar er af stærri
gerðinni. Hún á fimm systur og sex
bræður. Stóru brjóstin hefur hún úr
föðurættinni. Og systur hennar eru
líka talsvert í sviðsljósinu. Rachel
leikur í sjónvarpsþáttunum Nine to
Five, Freda syngur og Stella einnig.
Þær eru hver annari fallegri.
Dolly Parton kemur frá smábæ í
Smokey-fjöllum og er lifandi dæmi
um fátæku stúlkuna, sem vann sig
til frægðar upp á eigin spýtur og
fyrir eigin verðleika. Ameríski
draumurinn. Hún er fædd 1946,
kalda janúarnótt, númer fjögur í
röðinni af tólf systkinum. Faðirinn
var skosk-írskur og móðirin hafði í
sér Cherokee-indíánablóð. Stúlkan
ólst upp í Locust Ridge og Little
Pidgeon River í Smokey-fjöllum.
Fólk þar vann mikla erfiðisvinnu til
að draga fram lífið, landnæði var
lítið, andi púrítana sveif yfir vötn-
unum og fjölskyldur voru sam-
heldnar. Og það var sungið. Dolly
Parton lék bæði á mandólín og gítar
frá því hún var átta ára og ári
seinna söng hún í útvarpsstöð
heima í héraði dreifbýlislög í þætt-
inum „Farmer and Home Hour".
— Út í kvikmyndir —
Eins og við mátti búast lá leið
hennar til Nashville og þar var
henni afarvel tekið. Dreifbýlistón-
listin er séramerískt fyrirbrigði og
Dolly söng hana frá hjartanu og
stjarna hennar reis stöðugt.
Svo fór hún út í kvikmyndirnar.
Jane Fonda bauð henni hlutverk í
myndinni Nine to Five og þar lék
hún eitt aðalhlutverkið. Fonda