Morgunblaðið - 29.05.1983, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. MAÍ 1983
57
KGB reynir að einangra fjölskyldur pólitískra fanga og
þeirra, sem varpað hefur verið í fangelsi fyrir trúna, og
varar nágranna þeirra og kunningja við að umgangast
„óvini ríkisins“ — OFSÓKNIR
Viökoman er vægast
sagt voðaleg
Múhameð og kona hans búa í
gltesilegu einbýlishúsi, eiga
stóran bfl og eru mjög hreykin af
nýja litasjónvarpinu sínu. Þau eiga
tvö böm.
Hassanin og kona hans búa í fá-
tækrahverfi, fara ferða sinna með
strætisvagni og þeirra jarðnesku
eigur eru nokkur eldhúsáhöld og
ábreiðurnar, sem þau hafa undir
sér á nóttunni. Þau eiga sex börn
og það sjöunda á leiðinni.
Þessar fjölskyldur fara með að-
alhlutverkin i sjónvarpsþætti, sem
ætlað er að draga úr áhuga Eg-
ypta á barneignum, en þar í landi
er fólksfjölgunin nú sú mesta sem
þekkist. Hún hefur að vísu minnk-
að aðeins á síðustu tveimur árum,
en þrátt fyrir það munu Egyptar,
sem eru nú 45 milljónir talsins,
verða orðnir yfir 70 milljónir um
aldamótin ef ekki tekst að fá fólk
eins og þau Hassanin-hjónin til að
skilja, að þeim mun færri börn,
þeim mun betur muni þeim vegna.
Egypskur almúgi á fátt sameig-
inlegt með þeim Múhameð og
konu hans. Fimm börn eru þar
venjan og inni í landinu og í þorp-
unum þar sem litið er á börnin,
sem fjárhagslegan ávinning í
framtíðinni er meðalfjölskyldan
níu manns. Sérfræðingar, bæði á
Vesturlöndum og í Egyptalandi,
segja fólksfjölgunina „mannlega
tímasprengju", sem ógni efna-
hagslegum framförum í þessu
landi, sem berst harðri baráttu
fyrir bættum kjörum þegnanna,
reynir að verða sjálfu sér nógt um
matvæli og að útrýma landlægu
ólæsi meðal fólksins. Á hverjum
mánuði bætast við 100.000 munn-
ar, sem þarf að metta, og þar sem
60% landsmanna eru undir tví-
tugu, gefur augaleið að fólki á
barneignaaldri fer stórfjölgandi.
Þessi mannfjöldasprenging er
hvergi augljósari en í Kairó þar
sem 14 milljónir manna búa í
borg, sem byggð var fyrir sjöttung
þess fjölda, rúmar tvær milljónir.
í Kairó er að sjálfsögðu gífurlegur
húsnæðisskortur og húsaleigan
eftir því, og þess vegna hefur fólk
jafnvel sest að í Borg hinna dauðu,
gömlum grafhvarflingum sem
Mamelúkarnir byggðu fyrir 500
árum.
Fólksfjölgunarsprengingin í Eg-
yptalandi hófst á fimmta áratugn-
um og stafaði af bættri heilsu-
gæslu í landinu, sem aftur olli
minni barnadauða og hærri með-
alaldri almennt. Árið 1979 var
fólksfjölgunin 40 fæðingar á
hverju 1.000 íbúa, en í fyrra 34,9.
Þessi lækkun er ekki rakin til að-
gerða stjórnvalda heldur fyrst og
fremst talið, að hún endurspegli
erfiðleikana, sem Egyptar eiga nú
við að stríða.
— LIZ THURGOOD
i— S JÚKDÓMAB^—
Er lyfið loks-
ins fundiÖ við
holdsveikinni?
Um þessar mundir er verið að
fullprófa í Noregi og Ind-
landi fyrsta bóluefnið gegn holds-
veiki og innan skamms verða einn-
ig gerðar tilraunir með það í Bret-
landi og Bandaríkjunum. Miklar
vonir eru bundnar við þetta bólu-
efni, enda hefur það valdið stór-
kostlegum bata hjá 300 sjúkling-
um í Venezuela, sem voru að-
framkomnir af sjúkdómnum.
Þessar tilraunir með bóluefnið
á fólki, sem brátt verða auknar
verulega, fara fram á vegum al-
þjóðaheilbrigðismálastofnunar-
innar i Genf, en talsmenn henn-
ar telja, að enn kunni að líða
nokkur ár þar til mönnum verða
fullljós öll áhrif þessa nýja lyfs.
Þrátt fyrir það eru vísindamenn
nú þegar í sjöunda himni yfir
möguleikum lyfsins og sjá fyrir
sér í anda fullkominn sigur á
þessum ægilega sjúkdómi.
Nýja lyfið kemur á réttum
tíma. í skýrslu, sem birt hefur
verið í Genf, segir, að þær „að-
ferðir, sem beitt hefur verið
gegn holdsveikinni sl. 30 ár, eru
líklega orðnar gagnslausar með
öllu“, vegna þess, að bakterían
hefur öðlast ónæmi fyrir hinu
ódýra og algenga lyfi, „dapsone".
Slíks ónæmis hefur orðið vart í
25 löndum og þótt halda megi
sjúkdómnum í skefjum með
mörgum lyfjum samtímis er það
allltof kostnaðarsamt fyrir þau
lönd í Afríku, Asíu og Suður-
Ameríku, þar sem langflestir
hinna 15 milljóna holdsveiki-
sjúklinga búa.
Tilraunir, sem nú fara fram,
koma í kjölfar læknisfræðilegra
uppgötvana i Indlandi, Kanada
og Bretlandi. Við gerð indverska
lyfsins voru notaðar sýktar
frumur úr opnum sárum á langt
leiddum holdsveikisjúklingum
og nú þegar hafa farið fram all-
miklar tilraunir með það. 1
Bombay voru 75 sjúklingar
sprautaðir með lyfinu, og dró
það úr sjúkdómnum hjá 90%
þeirra.
Dr. Jacinto Convit, vísinda-
maður á vergum WHO, Alþjóða-
heilbrigðismálastofnunarinnar,
sem sá um tilraunirnar í Vene-
zúela, segir frá „stórkostlegum"
bata hjá sjúklingum, jafnvel hjá
þeim, sem verst voru farnir.
Greinilegt þótti, að lyfið hafði
endurvakið ónæmiskraft líkam-
ans, sem holdsveikin var að
mestu búin að eyðileggja.
Tilraunirnar, sem nú fara
fram í Noregi, og þær, sem brátt
verða gerðar í Bretlandi og
Bandaríkjunum, eru í því fólgn-
ar, að heilbrigðir karlmenn eru
smitaðir með holdsveiki. Ástæð-
an fyrir því að þessar tilraunir
eru gerðar á norðurhveli jarðar
er sú, að þar hefur holdsveikinni
verið útrýmt og þess vegna eru
niðurstöðurnar áreiðanlegri en á
þeim slóðum þar sem holdsveik-
in er landlæg fyrir. Ekki er
neinn skortur á sjálfboðaliðum í
þessar tilraunir.
— Thomas Land.
heldur aldrei farið dult með van-
þóknun sína á sjóðnum. Tveir
starfsmanna hans voru neyddir til
að fara úr landi, sá þriðji var rek-
inn í útlegð og sá fjórði dæmdur í
átta ára fangelsisvist.
Smám saman hefur verið þrengt
að þeim, sem tengjast sjóðnum.
Símarnir hafa verið teknir úr
sambandi og við svokallaða hús-
rannsókn hefur lögreglan lagt
hald á fatnað fólksins, mat og pen-
inga. Nú upp á síðkastið hefur yf-
irvöldunum tekist að fá tvo fyrr-
um andófsmenn til að fordæma
Solzhenitsyn-sjóðinn en flestum
finnst það harla lítill sigur fyrir
stjórnarherrana miðað við að-
stæður og þær aðferðir, sem þeir
beita.
Þessir tveir menn eru Alexand-
er Bolonkin og Valery Repin. Bol-
onkin hafði verið í vinnubúðum og
útlegð innanlands í heilan áratug
og þegar honum var hótað sex ár-
um í viðbót af því sama þá gafst
hann upp. Repin, fulltrúi Solzhen-
itsyns-sjóðsins í Leningrad, hafði
verið í fangelsi í 15 mánuði áður
en hann kom fram í sjónvarpinu
til að „iðrast" gerða sinna.
Nú þegar forstöðumaður Sol-
zhenitsyns-sjóðsins hefur verið
handtekinn gera sovésk stjórnvöld
sér góðar vonir um að hafa gert að
engu það hjálparstarf, sem unnið
hefur verið fyrir pólitíska fanga í
landinu.
— BOIIDAN NAHAYLO
— VMIIGJAFAR
Svisslend-
ingum er hætt
að lítast
á blikuna
Eiturlyfjaneyzla er orðin stór-
fellt vandamál í Ziirich, sem er
stærsta borgin í Sviss. Þar hafa að
jafnaði látizt þrír menn á viku hverri
vegna ofneyzlu eiturlyfja. Hér er
einkum um ungt fólk að ræða. Lík
þeirra hafa fundizt á almenningssal-
ernum, bekkjum í skrúðgörðum og á
fálornum stígum. Þessir atburðir
hafa valdið borgaryfirvöldum miklu
hugarangri, en þau hafa jafnan stært
sig af því, hversu reglusamir borg-
arbúar séu og vandir að virðingu
sinni.
Fíkniefnaneyzla hefur breiðzt
út um Sviss eins og logi yfir akur,
einkum meðal æskufólks, að því er
segir í nýútkominni opinberri
skýrslu. Þar segir einnig, að mikið
áhyggjuefni sé, hversu mjög fær-
ist í vöxt áfengisneyzla ungs fólks
og tóbaksreykingar. t skýrslunni
er fullyrt að þessi „löglegu" fíkni-
efni valdi meira heilsutjóni en
þau, sem bönnuð eru með lögum.
Vitað er um 100 þúsund áfeng-
issjúklinga í borginni, og fjöldi
þeirra er 10 sinnum meiri en
hinna, sem-eru forfallnir neytend-
ur annarra vímugjafa.
Á árunum 1975—82 jókst tala
látinna eiturlyfjasjúklinga úr 35 í
109 á ári. Talið er, að enn fleiri
muni látast á þessu ári.
Árið 1975 voru 4.244 menn
dæmdir fyrir neyzlu fíkniefna, en
á síðasta ári hlutu 7.676 dóm fyrir
sömu sakir. Á þessu tímabili fjölg-
aði til muna þjófnaði á lyfjum og
fíkniefnum frá læknum og lyfsöl-
um. Árið 1975 var vitað um 33
slíka þjófnaði, en á síðasta ári
voru þeir 436.
í skýrslunni er kveðið svo að
orði, að albr fikniefnasjúklingar
eigi rétt á að fá nauðsynlega með-
höndlun, hvort sem þeir neyta
sterkra fíkniefna eða veikra.
Höfundar skýrslunnar segja, að
verði fólk háð venjulegum sígar-
ettum geti það leiðzt út í neyzlu
veikra vímugjafa, eins og marihu-
ana og því næst fallið fyrir sterk-
um eiturlyfjum á borð við heróín.
Þá segja höfundar að líta beri á
neyzlu fíkniefna sem sjúkdóm — í
hvaða formi sem hún birtist; og að
gagnráðstafanir eigi að beinast að
meðferð og endurhæfingu, sem sé
affarasælla en fjársektir eða fang-
elsanir.
— NORRIS WILLATT
‘ctL ÍM/Lbaiií
MMfDÖK!
IHE'RIfE'NDUMII
|GIÍÍMíE2
AMERÍKA
PORTSMOUTH/
NORFOLK
City of Hartlepool 1. júní
Bakkafoss 10. júní
City of Hartlepool 21. júni
Bakkafoss 1. júli
NEWYORK
City of Hartlepool 31. mai
Bakkafoss 9. júni
City of Hartlepool 20. júni
Bakkafoss 30. júni
HALIFAX
City of Hartlepool 3. júni
City of Hartlepool 23. júni
BRETLAND/
I MEGINLAND
IMMINGHAM
Álafoss 29. mai
Eyrarfoss 5. júni
Álafoss 12. júni
Eyrarfoss 19. júni
FELIXSTOWE
Álafoss 30. mai
Eyrarfoss 6. júni
Álafoss 13. júni
Eyrarfoss 20. júni
ANTWERPEN
Alafoss 31. mai
Eyrarfoss 7. júní
Álafoss 14. júní
Álafoss 21. júni
ROTTERDAM
Álafoss 1. júní
Eyrarfoss 7. júní
Alafoss 14. júní
Eyrarfoss 22. júni
HAMBORG
Álafoss 2. júní
Eyrarfoss 9. júní
Álafoss 16. júní
Eyrarfoss 23. júni
WESTON POINT
Helgey 8. júni
Helgey 21. júní
PORTÚGAL/
SPÁNN
LISSABON
I Múlafoss 9. júni
Skeiósfoss 14. júli
LEIXOES
Múlafoss 10. júni
Skeiösfoss 15. júli^
BILBAO
1 Múlafoss 7. júni
Skeiösfoss 17. júli
NORÐURLOND/
I EYSTRASALT
BERGEN
Dettifoss 27. maí
Mánafoss 3. júni
l Dettifoss 10. júni
Mánafoss 17. júní
KRISTIANSAND
Dettifoss 30. mai
Mánafoss 6. júni
Dettifoss 13. júni
Mánafoss 20. júni
MOSS
Dettifoss 27. mai
Mánafoss 3. júni
Dettifoss 10. júní
Mánafoss 17. júni
HORSENS
Dettifoss 1. júni
| Dettifoss 15. júní
GAUTABORG
Dettifoss 1. júni
Mánafoss 8. júni
Dettifoss 15. júní
Mánafoss 22. júni
KAUPMANNAHÓFN
Dettifoss 2. júni
Mánafoss 9. júni
Dettifoss 16. júní
Mánafoss 23. júni
HELSINGBORG
Dettifoss 3. júni
Mánafoss 10. júni
Dettifoss 17. júni
Mánafoss 24. júní
HELSINKI
Irafoss 15. júni
irafoss 4. júli
GDYNIA
Irafoss 18. júni
Irafoss 6. júli
TORSHAVN
Deftifoss 25. júni
& VIKULEGAR
STRANDSIGLINGAR
Ylram ogtilbaka
frá REYKJAVÍK
; alla mánudaga
frá ÍSAFIRÐI
alla þriöjudaga
frá AKUREYRI
alla-fimmtudaga
EIMSKIP