Morgunblaðið - 29.05.1983, Síða 10
58
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. MAÍ 1983
Heimsókn til Jóns og Friðrikku Kristinsson í Deventer
Einangruð gólf, verksmiójuframleidd, einangraðir koddar og forspennu bit-
ar.
Einangrun á grunni.
Upphitunarlaus
hús — skyldi það
vera framtíðin?
Upphitunarlaus hús í hefðbundn-
um skilningi — þetta hljómar heldur
ævintýralega. Samt eru slík hús að
rísa hvert af öðru í Hollandi, teiknuð
og hönnuð af arkitektaskrifstofu
Jóns Kristinssonar og Frederiku
konu hans. í Schiedam eru um eitt
hundrað slík hús í byggingu og þann
14. apríl sl. var stór og mikil sýning f
Rotterdam, þar sem formleg kynn-
ing fór fram á þessum nýstárlegu
húsum.
Til þessa skiptir einangrun hús-
anna vitanlega meginmáli, en sól-
arorka er nýtt á þann hátt að
henni er safnað í varmageymslur
undir húsunum og í ljós hefur
komið að þannig er unnt að varð-
veita milli 55—75 prósent orkunn-
ar til skammdegis og kulda.
Gluggahlerar eru sérstaklega ein-
angraðir og ofn í stofu brennir
pappír. Til nánari útskýringa skal
á það bent að jafnvægisloftræsti-
útbúnaður með varmahjóli er
hannaður til endurvinnslu á raka.
Einangraðir gluggahlerar geta
verið lokaðir utan vinnutíma 3A
vetrarmánaða og speglaðar þak-
rennur, hálfparabólískar hafa sól-
arsafnara í brennipúnkti. Lágt
hitastig með gólfhitalögn eykur
gjörnýtingu varmans. Almenn
dagsbirta kemur inn með þak-
gluggunum með fótósjálfstýrðri
raflýsingu — en þakljos hafa allt
að 5 xk. sinnum meira ljósvarp en
gaflgluggi. Jón bætir við að hita-
þörf húsa í Hollandi séu um
hundrað þúsund megajól og vel
það. Þessa hitaþörf megi minnka
um allt að 90 prósent, með ein-
angrun á þaki, veggjum og jarð-
gólfi, svo og með því að einangra
sökkul algerlega frá jarðvegi. Þar
með fáist nefnd jafnvægisloft-
ræsting með endurvinnslu á
varma.
Teiknistofan tók þátt í sam-
keppni um ráðhús fyrir nokkrum
árum, sem vakti fyrst verulega at-
hygli á þeim nýju brautum, sem
var verið að fara inn á. Að vísu
vannst ekki til verðlauna en til-
Friðrikka Kristinsson
raunin vakti mikla athygli og eftir
það aflaði stofan sér heimspatents
á orkulausu húsunum, og hefur
síðan stöðugt unnið að því að þróa
þær og útfæra.
Jón Kristinsson lauk stúdents-
prófi við MR 1956 og hélt síðan til
náms í arkitektúr í Hollandi, eink-
um vegna áhuga á því sem hann
hafði séð af verkum arkitektanna
van den Broek og Bakema. Hann
segir að Hollendingar hafi á þeim
tíma sem hann kom tekið útlend-
ingum ákaflega vel, geri reyndar
enn, þó kannski sé orðinn blæ-
brigðamunur á hin síðari ár og
ráði þar vísast erfiðari atvinnu-
horfur. Þegar Jón kom til náms í
Hollandi var aðeins einn Islend-
ingur annar búsettur þar, nú er
aftur drjúgur hópur og hefur
myndað með sér Islendingafélag
og gefur út blað með ýmsum frétt-
um og greinum sem gætu verið
landanum fróðleikur. Núverandi
formaður félagsins er Jón Krist-
Jón Kristinsson
insson. Þorrablót var haldið í
febrúar sl. í Amsterdam og var
það ljómandi vel sótt.
Samtímis því að Jón var að
koma stofunni sinni á laggirnar
kenndi hann byggingareðlisfræði
við háskólann í Delft í ein tíu ár.
Meðan hann var í námi kynntist
hann svo Friðrikku sem var við
nám í verkfræði og þau giftu sig
1965 og síðan hafa bætzt í búið hjá
þeim fjögur börn. Þau hafa nú
fyrir æði löngu hreiðrað um sig í
bænum Deventer í austurhluta
Hollands, keyptu tvö sambyggð
hús og breyttu þeim á alla enda og
kanta og er teiknistofan í örðu en
fjölskyldan býr í hinu. Hátt í 20
manns vinna á stofunni, sem er að
fróðra manna sögn ein hin þekkt-
asta í Hollandi og hefur aldrei
orðið að draga saman seglin þegar
erfiðleikar steðjuðu að fyrir
nokkrum árum, m.a. vegna eld-
sneytishækkana og tilfallandi
kreppu í kjölfar þeirra. Um tíma
SKUFFUBILAR
með dísilvél óskast.
Fyrirtæki óskar eftir Pick-Up dísilbílum meö buröargetu
ca. 1,5 tonn.
Aöal Bílasalan,
Skúlagötu, sími 15014.
Aðalfundur
Samtaka psoriasis- og exemsjúklinga veröur haldinn
þriöjudaginn 31. maí kl. 20.30 aö Hótel
Heklu.
Fundarefni: Venjuleg aöalfundarstörf.
Stjórnin.
Kosningar
í Japan
Tókýó, 28. m»í. AP.
KOSNINGAR verða í Japan 26. júní
nk., í fyrsta sinn síðan Yasuhiro
Nakasone forsætisráðherra tók við
embætti í nóvember sl. Kosið verður
um helming sæta í efri deild jap-
anska þingsins.
Flokkur Nakasones, Frjálslyndi
demókrataflokkurinn, hefur farið
með völd í Japan síðan 1955 og
hefur meirihluta í báðum deildum
þingsins. Meirihlutinn er ekki í
hættu þótt flokknum vegni illa, en
úrslitin eru talin munu geta ráðið
því hvenær Nakasone lætur kjósa
til neðri deildarinnar, sem er öllu
mikilvægari.
Áskriftarsimirm er 83033
jŒZBCJLLeCCQkÓLI BÓPU
. /m Jazzballettskóli
ZjPVBáru
fV. A Suðurveri
\ uppi
Nemendasýningin er
í dag að Hótel Sögu
Allir velkomnir meöan húsrúm leyfir. Aðgangseyrir
kr. 75 greiöist viö inngang. Veitingar innifaldar.