Morgunblaðið - 29.05.1983, Síða 14
62
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. MAÍ 1983
Rýmingarsala
í skófatnaði
hefst mánudaginn 30. maí.
Skóverslun Þóröar Péturssonar
Kirkjustræti 8 (sími 14181).
T .F.1T.A
HÚS
Við viljmn ^ ' vekja athygli
leigjenda og leigusala á því,
að Félagsmálaráðuneytið
gefur út eyðublað fyrir
leigusamninga um íbúðarhúsnæði.
Notkun þess tryggir réttindi
beggja aðila.
HÚSEIGENDASAMBAND
I'SIANDS
Leigjendasamtökin
Hið löggilta eyðublað fyrir leigusamninga
um íbúðarhúsnæði fæst án endurgjalds
hjá bæjar- og sveitarstjórnum
og á skrifstofum okkar.
Önnur samningseyðublöð
eru ekki gild.
DoG Húsnædisstofnun ríkisins
jMtogmilrlitfttfr
Metsölublad á hverjum degi!
MorgunblaAiA/Ófeigvr Gestsson.
Jón Bjarnason skólastjóri og nemendur, sem útskrifuóust frá Hólaskóla.
Hólaskóla slitið
Hólar í Hjaludal.
14. MAÍ er nú ákveðinn sem upp-
sagnardagur Hólaskóla ár hvert og
fer vel á því aó afmælisdagur skól-
ans sé heiðraður á þann veg.
Það var fullsetin dómkirkja að
Hólum, þar sem dómkirkjuprestur
Sighvatur Emilsson prédikaði.
Fjöldi unnenda Hóla var þar, og
þar á meðal landbúnaðarráðherra,
Pálmi Jónsson, búnaðarmálastjóri
Jónas Jónsson, Gísli Pálsson á
Hofi, sem allir fluttu ávörp, auk
Jóns Bjarnasonar skólastjóra sem
talaði af alvöru og hlýhug til nem-
enda sem nú yfirgáfu skólann og
væntanlega takast nú á við lífstíð-
ar verkefni, en hafa þó alltaf Hóla
i huga sem bjarta og hugljúfa
minningu.
Þetta er annað ár skólastjóra og
konu hans á Hólum, og eru þau
ánægð með kynni af staðnum og
ekki síður af starfsfólki og nem- ,
endum. Þetta eru allt sannir og
góðir íslendingar, sagði skóla-
stjóri. Yngri deild skólans er nú í
verkefni á ýmsum stöðum norðan-
lands, en útskrifaðir voru 12 bú-
fræðingar og hlutu 8 af þeim
fyrstu einkunn.
María Anna Claesen hlaut ein-
kunnina 8,2 og yfirleitt var náms-
árangur jafn. Mörg af þeim hlutu
verðlaun fyrir námsafrek en Erna
Bjarnadóttir hlaut sérstaka viður-
kenningu fyrir góðan árangur.
Gjafir voru skólanum færðar og
þar á meðal stór veggskjöldur þar
sem færð eru nöfn þeirra nemenda
Hóla er gáfu hina veglegu sund-
laug sem skólinn á nú og mikið er
Pálmi Jónsson ráðherra flytur ræðu.
notuð. Verður þessi skjöldur sett-
ur á vegg nálægt lauginni.
Búskapur á Hólum gengur vel
og frjósemi búfjár er ágæt.
Þó að kyrrt væri í Hjaltadal og
aðeins sé að koma litur á túnin, þá
var kulda belgingur er utar kom í
héraðið og túngirðingar sums
staðar á kafi í Fljótum.
Björn í Bæ.
Fréttatilkynning frá EM-nefnd:
Urtakan haldin á Hellu um miðjan júlí
Á FUNDI hjá framkvæmdanefnd um
EM-þátttöku fslands var eftirfarandi
ákveðið: Úrtaka fyrir Evrópumótið
sem haldið verður í Nettersheim
Roderath í Þýskalandi 2., 3. og 4.
september nk. verður haldin dagana
14.—15. júlí nk. Skráningar til úrtök-
unnar þurfa að hafa borist skrifstofu
LH fyrir 1. júlí. Skráning er ekki tek-
in til greina nema með fylgi skrán-
ingargjald sem er krónur 1500 fyrir
fyrsta hest og 1000 krónur á næstu.
Ákveðið hefur verið að veita
flutnings- og uppihaldsstyrk öllum
þeim sem hyggja á þátttöku og eru
búsettir norðan Holtavörðuheiðar
og austan Mýrdalssands. Rétt til
þátttöku hafa allir þeir sem búið
hafa hérlendis í samfleytt eitt ár
eða lengur fyrir úrtöku.
Tvöföld umferð verður í úrtök-
unni og ræður samanlagður árang-
ur báða dagana úrslitum.
Sjö hestar verða valdir til utan-
farar og verður eftirfarandi lykill
notaður við val þeirra:
1. hestur. Stigahæsti hestur úr
samanlögðum eftirtöldum grein-
um: Tölti, fimmgangi, hlýðniæf-
ingum og 250 m skeiði eða gæð-
ingaskeiði.
2. hestur. Stigahæsti hestur úr
samanlögðum eftirtöldum grein-
um: Tölti, fjórgangi, hlýðniæf-
ingum og víðavangshlaupi.
3. hestur. Stigahæsti hestur úr
tölti og fimmgangi.
4. hestur. Stigahæsti hestur úr
tölti og fjórgangi.
5. hestur. Valin af hæsta stiga-
hlutfalli úr eftirtöldum grein-
um: Tölti, fjórgangi, eða fimm-
gangi.
6. hestur. Stigahæsti hestur úr
fimmgangi og skeiði eða gæð-
ingaskeiði.
7. hestur. Skeiðhestur sem náð
hefur að skeiða á þessu ári 250
metra vegalengd á 23,5 sekúnd-
um eða skemmri tíma. Einnig
þarf hann að liggja tvo spretti af
fjórum í úrtökunni. í öðrum af
þessum tveim sprettum þarf
hann að skeiða vegalengdina á
24,5 sekúndum eða skemmri
tíma. Ef ekki fæst skeiðhestur
sem uppfyllir sett skilyrði verð-
ur valinn næststigahæsti hestur
úr fimmgangi og skeiði saman-
lögðu.
Áð síðustu vill EM-nefndin
benda þeim á sem hyggja á þátt-
töku í úrtökunni að verða sér úti
um keppnisreglur sem gilda á
næsta evrópumóti en þær eru fá-
anlegar á skrifstofu LH.