Morgunblaðið - 29.05.1983, Qupperneq 16
64
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. MAÍ 1983
„Heilaga Guösmóðir,
Svo sem fram hefir
komiö í frásögnum
mörgum hefir þess
nýlega veriö minnst
meö ýmsu móti að
Frakkar stunduðu fyrr á árum
fiskveiðar hér viö land.
I bók sinni „Á Islandsmiöum"
fjallaöi franski rithöfundurinn
Pierre Loti um líf og starf
franskra fiskimanna í norðurhöf-
um. Þaö voru einkum sjómenn
frá Bretagne-skaga er stunduöu
veiðar á íslandsmiöum. Páll
Sveinsson menntaskólakennari
þýddi bókina á íslensku. Um
heimkynni íslandsfaranna segir
svo: „Bretagne heitir útnorö-
urskagi Frakklands viö Ermar-
sund; er land þaö heldur hrjóstr-
ugt og íbúarnir flestir sjómenn.
Hinu megin Ermarsunds kalla
Frakkar Grand-Bretagne, þ.e.
Stóra Bretland."
Danska vikuritiö „Krig og
Fred“ sem var fylgirit Familie
Journal birti áriö 1906 teikningu
sem komið hafði í öðru riti, „The
Graþhic". Var myndin teiknuð
sérstaklega fyrir það rit, en þirt-
ist í hinu danska blaöi um þær
mundir er sérstakur áhugi var á
íslandsmálum í Danaveldi. í text-
anum er fylgir myndinni er vikiö
aö haröri baráttu sjómanna á
hafinu. Brottför skipanna á ís-
landsmið er helsti viöburður ár
hvert í þorpum á Bretagne-
skaga. íbúarnir, sem taldir eru
trúræknir, safnast saman á
ströndinni og efna til skrúö-
göngu. Bera þeir Maríulíkneski í
fararbroddi göngunnar. Þátttak-
endum fjölgar jafnt og þétt og
bætast æ fleiri sjómenn í hóp-
inn. Þeir koma frá þorpum á
ströndinni og fylgja þeim ætt-
ingjar og vinir er kveðja þá og
biðja þeim blessunar. Hvert
þorþ á sinn fána, sitt Maríulíkn-
eski og kirkjuskip; í bók Pierre
Lotis segir svo:
„Á brottfararhátíö íslandsfar-
anna var oft auðvelt aö rekast á
kunningja sína og talast við úti í
mannþrönginni er kvöldaði.
Snemma morguns þennan dag
höfðu göturnar verið tjaldaöar
hvítum dúkum og skreyttar
grænum blómsveigum." „... er
skipin losnuöu, tóku sjómenn
ofan og sungu viö raust Maríu-
sálminn: „Heill þér, Markyndill
mæti“. Á hafnarbakkanum veif-
uðu konurnar höndunum til
hinztu kveðju, en tárin runnu
ofan netludúksskýlurnar á húfum
þeirra."
í vertíöarlok bíöa eiginkonur
og mæður heimkomu ástvin-
anna og horfa meö eftirvæntingu
út á sundiö.
miASCO
KYNNIR