Morgunblaðið - 29.05.1983, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. MAÍ 1983
69
Kjörseðhim úthlutad á að&lfundinum.
Illuthafar Alusuisse hlýða á ræðu Meyers, stjómarformanns, á aðalfundi
fyrirUekisins.
ingur hefði heldur lítið álit á fjöl-
þjóðafyrirtækjum og þau væru lit-
in hornauga. Leiðtogar Afríku-
landa hefja allar samræður við
hann á því að úthúða þessum
varhugaverðu gróðahringjum en
undir lok samræðnanna sagði
hann að þeir hölluðu sér allir upp
að honum og segðu: „Þú ert Sviss-
lendingur og þekkir karlana hjá
Nestlé og öllum stærstu fyrirtækj-
unum. Geturðu ekki haft áhrif á
þá og fengið þá til að hefja starf-
semi hérna hjá okkur?"
„Allir hata fjölþjóðafyrirtæk-
in,“ sagði Celio, „en allir vilja fá
þau til sín af því að þau veita at-
vinnu. Þegar stór fyrirtæki setja
upp verksmiðju í litlu landi og
veita kannski 2.000—3.000 manns
atvinnu geta þau farið að hafa
áhrif i landinu. Það myndi valda
verulegu atvinnuleysi ef fyrirtæk-
in hættu starfsemi skyndilega og
flyttu sig eitthvert annað. En ég
held að þetta tal um áhrif fjöl-
þjóðafyrirtækjanna séu ýkjur.
Þjóðerniskennd hefur aukist
mjög um allan heim og það hefur
haft sín áhrif. Fyrir 10—15 árum
hugsaði framkvæmdastjóri fjöl-
þjóðafyrirtækis fyrst og fremst
um velgengni fyrirtækisins og lét
sig fátækt og hungursneyð í landi,
sem fyrirtækið starfaði í, litlu
skipta. Heimurinn hefur breyst og
framkvæmdastjórar verða nú að
taka 50% tillit til aðstæðna í land-
inu og 50% hugsa um velferð
fyrirtækisins.
Ég er stjórnarformaður Jacob-
Suchard," hélt Celio áfram en
Jacob-Suchard er nú þriðja
stærsta kaffifyrirtækið í heimi á
eftir General Food í Bandaríkjun-
um og Nestlé í Sviss. „Við erum
með mikla starfsemi í Argentínu
og Brazilíu. Það þýðir ekkert fyrir
okkur að reyna að hafa áhrif á
stjórnvöld í þessum löndum. Við
verðum að fara alveg eftir þeirra
óskum. — En við Svisslendingar
höfum heldur engan áhuga á að
hafa stjórnmálaleg áhrif erlend-
is,“ bætti hann við eins og það
þyrfti þó ekki að vera svo um fjöl-
þjóðafyrirtæki allra annarra
þjóða. „Við viljum bara að það
gangi vel í löndunum svo að við
getum haldið áfram okkar starfs-
emi.“
Alusuisse hefur um 37.000
manns í vinnu um allan heim. Erf-
iðleikarnir hafa valdið uppsögnum
og niðurskurði en 45.080 manns
unnu hjá fyrirtækinu þegar best
gekk árið 1980. ítalskur hagfræð-
ingur, sem hefur 35 ára reynslu
hjá Alusuisse, dr. Bruno F. Sorato,
hefur verið ráðinn forstjóri/
framkvæmdarstjóri í stað Meyers
og Mullers. „Hann er mjög góður
rnaður," sagði Celio. „Ástandið hjá
Alusuisse er slæmt, mjög slæmt,
en ekki svo slæmt að við ráðum
ekki við það. Við höfum lánstraust
hjá bönkunum og erum vissir um
að það gangi mun betur strax á
næsta ári.“
ab
Skæruliðar
myrtu
Schaufel-
berger
S*n Snlvndor, 27. mní. AP.
HREYFING vinstri sinnaðra skæru-
liða í El Salvador hefur lýst sig
ábyrga fyrir morðinu í aðstoðaryf-
irmanni bandarísku hernaðarráð-
gjafanna í El Salvador, sem framið
var á miðvikudag og lýst verknaðin-
um sem svari við afskiptum Banda-
ríkiamanna í landinu.
I tilkynningu skæruliðasamtak-
anna FPL var sagt, að borgar-
skæruliðar úr þessum samtökum
hefðu drepið manninn, Albert A.
Schaufelberger, á miðvikudags-
kvöld. FPL er öflugust af fimm
uppreisnarhreyfingum í landinu,
sem berjast gegn stjórninni, er
nýtur stuðnings Bandaríkja-
manna. FPL hefur til þessa mest
látið til sín taka í norðurhluta
landsins í grennd við landamærin
við Honduras.
Schaufelberger, sem var 33 ára
að aldri, var skotinn þrisvar sinn-
um í höfuðið, þar sem hann beið í
bifreið sinni eftir vini sínum fyrir
utan háskólann í San Salvador.
Áskriftarsiminn er 83033
ERLENT NÁMSKEIÐ
time manager
Stjórnunarfélagiö býöur nú Akureyringum og Norölend-
ingum upp á hiö vinsæla námskeiö TIME MANAGER.
Á námskeiöinu læra þátttakendur aö:
— Skipuleggja tíma sinn betur.
— Komast hjá þreytu og stressi.
— Ná betra sambandi við samstarfsmenn og vini.
— Ná betra sambandi við fjölskylduna.
— Fjarlægja tímaþjófa.
— Nýta alla möguleika í hinu fullkomna skipulags-
og stjórntæki TIME MANAGER.
Námskeiöiö er ætlaö öllum sem hafa meö höndum
sjálfstætt starf í fyrirtækjum, stofnunum, bönkum
eöa félagasamtökum.
Leiöbeinandi á námskeiðinu er Anna Bögelund-
Jensen aðalleiðbeinandi á námskeiöum TIME
MANAGER INTERNATIONAL.
Námskeiöið fer fram á ensku.
Staösetning og tími:
13,—14. júní í Hótel KEA, Akureyri, kl. 8:30—18:00
báöa dagana.
Þátttaka tilkynnist til Stjórnunarfélagsins í síma 82930.
STJÓRNUNARFÉLAG
(SLANDS^H
SIÐUMULA 23 SÍMI 82930
Kostur veröur á stæði í
bílgeymslu
Kjör: Va á fyrstu 12 mánuöum
Va á næstu 12 mánuöum
1/2 til allt aö 20 ára
Teikningar og allar frekari
upplýsingar á skrifstofunni.
Frágangur: íbúöirnar afhentar
tilbúnar undir tréverk. Sam-
eign fullfrágengin.
Afhendingartími: í maí 1985.
Byggingaraðili: Bygginga-
félagiö hf.
Fasteignamarkaöur
Rárfestingarfélagsins hf
SKÖLAVÖROUSTtG 11 SlMI 28466
(HÚS SfWRISJÖOS REYKJAVlKUR)
Lögfræöíngur Pétur Þór Sigurösson hdl.
3ja herbergja 102 m2 kr. 1.380.000
3ja herbergja 111 m2 kr. 1.490.000
3ja herbergja 113 m2 kr. 1.590.000
4ra herbergja 134 m2 kr. 1.880.000
DRAUMAKJÖR
EFTIRSTÖÐVAR TIL 20 ÁRA
í hinum nýja miöbæ
Garöakaupstaðar
Um 30 íbúðir í fjölbýlishúsi