Morgunblaðið - 19.06.1983, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 1983
41
rúmlega 30 ár og það hefur
eitthvað nýtt gerst á hverjum
degi. Öll árin nema eitt hef ég
kennt við Melaskólann, en
fyrsta árið kenndi ég í Glerár-
þorpi. Ef mér hefði ekki líkað
vel við kennsluna væri ég löngu
hætt, en börnunum finnst þetta
afskaplega langur tími, þegar
þau heyra hvað ég hef kennt
lengi. Breytingar á kennslunni
hafa orðið talsverðar á þessum
tíma, því nýjungar koma fram
og viðhorfin breytast. En mann-
eðlið breytist ekki. Ef eitthvað
er, þá eru börnin frjálslegri nú
en þau voru áður. Þjóðfélagið
býður upp á það og breytingarn-
ar hafa verið í þá átt, en sam-
skiptin eru svipuð þrátt fyrir
það,“ sagði Dagný.
— Hvers vegna lagðir þú
fyrir þig kennslu?
„Þegar ég var stelpa langaði
mig til að verða kennari, en sú
löngun gleymdist og ég fór að
starfa annað. En þessi löngun
greip mig á ný, þegar bróðir
minn hóf nám í Kennaraskólan-
um. Það ýtti undir að ég tók
inntökupróf í 2. bekk skólans.
Svo vill til að við systkinin, sem
vorum þrjú, vorum með
kennaramenntun og stunduðum
kennslustörf."
-'..".f ■i’Nm gKffigyy * i | m. VHfl iafcL •
•'íf I i Wi 1
Kennari ásamt fyrrverandi nemendum. Myndin er tekin á 17. júni í forsal Melaskólans. Talið frá vinstri: Gylfi Zoega,
Margrét Kristfn Siguröardóttir, Dagný G. Albertsson, kennari, Guóbjörg Jónsdóttir og Ingólfur Johannessen.
MorguiibhóiA/GaðjÓB.
— Finnst þér hafa orðið
breytingar á námsárangri?
„Það fer eftir því hvernig á
það er litið. Fjölbreytni í námi
hefur aukist, en jafnframt er
meira sem truflar í dag. Ytri
áhrif eru ríkari, t.d. myndbönd
og sjónvarp, en ég álít að þeir
sem taka vel eftir í skólanum og
vinna vel, eigi að geta staðið sig.
Heimilin eiga líka oft ríkan þátt
í því hvernig börnunum vegnar
í skólanum.
Foreldrar hljóta að gleðjast
þegar börnum þeirra vegnar vel
og ósjálfrátt gérir kennarinn
það líka, honum finnst hann
eigi eitthvað í börnunum. Hann
óskar þess að þeim vegni vel og
að það veganesti sem þau hafa
fengið að heiman og í skólanum _
hafi orðið þeim til framdráttar.
Það er vissulega ánægjulegt
fyrir Melaskólann þegar nem-
endur hans standa sig af svo
mikilli prýði. Það er skemmtileg
tilviljun að hér skuli vera um
fyrrverandi nemendur mína að
ræða. Ég hlýt að óska þeim til
hamingju, með einstakan
árangur í námi, um leið og ég
óska öllum nemendum mínum
gæfu og gengis um ókomin ár,“
sagði Dagný að lokum.
HJ
Sá skemmtilegi misskilningur aö
Zurich sé höfuöborg Sviss á sér eðlileg-
ar ástæöur:
Viöskiptin og verslunin, listasöfnin og
leikhúsin, veitingahúsin og nætur-
klúbbarnir og hrífandi fegurðin hvar
sem litið er gefa borginni fölskvalaust
yfirbragð stórborgar, heimsborgar og
höfuöborgar.
Og þegar viö höfum náö áttunum er
ómissandi aö skella sér í lengri eöa
skemmri ferðir um nágrenniö; á mark-
aðinn í næsta þorpi, bátsferö um Zú-
richvatn, í nálægt miðaldaþorp eöa
kastala, í kröftuga fjallaferð, róman-
tískan Alpaleiöangur eöa einfaldlega í
notalega skyndiferö út í bláinn sem viö
endum bara einhversstaöar, gistum í
gróðursælum dal eöa friösælum fjalla-
kofa - og njótum þess aö vera til.
Æb> Flugfélag með ferskan blæ
ARNARFLUG
Lágmúla 7, slmi 84477