Morgunblaðið - 19.06.1983, Page 44
Simi 44566
RAFLAGNIR
samvirki I
BILLINN
BlLASALA SlMI 79944 SMIÐJUVEGI4 KÓRAVOGI
SUNNUDAGUR 19. JUNI 1983
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunín:
Rannsókn á tíðni krans-
æðastíflu hér á landi
ALÞJÓÐA heilbrigðismálastofn-
unin hefur ákveðið að hefja rann-
sókn á tíðni kransæðastíllu í um
30 þjóðlöndum og tekur ísland
þátt í þessari alþjóðlegu rannsókn.
Rannsóknarnefnd Hjartaverndar
hefur verið falin framkvæmd
rannsóknarinnar hérlendis og er
hún þegar hafin.
Að sögn Nikulásar Sigfússon-
ar, yfirlæknis á rannsóknarstöð
Hjartaverndar, er kransæða-
Smíði fiskiskipanna í Póllandi:
Fyrsta skipið sjó-
sett í byrjun júlí
FYRSTA fiskiskipið af þeim þremur
sem verið er að smíða fyrir íslend-
inga í Póllandi verður sjósett í byrj-
un júlímánaðar n.k., annað í byrjun
september, en það þriðja síðar.
Tvö skipanna koma síðan til
landsins í desember og fara þau
bæði til Samtogs í Vestmannaeyj-
um. Þriðja skipið er smíðað fyrir
Hróa í ölafsvík og verður það af-
hent í febrúar á næsta ári.
Gísli Jónasson, forstjóri Sam-
togs, sagði í samtali við Mbl. að
smíði skipanna gengi eftir áætlun,
en maður frá þeim hefði nýlega
farið út til Póllands til að fylgjast
með því sem eftir er af smíði skip-
anna.
stífla ein helsta dánarorsök Is-
lendinga og hefur tíðni krans-
æðasjúkdóma farið vaxandi víð-
ast hvar, en þó hefur hún lækk-
að í nokkrum löndum undanfar-
in ár. Nikulás sagði mikilvægt
að vita hvað veldur þessari
breytingu á tiðni sjúkdómsins
og þvi hefði verið farið af stað
með þessa rannsókn. Hún mun
standa næstu 10 ár og verður
fylgst með breytingum á tíðni
og helstu áhættuþáttum krans-
æðastíflu.
Einn þáttur rannsóknarinnar
er könnun á áhættuþáttum
kransæðasjúkdóms og hefur
verið valið 3000 manna úrtak
kvenna og karla á aldrinum
25—74 ára til að taka þátt í
henni. í könnuninni eru reyk-
ingavenjur kannaðar með
spurningalistum, hæð og þyngd
mæld ásamt blóðþrýstingi og
blóðfitu. Rannsókn þessi er
ókeypis og tekur um 10—15 mín-
útur.
Aðgát
skal höfð
NÁTTÚRUVERNDARNEFND BessasUAahrcfpa hefur látiA setja upp vegskilti á Álftanesi til að vekja athygli
ökumanna á því, að mikið fuglalíf er á ueaúiH og aá er sá tfmi, að leið Iftilla unga út í heim liggur oft yfir
hraðbrautir okkar mannanna. Morgunblaðið/Rax.
Viltu í nefið?
„Maður verður nú að þiggja f nefið, þegar svona „stórmenni" býður,“
gæti maðurinn verið að hugsa, sem ein fígúran úr leikhópnum „Svart og
sykurlaust" býður upp á neftóbak. Leikhópurinn „Svart og sykurlaust"
skemmti borgarbúum í miðbænum á 17. júní.
Ljósm. Mbl. Guðjón.
Ragnhildur Helgadóttir menntamálaráðherra:
Útilokar ekki
norskt sjón-
varp á íslandi
LÍKLEGT er að íslendingar hafi
áhuga á að ná sendingum frá
norska sjónvarpinu sem sendar
verða um evrópska gervihnatta-
kerfið ECS, en Norðmenn munu
senda sjónvarpsefni um það kerfi
til olíuborpallanna í Norðursjó og
til Jan Mayen og Spitzbergen og
víðar. Hins vegar væri málið ný-
Veðrið í dag:
Sunnanátt
Gert er ráð fyrir fremur hægri
suðlægri átt á landinu í dag. Súld
og litils háttar skúrir um sunnan-
og vestanvert landið, en bjart á
Norður- og Austurlandi. Búast má
við 10—12 stiga hita á daginn, en
heldur svalara verður á nóttunni.
Að sögn Veðurstofunnar er ekki
útlit fyrir breytingar á þessu veðri
2—3 næstu daga.
Aðaldalur:
Lítilli telpu bjarg-
að frá drukknun
Aóaldal, 18. júní.
AÐ KVÖLDI 16. júní sl. bjargaðist þriggja ára telpa á bænum Aðalbóli í
Aðaldal naumlega frá drukknun. Telpan hafði verið að leik á hlaðinu
heima hjá sér með öðrum börnum. Þegar þau komu inn, en ekki litla
telpan var strax farið að hyggja að henni, en þá var hún horfin.
Rétt við hlaðvarpann rennur
straumharður lækur, en ekki
sézt í hann af hlaðinu. Móðir
teipunnar fór strax út að lækn-
um og nákvæmlega þar sem
hana bar að lá telpan meðvit-
undarlaus á botninum.
í þann mund sem móðirin náði
telpunni úr læknum komu aðvíf-
andi tveir félagar úr Hjálpar-
sveit skáta í Aðaldal, en þeir
voru að koma af æfingu hjá
hjálparsveitinni. Þeir hófu þegar
lífgunartilraunir og þegar lækn-
ir og sjúkrabifreið komu að hálf-
um tíma liðnum var telpan kom-
in til meðvitundar.
Litla telpan dvelur nú á
sjúkrahúsinu á Húsavík og er úr
allri lífshættu. Hjálparsveitar-
mennirnir, sem björguðu telp-
unni, heita Bjarni Höskuldsson,
sem er bróðir hennar, og Holgeir
Hermannsson. Hér bjargaðist
mannlíf naumlega úr bráðum
háska fyrir mikla mildi forsjón-
arinnar og kunnáttu hjálpar-
sveitarmannanna.
— Stefán.
tilkomið, en þannig þyrfti að
koma fyrir málum að íslendingar
gætu notfært sér þessar send-
ingar, hvort sem þar yrði um
ríkisútvarpið að ræða eða aðra,
samkvæmt upplýsingum sem
Mbl. fékk hjá Ragnhildi Helga-
dóttur menntamálaráðherra í
gær, en hún mun sitja norrænan
ráðherrafund um fjarskiptamál
sem verður á þriðjudaginn.
Þennan ráðherrafund munu
sitja menntamálaráðherrar
Norðurlanda, samgönguráð-
herrar og iðnaðarráðherrar.
Hvort íslendingar hafa áhuga á
að taka þátt í notkun gervi-
hnattarins Tele-x, eins og
Norðmenn, Svíar og Finnar,
sagði Ragnhildur, að hún væri
að vinna að athugun á þessu
máli og sagðist hún ekki geta
sagt endanlega til um það nú,
en hún vonaðist til að málin
myndu skýrast eftir fundinn á
þriðjudag. Ragnhildur nefndi
að Tele-x gæti spannað fleiri
möguleika en sjónvarp og sagði
hún að þar væri um margt at-
hyglisvert að ræða. „Ég mun að
sjálfsögðu beita mér fyrir því
að þetta fari inn á þær brautir
að við getum á einhvern hátt
notið góðs af hnettinum," sagði
Ragnhildur Helgadóttir
menntamálaráðherra.