Morgunblaðið - 23.06.1983, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 1983
13
Dr. Dietrich Ernst, einn aðalforstjóra Alusuisse, í samtali við Morgunblaðið:
Höfum áhuga á helmingsstækkun
á verksmiðjunni í Straumsvík
— og að fá inn samstarfsaðila með 50% eignaraðild
Ljósmynd Mbl. Sighvatur Blöndahl.
Álverksmiðja Alusuiesse í Steg í Wallisdal í Suður-Sviss.
Ljósmynd Mbl. Sighvatur Blöndahl.
Dr. Dietrich Ernst, einn aðalforstjóri Alusuisse, á skrifstofu sinni í
Ziirich.
„UNDANFARIN tvö ár hafa verið
okkur gríðarlega erfid i rekstri,
eins og reyndar öllum öðrum fram-
leiðendum, vegna hins almenna
efnahagssamdráttar í heiminum.
Þótt ástandið hafi skánað til muna
á þessu ári er Ijóst, að afkoman
verður slæm, en hins vegar þykj-
umst við sjá ýmis teikn á lofti um
að ástandið geti verið komið í við-
unandi horf á næsta ári,“ sagði Dr.
Dietrich Ernst, einn aðalforstjóra
Alusuisse, í samtali sem blaðamað-
ur Morgunblaðsins átti við hann í
liðinni viku í Ziirich. Dr. Ernst er
væntanlegur hingað til lands í dag,
ásamt Dr. Paul H. Miiller, sem
verið hefur aðalsamningamaður
Alusuisse í viðræðum fyrirtækisins
við íslenzk stjórnvöld undanfarin
ár. Þeir munu eiga viðræður við
fulltrúa íslenzkra stjórnvalda á
morgun, föstudag, og munu m.a.
hitta Sverri Hermannsson, iðnað-
arráðherra.
„ÍSAL-verksmiðjan hefur auð-
vitað ekki farið varhluta af þeim
vandræðum, sem steðjað hafa að
áliðnaðinum í heiminum undan-
farin misseri og hefur orðið mikið
tap af rekstri hennar, en hún
framleiðir um 10% af heildar-
framleiðslu Alusuisse, eða um
80.000 tonn af þeim liðlega 800.000
tonnum, sem við framleiðum.
Verksmiðjur Alusuisse er samtals
11 talsins og má segja, að um
þriðjungur af starfseminni fari
fram í Bandaríkjunum og tveir
þriðju hér í Evrópu," sagði Dr.
Ernst.
Það kom fram í samtalinu við
Dr. Ernst, að miklar birgðir hefðu
hlaðizt upp á síðasta ári og væri
ástandið í raun ekki komið í eðli-
legt horf ennþá. „Þegar verst lét
voru birgðir ÍSAL um 35.000 tonn,
eða tæplega helmingur af fram-
leiðslugetu verksmiðjunnar, sem
segir kannski sína sögu um
ástandið betur en margt annað.
Birgðir verksmiðjunnar eru nú
komnar niður í um 14.000 tonn, en
eðlileg birgðastaða er á bilinu
5—6.000 tonn.“
Dr. Ernst sagði aðsnnrður um
viðræður hans og Dr. Mullers við
fulltrúa tslenzkra stjórnvalda á
föstudag, að þær væru í raun
nokkurs konar kynningarviðræð-
ur, þar sem nýir menn hefðu tekið
við stjórnartaumunum á íslandi.
Ekki væri neinna stórtíðinda að
vænta í kjölfar þeirra. „Ég bind
hins vegar miklar vonir við sam-
starfið við hin nýju íslenzku
stjórnvöld og er reyndar sann-
færður um, að samskiptin eigi eft-
ir að verða auðveldari og betri í
framtíðinni en þau hafa verið, en
þau hafa alls ekki verið eins
ánægjuleg og árangursrík og við
hefðum viljað."
Um deilumál Alusuisse og ís-
lenzkra stjórnvalda sagði Dr.
Ernst að hann væri sannfærður
um að hægt væri að finna lausn á
þeim, sem báðir aðilar gætu sætt
sig við. „Það er hagsmunamál
beggja aðila, að deilumál þeirra
verði sett niður hið allra fyrsta.
Báðir aðilar tapa í raun eftir því
sem lengra líður. Ég tel að með
vilja beggja ætti að vera hægt að
ljúka samningaviðræðum og
finna lausn á deilumálinu fyrir
haustið og væri það vel. Við mun-
um í viðræðum við íslenzk stjórn-
völd leggja áherzlu á þann vilja
okkar að ná samkomulagi hið
allra fyrsta."
Nokkuð hefur verið rætt um
hugsanlega stækkun verksmiðj-
unnar í Straumsvík og þær hug-
myndir Alusuisse, að fá annan að-
ila inn í samstarfið. Hvað viltu
segja um þau mál nú?
„Fyrsta skrefið er auðvitað að
setja niður deilur aðila og síðan er
hægt að fara að ræða um breyt-
ingar og framþróun fyrirtækisins.
Það er hins vegar ekkert launung-
armál, að við höfum áhuga á því,
að stækka verksmiðjuna um
helming í framtíðinni, þannig að
framleiðslugeta hennar yrði á bil-
inu 150— 200 þúsund tonn á ári í
stað 80—85 þúsund tonna í dag.
Ef af þessari stækkun gæti orðið í
framtíðinni höfum við ennfremur
áhuga á því að fá annan sam-
starfsaðila inn á móti okkur og þá
á grundvelli helmingaskipta,
þannig að Alusuisse ætti 50% í
fyrirtækinu. Við höfum rætt við
ákveðinn aðila, sem hefur lýst
áhuga sínum á málinu, en það er
of snemmt að fjölyrða um hver
það er á þessu stigi málsins,"
sagði Dr. Ernst.
Hljómar það ekki frekar ein-
kennilega að ræða um stækkun
verksmiðjunnar, þegar markaðs-
ástandið er eins og raun ber vitni?
„Það gerir það í sjálfu sér ekki.
Við erum sannfærðir um að
ástandið á heimsmarkaði eigi eft-
ir að komast í eðlilegt horf á nýj-
an leik og þá myndi verksmiðjan í
Straumsvík koma út með aukna
hagkvæmni væri hún stærri en
hún er í dag. Á því er enginn vafi.
Eftirspurn eftir áli á eftir að
aukast í framtíðinni, þótt aukn-
ingin verði ekki í neinum stórum
stökkum."
Hvers vegna vill Alusuisse fá
inn samstarfsaðila í stað þess að
eiga fyrirtækið að fuliu eins og í
dag?
„Það er rétt að dreifa fjárhags-
legri áhættu meira en er í dag.
Það koma ár eins og tvö þau síð-
ustu, sem geta reynzt fyrirtækinu
mjög þung í skauti. Auk þess hef-
ur sú stefna verið mörkuð innan
fyrirtækisins að auka hlutdeild
þess í annarri starfsemi en
álframleiðslu. Það hefur reyndar
verið sett sem markmið næstu
ára, að álframleiðslan verði um
helmingur starfseminnar á móti
öðrum þáttum. Okkur hefur geng-
ið nokkuð í þessari viðleitni,
þannig að í dag er hlutfallið kom-
ið í 70% í álframleiðslu og 30% í
annarri framleiðslu. Að fá inn
samstarfsaðila á íslandi væri einn
þátturinn í þessari viðleitni. Þá
væri stækkun verksmiðjunnar
auðvitað þjóðhagslega hagkvæm
framkvæmd fyrir íslendinga. Raf-
orkusala myndi stóraukast til
fyrirtækisins og síðan myndi
stækkun sem þessi skapa tölu-
verðan fjölda atvinnutækifæra."
Dr. Ernst var inntur eftir þeim
deilum, sem átt hafa sér stað milli
stjórnenda ÍSAL og starfsmanna
vegna uppsagna starfsmanna á
næstu mánuðum. „Þotta er deilu-
mál, sem er í raur. furðulegt að
skuli koma upp. Fyrirtækið verð-
ur að hafa það í hendi sinni
hvernig rekstri þess er bezt kom-
ið. Það er okkur bráðnauðsynlegt
að fækka starfsmönnum í verk-
smiðjunni í Straumsvík, samfara
aukinni hagræðingu og breyting-
um á starfseminni. Ég geri mér
vonir um að takast megi að leysa
það deilumál innan tiðar. Reynd-
ar má geta þess að samfara auk-
inni tækni og með breyttum fram-
leiðsluaðferðum til að auka hag-
kvæmni verksmiðja, hefur átt sér
stað umtalsverð fækkun á starfs-
mönnum flestra ef ekki allra
verksmiðja í þessari framleiðslu.
Auk þess sem markaðurinn hefur
verið lélegur, þá gerir síaukin
samkeppni kröfur um, að ýtrasta
aðhalds og hagræðis sé gætt í
rekstrinum."
Þá var Dr. Ernst inntur eftir
því hvort styttast færi í, að verk-
smiðjan í Straumsvík kæmist
réttum megin við strikið í rekstri.
„Þess mun enn nokkuð að bíða.
Verð á framleiðslunni er enn ekki
komið í það horf, sem skikkanlegt
getur talizt, og verður varla fyrr
en á síðari hluta þessa árs, eða í
byrjun þess næsta. Reyndar er
fyrsta verksmiðja Alusuisse farin
að skila hagnaði, en þess verður
nokkuð að bíða að aðrar fari að
gera það. Þá hefur fjármagns-
kostnaður gert okkur töluvert erf-
itt fyrir í Straumsvík. Þar höfum
við verið með þunga vaxtabyrði í
háum dollaravöxtum, sem hefur
hitt okkur illa. Aðrar verksmiðj-
ur, sem eru með sinn rekstur í
öðrum gjaldmiðlum, standa því
betur að vígi hvað þetta varðar.
Verksmiðjan í Straumsvík hef-
ur ekki verið afskrifuð að fullu,
eins og komið hefur fram. Slíkt er
misskilningur. Við höfum í raun
ekki afskrifað hana nema að um
það bil 60%,“ sagði Dr. Ernst að-
spurður.
Um verðlagsmálin almennt
sagði Dr. Ernst: „Verðlag á ál-
framleiðslu féll ótrúlega langt
niður þegar verst lét á árunum
1981 og 1982. Verð á hverju tonni
fór töluvert niður fyrir 900 doll-
ara, en það verð, sem við þurfum í
raun að fá til að reksturinn geti
gengið eðlilega, er á bilinu
1.700—1.800 dollarar fyrir hvert
tonn. Þegar markaðurinn var
beztur fór verð á hverju tonni
nokkuð yfir 2.000 dollara. Eins og
er sveiflast verðið á bilinu
1.400—1.500 dollarar fyrir hvert
tonn, þannig að segja má að við
séum ennþá undir yfirborði, ef svo
má að orði komast."
Að síðustu ítrekaði Dr. Ernst
þann vilja sinn að ná samkomu-
lagi i deilumálum Alusuisse og ís-
lenzkra stjórnvalda. „Eins og ég
sagði áður hef ég trú á því, að
takast megi að finna lausn máls-
ins innan tíðar ef vilji er fyrir
hendi hjá báðum aðilum og með
það veganesti höldum við til fund-
ar við íslendinga á föstudag,“
sagði Dr. Dietrich Ernst, einn að-
alforstjóra Alusuisse, í samtali
við Morgunblaðið.
— sb.
Verksmiðja ÍSAL í Straumsvík.
PURINA kattafóðrið fæst í helstu
MATVÖRUVERSLUNUM
NÆRING VIÐ HÆFI - RANNSÓKNIR TRYGGJA GÆÐI