Morgunblaðið - 26.06.1983, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JÚNÍ 1983
3
Humrinum mokad upp á bordið og eins og sjá má er hann sæmilega vænn.
Moreunblaöið/Steinar
Dauft yfir „krabbanum
- segir Ólafur Björn Þorbjörnsson skipstjóri á Höfn
„ÞETTA hefur verið mjög lélegt
nú í rúmlega viku. Þaö má segja aö
þetta sé dautt hjá humarbátunum
alls staöar nú og síöasta sólarhring
hefur veriö bræla. Krabbinn er
annars þokkalegur en heldur
smærri en verið hefur og lítið af
fiski í honum. í heildina er þetta
talsvert minna en í fyrra og má
vera að aukin sókn valdi því,“
sagöi Ólafur Björn Þorbjörnsson,
skipstjóri á Siguröi Ólafssyni SF
44 frá Hornafiröi, í samtali viö
Morgunblaðiö.
Þann 21. þessa mánaðar höfðu
135,502 lestir af humri af 19 bát-
um borizt til fiskvinnslu KASK
á Hornafirði en á sama tíma í
fyrra voru komnar til KASK
192,854 lestir. Fiskverkunin
Stemma á Hornafirði frystir nú
humar í fyrsta sinn og þangað
hefur borizt 28,541 lest af 5 bát-
um. Allur humarinn er slitinn
í Vestmannaeyjum er svipaða
sögu að segja eins og eftirfar-
andi frétt fréttaritara Morgun-
blaðsins þar ber með sér:
Vestraannaeyjum, 23. júní.
Síðustu daga hefur verið sára-
tregur afli hjá humarbátum,
veiðin alveg dottið niður eftir
líflega byrjun humarvertíðar.
Vertíðin hófst rétt fyrir mán-
aðamótin og stunda héðan 16
bátar veiðarnar. Vel aflaðist
framan af, allt upp í þrjár lestir
af slitnum humri í veiðiferð, og
þann 15. júní síðastliðinn voru
komnar hér á land 46,7 lestir af
slitnum humri.
Á sama tima í fyrra var aflinn
28,3 lestir af slitnum humri. Bát-
arnir hafa sótt á mið hér við
Eyjar og nokkrir austur um. Lít-
ill fiskur hefur komið í trollin
með humrinum. Alla vertlðina í
fyrra barst hér á land 81 lest af
slitnum humri. Aflakvótinn á
þessari vertíð fyrir landið allt er
2.700 lestir upp úr sjó, sem mun
vera nálægt 800 lestum af slitn-
um humri.
hkj
»íú,\ ’^udagar
27 íBeyKiavíK
Má bjóða þér
betri tíð
í sumarleyfinu
sumorley'fmu
ATHYGLISVERÐ
FERÐATILBOÐ Á NÆSTUNNI
Feröaskrifstofan
ÚTSÝN
Costa Del Sol
30. JÚNÍ 0G 7. JÚLÍ
I Li gr nai 2. jÚLÍ 10
I Mallorca 5 JÚLÍ 0G 26. JÚLÍ
Reykjavík: Austurstræti 17, símar 26611,20100,27209.
Akureyri: Hafnarstræti 98, sími 22911.
Þegar þú hefur gert upp
ferðareikninginn verður
leiguflug Útsýnar lægst.
— Ódýrara pr. km en
þegar þú ferð með
strætisvagni.
Veiztu
nokkuó
um gisti-
kostnað,
áður en þú
ferðí
sumarleyfið?
Þú faerð ekki rúm að sofa
í á nokkrum viður-
kenndum gististað í
Vestur-Evrópu fyrir
minna en 1000—2000 kr.
á dag. Þaö þýðir að
þriggja vikna gisting
kostar aö meöaltali kr.
25.000. Við getum boðið
þér 3 vikur í sólskins-
paradts á italíu, Spáni
eða Portúgal fyrir lægri
upphæð, og þægilegasta
ferðalagið er innifalið —
Beint leiguflug í sólina er
því í rauninni
ókeypis fyrir þig
í Útsýnarferð.
Reynsla farþeg-
ans er bezta
staðfestingin:
„Við erum búin að feröast með
mörgum feróaskrifstofum, erlend-
um og innlendum. Útsýn er alveg í
sérflokki. Lipurö og öll framkoma
starfsfólks Útsýnar eru til mikillar
fyrirmyndar frá fyrstu til síðustu
handar. Viö þökkum hjartanlega
fyrir okkur. Við fengum sannarlega
allt fyrir peningana."
Róbert Sigurðsson og fjöl-
skylda, Dragavegi 4, R.