Morgunblaðið - 26.06.1983, Side 5

Morgunblaðið - 26.06.1983, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JÚNÍ 1983 5 Sjón\ar|) kl. 20.."»0: Kóramót í Namur Á dagskrá sjónvarps kl. 20.50 er þáttur frá kóramóti í Namur í Belgíu. Þetta mót fór fram sumarið 1982 og tóku 26 kórar þátt í því. Þar á meðal var Hamrahlíðarkórinn, sem Þorgerður Ingólfsdóttir stjórn- ar. Núna er kórinn staddur í Sví- þjóð á söngferðalagi um Noreg og Svíþjóð. — Við vorum þarna í Namur og bjuggum í skóla, sagði Erna Ing- ólfsdóttir en hún var í Hamrahlíð- arkórnum á þessum tima og fór í þessa ferð. 6. dagurinn hófst með morgunsóng kl. 9, sem entist fram undir hádegi. Að loknum hádegis- verði fórum við á æfingu ásamt öðrum kórum. Á kvöldin höfðum við svo tækifæri til að fara á tón- leika hjá hinum kórunum. Ég man að mér fannst 80 manna karlakór frá Búlgaríu og grískur kór vera sérstaklega góðir. Kórarnir völdu verkefni þarna ytra sem þeir æfðu og fluttu. Við völdum „Sálmasin- fóníuna" eftir Igor Stravinsky. Þá héldum við tvenna tónleika með íslenskri tónlist, það var annars- vegar í tónleikahúsi þarna í Nam- ur, en þar fengum við húsfylli, og hinsvegar vorum við beðin að halda útitónleika sem við gerðum og dönsuðum svo við áhorfendur á eftir. Kórinn hefur áður sótt mót sem þetta en það var í Sviss 1979. Meólimir Hamrahlíöarkórsins dansa við áhorfendur aö loknum tónleikum. I»að var otf kl. 18.00: „Tívolí“ Á dagskrá hljóövarps kl. 18.00 er þátturinn ÞaÖ var og. IJmsjónarmað- ur er Þráinn Bertelsson. — I þessum þætti verður spjali- að aðeins um hollar og góðar skemmtanir svo sem tívolí og þ.h., sagði Þráinn. — Rifjaðar verða upp minningar frá gamla tívolí í vatnsmýrinni, sem var helv. gott tívolí og mesta synd að slíkur staður skuli ekki vera til. Nú þess- ir þættir eru vanalega þannig, að ég kem í stúdió og rabba um heima og geima i mestu rólegheit- um. Þráinn Bertekua Bt# JM f j I \ý útvarpssaga kl. 14.0.1: Stjórnmálamað- ur í sveitaþorpi Á dagskrá hljóövarps kl. 14.05 á mánudag er fyrsti lestur framhalds- sögunnar „Refurinn í hænsnakofan- um“ eftir Ephraim Kishon. Þýöandi er Ingibjörg Bergþórsdóttir, en les- ari Róbert Árnfmnsson. Sagan fjallar um stjórnmála- mann sem fær ráðleggingar frá lækni sínum um að hvfla sig. Hann fer því út í sveit og hyggst taka lífinu með ró. En stjórnmála- maðurinn er mikill atorkumaður og ekki fyrr komin í sveitina en hann fer að vekja þorpsbúa til stjórnmálalegrar baráttu og til vitundar um siðmenningu vestur- landa. Höfundurinn Ephraim Kishon, er fæddur i Búdapest í Ungverja- landi. Hann hefur skrifað um 30 bækur en jafnframt því að vera bóka- og leikritahöfundur hefur hann leikstýrt kvikmyndum. Róbert Arnfinnsson lesari sögunnsr. Við byrjum á Rimini og síðan er ókeypis flug áSpán! Vikudvöl með fullu fæði á Mallorca án aukakostnaðar Nú bjóöum viö meistaralega samsettar feröir til Rimini með viöbótardvöl á Mallorca - farþegum algjörlega að kostn- aðarlausu. Dvalist er í tvær vikur á Rimini og eina viku á Mallorca, þar sem fullt fæði er innifaliö í veröi ferðarinnar. Hér er í fyrsta sinn boðið upp á Ítalíu og Spán í einni og sömu ferðinni og verðið er einfald- lega það sama og fyrir þriggja vikna dvöl á Rimini. Við minnum á myndarlegan barna- afslátt og frábær greiðslukjör. Þetta er ferð sem seld er á sannkölluðum vildarkjörum. Rimini Unnt er að velja á milli íbúðar- og hótelgist- ingar að vild. Mallorca Dvalist er á Hótel Timor á Arenal-strönd- inni, örskammt frá höfuðborginni Palma. Herbergi eru öll með baði, svölum og síma. í hótelinu eru veitingastaðir, barir, sjón- varpssalur, borðtennis-, billiard- og bowl- ingsalir og fyrir utan eru tennisvellir o. m. fl. Og aftur minnum við á að FULLT FÆÐI er innifalið í Mallorca-dvölinni. Hafið samband og leitið samninga Fyrsta brottför18.júli Samvinnuferóir-Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.