Morgunblaðið - 26.06.1983, Side 22

Morgunblaðið - 26.06.1983, Side 22
Fatahengi breytt í kennslustohi Samtal við Guðna Guðmundsson rektor um hús- næðisvandamál Mennaskólans í Reykjavík í byrjun 19. aldar er aðeins starfandi einn skóli á öllu íslandi, lærði skólinn eða latínuskólinn í Reykjavík, svonefndur Hólavallaskóli, arftaki bæði Skálholtsskóla og Hólaskóla. Hinn fyrrnefndi var fluttur til Reykjavík- ur 1786, hinn síðarnefndi 1802. Auk þess starfaði þó barnaskóli, er lagður var niður 1812. Ástandið í Hólavallaskóla var afar slæmt, skólahúsið kalt og allt of Iftið, auk þess sem rektorinn virðist hafa verið miður heppilegur sökum óregiu. Árið 1805 var skólinn fluttur til Bessastaöa og var þar fram til ársins 1846, er hann var aftur fluttur til Reykjavfkur. Bessastaðaskóli var mjög góð menntastofnun og kennarar þar landsfrægir sökum kunnáttu og menntunar. Má nefna menn eins og Hallgrím Scheving, Björn Gunnlaugsson og Sveinbjörn Egilsson, sem vann það þrekvirki að þýða kviður Hómers yfir á íslensku, nemendum sínum til hægðarauka. Danakonungur úrskurðaði 7. júní 1841 að Bessastaðaskóli skyldi fluttur til Reykjavíkur og prestaskóli stofnaður um leið. Ár- ið 1842 var skólanum valinn stað- ur og tilhöggvinn efniviður feng- inn frá Noregi til smíði skólahúss. Kom viðurinn hingað 1844, en skólahúsið var fullgert vorið 1846. Hoppe stiftamtmaður mæltist að undirlagi skólastjórnarráðs til þess, að Sveinbjörn Egilsson tæki að sér skólameistaraembættið, en Sveinbjörn mun í fyrstu hafa ver- ið tregur til. Hann sigldi til Dan- merkur og dvaldist í Kaupmanna- höfn veturinn 1845—46 og kynnti sér skólamál. Sveinbjörn mun hafa átt þátt í samningu þeirrar bráðabirgðareglugerðar, sem sett var 30. maí 1846 og skólinn skyldi starfa eftir. Hann mun þó hafa fengið færra fram en vildi og ýmsu hagað öðruvísi en hann hefði kosið. í 1. grein er ætlunar- verki skólans lýst á eftirfarandi hátt, en reglugerðin birtist á ís- lensku í Reykjavíkurpóstinum: „... bæði á hann að veita læri- sveinum svo mikla þekkingu og svo mikla mentun, sem þeir menn þurfa við, er ætla sér að yðka sér- staklegar vísindagreinir í Kaup- mannahafnar háskóla, svo á hann og að undirbúa þá, sem æskja að komast í prestaskóla þann, er setja skal á íslandi í sambandi við latínuskólann, handa þeim mönnum, sem vílja verða prestar þar í landi." Af framangreindu sést, að skólahús Menntaskólans í Reykja- vík er orðið 137 ára gamalt. Enda þótt húsnæði skólans hafi aukist „íslands einasti skóli, sem sein- ast var á Bessastöðum var nú al- gjörlega fluttur til Reykjavíkur í haust, þar sem skólahúsið nýja, nú var albúið. l*að má fullyrða, að hið nýja skólahús er það veg- legasta, sem skólinn hér nokk- urntíma hefur eignast, enda hefir verið mjög til þess vandað, og ekki sparað fé, er því ekki að furða þó mikið hafi geingið í söl- urnar, en því fé má kalla vel var- ið, því hvörjum íslendingi mun þykja það miklu varða, að lands- ins einasti skóli sé vel úr garði gjörður. í skólanum eru nú 60 lærisveinar, sem skipað er í 3 bekki, eru þeir á fæði hjá inn- búum í Reykjavík, en hafa allir svefnstofu og daglegt aðsetur í skólanum. Einsog siður er til, var hinn nýi skóli hátíðlega vígður 1. okt. af landsins byskupi, í viður- vist stiptamtmannsins, skólans kennara og lærisveina og þeirra embættismanna, sem eru í Reykjavík og þar í grend.“ Reykjavíkurpósturinn, okt. 1846. lítillega á þessum tíma með vax- andi nemendafjölda, hefur þróun mála þó orðið sú, að nemendur rúmast hvergi nærri allir í eigin húsnæði skólans. Við skólaslit nú í vor gerði Guðni Guðmundsson rektor húsnæðismálin að umræðu- efni. Hann sagði m.a. að tími væri kominn til að gera eitthvað í þeim málum, því það væri fastur liður og hefði verið í yfir 30 ár að gera húsnæðisvandann að umræðuefni við skólaslit. Blaðamaður Morgun- blaðsins rabbaði við Guðna rektor nýlega um húsnæðisvandræðin í rektorsstofu hins gamla skólahúss Menntaskólans og bað hann fyrst að rekja að nokkru þróun húsnæð- ismála skólans. „Áður en við hefjum að rekja þá sögu, er e.t.v. rétt að ég minnist fyrst á fatahengið sem var breytt í kennslustofu. Það getur verið lýs- andi dæmi um þróun mála hjá okkur," sagði Guðni rektor. „Það var fyrir um 50 árum sem gamla 2. bekkjarstofan, eða castrian svo- kallaða, var gerð að fatahengi. Var þar síðan fatahengi þar til sl. sumar, en þá varð ljóst að ekki yrði hægt að kenna öllum efri- bekkingum að morgni eins og ver- ið hefur sl. 10 ár. Var þá brugðið á það ráð að útbúa skólastofu í fata- henginu og fjölga þar að auki stof- um sem lánaðar hafa verið í Mið- bæjarskólanum úr tveimur í fjór- ar. Með fimm nýjum kennslu- stofum bjargaðist málið. Nú er þörfin sú sama.“ Ég sé að Guðni rektor er í þann veginn að fara að halda þrumandi ræðu um húsnæðisvandann sem hann er nú að glíma við, enda var rektor einmitt að reyna að koma öllum nemendum skólans fyrir með miklum erfiðismunum þegar blm. bar að garði. Ég bað hann ræða nánar um þróun mála. „Þú sérð hvernig maður er orð- inn,“ segir Guðni kíminn. „Það Gamla skólahúsið ásamt íþöku, en Casa nova er hin hvíta bygging að baki þeirra. Þá sést einnig Þrúðvangur, en húsið er hið þriðja frá horni Bókhlöðu- stígs og Laufásvegar, austan hans. MorgunbMiA/ ÓI.K.M Guðni Guðmundsson rektor Menntaskólans f Reykjavfk á skrifstofu sinni í garala skólahúsinu. þarf lítið til að maður byrji að æsa sig. Þrúðvang á Laufásvegi hefur Menntaskólinn haft á leigu í hart- nær aldarfjórðung, en þar var Tónlistarskólinn í Reykjavík áður og þar áður íbúðarhús, þar sem Einar Benediktsson skáld bjó. Eina stofan sem talist getur eðli- leg kennslustofa í Þrúðvangi er stofa sem Tónlistarskólinn lét byggja. Afgangurinn er stássstofa og svefnherbergi. Upphaflega er skólinn þetta gamla skólahús sem við sitjum nú í og þá voru sex kennslustofur á jarðhæð, auk hús- varðaríbúðar og kennarastofu. Á miðhæð var hátíðarsalurinn í norðurenda, auk þess sem svefn- loft heimavistar voru á miðhæð. Langaloft sneri út að Lækjargötu og Litlaloft út að porti. Þá var rektorsíbúð á hæðinni. Á háaloft- inu voru geymsluherbergi og að- staða fyrir þjónustufólk. Síðan er teiknistofa innréttuð í norður- enda, náttúrufræðistofa (þar sem var steinasafn Jónasar Hall- grímssonar) í kvisti og spítali í suðurenda, en þar voru nemendur settir í sóttkví, auk þess sem önn- ur hjúkrun var veitt. Svo er það að heimavistin er lögð niður skömmu fyrir aldamót og tvær kennslu- stofur gerðar úr Langalofti og líka smákompa, sem notuð var seinna sem fjölritunarherbergi, en þar mun líka fyrsti stærðfræðideild- arbekkur skólans hafa verið til húsa. Hún er nú svonefnd T-stofa og notuð til kennslu. Rektor flytur síðan úr húsinu og þá verða þar til

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.