Morgunblaðið - 26.06.1983, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JÚNÍ 1983
39
Páll Pálsson ■
Minningarorð
Fæddur 19. ágúst 1912.
Dáinn 17. aprfl 1983.
Um aldamótin var margt í
heimili víða til sveita. Aðdrættir
voru erfiðir og býlin sjálfum sér
nóg um flesta hluti. Þannig var
um Seljaland í Fljótshverfi, þar
sem Páll Pálsson fæddist 19. ágúst
1912. Systkinin muna þennan dag
með bjartri sól og strekkingsvindi,
en nýr bróðir var ekkert tiltöku-
mál, því það var nær árviss við-
burður að barn fæddist á Selja-
landi. Páll var hinn tíundi í röð-
inni af fimmtán systkinum, auk
hálfbróðurs.
Foreldrar Páls voru Málfríður
Þórarinsdóttir og Páll Bjarnason.
Móðir Málfríðar var Kristín
Jónsdóttir bónda á Dalshöfða í
Fljótshverfi Magnússonar, en fað-
ir Málfríðar var Þórarinn
Þórarinsson bónda á Seljalandi
Eyjólfssonar. Páll var sonur
Bjarna bónda og hreppstjóra í
Hörgsdal á Síðu Bjarnasonar
hreppstjóra á Keldunúpi og Helgu,
yngstu dóttur sr. Páls Pálssonar
prófasts í Hörgsdal. Málfríður og
Páll byrjuðu sinn búskap á Selja-
landi í tvíbýli við foreldra Mál-
fríðar. Efni voru góð á Seljalandi
á þeim árum en í hönd fóru erfið-
ari tímar. í páskaáhlaupi 1917
tapaðist nær helmingur fjár-
stofnsins, ær króknuðu lambfull-
ar. Bóndinn lagðist í brjósthimnu-
bólgu um sumarið og lá rúmfastur
Hússtjórnarskóli
Reykjavíkur:
Nýjung í
kennslu
næsta vetur
HÚSSTJÓRNARSKÓLA Reykjavík-
ur var slitiö 20. maí sl. Við skólaslit
lýsti skólastjórinn, Jakobína Guö-
mundsdóttir, starfsemi skólans.
Skólinn starfaði með svipuðu
móti og síðastliðin ár. Fyrri hluta
vetrar voru starfrækt fjöldi nám-
skeiða, mismunandi að lengd og
með margvíslegu námsefni. Síðari
hluta vetrar var starfræktur 5
mánaða hússtjórnarskóli með
heimavist svo og dag- og kvöld-
námskeið eftir því sem húsnæðið
leyfði.
Næsta vetur er í ráði að taka
upp þá nýbreytni, að nemendum 5
mánaða hússtjórnarskólans verð-
ur gefinn kostur á hagnýtum und-
irbúningi í meðferð líns, ræstingu
á herbergjum, framreiðslu í sal og
í gestamóttöku. Þetta nám verður
skipulagt í samráði við Samband
veitinga- og gistihúsa.
Fjórir árgangar eldri nemenda
heimsóttu skólann laugardaginn
14. maí. Það er árviss viðburður að
eldri nemendur heimsæki skólann
og færi honum gjafir. Þessar
heimsóknir eru mjög mikils virði
fyrir skólann og sýna mikla
tryggð og ræktarsemi fyrrverandi
nemenda.
Alls stunduðu um 550 nemendur
nám í skólanum sl. vetur. Fæðis-
kostnaður á mánuði fyrir heima-
vistarnemendur var kr. 1100,00.
Mikil aðsókn er að skólanum.
Vegna fyrirspurna skal tekið
fram að öll námskeið næsta vetrar
verða auglýst í byrjun september
nk. Æskilegt er að umsóknir ber-
ist sem fyrst um 5 mánaða hús-
stjórnarskólann sem hefst í byrj-
un janúar næstkomandi.
(Frá Hússtjóniarskóla Kvíkur)
í hálft annað ár. Vorið 1918 var
með eindæmum kalt og sumarið
graslítið. Kötlugos í október 1918
bætti gráu ofan á svart og eyði-
lagði alla beit. Bústofninn komst
niður í 60 kindur, 2 kýr og nokkur
hross til að framfleyta þrettán
barna heimili. Heilsa bóndans var
brostin, en elstu börnin léttu nú
undir, og með seiglu, útsjónarsemi
og æðruleysi komst heimilið gegn-
um þessar þrengingar án nokk-
urra opinberra styrkja. Börnin
komust öll á legg og döfnuðu vel.
Bræðurnir réðust sem unglingar í
vinnu á næstu bæi, og hinir elstu
fóru til sjós á vetrum, gangandi
um langan veg. Þannig lögðu þeir
heimilinu drjúgt til og því var
veitt eftirtekt, að systkinin frá
Seljalandi báru með sér þann brag
sem einkenndi fólk frá góðum
heimilum. Páll Bjarnason lést af
lungnabólgu árið 1922, aðeins 47
ára að aldri. Elsti sonurinn, Þór-
arinn, tók þá við búsforráðum
ásamt móður sinni. Þrátt fyrir
þröng efni var myndarbragur á
heimilinu, gestrisni og hjálpsemi í
heiðri höfð og sá höfðingsbragur
er enn á Seljalandi.
Þótt Páll Pálsson hafi verið of
ungur til að skilja alvöru lífsins á
þessum árum, fer ekki hjá því, að
hugur hans hafi mótast af þeirri
samheldni, nægjusemi og hjálp-
fýsi sem hann ólst upp við meðal
heimilisfólks og nágranna. Páll
þótti snemma lipur til snúninga,
léttur og vinnufús. Tvo vetur sótti
hann vinnu til Grindavíkur um
vertíð en réðist svo vinnumaður að
Rauðabergi í Fljótshverfi. Þar var
Páll til heimilis ein tíu ár en
dvaldi síðari árin í Reykjavík við
ýmis störf um vetur. Páll var
snemma steyptur í það mót, sem
hann hélt um alla ævi. Hann var
léttur í lund, með góða kímnigáfu,
hláturinn hvell og smitandi. Hann
var frjáls í skoðunum, hafði allt á
hreinu, en lét engan teyma sig. Öll
verk vann hann af natni, sem bar
honum gott vitni. I Reykjavík bjó
Páll lengst af hjá Helgu systur
sinni og mági, Guðbjarti Björns-
syni. Árið 1947 réðist Páll í vinnu
við umsjón með Hafnarböðunum í
Reykjavík með Guðbjarti, sem þar
var fyrir. Á nýársdag 1950 kvænt-
ist Páll Sólveigu Kolbeinsdóttur
frá Eyvík í Grímsnesi Jóhannes-
onar bónda þar, og Steinunnar
Magnúsdóttur frá Haga í Gríms-
nesi. Bróðir Páls, Sigurður, hafði
nokkrum árum fyrr kvænst Önnu
Margréti, systur Sólveigar.
Páll og Guðbjartur voru sam-
hentir um rekstur Hafnarbaðanna
og nutu almennra vinsælda meðal
sjómanna og verkamanna þar.
Eftir lát Guðbjarts 1957 kom
Bjarni, bróðir Páls, til starfa með
honum og unnu þeir saman þar til
Hafnarbúðir tóku til starfa 1962
og gömlu böðin voru lögð niður.
Viðskiptavinir voru af misjöfnum
toga en allir rómuðu Pál fyrir sér-
staka lipurð og greiðasemi. Páll
kaus nú að breyta til um vinnu og
réðist til verktaka, sem unnu við
lögn hitaeitu og aðrar byggingar-
framkvæmdir, fram til ársins
1966, að þau hjónin keyptu verslun
að Grettisgötu 64 við Barónsstíg.
Verslunin var ekki stór en vann
sér fljótt vinsæidir. Páll var góður
sölumaður, kurteis og lipur en
aldrei ágengur, áreiðanlegur í öll-
um viðskiptum og greiddi öll inn-
kaup út í hönd. Þau Sólveig ráku
verslunina af sérstakri natni og
eljusemi í 14 ár fram til ársins
1980, að heilsa Páls tók að bila.
Börn Páls og Sólveigar eru þrjú:
Kolbeinn, f. 11. október 1953, út-
varpsvirki með langa reynslu í
þjónustu við fiskiskip vegna fisk-
leitar- og siglilngatækja. Kolbeinn
er einnig mikill áhugamaður um
óbyggðaferðir, jafnt um vetur sem
sumar. Málfríður, f. 7. desember
1956, kennari við Hlíðaskóla í
Reykjavík, gift Björgólfi Jó-
hannssyni, viðskiptafræðingi.
Steinunn, f. 21. maí 1962, stúdent,
við nám í Frakklandi.
Hjálpsemi Páls við nánustu
ættingja var einstök, og heimili
þeirra Sólveigar stóð þeim ætíð
opið, ef þeir þurftu að dveljast hér
í borginni. Þegar áföll urðu í fjöl-
skyldunni voru þau hjónin fljót á
vettvang með gjafir og búin til
hjálpar. Umhyggja þeirra fyrir
böndum fjölskyldunnar lýsti sér
einnig vel í jólaboðum, sem þau
héldu systkinum sínum, börnum
þeirra og barnabörnum hvert ár
og hafa verið fastur þáttur í jóia-
haldinu, þar sem ungir og gamlir
hittust. Á þennan hátt endurgalt
Páll þá umhyggju og hjálpsemi,
sem hann naut á Seljalandi í
æsku. Það er mikill missir að Páli
en bjart yfir minningu hans líkt
og deginum, þegar hann fæddist.
Sárastur er missirinn fyrir Sól-
veigu og börnin. Þeim vottum við
innilega samúð.
Sveinbjörn Björnsson.
Norræna Húsiö:
Fyrirlestur
um list við
kennslu
SÆNSKI mvndlistarmaðurinn
LARS HOFSJÖ heldur fyrirlestur í
Norræna húsinu mánudaginn 27.
júní kl. 20.30. Nefnir hann fyrirlest-
ur sinn „Konsten í skolorna — er-
farenheter frán Sverige“. Máli sínu
til skýringar sýnir hann myndir.
Lars Hofsjö er staddur hér á
landi í tilefni þess, að honum hef-
ur verið falið að mála altaristöflu
í kirkjuna á Staðastað á Snæ-
fellsnesi. Hann hefur hlotið styrk
til farar sinnar hingað frá m.a.
Norræna félaginu í Svíþjóð, Lett-
erstedtska félaginu og félaginu Is-
land-Sverige. Við fyrri komur sín-
ar til íslands var listamaðurinn til
ráðgjafar um litaval og annað
varðandi viðgerð á kirkjunni á
Staðastað. Lars Hofsjö hefur
haldið nokkrar myndlistarsýn-
ingar á íslandi og unnið hér að list
sinni.
Styrkir þeir, er listamaðurinn
hefur hlotið, gera honum kleift að
vinna endurgjaldslaust að altar-
istöflumálningunni.
Fyrirlesturinn í Norræna hús-
inu er öllum opinn.
Fréttatilkynning.
+
Viö þökkum innilega öllum sem sýndu okkur samúö og vinarhug
viö andlát og útför eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur og
afa,
SIGURBERGS ÁRNASONAR,
Svínafelli, Hornafiröi.
Þóra Guömundsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
Otför eiginmanns míns, fööur okkar og tengdafööur,
JÚLÍUSAR EINARSSONAR,
Skólaheiöi 7, Kópavogi,
veröur gerð frá Kópavogskirkju mánudaginn 27. júní nk. kl. 1.30.
Þeim sem vildu minnast hins látna er vinsamlegast bent á Sunnu-
hlíö, hjúkrunarheimili aldraöra í Kópavogi.
Snjólaug Þorsteinsdóttir,
Þorsteinn Júlíusson, Esther Ólafsdóttir,
Guöríöur Júlíusdóttir, Höröur Jónsson,
Anna Svanborg Júlíusdóttír, Örn Sveinsson.
+
Ástkær eiginmaður minn og faöir okkar,
BALDURJÓNSSON
fró Mel,
rektor Kennarahóskóla fslands,
veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni þriöjudaginn 28. júní
kl. 1.30.
Jóhanna Jóhannsdóttir,
Sigurður Baldursson,
Jóhann Baldursson,
Ingibjörg Baldursdóttir.
+
Þökkum af alhug auösýnda samúö við andlát og jaröarför eigin-
manns míns, fööur okkar, tengdafööur, afa og langafa,
SIGURBJÖRNS HALLDÓRSSONAR,
vólstjóra,
Kórsnesbraut 127.
Sólveig Jónsdóttir,
Erla E. Sadowinski, Valdimar Sadowinski,
Rut O. Sigurbjörnsdóttir, Eiríkur E. Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum innilega auösýnda samúö og viröingu viö andlát og útför
fööur okkar, tengdafööur og afa,
RUNÓLFS RUNÓLFSSONAR
fró Bræöratungu, Vestmannaeyjum.
Jón Runólfsson,
Sigrún Runólfsdóttir,
Þorsteinn Runólfsson,
Ragnar Runólfsson,
Höröur Runólfsson,
Ástþór Runólfsson,
Runólfur Runólfsson,
og
Ágústa Björnsdóttir,
Ágúst Jóhannsson,
Dóra Ingólfsdóttir,
Geirþrúöur Jóhannessen,
Kristín Baldvinsdóttir,
Guðrún Guömundsson,
Kristin Siguröardóttir
barnabörn.
+
Hugheilar þakkir færum viö öllum þeim er sýndu okkur samúö og
vinsemd viö andiát og útför okkar ástkæru eiginkonu, móöur,
tengdamóður og ömmu,
LILJU G. SIGURÐARDÓTTUR.
Óli Guömundsson,
Elín G. Óladóttir, Ægir Ólason,
Ingi Ólason, Herbert Ólason,
tengdabörn, barnabörn og aörir aöstandendur.
+
Alúöarþakkir fyrir auðsýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför
móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu,
FRÍDU INGIMUNDARDÓTTUR,
Klúku ( Bjarnarfiröi.
Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöföa 4 — Sími 81960
ORION