Morgunblaðið - 28.06.1983, Qupperneq 1
48 SIÐUR
lariSíiwMafoiifa
143. tbl. 70. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 1983
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Arafat leitar stuðnings
á meðal arabaleiðtoga
Andstæðingar
Arafats
Fimm meðlimir PLO, sem gengið
hafa í lið með Mousa, helsta and-
streðingi Arafats innan samtakanna.
Myndin er tekin í Bekaa-dalnum í
Líbanon. Símamynd AP.
Túnis, Damaskus og Beirút, 27. júní. AP.
YASSER Arafat, leiðtogi frelsishreyfingar Palestínumanna, PLO, kom í dag
til Túnis og hitti Habib Bourguiba, forseta landsins að máli. Talið var, að
hann flygi áleiðis til Algeirsborgar í kvöld.
Viðræður Arafats og Bourgu-
iba snerust aðallega um þau
vandamál, sem steðja að PLO-
samtökunum um þessar mundir
svo og ástandið í Bekaa-dalnum í
Líbanon. Lýsti forsetinn yfir full-
um stuðningi sínum við samtökin
og sagði, að Túnis myndi áfram
Walesa
heldur
áfram
Varsjá, 27. júní. AP.
LECH Walesa bar um helgina til
baka fregnir þess efnis, að hann
hygðist draga sig í hlé frá baráttu-
málum verkalýðsins í Póllandi.
Sterkur orðrómur var á kreiki
þess efnis eftir frétt á forsíðu
málgagns Vatikansins, L'Osserv-
atore, á föstudag.
„Ég vil ekki bregðast þeim,
sem treysta mér,“ sagði Walesa
og bætti því við, að hann myndi
víkja ef það kæmi í ljós að það
yrði málstað Samstöðu til góða.
Virgilio Levi, ritstjóri L’Oss-
ervatore, sagði af sér stöðu
sinni um helgina eftir að ljóst
var að grein hans túlkaði ekki
afstöðu Páfagarðs. 1 greininni
var látið að því liggja, að Wal-
esa hefði „tapað orrustunni" og
væri að hverfa af sjónarsviðinu.
Sjá nánar á bls. 20:
„14. ágúst er mikilvæg-
asti dagurinn sem bíður
þjóðarinnar."
reiðubúið að veita Palestínu-
mönnum hæli.
Abu Mousa, leiðtogi uppreisn-
armanna innan PLO, hvatti í dag
til fundar Fatah-hreyfingarinnar
til þess að leysa þau vandamál,
sem upp hefðu komið. Hún er
stærst þeirra átta hreyfinga, sem
eru innan PLO. Lét Mousa þess
getið, að hann væri reiðubúinn að
fylgja þeirri framtíðarstefnu, sem
fundurinn ákvæði.
Assad, Sýrlandsforseti, hitti í
gær að máli sendinefnd marx-
ista-fylkingar innan PLO, sem
hefur reynt að bera klæði á vopn-
in. Háttsettur embættismaður
sýrlensku stjórnarinnar sagði í
gær, að sendinefnd þessi hefði
reynt að koma á sættum á milli
Arafats og Assads, en enn ekki
tekist. Tvær fylkingar marxista
innan PLO tilkynntu í gær sam-
runa sinn í þeirri viðleitni að
koma á einingu innan samtakanna
á ný.
Sýriandsstjórn hefur boðið fyrr-
um forsætisráðherra Líbana, Saeb
Salam, í opinbera heimsókn til
viðræðna. Er þetta fyrsta vísbend-
ingin um að Sýrlendingar kunni
e.t.v. að vera að gefa eftir og
reiðubúnir til viðræðna um að
kalla herlið sitt heim frá Líbanon.
Moshe Arens, utanríkisráðherra
ísrael, sagði í gær, að hann væri
sannfærður um að Sovétstjórnin
gæti talið Sýrlendinga á að kalla
herlið sitt heim.
Átök brutust í dag út á milli
hermanna kristinna hægrimanna
og Drúsa í Líbanon með þeim af-
leiðingum að þrír lágu í valnum,
allir úr röðum kristinna. Þá var
þriggja úr þeirra hópi saknað.
Gerbreytir hernaðar-
stöðunni í heiminum
— segir Ustinov um meðaldrægar
flaugar Bandarfkjamanna í Evrópu
Moskvu, 27. júní. AP.
DIMITRY F. Ustinov, utanríkisráð-
herra Sovétríkjanna, varaði í dag við
Kristilegir demókratar
töpuðu talsverðu fylgi
því, að staðsetning 572 nýrra meðal-
drægra kjarnorkueldflauga Banda-
ríkjamanna í Evrópu „gerbreytti
hernaðarlegri og stjórnmálalegri
stöðu mála í heiminum".
Jafnframt þessari viðvörun
sinni lagði Ustinov á það ríka
áherslu, að Sovétmenn sofnuðu
ekki á verðinum og viðhéldu ár-
vekni sinni þannig að þeir væru á
öllum tímum reiðubúnir til þess
að svara árás óvinarins.
Fréttir frá Moskvu í dag
hermdu, að fulltrúar Varsjár-
bandalagsríkjanna væru að safn-
ast þar saman vegna fyrirhugaðs
fundar aðildarríkja bandalagsins,
sem talið er að hefjist á morgun,
þriðjudag.
Hljótt hefur verið um þennan
fund í sovéskum fjölmiðlum og bú-
ist er við því, að ekki verði frá
honum skýrt fyrr en að honum
loknum. Aðalumræðuefnið er talið
munu verða fyrirhuguð staðsetn-
ing bandarískra eldflauga í Evr-
ópu svo og ástandið í Póllandi.
Ovenju lítil kjörsókn og 5% skiluðu auðu
Kóm, 27. júní. AP.
SAMKVÆMT síðustu tölum úr þingkosningunum á Ítalíu, sem lauk í gær,
virðast kristilegir demókratar hafa tapað verulegu fylgi. Flokkur kommún-
ista hafði bætt eilítið við sig, en á óvart kom hversu mikil atkvæðaaukning
varð hjá nýfasistum. Þrátt fyrir fylgistapið var talið að kristilegir demókratar
héldu forskoti sínu, en útkoma flokksins er sú lakasta í 37 ára sögu ítalska
lýðveldisins.
Þegar talin höfðu verið atkvæði
úr tæplega 43.000 kjörkössum af
rúmlega 80.000 höfðu kristilegir
demókratar fengið 32,2% atkvæða
í kosningunum til fulltrúadeildar-
innar. Þeir fengu 38,3% í kosning-
unum 1979. Kommúnistar höfðu
þá fengið 31,7% og höfðu bætt
hálfu öðru prósentustigi við sig.
Sósíalistar voru með 10,9% og
nýfasistar komu næstir með 6,1%
atkvæða. Lýðræðisflokkurinn var
með 5% og aðrir flokkar með
minna fylgi.
Þegar taiin höfðu verið 86% at-
kvæða í kosningum til öldunga-
deildarinnar voru kristilegir
demókratar með 32,7%, kommún-
istar 31%, sósialistar 11,4%, ný-
fasistar 7,1% og lýðræðissinnar
með 4,5%, aðrir minna.
Leiðtogi flokksins, Ciriaco de
Mita, sagði um fylgistapið, að ljóst
væri að kjósendur væru óánægðir.
Flokkurinn hefur legið undir
þungum ásökunum vegna bágbor-
ins efnahags landsins, 17% verð-
bólgu og mikils atvinnuleysis.
Kjörsókn var um 89%, en talið
er að a.m.k. 5% þeirra, sem kusu,
hafi skilað auðum eða ógildum
seðlum. Hefur kjörsókn aldrei ver-
ið svo léleg á Italíu.
Allt stefndi í að kommúnistar á ít-
alíu kæmu vel út úr kosningunum.
Leiðtogi þeirra, Enrico Berlingauer,
skilar hér atkvæði sínu í kjörkass-
ann. Símamynd AP.
Breskir bræður hlupu
yfír Himalayafjöllin
Kawalpindi, PakiMtan, 27. juní. AP.
BRESKIR bræður, Adrian og Richard Crane, komu í morgun tíu mínút-
um á eftir áætlun í mark eftir sannkallað maraþonhlaup yfir Himalayafj-
öllin. Bræðurnir voru reyndar ekki að etja kappi við einn né neinn, aðeins
klukkuna, en hlupu til þess að afla fjár fyrir góðgerðarstofnun í Lundún-
um.
„Það er í sjálfu sér allt í lagi
að taka upp á þessu, en við
endurtökum þetta ekki,“ sögðu
bræðurnir í morgun. Vegalengd-
in, sem þeir hlupu var 3243 kíló-
metrar og það tók bræðurna 101
dag að hlaupa hana. Eins og
sönnum Bretum sæmir var
fyrsta ósk þeirra að hlaupinu
loknu að fá tebolla.
Hlaup bræðranna var ekki
tekið út með sældinni. Það hófst
í Darjeeling á Indlandi þann 18.
mars. Þeir töfðust um sjö daga
vegna veikinda og fætur þeirra
voru alsettir blöðrum og líkamar
þeirra þaktir kýlum eftir skor-
dýrabit er þeir komu i mark. Á
leiðinni hrepptu þeir allar hugs-
anlegar útgáfur veðurfars; allt
frá brennandi sólarhita og til
frosts og bylja.