Morgunblaðið - 28.06.1983, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNl 1983
3
Aðeins eitt varð-
skip á miðunum
— Þór lagt í næsta mánuði
AÐEINS eitt varðskip, Þór, er nú á miðunum og liggja þá þrjú
í höfn. Auk þessa er önnur aðalvél Þórs biluð og dregur það
mjög úr ganghraða skipsins. Á fjárlögum er aðeins gert ráð
fyrir úthaldi „tæplega“ þriggja skipa á árinu.
Að sögn Gunnars Bergsteins-
sonar, forstjóra Landhelgisgæzl-
unnar, er skýring þessa meðal
annars sú, að verið er að leysa
sumarleyfavanda, skipin verða að
koma inn til að taka vatn og vist-
ir og vegna fría. Þá sagði Gunnar,
að aðeins hefði verið gert ráð
fyrir því að gera út tvö skip um
Útför Vil-
mundar
Gylfasonar
ÚTFÖR Vilmundar Gylfasonar,
alþingismanns og fyrrverandi
ráðherra, verður gerð frá Dóm-
kirkjunni í Reykjavík í dag
klukkan 15. Sr. Karl Sigur-
björnsson jarðsyngur.
hásumarið. Eitt skipanna færi af
stað í byrjun júlí og yrðu þá tvö
skip á miðunum. Vélin í Þór hefði
bilað vegna óhapps fyrir nokkru
síðan og þar sem áætlað hefði
verið að leggja skipinu í byrjun
næsta mánaðar, yrði því vænt-
anlega haldið úti þangað til og
tæki þá annað skip við. í ágúst
eða september yrðu skipin síðan
þrjú. Varðskipin væru fjögur en í
fjárlögum væri aðeins gert ráð
fyrir að þremur þeirra yrði hald-
ið úti í senn, nema yfir hásumar-
ið. I áætluninni væri samanlagt
gert ráð fyrir 33 mánaða úthaldi
varðskipa á þessu ári.
Gunnar sagði, að óráðið væri
hvað gert yrði við Þór eftir að
honum yrði lagt nú, en ólíklegt
væri að hann yrði gerður út aft-
ur. Þegar ekki væri fjárveiting til
nema útgerðar þriggja skipa væri
eðlilegt að nota þau nýrri, Óðinn,
Tý og Ægi.
Framkvæmdastjóri Fram-
sóknar á friðarþingi í Prag
HAUKUR Ingibergsson, fram- Hauks sótti Haukur Már Har-
kvæmdastjóri Framsóknarflokksins, aldsson, fyrrverandi blaðafulltrúi
er nýkominn af friðarþingi sem Alþýðusambands íslands, friðar-
haldiö var f Prag í Tékkóslóvakíu. þingið.
Mbl. er kunnugt um, að auk
1 . . *,. 1
L* ■ %
Mikið tjón í aftaka-
veðri á Fáskrúðsfirði
Fáskrúdsfirði, 27. júni.
SNEMMA Á sunnudagsmorgni gekk hér yfir aftaka norðanveóur, sem er mjög
sjaldgæft á þessum árstíma, og gránaði í fjöll. Gífurlegur vindhraði var í sumum
hviðunum, hávaðarok.
Allmiklir skaðar urðu hér í þessu
óveðri. Mest tjón varð á nýbygg-
ingu, sem Kaupfélag Fáskrúðsfirð-
inga er að reisa, en búið var að slá
upp fyrir efstu hæð verzlunarhúss-
ins, sem er á þremur hæðum. Hluti
af því fauk alveg um og annað gekk
úr lagi.
Verulegar skemmdir urðu á
trjágróðri í görðum, greinar brotn-
uðu af trjám og eins fór lauf illa,
sérstaklega á ösp og viðju, en hún
er nánast svört eftir veðrið. Þá fuku
tveir litlir róðrarbátar og annar
þeirra eyðilagðist alveg. Engin slys
urðu á fólki svo vitað sé.
Segja má að undanfarna daga
hafi verið hér mjög gott veður, að
undanskildum skellinum á sunnu-
dag, og á laugardagskvöldið fór
mikið af unglingum og börnum í
NÚ eru rúmlega 30 erlend fiskiskip
að veiðum innan íslenzku fiskveiði-
lögsögunnar. Eru þau öll færeysk eða
norsk og veiða hér samkvæmt samn-
ingum milli viðkomandi landa.
Að sögn Landhelgisgæzlunnar
útilegu inn fyrir bæinn. Voru for-
eldrar og forráðamenn barnanna
komnir á stjá um sexleytið á sunnu-
dagsmorgni, en þá voru tjöldin far-
in að fjúka. Harðasta veðrið stóð
yfir í um fjóra klukkutíma.
í dag er hér suðvestan blíða og
sólskin.
eru skipin aðallega á veiðum við
sunnanvert landið, ýmist austar-
lega eða vestarlega. Frá Færeyjum
voru hér síðastliðinn sunnudag 25
skip, tveir togarar og 23 línu- og
handfærabátar. Þá voru hér 7
norskir línubátar sama dag.
32 erlend fiskiskip
að veiðum hér við land
sem stendnr til mánaöamóta
BMW 30.000,- KR. ODYRARI I DAG EN AÐUR
Nú seljum viö síöustu bílana á sérstöku tilboösveröi, sem ekki BMW 316 nú kr. 325.000,-
veröur endurtekiö. Tækifærið þitt, til aö eignast BMW gæöing á BMW 320 nú kr. 390.000,-
30.000,- kr. lægra veröi en viö höfum getað boðið upp á. BMW 518 nú kr. 385.000,-
ALDEILIS GLÆSILEGT TILBOD SEM STENDUR AÐEINS TIL MÁNAÐAMÓTA, SMELLTU ÞÉR Á GÆÐINGINN
KRISTINN GUÐNASON HF.
SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 86633