Morgunblaðið - 28.06.1983, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 1983
13
MorgunblaðiA/Ásgeir.
Steypuvinna á Gullþúfu
Að undanförnu hefur Vita- og hafnarmálastofnunin unn-
ið að því að styrkja undirstöður vitans á Gullþúfu á
Norðfjarðarhorni, eins og fram hefur komið í Morgun-
blaðinu. Á meðfylgjandi myndum má sjá þyrlu Landhelg-
isgæzlunnar ná í steypu á Bakkabökkum og starfsmenn
að vinnu niðri á klettinum.
Ofnaframleidsla Hrafnatinds í Vík:
„Merkilegt ef við komumst
inn á markað í Evrópu“
Árni Oddsteinsson (í miðið), framkvæmdastjóri Hrafnatinds ásamt Tore
B. Langnes (t.v.) og Gísla Jónssyni við nokkra af þeim ofnum sem
framleiddir eru hjá Hrafnatindi.
— segir Árni
Oddsteinsson
„MÉR finnst merkilegast ef við
komumst inn á markað í Evrópu
með þessa ofna,“ sagði Árni
Oddsteinsson framkvæmdastjóri
Hrafnatinds í Vík í Mýrdal er
hann kynnti ofnaframleiðslu fyrir-
tækisins, sem framleitt hefur
rafmagnsofna, sem hugsanlega
verða seldir á markaði í Evrópu (
samvinnu við norska fyrirtækið
Telco í Selbö.
Samkvæmt upplýsingum Tore
B. Langnes frá Telco-fyrirtæk-
inu fullnægja ofnarnir frá
Hrafnatindi þeim gæðakröfum,
sem gerðar eru til rafmagns-
ofna. Framleiðir Hrafnatindur
bæði skipaofna og ofna til hús-
hitunar, svokallaða Telemaster-
ofna.
Tore Langnes sagði að Telco
myndi á næstunni reyna að selja
ofna frá Vík í Mýrdal samhliða
eigin framleiðslu til hinna ýmsu
landa í Evrópu, m.a. til Frakk-
lands, Italíu, Vestur-Þýzkalands
og Skandinavíu. Þá mun Telco í
samvinnu við Hrafnatind kynna
fleiri framleiðsluvörur fyrir
rafhitunar- og miðstöðvarofna-
markaðinn á komandi árum,
samkvæmt upplýsingum Árna
Oddsteinssonar og Tore Lang-
nes.
Fram kom að Telemaster-
ofnarnir eru að jafnaði 10—20%
ódýrari en aðrir rafmagnsofnar,
sem seldir eru hér á landi.
Hrafnatindur hóf starfsemi sína
fvrir þremur árum, og sagði
Árni Oddsteinsson að fyrirtækið
gæti afhent milli fjögur og fimm
þúsund ofna á ári. Nú væri í
undirbúningi prufusending til
útlanda til að kanna hvernig
ofnarnir yrðu tollaðir þar, en á
því byggist samkeppnishæfni á
þarlendum mörkuðum.
Árni sagði að markaðurinn
hér á landi væri ekki nógu stór,
og því væri það mikill ávinning-
ur að framleiða til útflutnings í
samvinnu við stóra framleiðend-
ur eins og Telco. Tore Langnes
sagðist halda að Hrafnatindur
gæti framleitt á mjög sam-
keppnishæfu verði til útflutn-
ings.
íslendingur skipaður prófessor
við Norges Handelshöyskole
Rögnvaldur Hannesson hefur ver-
ið skipaður prófessor f fiskihagfræði
við Viðskiptaháskóla Noregs (Norg-
es Handelshöyskole). Rögnvaldur
gerðist norskur ríkisborgari 1978, en
hann er fæddur hér á landi árið
1943.
Hann lauk fil.cand.-prófi frá há-
skólanum í Lundi, með hagfræði
sem sérgrein, árið 1970, og fjórum
árum síðar lauk hann doktorsprófi
frá sama skóla. Hann starfaði við
rannsóknir og kennslu í Lundi til
ársins 1975. það ár hóf hann störf
sem lektor við háskólann í Tromsö
og frá 1976 hefur hann verið lekt-
or í hagfræði við háskólann í
Bergen.
H
F=
ARMULA11
“Æ
^skriftar-
síminn er 830 33
Nýtt!
Buska
Sykurkar
Hjómakanna
Teketill
Kola og
HAGNÝT HÚSMÓÐIR
Hoföabakka 9,
Reykiavík. S. 85411