Morgunblaðið - 28.06.1983, Side 15

Morgunblaðið - 28.06.1983, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 1983 15 og Vilmundur var, kjósi sér stjórnmál sem lífsvettvang. Ég held, að þeir eigi raunverulega engan kost. Að vísu gat háskóla- menntun hans opnað honum ann- an farveg og við hana hélt hann tryggð, bæði með ritgerðum og kennslu, sem heillaði nemendur af því viðfangsefni, sem við var að fást, en þó ekki síður af kennaran- um sjálfum. En sagan gat aldrei orðið nema hliðargrein. Stjórn- málin áttu hug hans að öðru leyti og án þeirra gat hann ekki verið. Sá kafli í lífi hans verður ekki að fullu skrifaður nú, en eftir stendur þó, að þessu tímabili þjóðarsög- unnar verður aldrei lýst hér eftir, án þess að allítarlega verði fjallað um feril þessa manns, sem nú gengur af sviðinu aðeins 34 ára gamall. Ég veit ekki um neinn mann á líku reki, sem gæti skilið við þannig nú. Sumir sáu Vilmund einkum sem pólitískan einvígisriddara, sem atti kappi við allt og alia, en skorti hins vegar nægilega fótfestu og skilning á raunveruleika stjórn- málalífsins. Slíkir sáu hann fyrst og fremst fyrir sér sem mann, sem kynni öðrum betur að tala til fóiksins, jafnvel óháð því hvað það væri, sem hann hefði að segja því. Þótt eitthvert sannleikskorn kunni að leynast í slíkum ályktun- um, þá eru þær að mestu leyti rangar. Vissulega var Vilmundur öðrum lagnari að tala til fólks, en það var fremur vegna þess, að hann fór sjálfur oft æði nærri um, hvað hlustendur hans voru að hugsa það og það sinnið. En hitt kom líka til, að hann hafði næm- ara auga fyrir stjórnmálaþróun en margir utanaðkomandi héldu. Eft- ir síðustu alþingiskosningar sat ég tvívegis fram á nótt á heimili þeirra Völu yfir kaffibolla og þeim pólitísku vangaveltum, sem þá bar hæst. Spár Vilmundar um hvernig þau mál myndu þróast á næstu vikum tóku mínum langt fram. Framangreindar fullyrðingar um póiitískt innsæi Vilmundar Gylfasonar stangast hugsanlega á við ýmislegt í pólitísku lífi hans sjálfs, en þar koma þá aðrir þættir til. Ég varð var við suma þeirra, þegar ég tefldi við hann skák af veikum mætti. Hann tefldi djarft, vildi helst sjá hilla undir úrslit fremur fljótt. Leikfléttur hans og stórbrotnar fórnir skiluðu oft undraverðum árangri, sem maður sá ekki fyrr en um seinan. En stundum gerðu þær það ekki. Slíkt gerir ekkert til í tafli, en stöðunni verður ekki eins auðveldlega stillt upp á ný í stjórnmálum. Síðasta leikflétta hans, stofnun nýs stjórnmálaflokks, skilaði ótrúlega miklu, þrátt fyrir mikið tímahrak, sem ytri aðstæður sköp- uðu hugmyndasmiðnum. Hver endanleg úrslit verða í þeim leik vitum við ekki enn og höfum kannski næsta lítinn áhuga á því úr því sem komið er. Harmur Völu og barnanna snertir sérhvern mann. Ég votta þeim, foreldrum Vilmundar og bræðrum hans dýpstu samúð mína. Davíð Oddsson í dag er Vilmundur Gylfason, alþingismaður, kvaddur hinstu kveðju. Vilmundur var til skamms tíma í forystusveit Aiþýðuflokks- ins eða þar til hann gekkst fyrir stofnun Bandalags jafnaðar- manna. Hann gegndi fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir flokkinn, sat í flokksstjórn og um hríð í framkvæmdastjórn, annaðist sumarritstjórn Alþýðublaðsins og gegndi formennsku í stefnuskrár- nefnd 1974—75. í kosningunum 1978 og 79 var hann kjörinn á þing fyrir Alþýðuflokkinn og í minni- hlutastjórn Alþýðuflokksins 1978—80 fór hann með embætti dóms- og kirkjumálaráðherra og menntamálaráðherra. Vilmundur var óvenju svipríkur persónuleiki og stjórnmáiamaður. Hann var öðrum hugmyndaríkari, frjór í hugsun og tilfinninganæm- ur. Oft kveikti hann nýja elda og opnaði gáttir, sem áður voru lukt- ar, með málflutningi sínum og veitti með því nýja innsýn í þjóð- félagsgerðina. Hann vildi fara nýjar leiðir og gerði það. Hug- myndir hans vöktu athygli, hvort sem menn voru þeim sammála eða ekki, enda oft umdeildar. En Vil- mundur fylgdi hugmyndum sínum fast eftir og barðist fyrir þeim af atorku og krafti. Á þessari kveðjustund þakkar Alþýðuflokksfólk samveruna og minnist margra góðra stunda. Al- þýðuflokkurinn vottar aðstand- endum öllum dýpstu hluttekningu. Ég og fjölskylda mín sendum Val- gerði, foreldrum og bræðrum inni- legar samúðarkveðjur. Kjartan Jóhannsson Okkur er hleypt í gegnum hlið og bifreiðin rennur áleiðis að starfsmannadyrum Sundaskála. Vilmundur brosir, „þarna er hæstiréttur íslenskra launa- manna, hér færðu að vita hvort þú átt eitthvert erindi til fólks". Ég byrja og brýni raustina yfir skarkala og mas. Vilmundur tekur við, hann talar ekki hátt. Masið hljóðnar, mínúturnar líða, kaffi- tíminn er löngu úti. Vilmundur lýkur máli sínu, það er klappað, hrópað og við ætlum aldrei að losna. Það sama endurtekur sig uppi í Háskóla. Vilmundi lá ekki hátt rómur, en málflutningur hans átti víða hljómgrunn. Vilmundur Gylfason er látinn og rödd hans mun ekki framar hljóma yfir dægurþras lands- manna. Því betur, sem ég skoða sögu síðasta áratugar, því ljósari verða áhrif þessa manns á íslenskt þjóð- líf og stjórnmál. Áhrif þessi sjást þó ekki nema að litlu leyti í hlut- lægum fyrirbærum, heldur í breyttu hugarfari þess fólks, sem á hann hlustaði. Einurð hans og sú virðing, sem hann bar fyrir mann- réttindum og lýðræði, smitaði ekki einungis samherja, heldur einnig mótherja. Þó er ekki enn séð fyrir endann á þeirri hugarfarsbreyt- ingu, sem hann stuðlaði að. Sú sannfæring hans, að nýsköp- unar væri þörf í íslenskum stjórn- málum, byggðist á viðurkenningu þeirrar einföldu staðreyndar, að ör þróun og breytingar í nútíma þjóðfélagi krefjast vinnubragða og skipulags í stjórnnmálum, sem gera kleift að fylgja þessum breyt- ingum eftir. Mannlíf þróast jú þrátt fyrir stjórnmál. Vilmundur benti á, að sú öld, sem nú er geng- in í garð, opnar öllu fólki aðstöðu til að ráða sínum málum sjálft ef valdhafar eru reiðubúnir til að gefa eftir það vald, sem þeir hafa og dreifa því til þeirra, sem valdið eiga. Hann beindi spjótum sínum að þeirri samþjöppun valds, sem einkennir stjórnmál dagsins í dag. Hann hvatti til þess sjálfsagða viðhorfs, að stjórnmál réðust ekki af viija fárra heldur allra. Vilmundur gerði sér ljóst, að hann átti skoðanabræður innan allra stjórnmálaflokka og harm- aði þá staðreynd, að flokksbönd hindruðu, að þeir næðu saman. Seinasta frumvarp Vilmundar, kosningafrumvarpið, miðaði að því að opna leið til aukins lýðræðis og samstarfs kjörinna fulltrúa. Leiðir okkar Vilmundar lágu ekki saman fyrr en 1973, er hann hóf störf við Menntaskólann í Reykjavík, og um leið virka þátt- töku í stjórnmálum. Áhugi Vilmundar á fólki og málefnum, fjör hans og gáski, voru þeir eiginleikar hans, sem mest bar á í okkar fyrstu kynnum. Frásagnargáfa og orðheppni voru honum eðlislæg og aldrei varð honum orðfátt. Fljótlega varð okkur ljóst, að við vorum skoðana- bræður í stjórnmálum bæði hvað leiðir og áherslur snerti. Þegar Vilmundur og Valgerður fluttu á Haðarstíginn var ég við- riðinn þær breytingar sem gera þurfti á húsinu og get þakkað fyrir, að það starf leiddi til vin- áttu við þau hjónin bæði, sem ekki hefur rofnað síðan. Vilmundur var tilfinningaríkur maður með stórt hjarta, en jafnframt framtaks- samur og ábyrgur. I stjórnmálum réði rökhyggja og skapandi hugs- un ferð hans. Hann blés lífi í hugmyndir og störf þess fólks, sem í hans nálægð var. Vilmundur hafði ákveðnar skoðanir á leik- reglum lífsins, sem hann fylgdi stranglega sjálfur, þó svo hann væri mjög umburðarlyndur í garð þeirra sem ekki höfðu þessar leik- reglur í hávegum. Fjör og eldmóður, heiðarleiki og umburðarlyndi, tilfinninganæmi og ástúð eru orð, sem lýsa eiga með fátæklegum hætti þeim eig- inleika Vilmundar sem söknuður minn tengist. Sá harmur er fyllir brjóst mitt á þessari stundu gerir orð og athafnir ófullnægjandi. í einlægni votta ég Valgerði, Guðrúnu og Baldri Hrafni, for- eldrum Vilmundar og bræðrum samúð mína og minna nánustu. Stefán Benediktsson Kveðja frá Menntaskólanum í Reykjavík Hverful eru mannanna örlög. Sumum virðist áskapað að lifa hraðar en aðrir og afköst þeirra og áhrif á umhverfi sitt þar af leið- andi meiri en venjulegra manna. Ég man fyrst eftir Vilmundi Gylfasyni 5 eða 6 ára gömlum, er hann kom með foreldrum sínum á ritstjórn Alþýðublaðsins, gekk fyrir hvern mann, tók í hönd hon- um og kynnti sig með nafni. Sem venjulegur, íslenzkur búri fylltist ég undrun, og síðan hefur Vil- mundur átt stóran hluta af hjarta mínu. Mér hefur alltaf þótt hann hafa til að bera þann eiginleika, sem Engilsaxar tákna með gríska orðinu charisma og hafa notað óspart, einkum eftir daga Johns F. Kennedys. Charisma útleggst, samkvæmt orðabók, guðleg náð- argjöf og hefur aðallega verið not- að um fólk, sem í krafti sjarma, upplags og hugsunar hefur hrifið umhverfi sitt og haft áhrif á það svo að um munar. Ég kenndi Vilmundi skamma hríð í skóla, og sem kennara líkaði mér ekki alltaf, hve mikill tími fór hjá honum í félagsmálastörf, en hann var inspector scholae og vann það verk af mikilli kostgæfni og lét ekkert á sig fá, þótt ég kall- aði hann félagsveru, sem í þann tíð a.m.k. var ekki mikið hrósyrði af mínum vörum. Þegar Vilmundur var kominn heim frá Brelandi með próf í sagnfræði frá virtum brezkum há- skólum, var ég ekki seinn á mér að ráða hann til kennslu við Mennta- skólann, og reyndist það happa- spor, því að hann reyndist frábær kennari og ástsæll af nemendum. Geðþekkur, glaðvær og gáskafull- ur persónuleiki hans naut sín vel í kennslustofunni og þá ekki síður á kennarastofunni, þar sem hann var miðpunktur umræðna og gáska. Um stjórnmálaafskipti Vil- mundar skrifa vafalaust aðrir, sem meira skyn bera á slíkt, en mér virðist einsýnt, að sú char- isma, sem gerði hann að frábær- um kennara og yndislegri mann- eskju, hafi dugað honum til meiri áhrifa á íslenzkt samfélag en stærð þeirra flokka, sem hann fyllti, gaf ástæðu til að ætla. Ég fæ ekki betur séð en þorri stefnu- mála hans sé orðinn óaðskiljan- legur hluti af stefnu flestra stjórnmálaflokka. Fyrir hönd Menntaskólans i Reykjavík þakka ég góð kynni og mikla vinsemd og sendi Valgerði og börnunum innilegustu samúð- arkveðjur okkar allra. Fáir menn, jafnungir, hafa skilið eftir sig stærri spor. Guðni Guðmundsson Fyrir nokkrum árum lagði um- sjónarmaður barnatíma í útvarpi þá spurningu fyrir fjóra alþing- ismenn, sinn úr hverjum flokki, hvað flokkur hans hygðist gera fyrir börnin á barnaári. Þrír þeirra, sem spurðir voru, gerðu ít- arlega grein fyrir öllu því, sem þeim á stundinni datt í hug, að unnt væri að gera fyrir börnin. Ákafinn leyndi sér ekki að verða framarlega í kapphlaupinu um hylii barnanna, og má nærri geta, hversu vel yfirvegaðar hugmynd- irnar voru. Einn þingmannanna svaraði þó spurningunni á allt aðra lund. Þetta var fulltrúi Al- þýðuflokksins, Vilmundur Gylfa- son. Á skýran hátt gerði hann grein fyrir því, að það bezta, sem alþingismenn gætu gert fyrir börnin, væri að gera ekkert sér- stakt fyrir þau. Slíkt væri blátt áfram ekki hlutverk Alþingis. Það sem mestu máli skipti, væri að at- vinnulíf landsins gæti starfað með eðlilegum hætti og stjórnarfarið væri heilbrigt. Þetta væri vissu- lega á ábyrgð Alþingis og ávöxtur- inn, sem af því hlytist, kæmi öll- um til góða, börnum jafnt sem for- eldrum þeirra. Færi Alþingi hins vegar að reyna að hafa áhrif á alla skapaða hluti, þar á meðal á vel- ferð barna í einstökum atriðum, gæti það ekki sinnt höfuðverkefni sínu og óskapnaður einn hlytist af. Enginn, sem á þetta viðtal hlust- aði, gat komizt hjá því að skynja, að í þessu svari fór saman skýr skilningur og mikið hugrekki. Enginn vænir Vilmund Gylfa- son um að hafa sótzt eftir völdum og vegtyllum, eins og stjórnmála- menn eru svo oft grunaðir um. At- ferli hans bar þess ljósastan vott, að svo er ekki. Honum varð þó meira ágengt við að afla sér fylgis og hylli en nokkrum öðrum stjórn- málamanni sinnar kynslóðar. Þetta var ekki vegna þess, að eftir lýðhyllinni sæktist hann sjálfrar hennar vegna. En honum var mik- ið niðri fyrir, og það sem hann bar fyrir brjósti varðaði íslenzku þjóð- ina miklu. En hvað var það þá, sem vakti fyrir stjórnmálamanninum Vil- mundi Gylfasyni? Þetta var hon- um sjálfum eflaust ekki ætíð vel ljóst, og við getum heldur ekki ennþá séð það nema í óljósri mynd. En við getum farið nærri um höfuðdrætti þeirrar myndar. Vilmundur kom fram á sjónar- sviðið í lok skeiðs mikilla fram- fara og velmegunar vestrænna þjóða, þeirra á meðal okkar eigin þjóðar. Þetta skeið var ávöxtur al- mennrar eflingar lýðræðis og félagssamtaka og um leið víðtækr- ar samvinnu stétta, starfshópa og stjórnmálaflokka, sem tryggt hafði atvinnulífinu heilbrigð starfsskilyrði. En jafnframt höfðu áhrif ríkisins aukizt, metnaður stjórnmálamanna og embætt- ismanna magnazt, veldi hags- munasamtaka bólgnað og þungi stórfyrirtækja vaxið. Samfara þessu virtist margt hafa horfið í skuggann, sem mestu varðaði fyrir heill komandi kynslóða. Þar við bættist, að sjálfur árangurinn hafði kippt fótunum undan frekari framförum. Blómaskeiðið var á enda runnið, um sinn að minnsta kosti. Það voru þessi umskipti og af- leiðingar þeirra, sem var viðfangs- efni Vilmundar Gylfasonar. Hann braut heilann um réttmætt hlut- verk Alþingis og ríkisstjórnar, dómstóla, embættismanna og rík- isstofnana og lagði fram um þetta ítarlegar tillögur. Um þær hlutu, að sjálfsögðu, að vera skiptar skoðanir, einnig á meðal þeirra, sem töldu sig skilja vandann. Hinu gat enginn neitað, að hér var verið að takast á við þau mál, sem mestu vörðuðu. Þá var starf og staða verkalýðshreyfingarinnar við nýjar aðstæður annað áhuga- efni Vilmundar. Sú umfjöllun krafðist enn meiri djörfungar en umfjöllun um stöðu Alþingis, og það ekki sízt af manni úr röðum jafnaðarmanna. Starfsemi öflugra atvinnufyrirtækja og samtaka þeirra var þriðji þátturinn. Þar kom til sögunnar misnotkun á að- stöðu og sameiginleg spilling ríkisvalds og atvinnurekendavalds og þær skorður, sem við þessu mátti reisa, annars vegar með frjálsari markaði og aukinni sam- keppni, hins vegar með hóflegu og skynsamlegu opinberu eftirliti. Hugsjónir Vilmundar Gylfason- ar voru í eðli sínu íhaldssamar og því ekki að undra, þótt hann ætti erfitt um vik á vinstra væng stjórnmálanna. Eigi að síður var hann einlægur jafnaðarmaður. Tilfinningar hans voru allar á þá lund, mótaðar af eðli og uppruna. En hann skildi betur en flestir flokksbræðra hans, að sá árangur, sem flokkar jafnaðarmanna höfðu náð í tíð afa hans og föður, hafði fært þá að nýjum krossgötum og að miklu skipti, hvaða leið yrði þá fyrir valinu. Þau mál, sem Vilmundur Gylfa- son lét sig mestu varða, munu verða meginviðfangsefni í íslenzk- um stjórnmálum og íslenzku þjóð- lífi um ókomin ár. Sjálfum mun honum hafa fundizt ferðalagið ganga grátlega seint. En það getur þó ekki orkað tvímælis, að stjórn- málamaður, sem hafði til að bera þann skilning, þá djörfung og þann eldlega áhuga, sem hann gerði, marki djúp spor, hversu skammur sem starfsferill hans reynist. Jónas H. Haralz „Bædi af honum gustur geðs og gerdarþokki stóð“ Afburðaríkum kapítula í ís- lenzkri stjórnmálasögu er lokið. Hann fjallar ekki um flækjur fjöldahreyfinga heldur um áhrif og athafnir einnar sögupersónu. Slíkt er sjaldgæft í pólitík. Við, sem vorum þátttakendur í hraðri viðburðarás þessa skamma tímabils, lítum nú margir til baka með undrun og eftirsjá. Gat þetta allt virkilega hafa gerzt? Hversu margt viljum við ekki hafa getað sagt eða gert öðruvísi en við sögð- um og gerðum? En því verður ekki breytt. Ekkert bætt. Ekkert endursamið. Höfundurinn skráir ekki meira. Kapítulanum er lokið. - O - Fyrir langa löngu var mér sagt ævintýrið um töfraflautuna. Hún var þeirrar náttúru, að sérhver, sem heyrði tóna hennar, gleymdi samstundis öllu öðru og gekk á vit þess, sem lék. Skósmiðurinn yfirgaf leist sinn, barnið gullin sín, bóndakonan strokk sinn og sláttumaðurinn orf sitt og ljá til þess að fylgja flautu- leikaranum. Hvaða lag hann lék eða hvort hann lék vel eða illa kunni sagan ekki frá að greina. Hann lék á töfraflautuna. Vilmundur Gylfason var slíkur flautuleikari. Hann átti töfra- flautuna. Og hún dró fólkið til sín: skósmiðinn og barnið, bóndakon- una og sláttumanninn og alla hina. Suma fúsa. Aðra nauðuga. Suma hrifna. Aðra hneykslaða. En hún dró þá alla og allir komu þeir í humáttina á eftir flautuleikaran- um eins og í ævintýrinu. Var alltaf jafnvel leikið? Voru tónarnir alltaf jafn hreinir? Var aldrei blásin feilnóta? Hver er dómbær um það? Hvaða máli skiptir það? Við eigum mikið af góðum músíköntum, sem alltaf spila kórrétt. Um þá gerast ekki ævintýri. Til þess að svo verði þurfa menn að eiga töfraflautu og kunna að leika á hana. Það kunni Vilmundur Gylfason. Hann var töframaður og hafði slík áhrif á umhverfi sitt. Vilmundur Gylfason vissi um þennan mátt sinn. En hve mikill var hann? Hvar voru takmörkin? Hve máttug var töfraflautan hans ein og án nokkurs undirleiks ef aðeins nógu vel væri leikið? Á það varð að reyna. Vilmundur Gylfason vann sigur — enn einn. Undirbúningslítið fann hann svo til einn og óstuddur jafn mikinn hljómgrunn meðal þjóðarinnar og mætustu forystu- menn stærstu almannasamtaka í landinu höfðu áður fundið saman eftir vandaðan undirbúning og með skipulagðan hóp nafnkunnra einstaklinga sem kór á bak við sig. En svipað hafði áður gerzt — og hverju hafði það breytt? Var sig- urinn enginn sigur? Sat kannski allt við það sama? Hafði engu ver- ið breytt? Var kannski engu hægt að breyta? Til hvers þá að sólunda aftur allri sinni hugkvæmni, allri sinni sannfæringu, öllu sínu þreki? Flautuleikurinn er nú þagnaður. Við, sem heyrðum hann, nemum hann aldrei aftur. Töfraflautan er týnd og þótt hún finnist aftur er enginn, sem kann á hana. En við lifðum ævintýri. Ævin- týrið um töfraflautuna og mann- inn, sem kunni að leika á hana. Við eigum síðar oft eftir að vera spurð: „Hvaða lag lék hann?“ „Lék SJÁ BLS. 35

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.