Morgunblaðið - 28.06.1983, Side 46

Morgunblaðið - 28.06.1983, Side 46
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 1983 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 1983 25 Úrslit í 3. deild ÚRSLIT í 3. deildarleikjum helgarinnar uröu sem hór segir: A-RIÐILL Grindavík — ÍK 2—1. Ari H. Arason og Jónas Skúla- son skoruðu fyrir heima- menn en Ólafur Petersen fyrir ÍK. Víkingur — HV 1—2. Magnús Stefánsson skoraöi fyrir Víkinga en Þorleifur Sigurösson skoraði bæöi mörk HV-manna. Skallagrímur — Ármann 1—0. Gunnar Orrason skor- aði eina mark leiksins. Snæfell — Selfoss 1—3. Sigurlás Þorleifsson og Ein- ar Jónsson skoruðu fyrir Selfoss en Bjarni Jónsson fyrir Snæfell. B-RIÐILL Austri — Huginn 4—1. Bjarni Kristjánsson skoraði tvö mörk fyrir Austra, Sigur- jón bróðir hans og Guö- mundur Árnason skoruöu sitt hvort markiö en Svein- björn Jóhannsson skoraöi fyrir Huginn. Valur — Sindri 3—2. Gúst- af Ómarsson skoraöi öll þrjú mörk heimamanna en Þórar- inn Birgisson og Örn Sveinsson skoruðu mörk Sindra. Þróttur — HSÞ 3—2. Guö- mundur Ingvason skoraði tvö mörk fyrir Þrótt og Páll Freysson eitt en þeir Hinrik Árni Bóasson og Þórhallur Guðmundsson skoruöu fyrir HSÞ. Staöan í 3. deild er nú þessi: A-RIÐILL: Selfoss 6 5 0 1 16—8 10 Grindavík 6 5 0 1 13—9 10 Skallagr. 5 4 10 13—4 9 ÍK 6 13 2 10—8 5 Víking. Ól. 6 2 0 4 8—10 4 HV 6 2 0 4 9—19 2 Ármann 5 0 14 3—8 1 Snæfell 4 0 13 3—9 1 B-RIÐILL: Tindastóll 5 4 10 12—3 9 Austri 5 4 0 1 13—4 8 Þróttur N. 5 4 0 1 9—6 8 Huginn 6 3 12 8—7 7 Magni 4 2 0 2 4—3 4 Valur 5 2 0 3 5—7 4 HSÞ 6 10 5 5—12 2 Sindri 6 0 0 6 4—17 0 SUS í Knattspyrna) Margir reknir • Á einu ári hefur eftirfarandi framkvæmdastjórum verið vísað úr starfi hjá liöum sínum: Bob Houghton (Bristol City), John Barnwell (Wolverhampton), George Kerr (Grimsby), Colin Addison (Derby), Len Ashurst (Newport), Bill Dodgin (North- ampton), Ron Saunders (Aston Villa), Jim Smith (Birmingham), Mike Smith (Hull), Ritchie Morg- an (Cardiff), Alan Oakes (Chest- er), Jimmy McGulgan (Stock- port), Allan Brown (Blackpool), Bobby Roberts (Colchester), Steve Kember (Crystal Palace), Allan Clarke (Leeds), lan Greav- es (Wolverhampton), Frank Lord (Hereford), Bobby Murdoch (Middlesbrough), Arfon Griffith (Crewe), John Newmann (Derby), Peter Anderson (Mill- wall), Ken Craggs (Charlton), Mike Bailey (Brighton) og David Webb (Bournemouth). Keflvíkingar skoruðu bæði mörk leiksins Keflvíkingar fengu KR-inga í heimsókn í 1. deildinni í knatt- spyrnu sl. laugardag, og sýndu þá einstöku gestrisni aö skora mark fyrir gestina, sem dugði þeim til að fara heim meö annaö stigiö. KR-ingar lóku undan nokkurri golu í fyrri hálfleik. Jafn- ræöi var meö liöunum til aö byrja meö, sóttu á víxl en þó virkuðu sóknarlotur KR-inga hættulegri. Á 18. mínútu var dæmd horn- spyrna á Keflvíkinga. Upp úr henni skallaöi Magnús Garöars- son knöttinn í eigiö mark, alger- lega óverjandi fyrir Þorstein, og ef ekki heföi þarna veriö um slys að ræða, heföi þetta verið talið meö glæsilegri mörkum. Þaö sem eftir var hálfleiksins sóttu KR-ingar mun meir, og á 37. mínútu átti Óskar Ingimundarson hörkuskot á markiö af um 12 metra færi. Knötturinn stefndi í efra markhorniö en á ótrúlegan hátt tókst Þorsteini Bjarnasyni aö slá knöttinn yfir. Fjórum mínútum síöar var Óskar aftur á ferðinni með lúmskt skot af um 4 metra færi, en Þorsteinn varöi enn snilld- arlega. Á 44. mínútu tókst Óskari aö leika á Þorstein, en var þá kom- inn nærri endamörkum, svo aö nafna hans Færseth tókst aö bjarga lausu en hnitmiðuöu skoti hans á línu. Fleiri uröu mörkin þvi ekki í hálfleiknum og er óhætt að fullyröa aö frábær markvarsla Þorsteins Bjarnasonar hafi komiö í veg fyrir aö KR-ingar gengu til leikhlés meö 3—4 marka forskot. í síöari hálfleik sóttu Keflvík- ingar mun meir og á 11. mínútu fengu þeir dæmda vítaspyrnu eftir aö Helgi Þorbjörnsson haföi slegiö knöttinn meö hendinni innan víta- teigs. Siguröur Björgvinsson fram- kvæmdi spyrnuna og skaut næst- um beint á Stefán markvörö, sem varöi auðveldlega. Vildu sumir halda því fram aö Stefán heföi hreyft sig áöur en Sigurður spyrnti, en ágætur dómari leiksins, Grétar Noröfjörö, var ekki á sama máli. Eftir vítaspyrnuna sóttu Keflvík- ingar mjög stift, fengu t.d. 3 hornspyrnur í röð, en inn vildi knötturinn ekki. Þaö var svo loks á 82. mínútu, sem Keflvíkingum tókst aö jafna metin. Eftir innkast og nokkurt þóf innan vítateigs KR-inga hrökk knötturinn til Sig- urðar Björgvinssonar, sem skoraði meö föstu skoti í bláhornið niöri. Eftir markið virtust Keflvíkingar slaka nokkuö á og áttu KR-ingar þá nokkrar hættulegar sóknarlot- ur, sem flestar enduöu í öruggum höndum Þorsteins markvarðar. Besti maöur Keflvíkinga og vall- arins í þessum leik var Þorsteinn Bjarnason, sýndi svo sannarlega aö þarna var landsliösmarkvöröur aö verki. Af öörum leikmönnum voru Óskar Færseth og Kári Gunnlaugsson bestir. Af KR-ingum var Óskar Ingimundarson lang bestur en bæöi Willum Þór Þórs- son og Ottó Guðmundsson voru mjöt traustir í vörninni. ÓT Eínkunnagjöf: ÍBK: Þorsteinn Bjarnason 9 Óskar Færseth 7 Kári Gunnlaugsson 7 Ingiber Óskarsson 5 Gísli Eyjólfsson 6 Siguröur Björgvinsson 6 Rúnar Georgsson 5 Magnús Garöarsson 6 Freyr Sverrisson 5 Óli Þór Magnússon 5 Björgvin Björgvinsson (vm) 5 Páll Þorkelsson (vm) 5 Skúli Rósantsson 6 KR: Stefán Arnarson 7 Willum Þór Þórsson 7 Siguröur Indriöason 6 Ottó Guömundsson 7 Magnús Jónsson 6 Jósteinn Einarsson 6 Ágúst Már Jónsson 5 Óskar Ingimundarson 8 Jón G. Bjarnason 5 Sæbjörn Guömundsson 6 Helgi Þorbjörnsson 5 Mörkum fer fækkandi • Oddur Sigurösson, KR, sigrar lótt og örugglega í 200 m hlaupi karla á meistaramótinu í frjálsum íþróttum í gærkvöldi. Þorvaldur Þórsson er annar og Egill Eiösson þriðji. Nýtt Evrópumet í 400 metra hlaupi drengja var sett á dögun- um á frjálsíþróttamóti í Potsdam í Austur-Þýzkalandi, er Thomas Schönlebe hljóp á 45,68 sekúnd- um. Schönlebe er aóeins 17 ára gamall og framfarirnar frá í fyrra glæsilegar, en þá hljóp hann á 46,71 sekúndu. NÚ ÞEGAR átta umferöir eru bún- ar á íslandsmótinu í knattspyrnu er ekki úr vegi aö athuga hversu Á mótinu náöi Gerd Wessig, fyrrum heimsmethafi í hástökki, góðum árangri í 100 metra hlaupi af hástökkvara aó vera, hljóp á 10,77. A móti í Varnamo í Svíþjóö fyrir skömmu setti kvennaboöhlaups- sveit IF Göta í Karlstad nýtt Norö- urlandamet félagsliöa í 4x100 metra boðhlaupi, hljóp á 45,72 I sekúndum. mörg mörk hafa veriö skoruö í 1. deild. Alls er búió aö leika 37 leiki, en þremur hefur veriö frest- aó. Einum úr 5. umferó, einum úr 7. umferð og einum úr 8. umferó. Þaö hafa alls veriö skoruö 88 mörk í deildinni til þessa, og aö- eins fjórum leikjum hefur lokiö meö markalausu jafntefll. í fyrstu umferö voru skoruö 12 mörk, í þeirri næstu 13 og síöan 12 og 15, og í 5. umferö er búið aö skora 11 mörk en þar af einum leik ólokið. I 6. umferö voru skoruö 13 mörk en aðeins 5 í þeirri sjöundu en þar er einum leik ólokiö. Sama má segja um áttundu umferðina, þar er einn leikur eftir og búið aö skora 7 mörk þannig aö útlit er fyrir aö mörkum fari fækkandi í 1. deildinni ef marka má síöustu tvær umferðir. sus Evrópumet í 400 drengja • Markvöröur ÍBÍ, Hreiöar Sigtryggsson slær boltann frá marki rétt áóur en Magna Péturssyni tekst aö skalla aö marki. Valsmenn klaufar að skora ekki nokkur mörk til viðbótar „ÉG ER EKKI nógu ánægóur meö þennan leik. Þetta er einn lélegasti leikur sem við höfum leikið í sumar, sérstaklega fyrri hálfleikurinn. Þaó er auövitað ágætt að fá eitt stig á útivelli en fyrri hálfleikurinn var hörmung hjá okkur, við spiluðum engan fótbolta þá,“ sagöi Martin Wilkinson, þjálfari ísfirðinga, eftir leik Vals og ÍBÍ í 1. deild. Leiknum lauk meö jafntefli, 1—1, og máttu ísfirðingar teljast heppnir að ná ööru stiginu. Leikurinn fór fram á Valbjarnarvelli og er það í fyrsta skipti í sumar sem er leikió þar. Völlurinn veðriö var eins gott og hægt er aó hugsa sér til aö leika knattspyrnu, enda var leikurinn vel leikinn og fjörugur. Valsmenn hófu leikinn af miklum krafti og voru þeir stanslaust í sókn fyrsta hálftímann. Stuttar ser.dingar, mikill hraöi og góö dreifing milli kanta var leikaöferö Vals og áttu ís- firðingar ekkert svar viö þessu fram- an af leiknum, voru nánast eins og áhorfendur. Allir leikmenn Vals tóku þátt í spilinu og var liöiö mjög jafnt en þó bar mikið á Val Valssyni og Hilmari Sighvatssyni á miöjunni og í fremstu víglínu sköpuöu þeir Ingi Björn og Jón Grétar oft mikinn usla, en Jón Grétar fékk mikið af mark- tækifærum í leiknum sem honum tókst ekki aö nýta. Hjá ísfirðingum stóö ekki steinn yfir steini fyrsta hálftímann en eftir þaö fóru þeir aö koma meira inn í leikinn og fengu nokkur færi. Vörnin hjá þeim var óörugg og réöi ekkert viö sókn Valsmanna. Þeir voru seinir á boltann og miöjumennirnir voru of aftarlega til aö geta byggt upp sókn. Valsarar skoruðu sitt eina mark á 10. mín. Stórglæsilegt mark og góö- ur undirbúningur. Guömundur Kjart- ansson gaf boltann á nafna sinn Þorbjörnsson á hægri kantinum. Hann gaf lágan og fastan bolta inn í vitateiginn þar sem Ingi Björn kom fljúgandi, í orðsins fyllstu merkingu og skallaöi í netiö, 1—0. Valsmenn- irnir voru klaufar að skora ekki nokkur mörk til viöbótar í fyrri hálf- leik og gera þannig út um leikinn, en þaö var sama hversu mörg opin færi þeir fengu, boltinn vildi ekki í netiö hjá ísfiröingunum og staöan því 1—0 í leikhléi. I síöari hálfleiknum drógu Vals- menn sig aftar á völlinn og virtust ætla aö láta þetta eina mark duga, en fyrir bragðið komust ísfiröingar meira inn í leikinn og þeir böröust vel, ákveðnir í aö jafna leikinn. Snemma í síöari hálfleik munaöi ekki nema hársbreidd aö þeim tækist aö jafna. Ámundi og Jón Odds unnu vel saman á vinstri kantinum og Ámundi skaut skammt fyrir utan vítateig en Siguröur rétt náöi aö verja í stöng- ina og þaðan út í teig, en tæpara mátti þaö ekki standa. Jöfnunar- markiö var skoraö þegar aöeins sjö mín. voru eftir af leiknum. Jón Oddsson tók innkast alveg inn aö marki, Sigurður ætlaði aö slá frá en missti af knettinum sem barst aftur fyrir þvöguna sem var í miðjum teignum. Þar var Kristinn Kristjáns- son og hann átti ekki í erfiðleikum meö aö skora í autt markið. Þaö er erfitt aö gera upp á milli manna hjá Val aö þessu sinni. Allir stóöu sig vel þó svo illa væri fariö meö marktækifærin. Njáll Eiösson var góöur þann stutta tíma sem hann lék með, en hann varö að yfir- gefa völlinn eftir hálftíma leik, meiddi sig eitthvað í öxlinni. Höröur Hilmarsson stjórnaöi vörninni eins og herforingi og Ingi Björn var sprækur frammi. Hjá ísfiröingum var Valur-ÍBÍ 1:1 lítiö um ftna drætti í fyrri hálfleik en í þeim síöari bar mikiö á Jóni Oddssyni sem er alveg eldfljótur, og einnig var Jón Björnsson góöur í vörninni. Einkunnagjöfin: Valur: Siguröur Haraldsson 6, Guömundur Kjart- ansson 7, Úlfar Hróarsson 7, Þor- grímur Þráinsson 6, Ingi Björn Al- bertsson 7, Hilmar Sighvatsson 7, Valur Valsson 7, Njáll Eiðsson 6, Jón Grétar Jónsson 6, Höröur Hilmars- son 7, Guðmundur Þorbjörnsson 7, Magni Pétursson (vm) 6, Hilmar Haröarson (vm) 5. ÍBÍ: Hreiöar Sigtryggsson 6, Guð- mundur Jóhannsson 5, Rúnar Víf- ilsson 6, Örnólfur Oddsson 6, Jó- hann Torfason 6, Jón Oddsson 7, Bjarni Jóhannesson 6, Benedikt Ein- arsson 6, Kristinn Kristjánsson 6, Ámundi Sigmundarson 6, Jón Björnsson 7, Gunnar Pétursson (vm) 5, Guöjón Reynisson (vm) lék of stutt. í stuttu máli: Laugardalsvöllur 1. deild: Valur — ÍBÍ 1 —1 (1—0). Mörkin: Ingi Björn Albertsson (10. mín.) fyrir Val og Kristinn Kristjáns- son (83. mín.) fyrir ísafjörð. Gul spjöld: Ingi Björn og Hörður Hilmarsson hjá Val og þeir Jóhann Torfason og Örnólfur Oddsson hjá ÍBÍ. Dómari: Kjartan Ólafsson. Hann var ekki nógu góöur aö þessu sinni og vöktu sumir dómar hans mikla undrun. Áhorfendur: 752. SUS ÍBV í efsta sæti 1. deildar: Knattspyrnan var sett á oddinn VESTMANNAEYINGAR unnu góöan sigur á Akurnesingum undir hlíö- um Helgafells á laugardaginn í fjörugum leik. ÍBV sigraöi, 2—1, á þungum grasvellinum og var sá sigur sanngjarn. Staöan í hálfleik var 1—0, ÍBV í vil. Eyjamenn verma því enn efsta sætiö í 1. deild og þeir hafa ekki verið árennilegir á sínum heimavöllum, já heimavöllum, því Eyjamenn búa betur í vallarmálum en flestir aörir, eiga tvo grasvelli. Eins og ávallt þegar þessi tvö lið mætast i kappleik var knattspyrn- an sett á oddinn, bæöi liö lögöu sig fram viö aö spila góöa knatt- spyrnu og þeim tókst vel upp, leik- ur þessi var góö skemmtun fyrir áhorfendur. Þaö var strekkings- vindur eftir vellinum endirlöngum og léku Eyjamenn undan vindi í fyrri hálfleik. Er skemmst frá aö segja að IBV sótti nær látlaust all- an -"hálfleikinn en mark þeirra komst aldrei í neina teljandi hættu. Hlutverk Skagamanna í fyrri hálf- leik var aö verjast og tókst þeim þaö harla vel. Tómas Pálsson var mjög aögangsharöur viö mark Skagamanna fyrstu mín., t.d. á 13. mín. varð Bjarni Sigurösson að taka á honum stóra sínum er hann bjargaöi naumlega góöum skalla Tómasar eftir góöa hornspyrnu Ómars. En Bjarni Sigurösson, hinn snjalli markvöröur ÍA, kom engum vörnum viö á 24. mín. Þá óö.Tóm- as Pálsson upp kantinn og sendi boltann inn aö markinu til Ómars Jóhannssonar. Ómar lagöi boltann snyrtilega út í teiginn fyrir fætur Hlyns Stefánssonar sem skoraöi meö stórglæsilegu skoti í bláhorn- iö niöri, 1—0 fyrir ÍBV. Þrátt fyrir mjög þunga sókn Eyjamanna tókst þeim ekki aö skapa sér ýkja mörg opin mark- tækifæri og þá var Bjarni Sigurðs- son mjög góöur í markinu, varöi m.a. góöan skalla frá Tómasi Pálssyni. í seinni hálfleik fengu Skaga- menn vindinn í bakiö og eins og vænta mátti sóttu þeir mun meira til aö byrja meö og þeir náöu aö jafna metin strax á 59. mín. Sveinbjörn Hákonarson lék þá vel upp kantinn og sendi gullfallega sendingu inn á Sigþór Omarsson sem haföi sloppið úr gæslu og Sig- þór skoraði meö viöstööulausu skotl. Vel aö verki staöiö hjá Skagamönnum. Næstu mín. var sókn Akurnes- inga þung og þeir voru óragir viö aö skjóta á markiö. Reyndi veru- lega á Aöalstein markvörö ÍBV og hann brást ekki liöi sínu, varöi oft frábærlega vel, m.a. tvívegis þrumuskot Árna Sveinssonar. Þegar komiö var rétt framyfir miöj- an hálfleikinn jafnaöist leikurinn og eftir aö Eyjamenn skiptu inná hjá sér Sigurjóni Kristinssyni lifnaöi verulega yfir leik ÍBV. Og þaö var Sigurjón Kristinsson sem skoraöi sigurmark ÍBV á 82. mín. Eftir mikla sókn ÍBV barst boltinn til Sigurjóns rétt utan vítateigs og meö krafti reif hann sig lausan frá varnarmönnum lA og glæsilegt skot hans sigldi í netiö fyrir aftan Bjarna markvörö. Sigurjón hafði nærri bætt ööru marki viö er hann komst einn í gegn eftir frábæra sendingu Hlyns Stefánssonar, en nú varöi Bjarni Sigurösson meistaralega. Eyjamenn léku án Þóröar Hall- grímssonar og Kára Þorleifssonar en náöu samt upp góöum leik. Valþór Sigþórsson var besti maöur vallarins í þessum leik. Valþór hef- ur aldrei leikið betur en í sumar og mætti landsliösnefndin gjarnan gefa honum betri gaum. Skagamenn uröu aö sætta sig viö tap aö þessu sinni. Liöið leikur ágætlega úti á vellinum en sóknar- leikur liösins er ekki beittur. Árni Sveinsson var bestur Skagamanna í leiknum. Einkunnagjöfin: ÍBV: Aðalsteinn Jóhannsson 7 Snorri Rútsson 6 Viðar Elíasson 6 Valþór Sigþórsson 8 Þórarinn Þórhallsson 7 Sveinn Sveinsson 6 Hlynur Stefánsson 7 Jóhann Georgsson 6 Ágúst Einarsson 6 Ömar Jóhannsson 7 Tómas Pálsson 7 Sigurjón Kristinsson (vm) 6 ÍA: Bjarni Sigurðsson 7 Guðjón Þórðarson 6 ólafur Þórðarson 6 Sigurður Lárusson 7 Sigurður Halidórsson 6 Sigurður Jónsson 7 Sveinbjörn Hákonarson 7 Jón Áskelsson 6 Sigþór ómarsson 6 Guðbjörn Tryggvason 5 Árni Sveinsson 7 Júlíus Ingólfsson (vm) 4 í stuttu máli: Helgafellsvöllur 1. deild: íbv-ía 2:1 • Valþór Sigþórsson átti mjög góöan leik í liöi ÍBV og bankar á dyr landsliðsins með sama áframhaldi. ÍBV - ÍA 2-1 (1-0) Mörki ÍBV: Hlynur Stefánsson 24. mín. Sigurjón Kristinsson 82. mín. Mark IA: Sigþór Ómarsson 59. mín. Gul spjöld: Árni Sveinsson ÍA, Guðjón Þórðarson í A. Áhorfendur: 730. Dómari: Þorvarður Björnsson. — hkj. Staðaní 1. deild STAÐAN í 1. deild eftir leiki helgar- innar er nú þannig: ÍBV 8 4 2 2 15—7 10 KR 8 2 5 1 8—9 9 UBK 7 3 2 2 6—4 8 Valur 8 3 2 3 13—15 8 ÍBÍ 8 2 4 2 8—10 8 ÍA 7 3 1 3 8—5 7 Þór 8 1 5 2 8—9 7 Víkingur 7 1 4 2 5—7 6 Þróttur 7 2 2 3 8—12 6 ÍBK 6 2 1 3 8—9 5 Næstu leikir í l.deild veröa mið- vikudaginn 29. júní og hefjast þeir kl. 20. A Akranesi leika heimamenn við ÍBK, leikur úr 7. umferöinni og ( Laugardal leika Þróttur og UBK, ef veöur og vallaraöstæöur leyfa. • Jón Grétar er hér ó fleygiferð í átt aö marki ÍBÍ en Bjarni Jóhannesson og Rúnar Vífilsson fylgjast spenntir meó. Jón Grétar átti mörg marktækifæri í gær sem honum tókst ekki að nýta.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.