Morgunblaðið - 28.06.1983, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 1983
41
fclk í
fréttum
Búinn að fá nóg
af Súpermann
Kvikmyndaleikarinn Christopher Reeve er orðinn
leiður á Súpermann og segir, að ef fjórða myndin um
ofurmennið verði einhvern tíma að veruleika þá verði
hún um leið síðasta myndin, sem hann leikur i af þessu
tagi.
„Sjáið til, ég hef flogið, elskað, stöðvað og breytt
snúningi jarðarinnar. Ég hef barist við jafnoka
mina, kjassað litla krakka og kjölturakka og bjargað
« köttum ofan úr tré. Það er komið nóg af svo góðu,“
sagði Reeve, sem nú hefur verið boðið hlutverk í
tveimur myndum, sem ekkert eiga skylt við teikni-
myndaffgúrur.
Christopher Reeve varð frægur á einni nóttu þeg-
ar hann kom fram í fyrstu Súpermann-myndinni
árið 1978.
„Frægðin var öll á misskilningi byggð. Það var
með mig eins og nýja krakkann í hverfinu. Allra
augu beindust að mér og sjálfum fannst mér ég vera
orðinn svo merkilegur, að það jaðraði við geðbilun,"
segir Reeve, sem nú er reynslunni ríkari.
Bowie
og
Oshima
f myndinni leikur David Bowie
enskan stríðsfanga í japönskum
fangabúðum á því herrans ári
1943. Yfirmaður búðanna, sem
Ryuichi Sakamoto leikur, er að
sjálfsögðu ekkert lamb að leika
sér við en Bowie gerir sér lítið fyrir
og kyssir hann beint á munninn að
öllum ásjáandi. Varla er hægt að
hugsa sér meiri vanvirðu við einn
keisaralegan, japanskan hermann,
en í myndinni hefur kossinn tákn-
rænt gildi og raunar dálítið meira
en það.
Ryuichi Sakamoto og hljóm-
sveit hans, Yellow Magic, eru
stóru stjörnurnar í japönsku
popplífi nú um stundir og eru oft
flokkaðir í gamni með bílum og
ljósmyndavörum sem gróða-
vænleg útflutningsvara. Leik-
stjórinn, Nagisa Oshima, segist
hafa valið Sakamoto af sömu
ástæðu og hann valdi David
Bowie:
„Átrúnaðargoð unga fólksins
eru miklu betri fulltrúar fyrir
æskuna og hugarheim hennar en
nokkur kvikmyndastjarna,"
sagði Oshima.
Þeir eru kátir félagarnir á þessari mynd þeir David Bowie og japanski
leikstjórinn Nagisa Oshima, enda er það engin furða því að mynd þeirra
Merry Christmas Mr. Lawrence hefur nýlega verið frumsýnd í þremur
löndum, Frakklandi, Japan og íslandi.
Myndin hefur fengið frábærar viðtökur, og verður frumsýnd í Bretlandi í
ágúst og Bandaríkjunum í september.
COSPER
— Vakti ég þig?
+ Yfirvöld á Indlandi vildu meira en
gjarna ná tali af þessari stúlku, en vita
bara ekki hver hún er. Myndin af
henni birtist í indversku dagblaði og
fylgdi það með að stúlkan og fleira
fólk í Bihar-fylki væri komið með
bólusótt. Bólusótt er ákaflega smit-
andi og hættulegur sjúkdómur eins og
íslenska þjóðin hcfur fengið að reyna í
gcgnum aldirnar, en talið var, að hann
hefði verið upprættur að mestu leyti
fyrir um sjö árum.
BRIDGESTONE
1100x20 vörubíladekk
Eigum til
á lager 1100x20 vörubíladekk.
Hagstætt verð og
góð greiðslukjör
BÍLABORG HF
Smidshöfða 23, sími 812 99
UtveggjaklϚning
fyrir
íslenskar aöstœöur
áótrúlega
hagstœöu verði!
Hina stílhreinu Plagan Populár útveggja-
klæöningu fáiö þiö hjá okkur.
Hentar bæði nýbyggingum og gömlum húsum,
t.d. ef auka þarf einangrun þeirra.
Veggklæðning í hæsta gæöaflokki.
Lítið inn og kynnið ykkur kosti Plagan Populár
veggklæöningarinnar.
BYGGINGAVORUVERSLUIM NJ
KÓPAV0GS BYKO
TIMBURSALAN
SKEMMUVEGI 2 SIMI 41000