Morgunblaðið - 30.06.1983, Page 14

Morgunblaðið - 30.06.1983, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1983 í upphafí afmælisin.s var gengið út í gróðurreit sem er við félagsheimilið i Borg og gróðursettar nokkrar trjáplöntur, þar voru að störfum, f.v.: Ingi Tiyggvason form. Stéttarsambandsins, Gunnar Jóhannesson form. Búnaöarfélags Grímsneshrepps, Jón Helgason landbúnaóarráóherra, Steinþór Gestsson í stjórn BÍ og Ásmundur Eiríksson oddviti. 100 ára afmæli Búnaðarfélags Grímsneshrepps Syðra-Langholti, 27. júní. Föstudagskvöldið 24. júní kom bændafólk í Grímsncsi saman í félagsheimili sínu, að Borg, til að minnast þess að þann 13. júlí verða 100 ár frá stofnun búnaðarfélags sveitarinnar. Það var sýslu- nefnd Arnessýslu sem sendi frá sér áskorun á vorfundi sínum árið 1883 að stofnuð yrðu búnaðar- eða ræktunar- félög í hverju sveitarfélagi. Þetta voru mikil harðindaár og fátækt mikil. Eigi að síður sáu framsýnir menn að leiðin til framfara var að hefjast handa við ræktun og umbæt- ur í sveitunum á félagslegum grunni. Grímsnesingar áttu framsýnan og dugandi bónda sem gerðist for- ustumaður í búnaðarmálum þeirra, það var Þorkell bóndi á Ormsstöðum. Þetta búnaðarfélag mun vera það elsta sem starfað hefur alla tíð frá stofnun af bún- aðarfélögunum á Suðurlandi. Tveir eldri bændur voru geröir _að heiðursfélögum fyrir margháttuð og giftudrjúg störf í þágu félagsins. Á myndinni eru, talið frá vinstri: Gunnar Jónnesson Hömrum, form. búnaðarfélagsins, Gunnar Ágústsson Stærribæ, stjórnarraaður, Hannes Hannesson Kringlu og Óskar Ögmundsson Kaldár- höfða, heiðursfélagar, og Kjartan Helgason Haga, stjórnarmaður. árum þar sem mikil landsvæði hafa verið tekin undir sumarbú- staði. Þar eru nú 36 bændur sem búa á 30 jörðum. Flestir hafa blönduð bú sem kallað er, þ.e. bæði kýr og sauðfé, og er meðalbúið langt yfir landsmeðaltali enda eru jarðir þar landstórar og gott undir bú. Á þessari velheppnuðu hátíðar- samkomu búnaðarfélagsins fengu Grímsnesingar góðar óskir og góð- ar gjafir frá nágrannabúnaðarfé- lögum sínum svo og frá Búnaðar- félagi íslands, Stéttasambandi bænda og Búnaðarsambandi Suð- urlands. Sig. Sigm. Fram kom í hátíðarræðu óskars Ögmundssonar búnda í Kaldár- höfða sem hann flutti á samkom- unni, er hann rakti sögu félagsins, að í fyrstu voru keypt fáein hand- verkfæri sem skipt var á milli starfsdeilda sem síðan lánuðu bændunum verkfærin til skiptis. Síðar meir komu hestaverkfærin og svo dráttarvélarnar. í Grímsnesi hafa allmargar jarðir farið í eyði á undanförnum Húsmæóur í Grímsnesi sem klæddar voru í íslenskan búning voru kallaðar upp á leiksvið til myndatöku. Ljtem.: Si*. sigm. Rætt um lækk- un hámarks- hraða á fundi íbúasamtaka Vesturbæjar ÍBÚASAMTÖK Vesturbæjar héldu aðalfund sinn á Hallveig- arstöðum 13. júní sl. og flutti Þórunn Klemensdóttir formaður samtakanna yfírlit um starfsem- ina á árinu. Auk hefðbundinna aðalfund- arstarfa var umræðuefni fundar- ins sú lækkun hámarkshraða inn- an Vesturbæjar, niður í 30 km á klst., sem samþykkt hefur verið í borgarstjórn og kemur væntan- lega til framkvæmda í sumar. Katrín Fjeldsted borgarfulltrúi og varaformaður Umferðarráðs var gestur fundarins og rakti hún ástæðu og aðdraganda þessarar tilraunar með lækkun hámarks- hraða og hvatti Vesturbæinga til samstöðu um málið þannig að virkur árangur næðist. í lok fundarins skráðu þátttak- endur sig í starfshópa um skóla- mál, félagsmál, málefni aldraðra og umferðarmál. "É6 FRNN ÆTR KHRTÖFLU i P0KRNUM, KRLLI?" Skólaslit í Fjölbrautaskóla Suðurnesja SKÓLASLIT á vorönn 1983 í Fjölbrautaskóla Suðurnesja fóru fram í Kefíavíkurkirkju iaugar- daginn 21. maí, og hófst athöfn- in kl. 10.30. Leifur ísaksson, sveitarstjóri í Vatnsleysustrandarhreppi, flutti ávarp af hálfu Sambands sveitar- félaga á Suðurnesjum. Ægir Sig- urðsson, áfangastjóri, flutti yfirlit um starfsemi skólans á önninni, og kór skólans söng nokkur lög undir stjórn Martial Nardeau. Brautskráðir voru 34 nemendur: 2 af tveggja ára viðskiptabraut, 11 iðnnemar og 21 stúdent. fvar Pétur Guðnason flutti kveðjuorð fyrir hönd hinna brautskráðu, og að lokum ávarp- aði Jón Böðvarsson, skólameistari, nemendur og aðra sem athöfnina sóttu. Iðnnemahópurinn Stúdentahópurinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.