Morgunblaðið - 30.06.1983, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1983
23
Árás á sendiráð
í San Salvador
SAMSTARFSMAÐUR Roberto
d’Aubuisson, leiðtoga hægri öfga-
manna í El Salvador, hefur verið
ráðinn af dögum, árás var gerð á
bandaríska sendiráðið í höfuðborg-
inni San Salvador og særður ofursti
hélt í skefjum 10 mönnum sem
reyndu að hafa hann á brott með sér
með valdi.
Aðdráttarafl
jarðar kannað
Vandenberg-flugstöðinni,
Kaliforníu, 28.júní. AP.
GERVITUNGL, sem m.a. mun
rannsaka aðdráttarafl jarðarinn-
ar og tilurð norðurljósanna, var
sent á braut um jörðu í dag.
Gervitunglið mun afla upp-
lýsinga fyrir bandaríska her-
inn svo og eðlisfræðistofnun
við John Hopkins háskólann í
Maryland. Ekki hefur enn ver-
ið ákveðið hversu lengi gervi-
tunglið verður á braut um
jörðu, en talið er að það verði
2-4 ár í rannsóknum sínum.
Mótmæli gegn
frumvarpi um
fóstureyðingar
Madrid. 28. júní. AP.
NOKKUR þúsund manns mótmæltu í
gær breytingum sem jafnaðarmanna-
stjórn Felipe Gonzalez hyggst reyna að
ná fram á lögum um fóstureyðingar.
Stjórnin leggur til, að fóstureyðingar
verði leyfðar í þremur tilfellum, þ.e.
þegar lífi móður er stofnað í hættu, ef
um sannanlega fósturskemmd er að
ræða eða nauðgun hefur átt sér stað.
Lögreglan í Madrid telur að um
sex þúsund manns hafi tekið þátt í
mótmælunum sem stóðu í tvær
klukkustundir, og viðstaddir báru
spjöld sem á var letrað:„Fóstureyð-
ing = Morð“ og hrópuð voru vígorð
gegn stefnu stjórnarinnar í þessum
málum. Nokkrir kaþólskir prestar
ávörpuðu einnig mannfjöldann og
lýstu yfir vanþóknun sinni á þessum
fyrirhuguðu breytingum.
Neðri deild spænska þingsins mun
fj^lia um fóstureyðingarfrumvarpið
innan skamms, en ef það verður
samþykkt er um að ræða mikla
breytingu frá núgildandi lögum þar
sem fóstureyðingar eru refsiverðar.
Ætla að
bjarga flota
Napóleons
Alexandríu Kgyptalandi, 24. júní. AP.
HÓPUR vísinda- og áhuga-
manna á vegum frönsku
stjórnarinnar er byrjaður und-
irbúningsvinnu í Abukir-flóa
við strendur Egyptalands og
ósar Nílar, en þar er ætlunin
að bjarga því sem bjargað
verður af flota Napóleons Bon-
aparte, sem breski flotinn
sökkti á þessum slóðum í
orrustunni um Níl árið 1798.
Jaques Dumas, formaður leið-
angursins, sagði frétta-
mönnum að undirbúningurinn
myndi standa yfir í 2—3 vikur.
Hópurinn ræður yfir frönsk-
um tundurspilli sem mun stað-
arákvarða skipsflökin með
fullkomnum djúpleitartækjum.
Síðan er hugmyndin að kafarar
taki upp á yfirborðið allt laus-
legt sem finnst, en kafarakúlur
og kranar sái um það sem
þyngra er og erfiðara í meðför-
um.
Alþýðufrelsissveitirnar, einn
fimm hópa vinstrisinnaðra skæru-
liða, kváðust hafa gert árásina á
bandaríska sendiráðið. Yfirvöld
telja að vinstrihópar hafi einnig
staðið fyrir hinum árásunum
tveimur.
Aðstoðarmaður d’Aubuissons,
Rene Barrios Amaya, varð fyrir
vélbyssuárás skömmu eftir að
hann fór heim til sín frá skrifstofu
sinni og beið samstundis bana.
Barrios var fyrrverandi leiðtogi
félags vörubifreiðastjóra og átti
sæti í framkvæmdastjórn í stjórn-
málasamtökum d’Aubuissons, Ar-
ena (bandalag lýðveldissinnaðra
þjóðernissinna).
Fótgangandi maður hóf árásina
á sendiráðið með flugskeyti og
nokkrum mínútum síðar var kúl-
um látið rigna yfir það úr tveimur
bifreiðum sem óku fram hjá.
Flugskeytið lenti á tré og sprakk
án þess að valda tjóni, nokkrar
rúður brotnuðu í kúlnaregninu og
engan sakaði. Sjónarvottar segja
að sendiráðsverðir hafi svarað
skothríðinni, en talsmaður sendi-
ráðsins neitaði því.
Tíu vopnaðir menn reyndu að
ræna yfirdómara hersins, Jose
Angel Avedano ofursta, og særðu
hann á fæti og í kviði. Ofurstinn
svaraði skothríðinni og særði
nokkra af árásarmönnunum.sem
flúðu í vörubifreið.
4»
Belgir hátt til himins svífa
• Hver loftbelgurinn af öórum hefur sig til flugs af Concorde-torginu í
París, þar sem árleg loftbelgjakeppni hófst um sfðustu helgi. Ekki er skilvrði
að belgirnir svífl allir einhverja ákveðna leið, heldur sigrar sá sem lengst
flýgur áður en hann neyðist til að lenda. símamynd AP.
Mest fyrir peningana!
Frá því að hinn nýi MAZDA 626 kom á markaöinn fyrir nokkrum mánuðum
síðan, þá hefur hann fengið geysilega lofsamlegar umsagnir og dóma um víða
veröld, ekki síst fyrir gott rými og þægindi.
Við skulum bera saman tölur um rými í nokkrum tegundum bíla:
MAZDA 626 SAAB 900 VOLVO 240 BMW 520 I CRESSIDA
- V j . .iTTV.,
^ 1 1
Breidd aftursætissetu cm 140 133 140 138 134
Lengd farþegarýmis 11 — 186 176 187 183 179
Höfuðrými fram í 21 — 94 93 95 94 92.5
Höfuðrými aftur í 2) — 87 90 88 88 87.5
Framhjóladrif Já Já Nei Nei Nei
11 Mælt frá miðjum bensínpedala að neðstu brún aftursætisbaks 2) Mælt með 13° -15° bakhalla
Um vandaða smíð og góða aksturseiginleika MAZDA 626 þarf ekki að efast
Hann er hannaður með nýjustu tölvutækni og framleiddur í
fullkomnustu bíla^erksmiðju í heiminum í dag.
Hann bar meðal annars sigurorð af hinum nýja MERCEDES BENZ 190
í keppni vestur-þýska bílatímaritsins AUTO ZEITUNG um Evrópubikarinn
og segir það ekki svo lítið.
Nú eftir lækkun innflutningsgjalds, þá er MAZDA 626
á ótrúlega hagstæðu verði:
Kr.307-000
626 4 dyra Saloon
Hvað kosta hinir? Kannaðu það.
BILABORG HF
Smiöshöföa 23 sími 812 99