Morgunblaðið - 30.06.1983, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1983
33
*
Þórður Friðjónsson á fundi stjórnar Verzlunarráðs Islands:
Oll efnahagsstarf-
semi í stórhættu
ef ekki hefði verið gripið til aðgerða
ÞÓRÐUR Fridjónsson, efnahagsráóunautur ríkisstjórnarinnar, flutti erindi á
fundi stjórnar Verzlunarráðs fslands á dögunum um efnahagsaðgerðir ríkis-
stjórnarinnar og áhrif þeirra. í máli hans kom fram, að markmið efnahags-
stefnunnar væru þríþætt: Koma í veg fyrir að kreppa lami efnahagslífið,
koma á jafnvægi og stöðugleika í þjóðarbúskapnum og stuðla að uppbygg-
ingu í atvinnulífínu.
Til þess að ná fyrstnefnda
markmiðinu hefði verið nauðsyn-
legt að grípa til þeirra efnahags-
ráðstafana, sem nú eru fram
komnar. Um áhrif þeirra sagði
Þórður, að gert væri ráð fyrir að
meðaltalshækkun verðbólgu milli
áranna 1982 og 1983 yrði 104%,
verðbólgan frá upphafi til loka árs
yrði 83%, en verðbólguhraðinn í
árslok yrði um 30%.
Ef ekki hefði verið gripið til að-
gerða, hefði verið fyrirsjáanlegt,
að meðaltalshækkun verðbólgu
yrði 90% milli áranna 1982 og
1983 og verðbólgan frá upphafi til
loka árs um 134%. Meginmunur-
inn er, að með þessum aðgerðum
er komið í veg fyrir að verðbólgu-
hraðinn í lok ársins yrði vel yfir
100% og öll efnahagsstarfsemi
þar með í stórhættu.
Þórður sagði ennfremur, að all-
mikils misskilnings hefði gætt
varðandi áhrif efnahagsaðgerð-
anna á kaupmátt. Kaupmáttur
tekna hefði að öðru óbreyttu rýrn-
að um a.m.k. 10% til 11% að með-
altali milli áranna 1982 og 1983.
Áhrif af aðgerðum yrðu á hinn
bóginn þau, að kaupmáttarrýrn-
unin yrði um 14% og því aðeins
3% meiri en að óbreyttu. Er þá
hvorki tekið tillit til þeirra áhrifa,
sem óðaverðbólga hefði á atvinnu-
ástand og þar með tekjur né lengri
tíma áhrifa á lífskjör af óheftri
verðlagsþróun.
Maímánuður:
Framfærslukostnaður
hækkaði um 1% í EBE
— Mest hækkun í Grikklandi, en minnst í Vestur-Þýzkalandi
Framfærslukostnaður í ríkjum
Efnahagsbandalags Evrópu, EBE,
hækkaði um 1% í maímánuði sl.,
sem er mesta mánaðarhækkun í
löndunum á einu ári, samkvæmt
upplýsingum hagdeildar EBE.
Talsmaður EBE sagði, að hækk-
un framfærslukostnaðar hefði
verið 0,9% í aprílmánuði sl. og
0,7% í marzmánuði. Það kom
ennfremur fram, að verðbólgu-
hraðinn er nú 8,7% í löndum EBE,
en hann var 9% í aprílánuði.
Verðbólga er nú sú minnsta um
nokkurra mánaða skeið.
Vísitala framfærslukostnaðar
var 224,3 stig í löndum EBE. Hafði
hækkað úr 222,0 stigum í apríl-
mánuði og úr 206,3 stigum í maí-
mánuði á síðasta ári.
Hækkun framfærslukostnaðar
var mest í Grikklandi, eða 1,7%. í
Bretlandi og Frakklandi var
hækkunin 1,4%, um 1% á Ítalíu og
um 0,6% í Danmörku. Minnst var
hækkunin í Hollandi, 0,4%, í
Belgíu og Luxemborg 0,3% og
0,2% í Vestur-Þýzkalandi.
Framleiðslusamdrátturinn
1982/ 1983 sá næstmesti
frá lokum heimsstyrjaldar
SAMANLAGÐUR samdráttur í framleiðslu áranna 1982 og 1983 verður sá
næst mesti sem komið hefur frá lokum seinni heimsstyrjaldar, að því er segir
í maíhefti Hagtalna mánaðarins. Byggt er á þjóðhagsspá fyrir árið 1983, en
útlit er fyrir, að sjávarafli dragist enn meira saman en gert er ráð fyrir í þeirri
spá.
í fréttabréfi Verzlunarráðs ís-
lands segir, að alls hafi samdrátt-
arskeiðin verið fimm, þ.e. árin
1949 til 1952, árið 1957, árin 1967
og 1968, árið 1975 og árin 1982 til
1983. Mesti framleiðslusamdrátt-
ur varð á árunum 1967 og 1968,
eða samanlagt 7,9% af þjóðar-
framleiðslu ársins 1966. Fram-
leiðslusamdrátturinn 1982 og 1983
varð hins vegar 6,9% af þjóðar-
framleiðslu ársins 1980.
Aðra sögu er að segja um tekju-
samdráttinn, þ.e. samdrátt þjóð-
arteknanna. Tekjusamdrátturinn
árin 1982 og 1983 varð 5,7%, sem
er minna en á samdráttarárunum
1949 til 1952, 1967 og 1968 og árið
1975. Mestur varð tekjusamdrátt-
urinn á árunum 1949 til 1952, eða
samanlagt 14,1% af þjóðartekjum
ársins 1948. Tekjusamdrátturinn
1967 og 1968 varð hins vegar
11,8%. Meðfylgjandi tafla sýnir
framleiðslu- og tekjusamdrátt
þeirra samdráttartímabila, sem
komið hafa frá lokum seinni
heimsstyrjaldarinnar.
S AMDRÁTT ARTÍM ABIL
ÞJÓÐARFRAMLEIÐSLU 0G ÞJÓÐARTEKNA
1949/1952 1957 1967/1968 1975 1982/1983
Framleiðslusamdráttur 6,7% 0,5% 7,9% 2,0% 6,9%
Tekjusamdráttur 14,1% 1,4% 11,8% 5,8% 5,7%
Hef opnaö lækningastofu aö
Elliheimilinu Grund
Sérgrein:
Gigtlækningar
Viötalstími eftir umtali, sími 26222. Símaviötalstími
mánudaga—föstudaga kl. 12—13.
Árni Tómas Ragnarsson lasknir.
NÝTT FRÁ ABU
Með Abumatic veröa engir erfiöleikar i byrjun. Hvert kast
heppnast. Þaö er útilokað aö flækja. I öllum sínum einfaldleika
er Abumatic gæöahjól. Allir hlutir eru geröir meö sömu vand-
virkni og í dýrari hjólum frá Abu.
Abumatic dugar ár eftir ár hve oft sem hjóliö er notaö.
VELDU RÉTT.
VELDU ABUMATIC
GAS-
VATNSHITARI
Hentugur fyrir bað og uppvask
t.d. í sumarbústaðinn ogbátinn,
auðvelt að færa úr stað.
KJÖLUR SF.
Borgartún 33.105 Reykjavík. Símar 21490 - 21846