Morgunblaðið - 19.07.1983, Page 1
48 SIÐUR MEÐ 8 SIÐNA IÞROTTABLAÐI
161. tbl. 70. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 1983
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Strangari hömlur
í stað herlaganna
Varsii. 18. iúlí AP. J
Varsjí, 18. júli. AP.
YFIRVÖLD í Póllandi samþvkktu í dag, að herlögum skyldi aflétt. Var frá
þessu skýrt í opinberu pólsku fréttastofunni, PAP. Hins vegar var ekki getið
um neina ákveðna tímasetningu. Almennt er þó talið, að miðað sé við næsta
föstudag. Endanleg dagsetning verður væntanlega Ijós á miðvikudag eða
fimmtudag er þing kemur saman til fundar.
Sumir þingmanna, sem óttast
nýja mótmælaöldu af hálfu stuðn-
ingsmanna Samstöðu, er þess
verður minnst í næsta mánuði, að
þrjú ár eru liðin frá stofnun
verkalýðssamtakanna, eru þeirrar
skoðunar að fresta beri þessari
ákvarðanatöku. Opinber starfs-
maður sagði, að þessa stundina
væru þingmennirnir að reyna að
kanna nýjar og strangari hömlur
sem ættu að koma í stað herlaga.
Lech Walesa sneri í morgun aft-
ur til vinnu sinnar við Lenín-
skipasmíðastöðina i Gdansk eftir
að hafa verið í tveggja vikna
OPEC ákveður
óbreytt olíuverð
Helsinki, 18. júlí. AP.
SAMÞYKKT var á fundi
OPEC-ríkjanna í Helsinki f
dag að halda óbreyttu olíu-
verði og framleiðslukvótum.
Verð og kvótar voru ákveðin
á síðasta fundi landanna 13,
sem að samtökunum standa.
Afslappað andrúmsloft ríkti á
fundinum, andstætt því sem var á
fundinum i Lundúnum í mars. Þá
var hart deilt um verð og fram-
leiðslukvóta. Virtust allir full-
trúar einhuga um að styrkja inn-
byrðistengsl aðildarríkjanna 13.
Haft var eftir Humberto Cald-
eron frá Venezúela, að lítilla tíð-
inda væri að vænta á fundi sam-
takanna að þessu sinni. Sagði
hann markaðinn hafa brugðist
vel við þeim ákvörðunum, sem
teknar voru í Lundúnum. Fund-
urinn í Helsinki væri einkum æt-
laður til þess að íhuga stöðu sam-
takanna.
iamani, olíumálaráðherra Saudi-Araba, umkringdur fréttamönnum á
IPEC-fundinum f Helsinki Simamynd ap.
sumarleyfi í trássi við yfirboðara
sína. Walesa var tekið með kost-
um og kynjum og kvað við dynj-
andi lófatak 5.000 samstarfs-
manna hans, sem safnast höfðu
saman við aðalinnganginn, er
hann kom til vinnu. Þá ákváðu
yfirboðarar Walesa að veita hon-
um tveggja vikna sumarleyfi til
viðbótar.
„Ég ber alltaf sigur úr býtum
spyrni ég við fóturn," sagði Walesa
við fréttamenn er hann kom til
vinnu. f viðtali í gærkvöld sagði
Walesa, að hugmyndafræði Sam-
stöðu liði aldrei undir lok. „Sá
dagur kemur, að þær hugmyndir
verða viðurkenndar. Hvenær það
verður get ég ekki sagt.“
Aðspurður um hinar hugsan-
legu nýju aðhaldsaðgerðir i stað
herlaga sagði hann: „Það er nokk-
uð, sem ég get ekki sætt við mig.
Ég hef séð sumar af tillögum
stjórnvalda varðandi nýju lögin og
vona að þeim verði hafnað. Af
tvennu illu eru herlögin betri."
Lech Walesa snýr hér aftur til vinnu sinnar við Lenín-skipasmíðastöðina í
gærmorgun. Slmamynd AP.
E1 Salvador:
Stjórnvöld ljúka her-
ferð gegn skæruliðum
Su Salvador, 18. júlí. AP.
HERMENN stjórnarinnar skutu til bana eða særöu 30 skæruliða í tveggja
vikna langri herferð, sem lauk um helgina. Það var varnarmálaráðuneytið í
San Salvador, sem skýrði frá þessu í dag. Ekki var getið um manntjón í
röðum stjórnarhersins, en alls tóku um 2.500 hermenn þátt í aðgerðunum. Þá
bárust fregnir af því að 6 stjórnarhermenn hefðu fallið í gær er þeim var gerð
fýrirsát.
Útvarpsstöð skæruliðanna sak-
aði í dag hermenn frá Hondúras
um að hafa farið inn yfir landa-
mærin til E1 Salvador á föstudag,
skammt norðan þess staðar þar
sem aðgerðir stjórnvalda gegn
skæruliðunum áttu sér stað, í
Chalatenango.
Fjögur ár eru á morgun frá því
stjórn sandinista tók við völdum í
Nicaragua. Verður þess minnst
með miklum hátíðahöldum í land-
inu. Talið er að um 130.000 manns
sæki meginhluta hátíðarinnar,
sem verður í Leon. Stjórnarand-
stæðingar, sem hafa bækistöðvar í
Hondúras, hafa undanfarið hótað
róttækum aðgerðum í tilefni há-
tíðahaldanna.
Reagan Bandaríkjaforseti til-
kynnti í dag, að Henry Kissinger,
fyrrum utanríkisráðherra, myndi
verða í forsæti í sérstakri Mið-
Ameríkunefnd beggja þingflokk-
anna. Er nefndinni ætlað að verða
forsetanum innan handar við ráð-
gjöf varðandi málefni Mið-Amer-
íku.
Á fundi fjögurra forseta Suður-
Ameríkuríkja í Mexíkó í gær var
þeirri ósk komið á framfæri við
Castró, leiðtoga Kúbumanna, og
Reagan, að þeir tækju höndum
saman við þá í tilraunum til þess
að koma í veg fyrir að stríð brjótist
út á milli Hondúras og Nicaragua.
Auk forseta Mexíkó sátu fundinn
forsetar Venezúela, Kólombíu og
Panama.
Þrettán ára piltur fannst í jökulsprungu:
Yakinn til lífsins og
leikur nú á als oddi
Sms Fee, Sviss, 18. júlf. AP.
ÞRETTÁN ára belgískur drengur,
Christoph Netels, getur þakkað
æðri máttarvöldum fyrir að vera
enn í tölu lifenda.
Honum var í gær bjargað úr
18 metra djúpri jökulsprungu,
þar sem hann hafði hírst með-
vitundarlaus í 5 klukkustundir,
illa búinn undir slíka dvöl. Var
hann einungis í stutterma bol og
gallabuxum.
Þegar honum var loks bjargað
upp á yfirborð jökulsins var
hjarta hans hætt að slá og
líkamshitinn kominn niður í 17
gráður. Hann var því „fræði-
lega“ látinn.
Eftir 40 klukkustunda linnu-
lausa aðhlynningu á gjörgæslu-
deild nærliggjandi sjúkrahúss
náði hann loks meðvitund að
nýju og braggaðist ótrúlega
fljótt. Var líðan hans í morgun á
þann veg, að ætla mætti að hann
hefði ekki lent í neinu óvenju-
legu.
Christoph hafði laumast frá
foreldrum sínum á fimmtudag,
þar sem þau nutu veitinga í einu
fjölmargra fjallaveitingahúsa
við Fee-jökulinn og skellti
skollaeyrum við öllum viðvörun-
um um sprungur á jöklinum.
Hvítasunnufjöl-
skylda til Vínar
Vío, 18. júll. AP.
FIMMTÁN meðlimir hvítasunnu-
safnaðar frá Síberíu komu í dag til
Vínarborgar frá Sovétríkjunum.
(iáfu sovésk yfirvöld leyfi til brott-
flutnings í kjölfar linnulausrar bar-
áttu fólksins í 20 ár fyrir að fá að
fiytjast úr landi.
Um tíma virtist svo sem fólkinu
ætlaði ekki að takast að komast úr
landi í dag, þar sem seinlega gekk
að koma greiðslum fyrir fiugmið-
ana til Vínar áleiðis til réttra að-
ila í Sovétríkjunum. Það hafðist
þó að lokum og fólkið fékk að fara
leiðar sinnar.
Hér er um að ræða stóra fjöl-
skyldu, hjónin Pyotr og Maria
Chmykalov og fimm börn þeirra.
Tvö barnanna eru gift og eru mak-
ar þeirra í þessum 15 manna hópi,
fimm börn þeirra, svo og systir
Mariu. Þetta er önnur fjölskylda
hvitasunnumanna, sem fær að
fiytja frá Sovétríkjunum á
skömmum tíma.
Tóku 19
í gíslingu
Islamabad, PakisUn, 18. júlí. AP.
FRELSISSVEITIR Afgana náðu á
sitt vaid 19 opinberum afgönskum
embættismönnum á laugardag er
þeim var gerð fvrirsát.
Fréttastofa, sem styður frelsi-
sveitirnar, sagði, að á meðal gísl-
anna væri einn yfirmanna afg-
önsku leyniþjónustunnar. Það er
enn óstaðfest.