Morgunblaðið - 19.07.1983, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 1983
fWmrj^iiítulílalííi^
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö-
aistræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 230 kr. á mánuöi innanlands. f lausasölu 18 kr. eintakiö.
Var vandinn
á Patreksfirði
leystur?
Nú um helgina bárust frétt-
ir um það að vandinn
hefði verið leystur hjá hrað-
frystihúsi Patreksfjarðar og
vinnsla myndi hefjast í því
eftir hádegi í gær. A föstudag-
inn átti frystihúsið ekki fé til
að greiða starfsfóiki vikulaun
og kaupfélagsstjórinn á Pat-
reksfirði sagði, að fólkið ætti
inni tveggja vikna laun. Á
launaskrá hjá frystihúsinu
sem rekið er af SÍS eru um 120
manns auk áhafna á togara og
línubát. Jens Valdimarsson,
kaupfélagsstjóri, sagði á
föstudaginn: „Mér finnst það
mjög sorglegt að ekki skyldi
takast að greiða laun í dag.
Mér finnst verkafólk hér á
Patreksfirði hafa tekið þessu
alveg sérstaklega vel.“
Morgunblaðið fagnar því ef í
gærmorgun tókst að útvega fé
til að greiða starfsfólki frysti-
hússins á Patreksfirði laun.
Hitt leyfir Morgunblaðið sér
að efast um að vandinn í hrað-
frystihúsi Patreksfjarðar hafi
verið leystur. Áð launa-
greiðslur til starfsmanna
verði að jafn brennandi
vandamáli og raun ber vitni í
fréttum frá Patreksfirði má
rekja til mjög erfiðrar stöðu
frystihússins, sem ekki breyt-
ist þótt SÍS eða OLÍS hlaupi
undir bagga og snari út pen-
ingum í launin.
Fréttir af því hvernig at-
vinnufyrirtækjum er bjargað
á síðustu stundu og útvegað fé
til að leysa úr sínum bráðasta
vanda eru alltof algengar hér
á landi. Athygli vekur hve oft
er um sömu fyrirtækin að
ræða. Sú spurning hlýtur að
vakna hvort þessum fyrir-
tækjum eða starfsfólki þeirra
er nokkur greiði gerður með
því að fleyta starfseminni
áfram með þessum hætti.
Hafa þeir sem stjórna frysti-
húsinu á Patreksfirði lagt það
niður fyrir sér, hvað þarf að
gera til að rekstur þess geti
gengið snurðulaust og án
skyndifyrirgreiðslna vegna út-
borgunar á launum?
Vandinn á Patreksfirði hef-
ur alls ekki verið leystur. Það
hefur ekki verið tekið á mein-
inu sem veldur því að frysti-
húsið getur ekki greitt laun.
Þótt verkafólk á Patreksfirði,
sem ekki á í önnur hús að
venda, taki því „alveg sér-
staklega vel“ að fá launin sín
ekki greidd, dugar langlund-
argeð þess ekki til að vandinn
leysist.
Eins og kunnugt er hefur
verið komið á fót því kerfi hér
á landi þar sem heildardæmi
þjóðarafkomunnar er reiknað
til að fá þá niðurstöðu að
frystihúsið á Patreksfirði geti
greitt laun að minnsta kosti
eins og fyrirtæki í svipaðri að-
stöðu annars staðar. Þessi
sveigjanleiki hefur verið
myndaður með gengissigi eða
millifærslum. Sú stjórn sem
settist að völdum 26. maí síð-
astliðinn hefur spyrnt við fót-
um á ýmsum sviðum. Hinn
óleysti vandi á Patreksfirði er
prófsteinn á það, hvort ríkis-
stjórnin ætlar í tilvikum eins
og því að láta sér nægja að
lina þjáningar sjúklingsins
sem því að dæla í hann fjár-
munum eða hvort hún ætlar
að komast fyrir rót meinsins.
Samið í
Grikklandi
Ríkisstjórnir Grikklands
og Bandaríkjanna hafa
náð samkomulagi um framtíð
bandarískra herstöðva í
Grikklandi. Tæp tvö ár eru lið-
in síðan sósíalistinn Andreas
Papandreou vann góðan sigur
í þingkosningum í Grikklandi
meðal annars með það fyrir-
heit á vörunum, að nú skyldu
Bandaríkjamenn fá að finna
fyrir því og eitt væri alveg víst
að herstöðvum þeirra í Grikk-
landi yrði lokað. Eftir að
Papaendreou hefur sem for-
sætisráðherra samið við
Bandaríkjastjórn um fram-
hald á varnarsamstarfinu og
áframhaldandi dvöl banda-
rískra hermanna í Grikklandi,
segir hann að bandarísku
herstöðvunum verði örugglega
lokað eftir fimm ár!
Enginn vafi er á því að
vinstrisinnar hér á landi og
annars staðar bundu þær von-
ir við Papandreou að hann
myndi sýna Bandaríkja-
mönnum í tvo heimana og
standa við stóru orðin. Skrif
kommúnista hér á landi um
Papandreou hafa verið í þeim
dúr að með honum væri risin
ný „þjóðfrelsishetja". En auð-
vitað sá Papandreou það þegar
hann íhugaði hagsmuni
Grikklands og frelsi þjóðar-
innar án þess að vera í óraun-
sæjum kosningaham vinstri-
mennskunnar að alltof mikil
áhætta væri tekin með því að
rifta varnarsamstarfinu við
Bandaríkin. Hitt er svo enn
eitt dæmið um reykbombur
vinstrisinna, sem alþýðu-
bandalagsmenn sprengja
oftast á íslandi, að Papandr-
eou ætli að loka herstöðvun-
um, eftir að kjörtímabil hans
rennur út.
Landhelgisgæslan sprengir tundurdufl á Landeyjarsandi:
Hyellurinn hey
til Vestmannae
LANDHELGISGÆSLAN sprengdi um
hádegisbilið í gær enskt tundurduf)
frá stríðsárunum uppi á Landeyja-
sandi, en duflið kom í humartroll
bátsins Hásteins ÁR skammt frá Geir-
fugladrangi snemma um morguninn.
Báturinn fór með tundurduflið til
Vestmannaeyja, en þyrla Landhelgis-
gæslunnar hélt þangað með Gylfa
Geirsson, annan tveggja sprengjusér-
fræðinga Gæshinnar. Ekki þótti þor-
andi að sprengja duflið í Eyjum og
flaug þyrlan með duflið til lands i
vöruneti sem hékk í krók neðan í þyrl-
unni og setti það á stað sem lögreglan
á Hvolsvelli var búin að afmarka. Þar
var það sprengt klukkan 13.40 og
heyrðist dynurinn af sprengingunni til
Eyja.
„Þetta er dufl sem hefur verið
skotið niður á sínum tíma, sennilega
á stríðsárunum. Það er ekki lengur
spenna á rafhlöðum þess, en það var
með forsprengju og öllu sprengiefni
í og það var fullvirkt. Sprengiefnið í
tundurduflinu samsvaraði að
sprengikrafti hálfu tonni af dýna-
míti. Það er af enskri gerð, sem er
kölluð Mark 17,“ sagði Gylfi Geirs-
son í samtali í gær.
Gylfi sagði að það væri ekki mjög
óalgengt að vart yrði dufla frá
stríðsárunum, ennþá væri slæðing-
ur af þeim. „Við festum við duflið
tímasprengju og sprengdum það í
um l'Æ kílómetra fjarlægð frá dufl-
inu. Það varð talsvert hressilegur
hvellur þegar við sprengdum," sagði
Gylfi.
Hér fer á eftir frásögn fréttarit-
ara Morgunblaðsins í Vestmanna-
eyjum.
Stríðsástand við
höfnina í Eyjum
Ve.stmannaeyjum, 18. júlí.
í MORGUN kom vélbáturinn Há-
steinn ÁR 8 frá Stokkseyri hingað
til hafnar með virkt tundurdufl á
dekkinu. Duflið höfðu skipverjar
fengið í trollið þar sem þeir voru að
veiðum út af Surtsey.
Haft var samband við Landhelg-
isgæsluna sem sendi sprengjusér-
fræðing með þyrlunni Gró til Eyja.
Tundurduflið var flutt frá bátnum
út á Eiði og var svæðinu lokað af
fyrir allri annarri umferð á meðan.
Ekki þótti gerlegt að sprengja dufl-
ið í Eyjum en slík sprenging er það
Það sem eftir var af duflinu og netinu sei
það.