Morgunblaðið - 16.08.1983, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 1983
Siglufjörður:
Lá vid milljóna-
tjóni í miklum
vatnavöxtum
Siglufirði, 15. ágúst.
VIÐ LÁ að milljónatjón yrði hér í
bænum í nótt vegna mikilla vatna-
vaxta í ánni Skútá, en litlu munaði
að vatn úr án'ni flæddi yfir flug-
vöRinn. Unnið hefur verið að leng-
ingu flugvallarins hér síðan í
fyrrasumar, en hluti þeirrar fram-
kvæmdar er að breyta farvegi
Skútár. Til bráðabirgða hefur
vatni úr ánni verið veitt í gegnum
rúmlega tveggja metra breitt
ræsi, en ræsið hafði ekki við að
flytja frá ánni í nótt, vatnsmagnið
var svo mikið að ræsið losnaði upp
og fluttist til um tæpa þrjú hundr-
uð metra. Áin flæddi villt um mik-
ið svæði og munaði aðeins einni
tommu að vatn flæddi yfir flug-
völlinn. Völlurinn er byggður á
sandi og því er hætt við að ilia
hefði geta farið.
- mj
Reykjavíkurvikan hafin
Reykjavíkurvikan var sett í gær að Kjarvalsstöðum að viðstöddum Davíð
Oddsyni, borgarstjóra, og öðrum gestum.
Við opnunina fór fram kynning á því sem fram mun fara í borginni á
næstu dögum í tengslum við vikuna. Dagskrá Reykjavíkurvikunnar í gær
var með fjölbreyttu sniði og bauðst fólki m.a. að fara f siglingu í Naut-
hólsvík og á kvikmyndasýningu í Iðnó, en þar var sýnd kvikmyndin
,;Reykjavík vorra daga“ eftir Oskar Gíslason, sem hann gerði árið 1946.
A Kjarvalsstöðum var síðan opnað bókasafn á vegum Borgarbókasafns-
ins og verður það opið þar út vikuna.
Það óhapp varð á Grandagarði í gær, að tómir fiskikassar fuku af palli
vörubifreiðar og lentu þeir á sendiferðabifreið og skemmdu hann lítil-
lega.
Tildrög óhappsins voru þau, að um klukkan 14.30 var vörubifreiðinni
ekið norður Grandagarð. Allsnörp vindhviða feykti þá hluta fiskikassa,
sem voru á palli bifreiðarinnar á kyrrstæða sendibifreið á móts við hús
númer 14. Engin slys urðu á mönnum.
.Morgunblaðið/ ÓI.K.M.
íslandsrallið:
Dómsmálaráðuneyt-
ið heimilar keppnina
„ÞAÐ LIGGUR nú fyrir að rall-
keppnin verður heimiluð í samræmi
við þau skilyrði, sem eru sett að því
er varðar slfkar keppnir um sam-
þykki viðkomandi aðila, s.s. lög-
reglustjóra, sveitarstjórna, vegagerð-
ar eöa annarra veghaldara. Einnig er
hún heimiluð með þeim fyrirvara að
Snæfellsnes:
Til vandræða horfír
vegna tíðarfarsins
Hellnum, Snaefellsnesi, 15. ágúst.
VEÐURFAR hefur verið með eindæm-
um staðviðrasamt hér um slóðir á
þessu sumri. Vindar hafa blásið af suð-
lægri átt með stöðugum úrkomum nær
því hvern dag og segir það sína sögu
um gang heyskapar. Grasspretta tók
seint við sér því maímánuður var kald-
ur. Tún voru því seint komin í það
ástand að hægt væri að hefja slátt.
f dag er þriðja skiptið á sumrinu
sem vindátt nær sér af norðri en í
tvö fyrri skiptin var lítið gagn af
þurrkinum vegna þess hve skamma
stund hann stóð. Bændur eru því af-
ar illa settir og horfir til vandræða
ef ekki verður skyndileg veðurfars-
breyting. Nú eru grös orðin úr sér
sprottin og væru menn byrjaðir að
slá tún sín ef hægt væri að koma
vélum á þau. En þau eru alls staðar
svo blaut að nokkurra daga þurrk
þarf til að hægt sé að koma vélum að
svo að gagni megi verða. Ef ég leita í
huga mínum að einhverju sambæri-
legu sumri þá kemur fyrst upp í hug-
ann sumarið 1955 en það var mjög
votviðrasamt.
Oft hafa vegir spillst hér um slóðir
í sumar vegna rigninganna og þótti
mörgum þeir vera nógu slæmir fyrir.
En lengi getur vont versnað. Ferða-
mannastraumur er að jafnaði mikill
um Snæfellsnes um ferðamannatím-
ann en í sumar virðist sem veðráttan
hafi gert það að verkum uð óvenju
fáir hafa lagt leið sína um nesið.
Rétt er þó að geta þess að veðrið
hefur verið skárra á norðanverðu
nesinu og hafa þar komið skaplegir
dagar til heyöflunar og annarra
sumarverka.
— Kristinn.
Sama gamla rigningin
„VEDRIÐ verður svipað og verið
hefur í surnar, það er að segja rign-
ing með þessum venjulegu föstu
liðum, sunnan og suðvestanátt,"
var svar Trausta Jónssonar veður-
fræðings, þegar blaðamaður Morg-
unblaðsins sló á þráðinn til hans í
gærdag á Veðurstofuna og innti
hann eftir spánni. Norðanáttin er
sem sagt á undanhaldi og eitthvað
á að hlýna í veðri. En útlit er fyrir
rigningu næstu daga, a.m.k. á mið-
vikudag og fimmtudag að sögn
T rausta.
„Það hefur nú verið þannig í
sumar að ef einhverjar líkur eru
á rigningu, þá hefur rignt,“ sagði
Trausti. Ekki er þó reiknað með
mikilli rigningu í dag, frekar
skúrum og lítilsháttar rigningu
síðdegis.
Ágústmánuður hefur verið
óvenju kaldur og votviðrasamur
það sem af er, en Trausti sagðist
ekki vita nákvæmlega „hversu
óvenju kaldur" hann hefði verið,
‘þar sem samanburður við fyrri
ár er yfirleitt aðeins gerður um
mánaðamót. Sama er.að segja
um sumarið í heild, það veit
hvert mannsbarn að það hefur
verið afleitt, en sumrinu á Veð-
urstofunni lýkur ekki fyrr en 1.
október, svo endanlegur sam-
anburður fæst ekki fyrr en þá.
Þann 23. ágúst lýkur hunda-
dögum, en samkvæmt þjóð-
trúnni á veðurlagið á landinu að
vera mjög í anda fyrsta hunda-
dagsins, 13. júlí, en þá var tölu-
verð úrkoma um mestallt landið.
Það skyldi þó aldrei vera að
eitthvert vit leyndist í þessari
fornu trú?
„Hundadagafræðin er auðvit-
að tóm vitleysa," sagði Trausti,
„en sem slík ekki verri en hver
önnur langtímaspá. Það er alltaf
erfitt að spá um veðrið langt
fram í tímann. Nú, 27. júní á að
vera spádagur líka. Þann dag
var mígandi rigning, þannig að
þetta virðist ætla að vera gott ár
fyrir þjóðtrúnna. Höfuðdagur,
29. ágúst, er einn spádómsdagur-
inn enn, en þá á að skipta um
veðurlag. Menn geta haldið í þá
von. Ef höfuðdagurinn klikkar,
má líka alltaf fullyrða að ekkert
sé að marka þennan höfuðdag,
heldur gildi sá gamli, sem er um
tíu dögum síðar.
Annars hafa draumspakir
menn sagt mér að veðrið komi til
með að breytast í kringum 19.
ágúst. Við verðum bara að vona
að draumar þeirra rætist."
keppni og akstur keppenda valdi
ekki öðrum vegfarendum verulegum
óþægindum eða hættu á skemmdum
á vegum eða náttúru landsins,“
sagði Ólafur W. Stefánsson, skrif-
stofustjóri í Dómsmálaráðuneytinu,
er hann var inntur eftir því hvort
ákvörðun hefði verið tekin um að
leyfa íslandsrallið svonefnda.
Hann sagði að þar sem fyrir
lægi að tekið yrði tillit til sjón-
armiða Náttúruverndarráðs um
friðlönd, yrði keppnin heimiluð
þar sem þessi skilyrði væru fyrir
hendi.
í fréttatilkynningu sem Nátt-
úruverndarráð hefur sent frá sér
um afstöðu sína til þessarar al-
þjóðlegu rallkeppni, kemur fram
að ráðið varar eindregið við
keppni af þessu tagi. Náttúru-
verndarráð bendir á að enn er
áformað að aka um viðkvæmar
hálendisslóðir og friðlýst svæði.
Benda þeir jafnframt á að óvenju
votviðrasamt hefur verið að und-
anförnu og að allar hálendisslóðir
sunnan jökla séu miklu viðkvæm-
ari fyrir umferð af þessu tagi.
í samtali sem Mbl. átti við
talsmenn LÍA kom fram að undir-
búningur fyrir þetta rall hefði
hafist strax í desember og að í
upphafi hafi sambandið farið
fram á samstarf við Náttúru-
verndarráð, en þar hefðu þeir
mætt skilningsleysi. Ólafur Guð-
mundsson, ritari LÍA, sagði að
rætt hefði verið við Dómsmála-
ráðuneytið í febrúar á þessu ári og
einnig hefðu umsóknir um akst-
ursleiðir verið sendar til sýslu-
manna í vor og farið fram á um-
sögn þeirra. „Þetta er síðan búið
að ganga á milli manna og nefnda
án úrlausnar þar til núna nokkr-
um dögum fyrir keppnina," sagði
Ólafur. „Það hefur aldrei verið
sótt jafnsnemma um nokkra rall-
keppni hér á landi og engin þeirra
hefur verið jafnvel skipulögð. Við
teljum að það hafi tekið óeðlilega
langan tíma að afgreiða þetta mál
og teljum það reginmisskilning að
þetta sé landskemmandi," sagði
Ólafur að lokum.
Deilur íbúa við Þingvallastræti 22:
Hjónin verði
ekki borin út
í GÆR var kveóinn upp úrskurður í
fógetarétti á Akureyri í „útburöarmál-
inu“ svokallafta — deilum þeim sem
risift hafa milli íbúa Þingvallastrætis
22 á Akurcyri. Viðfangsefni fógetarétt-
ar var tvíþætt. Annars vegar að úr-
skurða hvort dómur Hæstaréttar, sem
birtur var hjónunum Danielle Somers
Jónsson og Ólafi Rafni Jónssyni, hafi
verið löglegur og hins vegar um útburð
hjónanna.
Dómsbirtingin var úrskurðuð
lögleg. Hins vegar úrskurðaði
fógetaréttur, að aðför, sem miðar að
því að hjónin skuli borin út úr íbúð
sinni, nái ekki fram að ganga. Máls-
kostnaður var felldur niður. Sigurð-
ur Eiríksson, fulltrúi fógeta, kvað
úrskurðinn upp.
„Þessum úrskurði verður áfrýjað
til Hæstaréttar. Dómur Hæstarétt-
ar frá í marz er til lítils ef ekki er
hægt að framfylgja honum," sagði
Brynjólfur Kjartansson, lögmaður
Grímu Guðmundsdóttur, í samtali
við Mbl., en Gríma hefur átt í deil-
um við hjónin. Hæstiréttur dæmdi
þann 25. marz síðastliðinn að hjón-
unum Danielle og Ólafi skyldi gert
að flytjast á brott úr íbúðinni. Lög-
maður þeirra hjóna er Gissur
Kristjánsson, lögfræðingur.
Forsendur úrskurðar fógeta munu
þær, að 12. grein aðfararlaganna
komi í veg fyrir útburð; þar sem
ekki sé hægt að taka lyklavöldin af
hjónunum, sé ekki hægt að bera
þau út.
Stolnum bíl
ekið á staur
STOLNUM bíl var í gærkvöldi ekið á
Ijósastaur syðst við Aðalstræti á Akur-
eyri. Einn farþcganna var fluttur í
sjúkrahús, en hann mun lítið slasaður.
Ökumaður er grunaður um ölvun við
aksturinn.
Bílnum, sem er fólksbifreið af
Lada-gerð, var í gærkvöldi stolið frá
Birkilundi, þar sem hann stóð utan
húss eigandans. Hafði hann skilið
lyklana eftir í bílnum.