Morgunblaðið - 16.08.1983, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 1983
3
Bygging íþróttahúss fyrir fatlaða ákveðin
ÁKVEÐIN hefur verið bygging íþróttahúss fyrir fatlaða í Reykjavík og í gær tók
Arnór Pétursson, formaður íþróttafélags fatlaðra í Reykjavík, fyrstu skóflu-
stungu að byggingunni.
íþróttahúsið verður staösett á lóð Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra, að
Hátúni 12 í Reykjavík. f íþróttahúsinu veröur m.a. íþróttasalur, búningsher-
bergi, þrekþjálfunarsalur, fundarsalur og skrifstofur.
Sérstök húsbyggingarnefnd hefur
verið skipuð til að annast undirbún-
ing og framkvaemdir, bæði fjár-
hagslegar og verklegar en í henni
eiga sæti: Sigurður Magnússon,
Trausti Sigurlaugsson og Vigfús
Gunnarsson.
Sigurður Magnússon sagði að til-
koma hins nýja húss muni skapa
varanlega kjölfestu í starfsemi fatl-
aðra íþróttamanna í Reykjavík og
nágrenni og muni án efa koma að
ýmsum notum fyrir þá mörgu ein-
staklinga sem eiga heima í háhýs-
um í næsta nágrenni, en flestir
þeirra væru fatlaðir með mismun-
andi hætti.
Áætlaður kostnaður við að full-
gera þetta nýja íþróttahús er, mið-
að við verðlag í dag, 17—20 milljón-
ir króna. Húsið er teiknað af
Teiknistofunni hf. en verkfræði-
teikningar eru unnar af Verkfræði-
stofu Sig. Thoroddsen hf.
Nýtt „gosstríð"
í uppsiglingu?
Gosdrykkjaverksmiðjan Vífilfell
hefur nú mótmælt svokallaðri Pepsí-
áskorun gosdrykkjaverksmiðjunnar
Sanitas, við Verðlagsráð. Pepsí-
áskorunin er þess eðlis, að í ýmsum
verzlunum hefur viðskiptavinum verið
boðið að smakka á tveimur ómerktum
kóladrykkjum, Pepsí og Coca cola og
eru þeir síðan beðnir að segja hvor
drykkurinn er betri.
Telja forsvarsmenn Vífilfells að
þarna sé um ólögmæta viðskipta-
hætti að ræða og að Sanítas sé
óleyfilegt að nota vörumerki Coca
cola á þennan hátt. Forsvarsmenn
Sanitas segja að hér sé aðeins um
að ræða framhald samskonar
Biðstaða
í Blöndu-
samningum
BIÐSTAÐA er í samningamálum
stjórnar Landsvirkjunar og við-
komandi verkalýðsfélaga vegna
væntanlegrar virkjunar við Blöndu
og verður svo fram yfir 20. þessa
mánaðar, en samkomulag var um
að fresta samningafundum fram að
þeim tíma. Nú er unnið að undir-
búningi á virkjunarsvæðinu, sam-
kvæmt sérstöku samkomulagi þar
A
**
fctiS®
Orlof hjá
starfsmönn-
um Hvals
ALLS hafa veiðst 142 langreyðar og 1
sandreyður á hvalvertíöinni í sumar.
Illé hefur vcrið á veiðunum frá 10.
ágúst vegna orlofs starfsmanna, en
veiðarnar hefjast á ný 21. ágúst.
Að sögn Kristjáns Loftssonar er
skýringin á því hvers vegna svo lítið
hefur veiðst af sandreyði sú, að hún
er venjulega mun síðar á ferðinni
en langreyðurin og búrhvalurinn,
sem reyndar er friðaður. Heimilt er
að veiða 167 langreyðar • og 100
sandreyðar á þessari hvalvertíð.
„áskorunar" og verið hefur í gangi
erlendis og sé það fyllilega leyfilegt.
Verðlagsráð mun að öllum líkindum
taka málið fyrir á fundi sínum á
miðvikudag.
Arnór Pétursson, formaður íþróttafélags fatlaðra í Reykjavík, tekur fyrstu skóflustungu að íþróttahús-
inu.
:"T- t i r %
■M
. he(raiaKPÍ
s'aW
590
690
2.90
69'
9SU
1SO
>V"
w o 900
a'öl
1.49^
ítosW- 2.0
te^ með^
{£«‘uve
Veriö velkomin í verslanir vorar
*$%£££* mm
S'f"> *ra sk-p'ioorö. ðS0S6
Laugavegi 20.
Auaturstrati 22