Morgunblaðið - 16.08.1983, Page 14

Morgunblaðið - 16.08.1983, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 1983 Hér er hópurinn við komuna til Keflavíkurflugvallar ásamt hinum bráðhressa fararstjóra, Viktor Urbancic. Talið fri vinstri Jón Kr. Arnarson, Hafdís Steingrímsdóttir, Kolbrún Hjartardóttir, Elín Friðriksdóttir, Viktor Urbancic, Sigurður Erlingsson, Hildur Aradóttir, Svanfríður G. Bjarnadóttir og Ríkharður Kristjinsson. Vikudvöl bladbera Morgunblaðsins í Danmörku: Rússíbaninn yinsælastur Rússíbaninn þótti vinselastur allra tckjanna bsði (Tfvolf og i Dyrehavsbakk- en, en einnig fóru krakkarnir f fleirf taeki eins og þennan farskjótta sem rann eftir teiauin. Einnig var farið í þessa farkosti sem fremur virðast gerðir fyrir vinstri umferð en hægri sé tekið mið af hvoru megin stýrið er staðsett. Jónshúsi, 12. áfúst EINS OG sagt hefur verið frá f blaðinu fóru 8 verðlaunahafar f áskrifendakeppni Morgunblaðs- ins til Kaupmannahafnar á laug- ardaginn var. Hafa þeir nú dvalið í viku i borginni við sundið undir leiðsögn Viktors Urbancic og greiðir Morgunblaðið allar ferðir, bæði milli landanna og um Stór- Kaupmannahafnarsvæðið, uppi- hald á Park Hotel í hjarta borg- arinnar og aðgangseyri að hinum ýmsu merkisstöðum, sem þeir hafa skoðað. Eru blaðberarnir, sem eru frá 10 ára og upp í þrf- tugt, ákaflega ánægðir með ferð- ina og skipulag hennar og róma mjög lipurð og langlundargeð fararstjórans. Við komuna til Kaupmannahafnar, Iaugardaginn 6. ágúst, voru ferða- langarnir þreyttir, enda mikil við- brigði fyrir flesta að koma f fyrsta sinn til útlanda og veðrið afar hlýtt eftir rigningarnar heima. Sunnudag- urinn var þó tekinn snemma og geng- ið beint yfir í Tívolí og þaðan hreyfðu þau sig ekki allan daginn, en hreyfðu sig þeim mun meira innan hins fræga garðs. Sum tækin þar voru vinsælli en önnur og óspart notuð, Við komuna til Keflavíkurflugvailar gáfu þau sér tfma til að láta Ijósmynd- ara Mbl. taka af sér myndir og segja fáein orð í leiðinni. Ríkharður Krist- jánsson var sá fyrsti sem við okkur ræddi og sagði hann að ferðin hefði verið mjög skemmtileg og margt skrýtið borið fyrir augu. t.d. „rússíbaninn", og sagðist elsti verðlaunahafinn hafa orðið sem barn á ný og notið sfn ekki sfður en hinir f hópnum. Flest höfðu þau lfka hlakk- að mest til að upplifa Tfvolf og urðu sfður en svo fyrir vonbrigðum. Á mánudaginn var ferðinni heitið til Helsingjaeyrar til að skoða Krónborgarkastalann. Var það fyrsta lestarferðin fyrir flesta og mikill spenningur. Og lestarferðin stóð fyrir sfnu og þaö gerði einnig kastalinn mikli, en um hann gengu þau lengi dags og slepptu engu, ekki heldur dýflissunum, sem þeim þótti mikið til koma að skoða. Úm kvöldið voru þau ekki þreyttari en svo, þrátt fyrir öll þessi nýju áhrif, að þau fóru í bíó með hinum óþreytandi Viktori og sáu söngvamyndina Flash-Dance, sem einkum stúlkurnar höfðu mjög gaman af, og eru sumar þeirra búnar að eignast hljómplötur með lögum úr myndinni. Öll hafa þau af yngstu kynslóðinni líka keypt sér tölvuspil og má ýkjulaust segja, að þau sofni út frá þeim á kvöldin. Heimsóttu Politiken Þá var næst að heimsækja dag- blaðið Politiken, en mynd frá þeirri heimsókn hefur þegar birzt f Mbl. og Sigurður Erlingsson úr Kópavogi var næsti viðmælandi og hélt hann traustu taki um Pac-man tölvuspilið sem hann hafði keypt. Honum fannst skemmtilegast í rússíbananum á Dyrehavsbakken eins og flestum hinna og kvaðst hann ekkert hafa ver- ið hræddur í honum og farið oftar en einu sinni. fleiri myndir úr ferðinni raunar. Það var á þriðjudagsmorguninn, að þeir Svend Seehusen, Jan Bonfils og Jörg- en Krusie tóku á móti hópnum í Poli- tiken-húsinu við Ráðhústorg, en það mun vera um 100 ára gamalt, líkt og dagblaðið sjálft. Var hópnum sýnd vinnan við blaðið ofan frá ritstjórn- arskrifstofunum og niður f pökkun- arkjallarann, mjög áhugaverður göngutúr og lærdómsríkur undir leiðsögn Jörgens. Lýsti hann vel fyrir börnunum og okkur hinum, hvernig blað er unnið, hinni nýju tækni og einnig nefndi hann og sýndi gömlu aðferðirnar til samanburðar. Börnin höfðu ekki áður séð slfka tækni og hlustuðu og námu fræðsluna mjög vel. Öllum var síðan boðið til hádeg- isverðar f móttökusal dagblaðsins og var þar steiktur fiskur, „smörrebröd" og kökur á eftir á borðum, og voru síðan allir leystir út með gjöfum, peysum með merki Politiken og fleiru. Voru móttökurnar mjög góðar og ekkerí sparað til að gleðja blað- berana íslenzku. Til gaman má geta þess, að blaöberar Politiken eru 1200 og er blaðið gefið út í 150 þúsund eintökum. — Sfðari hluta þessa dags var varið til verzlunarferða, sem auð- vitað eru alveg ómissandi þáttur f utanlandsferðum okkar Islendinga. Og svo eru hér lfka fádæma góðar útsölur núna og notuðu verðlauna- hafarnir sér það. Á miðvikudagsmorguninn var far- ið í heimsókn 1 Jónshús, þar sem sendiráðspresturinn og fjölskylda hans tóku á móti hópnum. Skoðuðu gestirnir safn Jóns Sigurðssonar og hlustuöu á frásögn um hann, litu inn á heimili prestsins og f félagsheimil- ið. Þá var gengið til Ámalienborgar til að horfa á, þegar lífverðir drottn- ingarinnar skipta um varðstöðu, og þar voru þau mynduð með einum lff- verðinum með háu bjarnarskinns- húfuna á höfðinu, sem hefur verið afar erfitt fyrir þá að bera í sumar vegna hitans, enda hefur liöið yfir ófáa þeirra. Má lfka telja, að yngstu ferðalangarnir hafi staðið sig vel í hitanum, en hann hefur ekki farið niður fyrir 25°, og allt upp í 30° þessa daga, fyrr en f dag, föstudag, er kald- ara. — Þá var röðin komin að þvi mest spennandi þann daginn, en það var ferðin til Dyrehavsbakken eða Bakken, eins og hann er oftast kall- aður. Fóru þau með lestinni til Klampenborg og gengu gegnum skóginn þangað upp eftir, og var það fyrata skógarganga flestra. Fannst þeim nærri jafn gaman á Bakkanum og f Tfvoli og skemmdu sér af lffi og Eini Reykvfkingurinn f hópnum var Jón Kristján Árnarsson og var hann f sinni fyrstu ferð til annarra landa. „Það var gaman að koma til útlanda," sagði Jón, „en það var bara frekar heitt.“ Hann fór í dýragarðinn og sá flóðhesta og sebrahesta en slíkar kynjaskepnur eru sjaldgæfar hér á landi. Elfn Halldóra Friðriksdóttir sagðist aldrei hafa farið áður til útlanda áður en hún fengi að fara á næsta ári með mömmu sinni og pappa. „Það var svo heitt að við vonim alveg að stikna þegar við vorum á ströndinni," sagði Elín okkur. sál fram undir kvöld og prófuðu flest helztu tækin þar og notuðu sér óspart hinar mörgu „sjoppur" eins og barna er siður. Munu hamborgararn- ir hafa verið vinsælasta fæðar. f ailri ferðinni. Fengu heitasta dag sumarsins á Bellevue- baðströndinni Ákveðið hafði verið að eyða einum degi á baðströnd í blíðu veðri og fór það svo, að þau fengu einn heitasta dag sumarsins á Bellevue-baðströnd- inni á fimmtudag. Sum barnanna sólbrunnu þvf á bakinu, þótt Viktor hefði af hugsunarsemi sinni tekið með Morgunblaðsbolina og látið þau klæðast þeim, er lfða tók á daginn. Leið dagurinn eins og örskotsstund við sund f sjónum og bátsferðir við gula sandströndina og nutu þau þess vel, bæði eldri og yngri. Var þó ein plága þar, þúsundir af Maríuhænum flögruðu um loftið og settust á allt, sem fyrir varð og bitu jafnvel líka. Skýringin á þessu fyrirbrigði, sem er sjaldgæft hér, mun vera sú, að kvik- indi þessi ná ekki fluginu, er hitinn stigur svo hátt. — Nokkrir úr hópn- um fóru svo f bfó um kvöldið og var Hildur Aradóttir hafði áður komið til útlanda en hún hafði farið til Noregs og Danmerkur. Fannst henni samt öðruvfsi að koma nú til Danmerkur því núna var hún með krökkum sem voru svo skemmtileg. Hún sagðist samt vera fegin að vera komin heim aftur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.