Morgunblaðið - 16.08.1983, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 1983
Óeirðir
í Chile
Islamabad, 14. ágúst. AP.
SEX leiðtogar stjórnarandstöðunnar í
Pakistan voru handteknir, er nokkur
hundruð manns tóku þitt í mótmæla-
aðgerðum á fjölmennu markaðstorgi í
Karachi í gær.
Þúsundir manna tóku þátt í mót-
mælaaðgerðum sem beint var gegn Zia
Ul-Haq forseta herstjórnarinnar í Pak-
istan um helgina. Var krafan að lýð-
ræði yrði komið á á nýjan leik f land-
inu.
Ofbeldi var ekkert, en nokkrir
leiðtogar stjórnarandstöðuflokk-
anna voru handteknir, eftir að 20.000
manns höfðu komið saman við
grafhýsi Mohameðs Ali Jinnah,
sjálfstæðishetju Pakistans. Hlýddi
mannfjöldinn þar á ræður stjórnar-
andstæðinga uns lögreglan kom á
vettvang og dreifði honum án þess
að til óláta kæmi.
Samtök átta stjórnmálaflokka
stóðu fyrir mótmælaaðgerðunum,
flokkarnir eru allir opinberlega
bannaðir, en starfa allir samt sem
áður bæði leynt og Ijóst. Boðuðu
formenn flokkanna að frekari að-
gerðir væru á döfinni, svo sem verk-
föll og fleira f þeim dúr. Mótmælin
hófust aðeins tveimur dögum eftir
að Zia ávarpaði þingið og boðaði
kosningar fyrir marsmánuð árið
1985.
Pólsk óeirðalög-
regla sundraði
hópi mótmælenda
Jóhannes Páll páfi annar fer með bænir undir styttu Maríu meyjar í hinum
helga helli í Lourdes í suðurhluta Frakklands. AP/Símamjnd
Páfi í Lourdes:
„Hverfíð aftur heim
sterkari en áður“
Lourdea, Frakklandi. 15. ágúsL AP.
PÁLL páfi varð fyrstur páfa til að
heimsækja heilsulindina frægu við
Lourdes f Frakklandi um helgina, en
þar er sagt að heilög María Guðsmóð-
ir hafi birst árið 1858. Síðan hefur þar
verið helgidómur og talið að vatn úr
lindinni hafi óvenjulegan lækn-
Gdansk, 15. ágúst. AP.
HEILU bílfarmarnir af sérþjálfuðum
óeirðalögreglumönnum voru f gær
sendir á vettvang til þess að sundra
hópi 2000 mótmælenda, sem safnast
höfðu saraan og ætluðu að ganga í átt
að Lenín-skipasmíðastöðinni í
Gdansk til þess að minnast upphafs
verkfallanna, sem urðu kveikjan að
stofnun Samstöðu fyrir þremur ár-
um.
Að sögn vestrænna frétta-
manna, sem urðu vitni að aðgerð-
um lögreglunnar, voru a.m.k. 12
manns handteknir. Á meðal þeirra
var lið kvikmyndatökumanna
bandarísku sjónvarpsstöðvarinnar
NBC. Þeim var sleppt eftir tvær
stundir. Þetta er ekki í fyrsta sinn,
sem erlendir fréttamenn í Póllandi
eru teknir höndum. Venjulegast er
einungis verið að kanna skilríki
viðkomandi.
Mótmælagangan hófst laust eft-
ir kl. 11 í gærmorgun eftir að
rúmlega 5000 manns höfðu hlýtt á
útiguðsþjónustu við Sankti
Brygida-kirkjuna. Á meðal fjöld-
ans var Lech Walesa. Hann var
hins vegar ekki á meðal göngu-
manna, en hélt brott að guðsþjón-
ustunni lokinni.
Hópur mótmælendanna tvístr-
aðist mjög fljótlega eftir að lög-
reglan kom á vettvang og ekki kom
til neinnar valdbeitingar af hálfu
lögreglumannanna.
Mótmælafundurinn í gær var sá
fyrsti af þessari stærðargráðu frá
því herlögum var aflétt þann 22.
júlí sl. Talið er víst, að m.a. hafi
verið efnt til samkomu þessarar til
þess að hvetja almenning til fjöl-
mennra mótmæla þann 31. ágúst.
Hefur fólk verið hvatt til þess að
sniðganga almenningsfarartæki á
bilinu kl. 14—16 þann dag.
Enn ólga í
Pakistan
Sutiago, CUIe. 15. ágist. AP.
ENN KOM tU átaka milli lögreglu
og mótmælenda á götum úti í Santi-
ago, höfuðborg Chile, í gær. Rysk-
ingarnar hófust í kjölfarið á þremur
útforum þar sem verið var að leggja
til hinstu hvíldar þrjá unga menn,
sem létust í óeirðunum í lok síðustu
viku, en þá létust 24 óbreyttir borg-
arar.
Slagsmálin í gær stóðu yfir í
meira en klukkustund og margir
hurfu bláir og blóðugir af vett-
vangi áður en lögreglan fékk loks
dreift mannfjöldanum með þvi að
skjóta táragasdósum inn í þyrp-
ingarnar.
Ólgan í landinu að undanförnu,
sem náði hápunkti með mannvíg-
unum í síðustu viku, hefur orðið
til þess að stjórnvöld hafa gefið í
skyn að þau muni slaka á klónni.
Innanríkisráðherrann, Sergio
Onofre Jarpa, sagði þannig i við-
tali á sunnudaginn, að kosningar
myndu verða „miklu fyrr“ en árið
1990 eins og ráð er fyrir gert í
stjórnarskránni.
ingarmátt.
Þúsundir þjáðra manna fóru til
Lourdes í tilefni af komu páfa,
fremstir sátu 2000 fársjúkir og
lamaðir í hjólastólum. Páfi ávarp-
aði fólkið og sagði m.a.: „Hverfið
aftur heim sterkari en þið komuð,
Áttundi óeirða-
dagurinn í röð
Belfast, 15. ÍKÚst. AP.
LÖGREGLA og her leituðu í dag að
Dominic McGlinghey, eins leiðtoga
írska þjóðfrelsishersins, IRA, eftir að
átök böfðu brotist út á milli hópa ungl-
inga úr röðum mótmælenda og kaþ-
ólskra i Londonderry. Var þetta átt-
undi dagurinn í röð, sem barist var á
götum úti á N-írlandi.
Átökin í dag brutust út í Gobn-
ascale-hverfinu í Londonderry þeg-
ar unglingarnir tóku að grýta stein-
um og eldsprengjum hvorir að öðr-
um. Komst ekki kyrrð á að nýju fyrr
en lögregla skakkaði leikinn. Varð
hún að beita gúmmíkúlum til þess
að sundra hópunum.
Þá var hús tekið herskildi í bæn-
um Strabane, 14 km suðvestur af
Londonderry, í morgun. Tóku
grímuklæddir árásarmenn 5 manna
10 menn far-
ast í tengslum
við kosningar
Lagos, Nígerlu, 15. ágúst. AP.
í ÞAÐ minnsta 10 manns, þar af einn
lögreglumaður og sex meðlimir
stærsta stjórnmálaflokks Nígerfu, létu
lífið í átökum á laugardag í tengslum
við rfkisstjórakosningar f landinu, sem
er fjórða fjölmennasta lýðræðisrfki
heims.
Mest urðu átökin f borgunum
Lagos, Ibadan og Abeokuta í suð-
vesturhluta landsins, þar sem Oba-
femi Awolowo nýtur mikils fylgis.
Awolowo hlaut næstflest atkvæði í
forsetakosningunum um fyrri helgi.
Auk þeirra, sem létu lífið, sættu
margir starfsmenn flokks Shagari
forseta barsmíðum.
fjölskyldu f gfslingu og notuðu húsið
til þess að stjórna fyrirhugðum
sprengjuaðgerðum sínum. Komu
þeir sprengju fyrir í verslun, en hún
var gerð óvirk áður en kom til þess
að hún spryngi.
sterkari vegna trúar ykkar sem
knúði ykkur f ferð þessa." Sagði
hann jafnframt, að sjúkir og þjáðir
mættu ekki bugast, þeir yrðu að
sætta sig við veruleikann og leggja
út frá því, gera eins gott úr öllu og
frekast væri kostur. Ætti fólkið að
nota styrk sinn og kunnáttu til að
leggja eins mikið af mörkum og
kostur væri, því annars væri hætta
á því að það veslaðist upp.
I lok ræðu sinnar minntist páfi
Bernadette Soubirous, sem 14 ára
taldi sig hafa séð Maríu Guðsmóð-
ur alls 18 sinnum í Lourdes. Stúlk-
an var gerð að dýrlingi sfðar, en
glfmdi við slæma heilsu alla sfna
ævi. Fjórar milljónir pflagríma
koma árlega til Lourdes til að baða
sig f lindinni og fá sér sopa úr
henni. Að jafnaði eru um 60.000
pílagrímanna sjúkt fólk sem er að
leita sér lækningar.
Ekkert lát er á
skærum krist-
inna og drúsa
Beirút, 15. ágúst. AP.
LÖGREGLA skýrði frá því f dag, að
þrír menn hefðu látið Iffið og sex særst
í átökum, sem urðu í nótt á milli her-
manna kristinna hægrisinna og drúsa í
fjalllendinu í miðhluta landsins. Þá
urðu miklar sprengingar f Aley-héraði
og Chouf-fjöllunum, sem drúsar ráða
yfir. Kristnir sluppu heldur ekki við
sinn hluta sprenginganna og urðu tals-
verðar skemmdir f austurhluta Beirút.
Kennedy lét kvikmynda
ímyndað eigið morð
14. ágúst AP.
KENNEDY, fyrrum Bandaríkjafor-
seti, lét taka einkakvikmynd af eigin
morði, eftir því sem Ijósmyndari
starfandi við Hvíta húsið segir, auk
rithöfundar nokkurs f nýútkominni
bók sinni. Segist Ijósmyndarinn hafa
tekið kvikmyndina tveimur mánuð-
um áður en Kennedy var myrtur f
Dallas í nóvember 1963.
Ljósmyndarinn sem um ræðir,
Robert Knudsen, tók opinberar
ljósmyndir í Hvíta húsinu allt frá
forsetatfð Harry Truman og til
valdatíma Geralds Ford. Hann
lýsti morðatriðinu þannig:
„Kennedy fór frá borði snekkju
sinnar Honey Fitz í Newport og
gekk eftir langri bryggjunni til
lands. Skyndilega greip hann um
brjóstið og féll á jörðina. Á eftir
honum kom Crespi hertogafrú
með ungum syni sínum. Steig hún
hreinlega yfir forsetann þar sem
hann lá, eins og hún vissi ekkert af
honum. Sama gerði Jaqueline, eig-
inkona hans. Næstur kom Red
Fay, æskuvinur forsetans (leikinn
af Paul Burgess), en hann hrasaði
John F. Kennedy
um líkama forsetans og um leið og
hann lenti ofan á honum, frussað-
ist blóð út um vit beggja.
Knudsen staðfesti orðróminn
um kvikmyndina eftir að hennar
var getið í fyrrgreindri bók Ralphs
G. Martin, „A hero for our time“.
Sagði Knudsen að Kennedy hefði
lagt mikið kapp á að enginn frétti
af upptökunum og hann vissi ekki
hót um hvar spólan væri niður
komin. Hann gat þess jafnframt
að fleiri en eitt eintak hefði verið
til.
Rithöfundurinn Ralph Martin
ferðaðist með Kennedy í forseta-
kosningunum árið 1959. Hann seg-
ir í bók sinni, að Kennedy hafi ver-
ið gagntekinn af dauðanum. Al-
gengt var að hann hefði andvarp-
að í lok hvers dags og sagt: „Guði
sé lof að ég var ekki drepinn í
dag.“ Knudsen sagði um þetta:
„Hann velti dauðanum mikið fyrir
sér og ég neita því ekki að það kom
ónotalega við mig er ég frétti af
morði hans. Þá varð mér hugsað
til kvikmyndarinnar og ég gat ekki
annað en velt því fyrir mér hvort
hann hafi fundið eitthvað á sér,
eða hvort að um einskæra tilviljun
hafi verið að ræða.“
Báðir aðilar sökuðu hinn um að
eiga upptökin að átökunum að þessu
sinni. Þessi hrina hófst á laugar-
dagskvöld og stóð fram undir morg-
un í dag er enn eitt vopnahléð var
samþykkt á milli þessarra aðila.
Alþjóðaflugvöllurinn í Beirút var
enn lokaður í morgun og hefur verið
svo frá því á miðvikudag í síðustu
viku. Hafa stjórnvöld ekkert gert til
þess að opna hann að nýju þrátt
fyrir þau ummæli Walid Jumblatt,
leiðtoga stjórnarandstöðunnar, að
drúsar muni halda aftur af sér og
ekki láta sprengjum rigna yfir flug-
völlinn.
Lokun flugvallarins, sem er einn
sá fjölfarnasti í Miðausturlöndum,
kostar stjórnvöld stórfé. Er talið að
tapið nemi um 14 milljónum ísl.
króna dag hvern. Þar af ber flugfé-
lag ríkisins 4 milljóna króna tap á
dag.
Að sögn talsmanns stjórnarinnar
telur Amin Gemayel, forseti lands-
ins, skilyrði stjórnarandstöðunnar
ófullnægjandi. Eitt skilyrða Jum-
blatts var að flugvöllurinn yrði ekki
notaður í hernaðarskyni. Á það vill
stjórn Gemayels ekki fallast. Neita
stjórnvöld því alfarið, að herþyrlum
eða orrustuþotum hafi verið beitt
gegn drúsum. Slíkt sé með öllu úti-
lokað, þar sem drúsar haldi nær ein-
vörðungu til a landsvæðum, sem
annaðhvort Israelar eða Sýrlend-
ingar ráða yfir.
Menachem Begin, forsætisráð-
herra fsraela, sakaði um helgina
Sýrlendinga um þrákelkni í deilunni
í Líbanon. Hvatti hann stjórnvöld i
Damaskus til þess að fylgja fordæmi
ísraela og hvetja til brottfluttnings
alls herliðs frá landinu. Sagði Begin
fsraela vera reiðubúna til þess að
kalla herlið sitt heim, svo fremi
Sýrlendingar og Palestínumenn yfir-
gæfu landið samtimis.
Þá sagði Hafez Assad, forseti Sýr-
lands, um helgina, að hættan á styrj-
öld milli Sýrlendinga og ísraela væri
stöðugt fyrir hendi.