Morgunblaðið - 16.08.1983, Síða 41

Morgunblaðið - 16.08.1983, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 1983 21 Lewis dópaður? NORSKA blaðið Verdens Gang sagöi frá því í gær að lyfjapróf sem tekið var hjá bandaríska spretthlauparanum Carl Lewis væri jákvætt. Vitnað var í einn af stjórnarmönnum Alþjóöa- frjálsíþróttasambandsins. Aö sögn blaðsins kom þaö fram að Carl Lewis hafði neytt hormóna- lyfsins Testosteron, en slfkt er al- veg stranglega bannaö: Lyfja- prufur þær sem teknar voru af íþróttafólkinu í Helsinki eru nú í mjög nákvæmum rannsóknum í rannsóknarstofu í Helsinki og ekkert verður látiö uppi opinber- lega um þær fyrr en þær liggja alveg Ijósar fyrir. Norska blaöiö setur spurningarmerki á eftir fyrirsögn sinni „Lewis dópaður?“. En komi það á daginn að svo hafi veriö á það eftir að draga slæman dilk á eftir sér. Mörg skalEamörk í lelk Fram og KA í 2. deild FRAMARAR sigruðu KA á Laug- ardalsvelli í 2. deildinni í gær, 4—2, eftir aö staöan í hálfleik Staðan í 2. deild KA 14 8 4 2 24—14 20 Fram 13 7 4 2 22—14 18 UMFN 14 7 2 5 17—12 16 FH 13 5 5 3 22—16 15 Víðir 14 5 5 4 11—10 15 Völsungur 14 6 2 6 15—14 14 Einherji 14 4 6 4 11—13 14 KS 14 2 7 5 12—16 11 Fylkir 14 2 4 8 12—21 8 Reynir 14 1 5 8 8—24 7 hafði verið 2—0 fyrir KA. Mikiö rok var og setti þaö sinn svip á leikinn. KA lék undan vindi í fyrri hálfleik og skoruöu þá tvö mörk en Fram í þeim síöari og þeim tókst að skora 4 mörk. Fimm mörk í leiknum voru skor- uö meö skaila. Ásbjörn Björnsson skoraði fyrsta markið eftir langt innkast. Annaö mark KA kom eftir hornspyrnu og var þaö Gunnar Gíslason sem skallaöi í netið. í siðari hálfleik skoraði Guö- mundur Torfason en hann kom inná í hálfleik, Halldór Arason jafn- aöi um miöjan hálfleikinn og skömmu síöar Kristinn Jónsson. Síðasta markiö skoraöi Halldór undir lok lelksins og var þaö einnig skallamark. Bæöi liðin áttu mikið af marktækifærum sem þau nýttu ekki. — sus ÍBV í úrslit bikarkeppninnar — sigraöi lið FH örugglega 4—1 ÍA OG ÍBV munu leika til úrslita í bikarkeppni KSÍ þann 28. ágúst. Eyjamenn sigruðu FH-inga í seinní leik liöanna sem fram fór í Eyjum í gær. Staðan í hálfleik var 1—1 en í þeim síðari voru yfir- burðir Eyjamanna miklir og þeir skoruðu þá þrjú mörk á 10 mín. kafla og geröu út um leikinn. Aö- stæöur til aö leika knattspyrnu voru vægast sagt slæmar, því mikið rok var og stóð frekar þvert á völlinn, auk þess sem völlurinn var mjög þungur og erfiður yfir- feröar eftir langvarandi rigningar. Bæöi liöin reyndu af fremsta megni aö leika góöan bolta í fyrri hálfleik, en Eyjamenn voru ákveönari upp viö markiö og sköp- uöu sér fleiri færi, en þrátt fyrir þaö var jafnt í hálfleik. Fyrsta mark leiksins kom á 14. mín. og var þaö Ómar sem þaö geröi en hann fékk góöa sendingu frá Jóhanni Georgssyni. FH-ingar jafna síöan metin þegar um átta mínútur voru til hálfleiks og var þaö Ólafur Dani- valsson sem átti sakleysislegt skot aö markinu og virtist ekki mikil hætta á feröum, en Aöalsteinn markvöröur missti boltann inn fyrir línu og FH-ingar þar meö búnir aö jafna. Eyjamenn höföu mikla yfirburöi í síöari hálfleik og sóttu þá mjög stíft. Þeir tóku forustuna á 75. mín. eftir þunga sókn. Boltinn barst út úr vítateig FH þar sem Viöar Elí- asson kom á fleygiferö og sendi knöttinn af miklum krafti neöst í hornið algjörlega óverjandi fyrir Halldór í markinu sem stóö sig vel í leiknum. Skömmu síðar bætti Ómar ööru marki viö eftir skemmtilega sókn af hálfu Eyjamanna. Hlynur lék upp kantinn, gaf á Svein Sveinsson sem aftur gaf góöan bolta á Ómar sem var á auöum sjó og skoraöi af öryggi. Aöeins fjórum mínútum síöar geröu Eyjamenn endanlega út um leikinn og var þaö ekki ósvipaö ööru markinu sem þeir geröu. Boltinn barst út úr teignum eftir mikinn darraöardans þar, Hlynur fékk boltann og sendi fast skot beinustu leið í netiö. Bestu menn ÍBV í leiknum voru þeir Ómar, Valdór og Tómas en hjá FH var Ólafur Dan., og Viðar átti einnig góöan dag, auk bróöur hans, Halldórs, í markinu. HKJ/SVS • Daley Thompson fagnar sigrinum í tugþrautinni, hann er án nokk- urs vafa fremsti tugþrautarmaöur heims og vel aö heimsmeistaratitlin um kominn. Öruggt hjá Thompson Daley Thompsson frá Bretlandi sigraði nokkuð örugglega í tug- þrautinni á heimsleikunum í Helsínki, en lengi vel veitti Jurg- en Hingsen honum mikla keppni, en Thompson var sterkari og vann þær greinar sem hann sigr- aði í með meiri mun en Hingsen. Þeir skiptust þó á um að sigra, því hvor um sig sigraði í fimm greinum. Síöasta greinin í tug- þrautinni var 1500 metra hlaupiö og þar mátti Thompson vera 22 sekúndum á eftir Hingsen, en hann hljóp alltaf stutt á eftir hon- Glæsilegt met Ragnheiðar „Ragnheiður hljóp glæsilega og stórbætti íslandsmetið, en hún getur eflaust betur,“ sagði Oddný Árnadóttir frjálsíþrótta- kona í samtali við Mbl. frá Kaup- mannahöfn í gærkvöldi. Þá hafði Ragnheiöur Ólafsdótt- ir FH nýsett glæsilegt íslandsmet í 800 metrum, hljóp á 2:04,90 á Kaupmannahafnarleikjunum, varö þriðja á eftir rússneskrí stúlku, sem hljóp á 2:01 og danskri, sem hljóp á 2:02 mín. Eldra metiö var 2:06,22 og í eigu Lilju Guömundsdóttur iR, Ragn- heiöar Ólafsdóttur og Hrannar Guömundsdóttur ÍR. Á mótinu hljóp Oddný 100 á 12,10 og varö fjóröa. Helga Hall- dórsdóttir KR varö fjóröa í 100 m grind á 14,12, Bryndís Hólm ÍR stökk 5,70 í langstökki, Siguröur Sigurösson Á hljóp 100 á 11,16 og Guömundur Skúlason 1000 metra á 2:28 mín. — ágás. Liverpool tapaði ATLETICO Madrid sigraöi Liverpool 2—1 í vináttuleik á Spáni um síöustu helgi. Hugo Sanches og Marina skoruðu fyrir Madrid, en Hodgson skoraði fyrir Liverpool. um og kom í mark aöeins átta sek. á eftir heimsmethafanum og tryggöi sér þar með sigur í tug- þrautinni. Árangur hjá þeim var nokkuö góöur ef miöað er viö veörið, sem var mjög óhagstætt, þeir náöu sem dæmi góöum árangri í stang- arstökki og þar setti Hingsen per- sónulegt met þegar hann stökk 4,90, en það dugði ekki á Thomp- son því hann stökk 5.10 og má segja aö þeir hafi náö góöum árangri í öllum greinunum. Thompson hljóp 100 metrana á 10,60 og næst á eftir stökk hann 7,88 metra í langstökk og haföi þá þegar náö góöu forskoti á Hingsen og þegar keppni lauk fyrri daginn haföi Thompson 4486 stig, en Hingsen 4366, en þegar upp var staðið haföi Thompson fengiö 8666 stig, en Hingsen 8561 stig, en heimsmet hans er 8777 stig og var það sett í vor. Árangur Thompson varö þannig aö 100 metrana hljóp hann á 10,60 stökk 7,88 í langstökki, varpaði kúlu 15,35 m, í hástökki stökk hann 2,03 metra og hljóp 400 metrana á 48,12. Síðari daginn hljóp hann 110 m. grindahlaup á 14,37 sek., kastaöi kringlu 44,46, í stangarstökki sveif hann yfir 5,10 og spjótinu kastaöi hann 65,24 og í síðustu greininni, 1500 metra hlaupi, fékk hann tímann 4:29,72. Árangur Hingsen var sem hér segir: 10,95 — 7,75 — 15,66 — 2.00 — 48.08 — 14,36 — 43,30 — 4,90 — 67,42 og 4:21,59. Röö keppenda varö þannig: 1. Daley Thompson 8666 2. JUrgen Hingsen, V-Þýsk. 8561 3. Sigried Wentz, V-Þýsk. 8478 4. Uwe Freimuth, A-Þýsk. 8433 5. Stephan Niklaus, Sviss 8212 6. Alexander Nevsky, Sovét 8201 7. Torsten Voss, A-Þýsk. 8167 8. Steffen Grummt, A-Þýsk. 8149 9. Guido Kratschmer, V-Þýsk. 8096 10. Dariusz Ludwig, Póll. 7982 11. Trond Shramstad, Noregi 7827 12. Robert de Wit, Holl. 7769 13. Martin Machura, Tékk. 7639 14. Conny Silfver, Svíþj. 7527 15. Þréinn Hafsteinsson, (sl. 7356 16. Josko Vlasic, Júgósl. 7329 17. Angel Diaz, Guyana 6239 18. N. Pelesíkoti, Tonga 5332 A-Þýskaland hlaut flest gullverðlaun REIKNAÐ er meö því aö nálægt einum milljarði áhorfenda hafi fylgst daglega með beinum út- sendingum fré heimsleikunum i frjélsum íþróttum sem fram fóru í Helsinki. 1600 keppendur fré 161 þjóö tók þétt ( leikunum. Er jjetta fjölmennasta frjálsíþrótta- keppni sem fram hefur farió. Skipting verölauna é leikunum varó þannig: A-Þýskaland Bandaríkin Sovétríkin Tékkóslóvakía V-Þýskaland Bretland Pólland Finnland Ítalía Jamaíka Ástralía irland Mexíkó Noregur Kúba Eþíópía Holland Rúmenía Spénn Búlgaría Brasilia Kína Grikkland Marokkó Nígería G 10 8 6 4 2 2 2 1 1 1 1 1 1 1 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 5 B 7 5 9 7 6 11 3 2 Vésteinn í 24. sæti SLAKUR érangur varö í kringlu- kasti í Helsinki eins og reyndar í spjótkasti, eins og vió höfum skýrt fré. Vésteinn Hafsteinsson varö í 24. sasti, en hann varpaói kúlunni 55,20 metra. Heims- methafinn, Juri Dumtsjev, varp- aði aöeins 58,84 m og komst ekki í úrslit en heimsmet hans er 71,89 metrar. Sigurvegari varó Tékkinn Imrich Bugar og varpaði hann kúlunni slétta 65 metra. Rööin varð annars þessi: Imrich Bugar, Tékk. 65,00 Luis Delis, Kúbu 64,20 Gejza Valent, Tékk. 63,98 Ari Huumonen, Finnl. 63,76 G. Kolnootshenko, Sovét. 63,46 JUrgen Schult, A-Þýsk. 62,80 Bradley Cooper, Bahama 62,72 Mac Wilkins, USA 62,58 Igor Dugnets, Sovét. 62,42 Art Burns, USA 61,88 Juan Martinez, Kúbu 60,92 Knut Hjeltnes, Noregi 60,10 C. Georgacopoulos, Grikki. 59,54 Ricky Bruch, Svíþjóö 59,28 John Powell, USA 58,96 Alvin Wagner, V-Þýsk. 58,96 Juri Dumtsjev, Sovét. 58,84 Werner Hartmann, V-Þýsk. 58,48 losef Jagy, Ungverjal. 58,34 Robert Gray, Kanada 57,92 loan Zamfirache, Rúm. 57,54 Nagib Hamed, Egyptal. 56,62 Östein Björback, Nor. 55,40 Vést. Hafsteinsson, fsl. 55,20 Lia Weinan, Kína 51,72 Adnan Hore, Sýrlandi 48,34 Fjórar umferðir eru nú eftir NÚ ERU aðeins fjórar umferðir eftir í 1. deildarkeppninni í knattspyrnu og eins og sjá má á stöðunni, sem er hér íþróttasíðunni, getur allt gerst í þessum síöustu umferðum Sjaldan eöa aldrei hefur mótið verið svona jafnt og næstu leikir liöanna eru þeim geysi- lega mikilvægir. Margir hall- ast að því aö ÍA muni sigra í mótinu. Þeir hafa tveggja stiga forystu og það eru marg- ir sem telja aö þeir muni bæði vinna íslandsmótið og bikar- keppnina. Valsmenn eru nú á botni deildarinnar með 10 stig og víst er aö róöur þeirra veröur erfiður í næstu leikjum en ógerlegt er aö spá nokkru um hvaða lið það veröa sem falla í aðra deild í ár.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.