Morgunblaðið - 16.08.1983, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 16.08.1983, Blaðsíða 22
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 1983 SÍS-styrkir ... íþróttastyrkur Sambandsins &wKm*r:2~ Frá slökkvistarfi við gagnfræðaskólann. Ljósmynd Sigmar Sijþirðsmn. Gagnfræðaskólinn mikið skemmdur eftir eldsvoða — eftir Gunnstein Karlsson UNDANFARNA daga hefur Morgunblaðið gert að umræðu- efni árlegan fjárstyrk sam- bandsins til íþróttahreyfingar- innar og birti orðrétta samn- ingsgerð, sem honum fylgir. Ekki er vel ljóst hvorum aðil- anum, samvinnuhreyfingunni eða íþróttahreyfingunni skrif þessi beinast frekast gegn. Samningurinn um Iþrótta- styrk Sambandsins er ekki frábrugðinn þeim aragrúa samkomulaga, sem fjáröflun- armenn íþróttahreyfingarinn- ar hafa alla tíð gert í starfi sínu við velgerðarmenn sína, nema ef vera skyldi það að hann hefur hér verið settur á blað. Hann er því enginn leyni- samningur. Ég þykist vita að þeim ótalmörgu, sem unnið hafa þessi störf í íþróttahreyf- ingunni fyrr og síðar komi þar ekkert ókunnuglega fyrir sjón- ir. Það má í þessu sambandi máski geta þess að 1976 bað íþróttasamband íslands Sam- bandið að styrkja Ólympíufar- ana um jafnvirði, að mig minn- ir, 5000 dollara. Á móti var boðin heimild til einkanotkun- ar Ólympíumerkisins (hringj- anna fimm) í auglýsingum og á bréfsefni. Það var samræmt fjáröflunarrað íþróttaforystu allra Ólympíulandanna. Sam- bandið tók þessu erindi ÍSÍ vel og það ár var ólympíumerkið prentað á bréfsefni Sambands- ins. Sl. ár var merki HSÍ á sama stað. Þeirri ályktun Morgunblaðs- ins að styrknum fylgi kvöð til viðskipta við samvinnufyrir- tæki er fjarstæða, en Morgun- blaðinu, sem kallar sig mál- svara frjálsra viðskipta, má ekki koma á óvart að samfara leit annars staðar, hafa íþróttasamböndin oft fundið hagkvæmust viðskipti hjá sam- vinnufyrirtæki (þó af því kunni að leiða „kjarnorkustríð" milli ferðaskrifstofa, er það þeirra mál). Þegar erlend lið hafa komið hingað á vegum þeirra íþrótta- sambanda, sem njóta styrks frá Sambandinu, hefur Sam- bandið veitt margskonar fyrir- greiðslu, sem verða mætti til að auka áhuga almennings og örva aðsókn að leikjunum. fþróttasamböndin halda venju- lega blaðamannafundi um landsleikina og erindi fulltrúa Sambandsins á fundina hefur verið að kynna þessi þætti und- irbúningsins. Forystumenn íþróttahreyf- ingarinnar hafa aldrei farið leynt með þá skoðun sína, hvorki í ræðu né riti, að það opinbera styrki ekki nægilega íþróttahreyfinguna og því verði hún stöðugt að leita til velvilj- aðra einstaklinga, fyrirtækja og stofnana um fjárstuðning til að ná endum saman í rekstri sínum. Þessari fjáröflun hefur samvinnuhreyfingin alla tíð tekið vel og af skilningi, því það hefur lengi verið einn þátt- ur menningarstarfsemi hennar að styrkja íþróttastarfsemina með fjárframlögum eftir föng- um og svo mun áfram verða, sé til hennar leitað. Illt væri til þess að vita ef hnútukast Morgunblaðsins yrði til þess að íþróttahreyfingin ætti erfiðara með að finna styrktarmenn meðal velunnara sinna í fram- tíðinni. Gunnsteinn Karlsson, fyrrv. augLstj. Sambandsins. LAUST fyrir tólf á laugardag varð elds vart í gagnfræöaskóla Hvera- gerðis. Svo vildi til að einn af slökkviliðsmönnum bæjarins átti leið hjá og sá mikinn reyk í skólan- um, brá hann skjótt við og ræsti brunaboðann. Reykkafarar voru sendir inn og var unnið að slökkvi- starfinu bæði utan og innanfrá, enda gekk slökkvistarfið vel að sögn Bjarna Eyvindssonar slökkviliðs- stjóra. B*. IföfAaströnd, 15. ájjfúst HÓLAHÁTÍÐ var haldin í gær. Þurrt var þar fyrripart dags en húð- rigndi seinnipartinn svo lækir runnu um vegi. Hátíðin að Hólura fór að venju mjög vel fram að viðstöddu fjölmenni, 8 prestar mættu þar með vígslubiskup í fararbroddi og prédik- aði hann í Hóladómkirkju. Söngkór var úr Austur-Skagafirði undir stjórn Önnu Einarsdóttur. Skólahúsið er mikið skemmt bæði af eldi, reyk og vatni, er austurálma nánast ónýt. Talið er að kviknað hafi í útfrá hand- krullublásara í snyrtingu í austur- álmunni. Mikil mildi er að eldur- inn barst ekki í trésmíðaverkstæði staðarins, sem er í sama húsi, og skilur aðeins steinveggur skólann og trésmiðjuna að. Aðspurður kvað Karl Guðmundsson sveitar- stjóri húsið mikið skemmt og Eins og alltaf er kirkjuathöfn í Hóladómkirkju mjög hátíðleg, en að þessu sinni söng Jóhann Már Jóhannsson einsöng, stólvers. Eft- ir kaffidrykkju heima á staðnum var samkoma í kirkju, þar sem ráðherra, Jón Helgason, flutti ræðu. Guðni Þ. Guðmundsson lék á orgel og Ingveldur Hjaltested söng einsöng, sem allir hrifust af. fyrirsjáanleg væri mikil vinna við að koma því í nothæft stand aftur, en aðeins eru 3—4 vikur fram að skólasetningu. Þess má geta að búið er að grafa fyrir nýju skóla- húsi í Hveragerði. Samkvæmt áætlun á það að verða tilbúið til notkunar eftir 3—4 ár. Aðstoð barst frá Selfossi, einnig voru þorpsbúar ötulir við slökkvistarfið enda hagsmunir allra bæjarbúa í húfi. Fréttaritarar. Séra Bolli Gústavsson flutti frum- samin ljóð og séra Hjálmar Jóns- son á Sauðárkróki flutti lokaorð. Þó veður væri ekki eins og bezt var á kosið voru gestir á Hólum ánægðir með athöfnina og í hátíð- arskapi. Mjög margt fólk hefur lagt leið sína að Hólum í sumar og láta allir vel af móttökunum þar. — Björn. Hólahátíð haldin á sunnu- dag að viðstöddu fjölmenni Léttur og lipur skúffubíll, sem ber 1 tonn. 5 gíra kassi og 1800 cc vél, sem er í senn aflmikill og sparneytinn. Ríkulegur búnadur og sæti fyrir 2 farþega auk öku- manns. Margar gerðir af léttum, lausum húsum fáanlegar. Verð aðeins kr. 221.400 gengisskr. 9.8.83 BlLABORG HF Smiðshöföa 23 simi 812 99 Mazda B 1800 Pickup Mest fyrir peningana! Mest fyrir peningana! MazdaETbOO Pallbíll Þessi bíll hefur þegar sannað ágæti sitt við fjölbreyttar aðstæður í íslensku atvinnulífi. Hann er frambyggður, með 1 tonns burðarþoli, byggður á sterkri grind og með tvöföidum afturhjólum. Hann er óvenju þægilegur í hleðslu og afhleðslu, þar sem pallgólfið er alveg slétt og án hjólskála og hleðsluhæðin er aðeins 73 cm með skjól- borðin felld niður. Verð aðeins kr. 214.800 gengisskr. 9.8.83. BÍLABORG HF Smiðshöfða 23 sími 812 99

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.