Morgunblaðið - 16.08.1983, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 16.08.1983, Blaðsíða 28
36 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 1983 Kvöldstund í Parísarborg Leiklist Ólafur M. Jóhannesson Fulltrúar NATO-stöðvarinnar með njósnaduflið. Rússneskt njósnadufl finnst við Færeyjar Elskendurnir í Metró Höfundur: Jean Tardieu. Leikstjórn: Andrés Sigurvinsson. l'ýðing: Böðvar Guðmundsson. Leikhljóð og tónlist: Kjartan Olafsson. Lýsing: Lárus Björnsson og Egill Arnarson. Leikmynd, grímur og auglýs- ingaspjöld: Karl Aspelund. Stúdentaleikhúsið í kaffistofu stúdenta við Hringbraut hefir víst gert það gott í sumar — lyft regnhulunni — segja sumir og mæna með eftirvæntingu gegn- um grámann sem hefir undan- farið lagst á fólk og fénað, jafnt og tré og runna í höfuðborginni, enda trén fyrir utan kaffistof- una stráð koparlitum ljósperlum þegar nýjasta afkvæmi Stúd- entaleikhússins, Elskendurnir í Metró, sá dagsins ljós síðastliðið sunnudagskveld. Ekki get ég dæmt um sýningar þessa ágæta leikhúss eins og þær koma fyrir í tíma og rúmi rigningarsumarið ’83 (krítikerar verða jú að skreppa í sumarfrí einsog aðrir, ættu reyndar að taka lengra sumarfrí en flestar aðrar stéttir) aðeins vísað til dægilegrar stundar er ég átti með Kafka í upphafi sumars — þá reyndi á skilningarvitin ekki síður en efsta lag heilans, cerebral cort- ex, — þar sem vitsmunirnir kváðu blunda — nú reyndi hinsvegar afarlítið á þessa taugamiðstöð en því meira á taugastöðvar á borð við hypoth- alamus, cerebellum og medulla, en þessar stöðvar fást fremur við stjórn líkamsstarfsemi en flókinnar rökleiðslu. Þannig keppti hinn fáránlegi texti Jean Tardieu við höfgan ilm franskra Sérstæðar teikningar prýða leikskrá. vína er lagði um salinn og upp- hóf ljósin í garðinum. Texti Kafka hafði þveröfug áhrif; hann erti svo cerebral cort- ex að maður hafði vart tíma til að teyga hina notalegu kaffi- húsastemmningu. En er ekki Stúdentaleikhúsið einmitt fyrst og fremst kaffi- leikhús þar sem andi höfgra vína svífur yfir kaffibollunum og ungar stúlkur fá tækifæri til að sýna nýjustu afkvæmi tískuhús- anna? Ef markmiðið er að skapa franskættaða kaffihúsastemmn- ingu, þá hefir þeim í Stúdenta- leikhúsinu sannarlega tekist það með Elskendunum I Metró, ég minnist þess ekki að mér hafi liðið eins notalega í hléi einsog á þessari sýningu; hins vegar fannst mér einsog ég sagði fyrr texti verksins nauðaómerki- legur. Að vísu bér að taka til greina að hér er leikhús hins fáránlega á ferðinni, þar sem er hæðst að hefðbundnum tjáskipt- um. Það er svo sem góðra gjalda vert að minnast absurd-leik- hússins sem rís úr öskuhaug heimsstyrjaldarinnar miklu þeg- ar menn stóðu ráðþrota gagn- vart illsku mannsins, sem virtist magnast í réttu hlutfalli við menningu og menntun. Það má vera að mannlífið skoðað frá ákveðnum sjónarhól sé ætíð abs- urd og næsta tilgangslítið lífsstríðið, en samt er það nú svo að snilldin nær ætíð að hefja manninn yfir fáránleikann. Beckett og Ionesco, tekst þannig að fleyta samhengislausri orð- ræðu yfir hina hæstu öldufalda svo maður sér einsog í sjónhend- ing oní hið djúpa haf hugsunar þeirra og tilfinningar sem ekki verður fest á orð. Texti Jean Tardieu sýnir hins vegar oní poll sem hefir myndast framan við óþekkt kaffihús í Parísarborg þar sem hinir innvígðu spegla sig. Þegar menn eru nýkomnir frá beljum og rollum tekst þeim ekki að kafa á svo grunn mið og því fannst mér Elskendurnir í Metró renna saman við vínilm- inn í hléinu, við ljúfa píanótón- list Kjartans Ólafssonar og við sérstæða lýsingu og leikmynd. Takk fyrir ljúfa kvöldstund í París þar sem regnið lýsir af triAniim RÚSSNESKT njósnadufl fannst við Færeyjar fyrir skömmu. Vegur það um 250 kfló, er svart og klætt gúmmíi. Líkist það helst tundur- skeyti og er með tvöföldum vængj- um, væntanlega til stýringar að sögn yfirmanna NATO-stöðvarinnar í Færeyjum. Duflið fannst nokkuð suður af Borðey og var því fljótlega komið í vörslu fulltrúa NATO á eyjunum. Þar var það kannað og kom í ljós, að það hafði verið Iengi í sjónum, var orðið talsvert ásett sjávar- gróðri. Því er það talinn mögu- leiki, að duflið hafi verið sett í sjóinn á öðru hafsvæði og það síð- an rekið til Færeyja, en líklegat er talið að það hafi verið lagt af kafbáti. Þetta dufl er mjög áþekkt þeim sem fundist hafa við Græn- land, en þau eru lögð af ka látum á fjölförnum skipaleiðum og er ætlað að taka upp vélarhljóð skip- anna og senda áfram til móttöku- stöðvar. jMtogtniWliiftffe Pabbi, mamma Gengi 12/8 '83 FLUGLEIÐIR Gott fólkhjá traustu félagi í Tívolíferð fyrir 19.872 krónur Sumarið hefur verið óvenju hlýtt og sólríkt í Kaupmannahöfn ogTívolígarðurinn í „fuldsving" með leiktækjum, leiksýningum, tónleikum og veitingastöðum við allra hæfi. Ef þú vilt taka börnin með þér og leyfa þeim að njóta ævintýra í hinu eina og sanna Tívolí, þá er tilvalið að bjóða þeim með í Kaupmannahafnarferð með Flugleiðum. Tvær tilboðsferðir Við bjóðum tvær sérstakar tilboðsferðir í Tívolí: 3ja daga ferð 20.-23. ágúst og 4ra daga ferð 26.-30. ágúst. Fargjaldið fyrir fjölskyldu með barn (í 3ja daga ferðina) er sem hér segir: Fyrsta fargjald 10.310 krónur, annað fargjald 6.424 krónur og þriðja fargjald (barn 2ja-11 ára) 3.138 krónur - samtals 19.872 krónur Innifalið: Innifalið í báðum ferðum: Flug, gisting í 2ja manna herbergi, morgunverður. Flugvalla skattur og ferðir til og frá flugvöllum ekki innifaldar. Allar nánari upplýsingar hjá söluskrifstofu lugleiða, ferðaskrifstofum og umboðsmönnum um allt land. og Siggi komast öll

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.