Morgunblaðið - 16.08.1983, Qupperneq 38
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 1983
ínaborgum
írecnMA/:
FREEMANS of London leiöir þig
ínn í heim hausttískunnar '83.
Þú pantar - viö sjáum um afganginn.
FREEMANS pöntunarlistinn, hausttískan '83,
eryfir600 síður.
FREEMANS í fararbroddi, beint
tölvusamband viö London.
Vinsamlega sendiö mér nýja
FREEMANS pöntunarlistann í póstkröfu.
Sendisttil;
FREEMANS
of London
c/o BALCO hf.
Reykjavíkurvegi 66,
220Hafnarfirði,
sími 5 39 00.
Nafn: _
Heimili:
Staður:
~Nýtt /—
NÝKOMIÐ
PARKET SEM
MARGIR HAFA
BEÐIÐ EFTIR
Endatré
Fæst í 2 gerðum: Eik og Lerki.
Einkaumboð:
Þ. ÞORGRÍMSSON & CO.
Ármúli 16 ■ 105 Reykjavík •© 38640.
Nýtt matreiðslukerfi hjá
Veitingamanninum hf.
Lárus Loftsson, matreiðslumeistari og framkvæmdastjóri Veitingamannsins,
sýnir ofn RS Thermor-matreidslukerfisins.
Veitingamaðurinn hf. hef-
ur gert samning við franska
fyrirtækið TRICAULT um
framleiðsluleyfi og tækja-
búnað fyrir matreiðslukerfið
RS Thermic. Þetta mat-
reiðslukerfi er með öllu
óþekkt hér á landi, en hefur
hins vegar mikið verið notað
í Vestur-Evrópu og Banda-
ríkjunum.
Lárus Loftsson, matreiðslu-
meistari, framkvæmdastjóri Veit-
ingamannsins og Pétur Svein-
bjarnarson, stjórnarformaður,
boðuðu blaðamenn á sinn fund til
að kynna þetta nýja matreiðslu-
kerfi, sem er hannað m.a. með til-
liti til hagkvæmari reksturs mötu-
neyta. Að þeirra sögn grundvall-
ast það á venjulegri matseld eða
svokallaðri „mildri matseld", sem
siðan er fylgt eftir með hraðri
kælingu (ekki frystingu) með sér-
stökum búnaði og því næst
geymslu við hitastig, sem er ofan
við frystingu (0 til 3 gráður á
Celsius).
Rétt áður en matarins er neytt
er hann hitaður í RS Thermic-
ofni, sem eru mismunandi að
stærð, allt frá því að hita eina
máltíð í einu upp í fleiri hundruð.
Mikil hagræðing er að því, að
hægt er að geyma mat sem kældur
hefur verið niður í RS Thermor-
kæli í allt að fimm daga án þess að
það komi niður á gæðum hans eft-
ir að hann hefur verið hitaður í
ofni sama kerfis að sögn Lárusar
og Péturs. Þar sem hitun matarins
tekur stuttan tíma þarf aðeins að
hita þann mat sem neytt er hverju
sinni og enginn matur þarf því að
fara til spillis.
Lárus Loftsson sagði rannsókn-
ir á nýelduðum mat í mötuneytum
hafa leitt í ljós, að flestir réttir
væru heitari og ferskari úr RS
Thermic-matreiðslukerfinu en ný-
eldaður í mötuneyti. Með hraðkæl-
ingu matarins væri einnig dregið
úr hættu á matareitrun.
Aðspurðir sögðu Lárus og Pétur
að helstu kostir þessa kerfis væru
(ef matur er aðkeyptur) að fyrir-
tæki og stofnanir sem væru að
taka í notkun nýtt mötuneyti gætu
minnkað mikið kostnað við eld-
hús.vinnslurými og dýr eldunar-
tæki með notkun þessa kerfis.
Enginn tími færi heldur í innkaup
og birgðahald. Mikið væri hægt að
spara í launagreiðslum og
starfsmannahaldi þar sem ekki
þyrfti faglært fólk við matseld og
hjá minni stofnunum og fyrir-
tækjum gæti starfsfólkið sjálft
séð um framkvæmdina. Einnig
væri rafmagnskostnaður lágur,
þar sem maturinn er ekki soðinn
eða hitaður upp frystur. Pétur gat
þess einnig, að þar sem aðeins
þyrfti að hita þann mat sem borða
ætti jafnóðum væri nýting hráefn-
is í hámarki.
Pétur kynnti niðurstöður út-
reikninga, sem Veitingamaðurinn
hf. hefur látið gera, þar sem í ljós
kemur að frá fjárhagslegu sjón-
armiði er óhagkvæmt að elda í
eigin mötuneyti færri en 500 mál-
tíðir í senn. Víða erlendis er miðað
við 1.000 — 1.500 máltíðir í þessu
sambandi. Með hliðsjón af þessu
kemur í liós, að aðeins örfá mötu-
neyti á Islandi afgreiða yfir 500
heitar máltíðir í hádegi og aðeins
tvö yfir 1.000 máltíðir á dag , þ.e.
mötuneyti Borgarspítalans og
Landspítalans.
Pétur sagði að verð á útseldri
máltíð grundvallaðist m.a. á
fjölda og tegundum máitíða á dag,
stærð skammta og tímalengd
viðskiptasamnings. Hann sagðist
hins vegar þora að fullyrða að
máltíð samkvæmt RS Thermic-
kerfinu væri 10 til 15% ódýrari en
raunverð máltíða í hitabökkum.
Ljóam. Mbl. KÖE
Pétur Sveinbjarnarson og Lárus Loftsson við kæli þessa nýja kerfis.
Málverkagjöf til Ásgrímssafns
VESTUR-íslensk kona,
Sylvía Bíldfell Hough, búsett í
Toronto í Kanada, hefur af-
hent Ásgrímssafni að gjöf olíu-
málverk af Herðubreið eftir
Ásgrím Jónsson. Málverkið er
gefið til minningar um móður
Sylvíu, Soffíu Þorsteinsdóttur
Bíldfell, sem keypti myndina
árið 1912. Gjöfin er frá afkom-
endum Soffíu og fjölskyldum
þeirra.
Soffía Þorsteinsdóttir Bíldfell
fæddist að Möðrudal á Hólsfjöll-
um árið 1876 og var dóttir hjón-
anna Þorsteins Einarssonar Trá
Brú á Jökuldal og Jakobínu Sig-
urðardóttur frá Möðrudal. Soffía
var systir Vernharðs Þorsteins-
sonar fyrrum menntaskólakenn-
ara á Akureyri.
Soffía fluttist vestur um haf ár-
ið 1897 og settist að í Winnipeg.
Hún stundaði kennslustörf um
skeið og starfaði mikið í kvenfé-
lagi Fyrstu lúthersku kirkjunnar í
Winnipeg. Árið 1903 giftist hún
Jóni Jónssyni Bíldfell fæddum að
Bíldsfelli í Grafningi og eignuðust
þau þrjú börn: Hrefnu Þjóðbjörgu,
Jón Aðalstein og Sylvíu Jakobínu.