Morgunblaðið - 16.08.1983, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 1983
47
Iðnsýningin í Laugardalshöll:
Iðnfyrirtæki á Suðurnesjum
með sameiginlega sýningu
Á IÐNSÝNINGUNNI sem haldin
veröur í Laugardalshöll 19. ágúst til
4. september veröa iönfvrirtæki á
Suðurnesjum meö sameiginlegt sýn-
ingarsvæði.
Það var Samband sveitarfélaga
á Suðurnesjum sem átti hugmynd-
ina að þessu samstarfi stærstu
framleiðslufyrirtækjanna og út-
vegaði húsnæði vegna vinnufunda
og starfsmann til að samræma
hugmyndir fyrirtækjanná.
Þau framleiðslufyrirtæki sem
þátt í þessu samstarfi taka eru
Rammi hf., Njarðvík, Trésmiðja
Þorvaldar Ólafssonar, Keflavík,
Trésmiðja Keflavíkur, Ofnasmiðja
Suðurnesja, Plastgerð Suðurnesja,
Álnabær og Ragnarsbakarí,
Keflavík.
Hönnuður að sýningarsvæðinu
er Sævar Helgason, málarameist-
ari.
Iðnsýning í Höllinni:
Yfirgrips-
mesta
sýningin
til þessa
IÐNSÝNINGIN ’83, sera haldin er í
tilefni 50 ára afmælis Félags ís-
lenskra iönrekenda, hefst fóstudag-
inn 19. ágúst kl. 18:00. Kjörorð sýn-
ingarinnar er ÍSLENSK FRAMTÍÐ
Á IÐNAÐI BYGGÐ.
í frétt frá FÍI segir að sýningin
verði yfirgripsmesta innlenda
iðnsýningin til þessa, og taki þátt
í henni 116 fyrirtæki innan vé-
banda félagsins og 5 stofnanir.
Allt rými í Höllinni sé fullnýtt og
mörg fyrirtæki sýni á útisvæðinu.
Þegar litið er til þess hvernig
fyrirtæki flokkast eftir fram-
leiðslugreinum kemur f ljós að 19
fyrirtæki eru í tréiðnaði, 19 f
málmiðnaði og 18 í matvælaiðn-
aði. Undir flokknum vefjariðnaður
og fataframleiðsla eru 15 fyrir-
tæki, 11 í plastiðnaði, 11 í raf- og
rafeindaiðnaði. Nokkru færri
fyrirtæki sýna í pappírs- og prent-
iðnaði, kemískum iðnaði, gúmmf-
iðnaði og steinefnaiðnaði. Undir
ýmsan iðnað flokkast 9 fyrirtæki.
Fataframleiðendurnir standa að
daglegum fata- og tískusýningum
í samvinnu við sýningarstjórn.
Milli 30—35 manns hafa fastan
starfa við sýningarnar, en áætlað
er að halda 2—3 tískusýningar
dag hvern meðan sýningin stendur
yfir.
í matvæladeildinni í anddyri
Hallarinnar gefst gestum tæki-
færi á að smakka á hverskonar
réttum og kaupa varning með
kynningarafslætti. Kynntar verða
ýmsar nýjungar og bakarí verður í
fullum gangi.
Á sýningunni verður meðal ann-
ars vélmenni, innréttingar og hús-
búnaður, tölvubúnaður, innlendir
fiskibátar, skemmtibátar og
hraðbátar, sumarhús, kúluhús og
leiktæki svo eitthvað sé nefnt.
Þá segir að inngangseyri verði
mjög í hóf stillt, kr. 100.- fyrir
fullorðna og kr. 40.- fyrir börn
(6—12 ára). Sýningin verður opin
frá kl. 15:00 til 22:00 á virkum dög-
um og frá kl. 13:00 til 22:00 um
helgar en sýningarsvæðinu verður
lokað kl. 23:00 hvert kvöld.
Formaður sýningarnefndar er
Ágúst Valfells, en framkvæmda-
stjóri sýningarinnar er Bjarni Þór
Jónsson. Auk þess eru í sýningar-
stjórn þeir Björn Kristinsson,
Guðmundur Sigurðsson, Kristinn
Guðjónsson og Steinar Berg
Björnsson. Hönnuður sýningar-
innar er Gunnar R. Bjarnason og
Auglýsingastofan Argus sér um
auglýsingar og kynningarmál.
Hér má sjá líkan af sýningarsvæði iönfyrirtækjanna á Suöurnesjum en svona
kemur sýningarsvæöi þeirra til meö aö líta út.
VILTU FUUQA
AÐRA LEIÐHNA
OG SIGLA him?
í samvinnu við Arnarílug og Flugleiðir bjóðum við nýjan íerðamcrta.
Þú getur ílogið úr landi, eða heim
____og notið siglingar um borð í ms Eddu hina leiðina._
Á milli haínarborgar og ílugvallar, hvar sem hann er,
íerðast þú á þann hátt sem þér best hentar.
Svona íerð er upplagt að tengja við dvöl í sumarhúsi,
í íljótabáti eða gistingu á sveitakrám og leigu á bíl erlendis.
Við getum verið þér innan handar við útvegun á öllu slíku.
og ekki spillir verðið ánægjunni:
Flug + Sigling Verð
GLASGOW NEWCASTLE 10.355
LONDON NEWCASTLE 11.138
AMSTERDAM NEWCASTLE 11.728
LUXEMBORG BREMERPLAVEN 13.828
AMSTERDAM BREMERHAVEN 13.828
KAUPMANNAHÖFN BREMERHAVEN 13.914
DÚSSELDORF BREMERHAVEN 13.958
Allt verð er miðað við dvöl i tveggja manna kleía um borð í ms Eddu og gengi 5.7. 1983
FARSKIP
Aðalstræti 7, 101 Reykjavík.
Símanúmer: 91-25166.