Morgunblaðið - 31.08.1983, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 31.08.1983, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1983 Minning: Asta Margrét Guðlaugsdóttir Fædd 12. júlí 1916. Dáin 22. ágúst 1983. Ásta Margrét Guðlaugsdóttir fæddist í Reykjavík 12. júlí 1916. Foreldrar hennar voru frú Þuríð- ur Guðrún Eyleifsdóttir, sauma- kona, frá Árbæ við Elliðaár og Guðlaugur Guðlaugsson, bifreiða- stjóri, frá Þverá á Síðu. Hún var elst fimm systkina, en hin eru Elín, Leifur, Erlendur og Guðrún. Framættir hennar, kunnar og traustar, sunnlenskar og skaft- fellskar, eru raktar í ættatölubók- um Guðna Jónssonar og Björns Magnússonar um Bergsætt og Vestur-Skaftfellinga. Ásta ólst upp í Árbæ og á Frakkastíg 26 i Reykjavík og stundaöi nám f Kvennaskólanum þar, en lærði einnig kjólasaum hjá Rebekku Hjörtþórsdóttur og varð meistari í þeirri iðngrein. 14. september 1935 giftist hún Björgvin Kristni Grímssyni, og bjuggu þau fyrst í hluta risíbúðar í áðurnefndu húsi á Frakkastígn- um. Bæði unnu þau um skeið í smjörlíkisgerðinni Smára, en stofnsettu síðan Kjólabúðina sem staðsett var á Bergþórugötu 2 og var um hríð helsta tískuverslun í Reykjavík. Þeim búnaðist vel og komust í góð efni. En heimsstyrj- aldarárin og hin næstu á eftir voru umrótatími, og margt sem virtist standa föstum fótum kollsteyptist, — og svo fór um Kjólabúðina. íbúð sína misstu þau og leita varð fanga á nýjum mið- um. Ásta og Björgvin fluttu í leiguíbúð að Miklubraut 42, og Björgvin gerðist starfsmaður hjá heildversluninni H.A. Tulinius í Austurstræti. Hagur batnaði smám saman og svo fór í áranna rás að þau eignuðust bæði vinnu- staðinn og íbúðina. Ásta helgaði sig heimilisstörfum, en þegar þörf krafði vann hún í fjölskyldufyrir- tækinu þau störf sem að kölluðu hverju sinni. Bæði fóru þau í allar innkaupaferðir til Evrópulanda og völdu saman varninginn sem þau seldu meðan heilsa hennar leyfði. Síðustu árin reyndust Ástu erf- ið. Margoft var hún dregin að landamærum lífs og dauða, en sterk lífsþrá vann svo oft sigur á sjúkleikanum að allir bjuggust við endurkomu hennar á Miklubraut- ina er hún var í þessum mánuði flutt í Landakotsspítala í þrett- ánda skipti á þremur árum, en í þetta sinn vann dauðinn sigur. Ásta og Björgvin eignuðust fjögur börn. Elstur er Jóhann Sig- urður, fæddur 1936. Hann hefur mestalla starfsævi sína unnið við hlið foreldra sinna að innflutn- ingi, sölumennsku og afgreiðslu. Hann er kvæntur Klöru Sjöfn Kristjánsdóttur. Guðlaugur hét sonur er fæddist 1941 og dó sama ár. Dóttirin, Guðrún Erla, fæddist 1943. Hún er fóstra að mennt, kennari að atvinnu og gift þeim er þessar línur ritar. Yngstur er Guðlaugur, fæddur 1946, við- skiptafræðingur og forstjóri Mjólkursamsölunnar í Reykjavík. Barnabörn Ástu eru 12 talsins og barnabarnabörn fimm. Ekki mun æviferill Ástu þykja viðburðaríkur, en handan við at- burðina sjálfa leynist flest sem máli skiptir. Sögu hennar má skipta í tvo hluta, og getur sá síð- ari kallast Miklubrautarþáttur- inn. f íbúðinni þar leið Ástu svo vel að hún gat með engu móti hugsað sér að flytja þaðan brott. Útsýnið yfir Klambratún til Esj- unnar var henni dýrmætt, og geð- felld umferðin þunga utan við eld- húsgluggann. Við áföll kemur fram hver innri styrkur býr með hverjum manni. Ásta sýndi í verki hvernig hinir þrekbúnu bregðast við þrenginum. Af alúð og metnaði lagði hún sig fram um að búa börn sín sem best úr garði. Einskis máttu þau fara á mis sem öðrum hlotnaðist. Hún innrætti þeim heiðarleika, hrein- skilni og prúðmannlega fram- komu. f heiðri var hafður sá arfur að halda fullri reisn þótt móti blési. Reglusemi, nákvæmni og snyrti- mennska einkenndu heimilisbrag. Er börnin hurfu að heiman og stofnuðu heimili sjálf beindi Ásta umhyggju sinni að barnabörnun- um og reyndist þeim frábærlega. Gestrisni, umhyggja og sáttastarf urðu Ástu eins konar eldsneyti sem glæddi hamingju hennar. Mér hefur verið sagt að á yngri árum hafi Ásta og Björgvin verið um margt ólík að hugðar- og við- fangsefnum, en með árunum varð samband þeirra svo traust að ég þekki enga hliðstæðu. Á sameiginlegum vinnustöðum unnu þau fyrir brauði sínu, og tómstundum vörðu þau saman — ýmist við að sinna skylduliði eða efla andlegan þroska. Þau voru leitandi fólk, höfðu áhuga á trú- arlegri dulspeki og því viðfangs- efni hvað við tæki eftir líkams- dauðann. Þau sóttu fundi og sam- komur sálarransóknarfélaga, guð- spekinga og ýmissa trúarsafnaða án þess að ánetjast og skipa sér undir merki einnar kenningar og fordæma aðrar, en iðkuðu raun- hæfa hjálpsemi við fólk sem áföll hafði hlotið. Ég hef oft undrast hvernig standast má þá þolraun að búa og vinna saman og sækja saman mannamót — jafnt skemmtanir sem aðrar samkomur. Ásta og Björgvin undu ekki ein- ungis þessu hlutskipti heldur nutu þess. Ásta Margrét Guðlaugsdóttir var fremur smávaxin, grönn, dökkhærð og nokkuð hvassbrýnd. Mér fannst hún frönsk í útliti og að svipmóti. Hún var ekki mann- blendin, vildi eiga og átti fáa vini en trausta. Fjölmörgum var hún þó málkunnug. Bóklestur var Ástu hugnanlegur: hún las m.a. ævisög- ur, dulfræðibækur og fræðirit af ýmsu tagi — en ekki skáldsögur. Ljóðelsk var hún í ríkum mæli. Eftirlætisljóð sín skrifaði hún í stílabækur. Þær munu geymast sem glöggur vitnisburður um þá vandvirkni og smekkvísi sem ein- kenndu verk hennar. Ég hygg að ekki sé ofmælt að Ásta hafi verið kjölfesta í stór- fjölskyldu, og sannast nú hið forn- kveðna: enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Sárast bitnar það á Björgvin. Síðasta kvöldið sem þau áttu saman á Miklubraut- inni ræddu þau saman um Sigurð Kristófer Pétursson og Björgvin, las úr tímaritinu Ganglera sálm- inn hans: Drottinn vakir, Drottinn vakir, daga og nætur yfir þér. Ég kveð Ástu tendgamóður mína, þakklátur fyrir allt sem hún gerði fyrir mig og vona að sá lífsskilningur sem hún hafði öðl- ast verði sem flestum veganesti. Jón Böðvarsson Það verður erfitt að sætta sig við að hún amma sé dáin, að ekki sé lengur hægt að hitta hana glaða og hressa. Hún amma var falleg kona, lífs- glöð og skilningsrík og vildi allt fyrir alla gera, mátti aldrei neitt aumt sjá. Alltaf þótti okkur systrunum jafngaman að koma til afa og ömmu á Mikló því þar fengum við að leika í fataskápnum hennar ömmu að vild, voru þá dregnir upp hælaháir skór, hattar og veski og farið í mömmuleik. En alvara lífs- ins tók við og ekki var síður nota- legt að koma til ömmu og afa og ræða málin og leyfa þeim að sjá og hitta barnabarnabörnin sín. Söknuðurinn hjá okkur öllum er mikill en mestur þó hjá honum afa, því þau voru mjög samrýnd, en við biðjum Guð að styrkja hann í sorginni. Við kveðjum elsku ömmu með þessari bæn sem hún kenndi okkur. Bænin má aldrei bresta þig búin er freisting ýmislig þá líf og sál er lúð og þjáð lykill er hún að Drottins náð. (Hallgrírtiur Pétursson) Bessý, Ásta og Björg Við viljum byrja á því að minn- ast orða er amma sagði fyrir skömmu að þann dag bæði hún okkur að láta sig vita þegar hún myndi ekki lengur alla sína af- komendur. Þau amma og afi hafa ætíð svo langt sem við munum helgað líf sitt barnabörnum sínum jafnt sem börnum. Aldrei hefur það fyrir komið að afmælisdegi eða öðru til- efni væri gleymt og öllum þá gert jafnt undir höfði en það var ömmu mikils virði. Alltaf höfum við ver- ið veikomnir á Miklubrautina án þess að gera boð á undan okkur og frjálst að dvelja þar svo lengi sem við vildum. Á meðan snérist amma í því að reiða fram hinar ýmsu veitingar. Aldrei skyldirðu allslaus yfirgefa Miklubrautina. Sumt fólk er skapað fyrir um- hverfið í stað þess að heimurinn sé skapaður fyrir það. Þannig var amma. Hún tók þátt í starfi okkar án þess þó að reyna að hafa áhrif á það. Hún var óspör á lof en kom aldrei með athugasemdir, og eng- um sögðum við hróðugri frá ef maður hélt að eitthvað hefði vel til tekist. Fyrir stuttu sýndi amma okkur hluti sem hún hafði varðveitt í náttborðinu hjá sér og við höfðum gert á okkar fyrstu árum og ánafnað henni. Með þessari grein viljum við þakka ömmu á Miklu- braut fyrir allt hið liðna sem var svo mikið. Björgvin og Böðvar í dag, miðvikudaginn 31. ágúst kl. 15.00, fer fram frá Dómkirkj- unni útför elskulegrar mágkonu minnar, Ástu Margrétar Guð- laugsdóttur, og verður hún jarð- sett að Lágafelli í Mosfellssveit. Hún andaðist í Landakotsspítala 22. ágúst sl. eftir erfið og langvar- andi veikindi. Ásta átti mikið sálarþrek. Hún var alltaf æðrulaus. Henni var gefið ótrúlegt þrek í sjúkdómsbar- t Eiginmaður minn og faöir okkar, ÞÓRHALLUR ELLERT SKÚLASON, mólari, Álfheimum 30, andaöist í Grensásdeild Borgarspítalans þann 28. ágúst. Oddný Sigurbjörnsdóttir og börn. Bróölr okkar, t MARINÓ GUOMUNDSSON, er lóst 21. ágúst, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju miöviku- daginn 31. ágúst kl. 3. Guöríöur Guömundsdóttir, Sveinbjörn Guömundsson. Opið til kl. 10 virka daga Útfararkransar og kistuskreytingar meö stuttum fyrirvara. Allar skreytingar unnar af dönskum skreyt- ingameistara. FlÓra, Hafnarstræti 16, sími 24025. t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö við andlát móöur okkar, HELGU LAUFEYJAR THORODDSEN. Katrín Sverrisdóttir, Theodóra Thoroddsen, Guömundur Thoroddsen, Kristín Thoroddsen, Helga Thoroddsen. t Þökkum innilega auösýnda samúö og vlnarhug viö andlát og útför eiginmanns míns, fööur, tengdafööur og afa, ELLERTS EIRÍKSSONAR. Fanny Guöbrandsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. áttu sinni. Sá styrkur lá í þeirri náðargjöf, að trúa á Guð sinn. Gaf hún frá sér elsku, kærleika og hugulsemi. Þar var reyndar leið- arljós Ástu í gegnum lífið, að miðla öðrum af manngæsku sinni. Ástu var það mikill styrkur í þessari hörðu baráttu að finna og reyna, að hún var umvafin ótak- markaðri ást og umhyggju eig- inmanns og allrar fjölskyldunnar. Ásta Margrét hét hún fullu nafni, var fædd 12. júlí árið 1916 í Reykjavík, en fluttist ung að árum að Árbæ með foreldrum sínum, Guðrúnu Eyleifsdóttur, sauma- konu, og Guðlaugi Guðlaugssyni, vörubílstjóra. Ásta var elst fimm barna foreldra sinna. Kveður hún lífið fyrst af þeim hópi. Árið 1935 hinn 14. september verða mikil tímamót í lífi Ástu. Þann dag giftist hún bróður mín- um, Björgvin, sem var elstur okkar systkinanna og hefur alla tíð verið okkar stóri bróðir. Stofnsettu þau heimili á Frakkastíg 26 og stóð heimili þeirra þar um árabil. Eignuðust þau fjögur börn. Dreng misstu þau á fyrsta ári er Guðlaugur hét. Hin börnin eru Jóhann, Guðrún og Guðlaugur. Öll eru börnin góð eftirmynd foreldra sinna. Gegnir og virtir borgarar. Eins og gefur að skilja, þá hefi ég verið gjörkunnugur heimili Ástu mágkonu minnar, Björgvins bróður míns og barna þeirra. Ég var aðeins 8 ára gamall, þegar ég hleypti heimdraganum og fór í sveit. Foreldrar mínir töldu málin í góðu lagi, þegar Ásta og Björgvin tóku að sér að fylgja mér upp í Borgarfjörð. ÖIl hennar samfylgd gegnum lífið var dá- samleg og ógleymanlegar eru mér stundirnar að Árbæ, þegar þau dvöldust þar sumarlangt. Nú við leiðarlok vil ég láta í ljósi þakklæti mitt og allrar fjölskyld- unnar fyrir Ástu og allt það góða er hún sýndi okkur öllum. Það er trú mín og vissa að: „Eins og maður sáir, svo mun hann og uppskera." Páll postuli, Galatabréf 6.7. Mikið skarð er nú fyrir skildi hjá Björgvin bróður mínum, börn- um hans, tengdabörnum og barna- börnum. Mannlegur máttur stend- ur hér magnþrota. í sárum rauna- stundum bið ég þeim öllum náðar og styrkleika frá Drottni. Jóhann Marel Jónasson „Hún Ásta dó klukkan 4 í nótt,“ sagði röddin í símanum snemma morguns þ. 22. ágúst sl. Þetta var Björgvin að tilkynna okkur hvern- ig komið var. Þessi orð komu á óvart, jafnvel þó að við vissum að Ásta hafði verið mjög veik á sjúkrahúsi í nokkra daga, eins og oft áður sl. 3 ár. Reyndar var það svo rrieð Ástu að síðdegis á sunnu- deginum, 21. ágúst sl., komst hún til meðvitundar og hresstist að því er virtist og gerði m.a. boð eftir fólki seint um kvöldið um að finna sig. Það var alveg eins og oft áður, allt benti til þess að hún kæmist yfir þetta og næði sér á strik. En nú var tíminn kominn. Ástu var ekki ætlað að dvelja lengur meðal okkar nú. Ásta Margrét Guðlaugsdóttir var fædd hér í Reykjavík 12. júlí 1916, dóttir hjónanna Guðlaugs Guðlaugssonar bifreiðarstjóra og Guðrúnar Eyleifsdóttur frá Árbæ, elst 5 systkina. Hún ólst upp hér í Reykjavík í föðurhúsum. Að Árbæ (nú Árbæjarsafn) dvaldi hún mik- ið sem barn og unglingur hjá móð- urforeldrum sínum, hjónunum Margréti Pétursdóttur og Eyleifi Einarssyni, sem bjuggu í Árbæ og ráku þar einskonar „umferðarmið- stöð“ meðfram búskap. Árbær var þá í alfaraleið þeirra sem komu til eða fóru frá Reykjavík og allir áðu í Árbæ. Um þennan þátt í sögu Árbæjar hefur mikið verið ritað. Það fór líka svo, að mörgum ár- um síðar þegar Árbær var gerður að byggðasafni var Ásta fengin til þess að segja til um uppsetningu muna úr búi ömmu sinnar og afa, svo og um aðra tilhögun innan- dyra í gömlu bæjarhúsunum. Fórst henni þetta vel úr hendi, enda líklega eina manneskjan sem

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.