Morgunblaðið - 31.08.1983, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 31.08.1983, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1983 Beið bana í umferðarslysi ÖLDRUÐ kona beið bana í umferð- arslysi á Miklubraut, skammt vest- an við Kringlumýrarbraut, laust fyrir klukkan 16 í gær. Atvik eru óljós, en svo virðist sem konan hafi gengið út á götuna í veg fyrir bifreið, sem ekið var í vesturátt. Skipti engum togum að hún skall framan á Lada-bifreið, kast- aðist í götuna og varð fyrir Volks- wagen-bifreið, sem var ekið í humátt á eftir Lada-bifreiðinni. Konan var látin þegar komið var með hana í slysadeild Borgarspít- alans. Hún var 91 árs gömul. Ökumanni Lada-bifreiðarinnar varð svo mikið um slysið að hann ók af vettvangi, en gaf sig fram við lögregluna skömmu síðar. Útvarpað 30 tíma á viku frá Rás-2 UTVARPSRÁÐ samþykkti í gær á fundi sínum, að úlsendingartími rás- ar 2 hjá hljóðvarpinu yrði frá 10—12 og 14—18 fímm daga vikunnar, það er frá mánudegi til föstudags. Var það gert að tillögu forstöðumanna útvarpsins, en á þessum tíma er talið að útvarpshlustun sé mest. Stefnt er að því að útvarpssendingar hefjist fyrrihlutann í nóvember, en nú er unnið að því að innrétta húsnæði fyrir rás 2 í hinu nýja útvarpshúsi, sem nú er að rísa í Kringlumýri. Þá er gert ráð fyrir því að næt- urútvarp á föstudögum og laug- ardögum verði í höndum rásar 2, en því verði einnig útvarpað á rás 1. I hléinu milli 12-14 er gert ráð fyrir að rásirnar verði samtengd- ar og rás 1 útvarpað á báðum. Enn deilt inn- an Dagsbrúnar SKÚLI Thoroddsen, lögfræðingur, starfsmaður Dagsbrúnar, hefur sagt starfí sínu hjá félaginu lausu frá og með 1. september, en uppsagnar- frestur er 3 mánuðir. Skúli staðfesti þetta í samtali við Morgunblaðið í gærkveldi og sagðist hafa gert stjórn Dags- brúnar grein fyrir ástæðum upp- sagnarinnar. Hann vildi ekki tjá sig frekar um málið að svo stöddu. „Þetta gerir maður ekki nema eitthvað mikið liggi við,“ sagði Ómar og benti á illa beyglaða felgu undan Subaru hans og Jóns. Þeir bræður náðu þriðja sæti með glæsilegum akstri á síðustu leið rallsins. Morgunbladid/Gunnlaugur. Frakkarnir Sarazini og Troublé sigrudu ÍSLANDSRALLINU lauk síðdegis í gær með sigri Frakkanna Sarzini og Troubié, sem óku sérsmíðuðum Aro-jeppa. Aðrir urðu Sorghini og Bardini á Range Rover og þriðju bræðurnir Ómar og Jón Ragnars- synir á Subaru 1800 4WD. Er árangur þeirra síðarnefndu með ólíkindum því síðasta dag rallsins var ekið um hreinar torfærur. „Það sprakk á bílnum undir lokin,“ sögðu þeir bræður ómar og Jón í samtali við Morgunblað- ið. „Þá vorum við að ná Range Rovers, sem var að berjast um þriðja sætið við okkur. Við ákváðum að komast fram úr og það tókst, þrátt fyrir að aftur- dekkið væri sprungið. Þuftum við þar að auki að ná mínútu betri tíma en Range Roverinn og ókum því í botni síðustu kíló- metrana á felgunni," sögðu bræðurnir. Komu þeir í loftköst- um niður síðustu brekkuna á leiðinni og slógu með því við mun aflmeiri Range Rover bíl, sem þeir Lecaille og Rosseau óku, en þeir hrepptu fjórða sæti. Fimmtu urðu þeir Þorsteinn Ingason og Gunnlaugur Rögn- valdsson á Lada Sport. „Síðasta leiðin var hrein martröð, mjög slæm og sannarlega gott hjá ómari og Jóni að ná jafn góðum tíma og raun ber vitni. Við vor- um sjálfir í loftinu meirihluta leiðarinnar, en Ladan stóð fyrir sínu og nú er bara að fara í Al- sír-rall Jean Claude Bertrand," sögðu þeir kumpánar. Læknar huga að meiðslum farþega, sem skarst í andliti þegar allharöur árekstur varð á Skúlagötu. Mynd Mbl. Björn Sigurösson. Skarst í andliti ALLHARÐUR árekstur varð á Skúlagötu laust eftir klukkan 16 í gær. Ford Fiesta-bifreið var ekið aftan á stóra fólksbifreið með þeim afleiðingum að farþegi í Fiestunni skarst talsvert í andliti. Hann var fluttur í slysadeild. Þá varð harður árekstur tveggja bifreiða á Rauðalæk á ellefta tímanum í gærmorgun og voru ökumenn beggja bifreiðanna fluttir í slysadeild, en báðir skárust þeir í andliti. Tilboð í fyrsta áfanga flugstöðvarinnar: Lægsta tilboðið var frá Vörðufelli — meira en helmingi lægra en kostnaðaráætlun — það hæsta var þrisvar sinnum hærra en það lægsta TILBOÐ í fyrsta áfanga nýrrar flugstöðvar á Keflavfkurflugvelli voru opnuð í gær. Alls bárust 16 til- boð, öll frá innlendum aðiljum enda var verkið ekki boðið út erlendis. Tvö tilboðanna í verkið hljóðuðu upp á meira en helmingi lægri upphæð en kostnaðaráætlun og hæsta tilboð- ið var meira en þrisvar sinnum hærra en það lægsta. Kostnaðaráætlun verkfræðinga Almennu verkfræðistofunnar hljóðaði upp á 16.583.540 krónur. Lægsta tilboðið barst frá Vörðu- felli hf., 7.631.950, eða 46% af kostnaðaráætlun. Næstlægsta til- boðið var frá Háfelli sf., 8.098.250 krónur, eða 49% af kostnaðar- áætlun. Alls bárust 7 tilboð undir 10 milljónum króna og voru þau eftirfarandi auk þeirra fyrr- nefndu: Hagvirki hf., 9.398.900 krónur; Krafla hf., Eyjólfur og Vilhjálmur sf., 9.538.530 krónur; Jarðafl sf., 9.808.655 krónur; Tak sf., 9.839.985 krónur; Braut sf., Feró sf. og Hafsteinn og Sæmund- ur sf., 9.999.710 krónur. Hæsta til- boðið nam alls 23.085.508 krónum og var 39% hærra en kostnaðar- áætlun. Skal sá verktaki er verkið hlýt- ur hefja verkið strax og samning- ur þar að lútandi verður undir- ritaður og ekki síðar en fyrir lok september. Skal verkinu vera lokið ekki síðar en 31. marz á næsta ári. Helztu verkþættir eru gröftur, fylling og vatnslögn. Verður að borga sig annars gerist ekkert — segir Davíð Oddsson um fyrirhugaða byggingu fjölbýlishúsa við Skúlagötu A FUNDI borgarráðs Reykjavíkur í gær var lögð fram tillaga skipulags- nefndar um breytta landnotkun og landnýtingu við Skúlagötu. í tillög- unni er gert ráð fyrir að við Skúla- götu verði íbúðarbyggð og miðbæj- arstarfsemi. Að sögn Davíðs Oddssonar borgarstjóra er gert ráð fyrir talsvert mikilli nýtingu á þessu svæði, þar rísi fjölbýlishús með íbúðum frá 80 upp í 130—40 fer- metra að flatarmáli. Taldi Davíð að íbúðirnar yrðu eftirsóttar fyrir margra hluta sakir, meðal annars vegna skemmtilegs útsýnis og nálægðar við miðbæinn. Auk þess væri gert ráð fyrir neðanjarðar- bílastæðum. Meirihluti borgarstjórnar stendur fyrir þessari tillögu og er ljóst að fyrir henni er meirihluti í borgarstjórn en tillagan var ekki afgreidd vegna þess að á fundin- um kom fram ósk um frestun sem orðið var við. Eftir að búið verður að samþykkja tillöguna þarf að auglýsa breytinguna og taldi Dav- íð að eigendur lóðanna gætu hafist þar handa næsta vor. Davíð sagði að vitað væri að andstæða væri einhver gegn þess- um hugmyndum í borgarstjórn, Kvennaframboð og jafnvel Al- þýðubandalag vildu ekki svo mikla nýtingu á þessu svæði en borgar- stjóri sagði að alveg væri ljóst að ef ekki yrði gert ráð fyrir veru- legri nýtingu á þessum lóðum þá myndi ekkert gerast þarna því að það þyrfti að borga sig að byggja þær upp og það myndi ekki gera það ef nýtingin væri mjög lítil.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.