Morgunblaðið - 31.08.1983, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 31.08.1983, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1983 39 það gat gert vegna veru sinnar þar ?em unglingur, og þekkti hvern <rók og kima. Ásta stundaði ýmis störf fram- anaf, fór snemma að vinna eins og allir þurftu að gera í þá daga. Hún var mikil hannyrðakona, stundaði saumaskap, lærði m.a. kjólasaum sem þá var og er kannski enn, sér- stakt fag, og hafði réttindi sem kjólameistari. Þann 14. september 1935 gekk Ásta í hjónaband. Maður hennar var Björgvin Grímsson stórkaup- maður. Það duldist engum sem til þekktu að það hjónaband var mjög hamingjuríkt. Þau eignuðust 4 börn og komust 3 þeirra upp: Jó- hann, framkvæmdastj. hjá fjöl- skyldufyrirtækinu H.A. Tulinius hf., kvæntur Sjöfn Kristjánsdótt- ur, Guðrún, kennari, gift Jóni Böðvarssyni skólameistara Fjöl- brautaskóla Suðurnesja, og Guð- laugur, forstjóri Mjólkursam- sölunnar í Reykjavík, kvæntur Þórunni Hafstein. Einn son, Guð- laug eldri, misstu þau tveggja mánaða gamlan árið 1941. Barnabörnin eru orðin 12 og barnabarnabörnin 5. Þegar fjöl- skyldan er orðin þetta stór fer ekki hjá því að oft verður mann- margt hjá ömmu og afa, t.d. á sunnudögum. Alveg er óhætt að segja um Ástu og Björgvin, að þetta voru sólskinsstundir í lífi þeirra þegar allur hópurinn var samankominn. Samheldni Ástu og Björgvins var mikil. Hvað sem gert var gerðu þau saman. Þau báru alveg takmarkalausa virð- ingu hvort fyrir öðru. Ekki var þó allt líf þeirra dans á rósum. Eins og áður sagði misstu þau dreng tveggja mánaða gaml- an. Það eitt hlýtur að vera mikið áfall fyrir fólk. Annað var líka. Þau settu á stofn fyrirtæki í fata- iðn, sem varð mjög stórt á þess tíma mælikvarða, með fjölda fólks í vinnu og áttu miklar eignir. Þessu urðu þau líka að sjá á bak. Þau misstu allar sínar veraldlegu eignir, íbúð og allt. Haftastefnan á þeim árum átti þar hlut að máli svo og fleira, sem Ásta talaði sjaldan um og sagði fáum frá, en aldrei sagði hún neitt misjafnt um þá er í hlut áttu. Það var geymt en ekki gleymt. Það að hafa misst barn og síðar allar eigur sínar hlýtur að vera áfall sem margir myndu ekki þola. Þarna kom þeim hjónum til góða hversu viljasterk Ásta var. Má fullyrða að viljinn til að bjarga sér, vera ekki upp á aðra kominn, samfara samheldninni og virðingunni hvort fyrir öðru, gerði það að verkum að byrjað var upp á nýtt. Síðar keyptu þau fyrirtækið H.A. Tulinius hf. og hafa rekið það með miklum myndarbrag. Mennt- un Ástu sem kjólameistari kom þeim hér að gagni því aðallega hafa þau verzlað með vörur fyrir kvenfólk, ásamt öðru. Óteljandi eru ferðirnar til útlanda til inn- kaupa og alltaf fóru þau saman í slíkar ferðir. Ásta kallaði það að fara í „siglingu". Þegar Ásta og Björgvin komu þeim úr þessum ferðum, sem oft voru margar á ári, má segja að hafi verið meiriháttar viðburður hjá barnabörnunum. Alltaf komu amma og afi með eitthvað í poka. Jólin, í þessari merkingu, voru því oft á ári. Það var alltaf gott og gaman að koma til Ástu og Björgvins. Við hjónin kynntumst þeim fyrir mörgum árum í gegnum aðra og mynduðust mikil vináttubönd okkar í milli. Fyrir það og allt annað þökkum við. Það, að hafa orðið fyrir áföllum í lífinu gerði þau Ástu og Björgvin að leitendum. Þau voru mikið áhugafólk um æðri máttarvöld, hvort líf væri að loknu þessu o.fl. Ásta starfaði mikið að þessum málum, og óhætt er að segja að mörg svör hafi hún fengið við hin- um ýmsu spurningum, sem settar hafa verið fram um þessi mál, og vissu hafði hún fengið um ýmis- legt sem hún vildi vita. Þess vegna, taldi hún sig vita hvað við tæki og æðraðist aldrei, og gerði að gamni sínu til hinstu stundar. Það er ekki öllum gefið að taka þannig á móti dauðanum. Ásta var mikill fagurkeri, unni listum og var ljóðelsk. Hún var trúföst og mikill vinur vina sinna. Hvar sem hún fór og hvað sem hún gerði, því var tekið eftir. Hún var aldrei öðruvísi en vel til fara. Við fráfall Ástu Guðlaugsdóttur sér fjölskylda hennar á bak mik- ilhæfri og stórbrotinni mann- eskju. Mestur er missir Björgvins. Við hjónin biðjum Guð um að blessa þau og Ástu óskum við góðrar ferðar. Ferðar, sem allir fara í að lokum, misjafnlega ferð- búnir eins og gengur. Guð blessi hana. Mjöll Þóröardóttir, Olafur Björnsson. Blómasöludagar Hjálpræðishersins „Má bjóða yður blómamerki?" Það eru ekki ófáir íslendingar sem hafa heyrt þessa setningu sagða af konu eða karli í einkennisfötum Hjálpræðishersins. Það eru líka margir sem hafa svarað spurning- unni játandi, greitt fyrir blómið og fest þetta litla gerviblóm með íslenska fánaborðanum í barm sér. Það er orðin hefð að Hjálpræð- isherinn selji þessi blómamerki í byrjun septembermánaðar, það hefur verið gert síðastliðna ára- tugi. Hversvegna erum við að þessu? Þetta er fjáröflunarherferð til styrktar vetrarstarfsemi Hjálp- ræðishersins, einkum starfs meðal barna og unglinga. Hjálpræðis- herinn fær enga opinbera styrki frá ríki eða borg. Því getur oft verið erfitt að reka starfið fjár- hagslega. En íslendingar hafa alltaf sýnt starfi Hjálpræðishers- ins mikinn skilning og hafa verið fúsir að láta fé af hendi rakna þegar leitað hefur verið til þeirra. Ég treysti því að salan muni einnig ganga vel í ár. Söludagar eru frá og með miðvikudeginum 31. ágúst fram að helgi. Daníel Óskarsson Salan á Lárusi Sveinssyni SH frá Ólafsvík: „Af afla getur útgerðin annaðhvort greitt útgerð- ar- eða fjármagnskostnað“ — segir Guðmundur Björnsson framkvæmdastjóri „FYRIR því eru margþættar ástæður, en fyrst og fremst eru það fyrirsjáanlegir miklir rekstrarerfiðleikar. Staðan er einfaldlega sú að af afla greiðir útgerðin annaðhvort útgerðarkostnað skipsins eða fjármagnskostnaðinn en alls ekki hvorutveggja," sagði Guðmundur Björnsson, framkvæmdastjóri Hrað- frystihúss Ólafsvíkur í sam- tali við Mbl. er blaðamaður sem þar var á ferð fyrir nokkru spurði hann að því hvers vegna togarinn Lárus Sveinsson SH 126 sem Hrað- frystihúsiö átti að hluta heföi verið seldur. Það hefur vakið athygli að á skömmum tíma voru tvö skip seld frá ólafsvík, auk Lárusar var það Guðlaugur Guðmunds- son, en bæði fóru þau til Vest- mannaeyja. Lárus Sveinsson Guðmundur Björnsson fram- kvæmdastjóri Hraðfrystihúss Ólafsvíkur hf. MorgunbladiA/KKK sem nýkominn er úr rúmlega 9 mánaða klössun var í sinni þriðju og síðustu veiðiferð frá ólafsvík er við vorum á ferð í ólafsvík fyrir skömmu. Það er hlutafélagið Lóndragar hf. í Ólafsvík sem átti togarann en Hraðfrystihús Ólafsvíkur hf. á um helming hlutafjár félagsins. Guðmundur sagði að Lárus hefði landað um 30% af hráefni Hraðfrystihússins eða um 3.000 tonnum á ári þegar hann hefur verið gerður út allt árið. „Við vonumst til að þetta verði ekki til þess að hér skapist tímabund- ið atvinnuleysi. En það fer þó auðvitað eftir aflabrögðum og hvernig tekst til með hina bát- ana, en við vonumst til að fá í staðinn meirihluta af afla ann- arra skipa sem hér leggja upp.“ Lárus Sveinsson hefur verið gerður út frá Ólafsvík í 6 ár, hann er af minni gerð skuttogar- anna, keyptur frá Frakklandi 1977. Guðmundur Björnsson sagði að við þetta myndi 20 manna áhöfn skipsins missa at- vinnu sína í bili en hinsvegar væri ekki vit í að gera skipið út þegar með meðalafkomu væri ekki hægt að greiða neitt upp í fj ármagskostnað. PNSIÍNING83 SU SIÆRSIA FR\ UPPHAFI 120 íslensk iðnfyrirtæki og stofnanir kynnaframleiðslu sína og þjónustu á 4000 fermetra sýningarsvæði í Laugardalshöll, í skála og á útisvæði. - Það er betra að ætla sér góðan tímatil að skoða þessa glæsilegu sýningu. Og að sjálfsögðu er veitingasalurinn opinn, þar er boðið upp á fjölbreytta rétti á vægu verði, sem þið njótið í þægilegu umhverfi. 5RUKYNNINGAR KYNNINGARAFSLÆTTIR. I matvæladeildinni í anddyri Laugardalshallarinnar gefst gestum tækifæri á að smakka á hverskonar réttum og kaupa varning með kynningarafslætti. Kynntarverða ýmsar nýjungar og bakarí verður í fullum gangi meðan sýningin stendur. líSKUSÝNINGAR. Fjölbreyttar fata- og tískusýningar verða haldnar daglega. 30 manna sýningarflokkur sýnir. Sýningartími er kl. 6 og 9 virka daga og kl. 3,6 og 9umhelgar. JKEMMTIATRIÐI- HAPPAGESTUR. Boðið verður upp á ýmis skemmtiatriði af og til á sviðinu gegnt áhorfendastúkunni. Og happagestur dagsins hlýtur veglegan vinning. iSLENSK FIWVfTD ÐNAÐl BtGGD lEHMSýNING 19/8-4/9 í LAUGARDALSHÖLL FELAG ISLENSKRA ÐNREKENDA 50 ÁRA 5;ÁUMST! o PNUNARTIMI- AÐGANGSEYRIR. Sýningin verður opin virka daga frá kl. 3— 10 og frá kl. 1 -10umhelgar. Sýningarsvæðinu verður lokað kl. 11 hvertkvöld. Aðgangseyrir er 100 kr. fyrir fullorðna og 40 kr. fyrir börn 6-12 ára. Börn yngri en 6 ára hafa f rían aðgang. Flugleiðir bjóða sýningargestum utan af landi afslátt á flugfargjaldi til Reykjavíkur. Gagn og gaman fyrir alla tjölskylduna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.