Morgunblaðið - 31.08.1983, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 31.08.1983, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1983 FORTÍÐ — NÚTÍÐ — FRAMTÍÐ Á vegum Borgarbókasafns var á Reykjavíkurviku fluttur samlestur úr bókum, sem tengjast höfuðstaðnum £ einhvern hátt. Þátturinn var byggður upp af sögulegu efni, sem Ijóðum og köflum úr skáldverkum var ofið í. Var hann fluttur í Gerðubergi og Kjarvalsstöðum, þar sem þessi mynd var tekin. Þátturinn nefndist „Reykjavík fyrr og nú“, fluttur af 4 ungum leikurum. Vonast borgarbókavörður eftir því að þessi safnkynning afmælisvikunnar verði upphaf þess að slíkt verði fastur liður í stafinu. Borgarbókasafn í 60 ár Ávarp Elfu Bjarkar Gunnarsdóttur, borgarbókavarðar, sem flutt var á Kjarvals- stöðum í tilefni Reykjavíkurviku og 60 ára afmælis Borgarbókasafns Reykjavíkur Árið 1923 bar sumardaginn fyrsta upp á 19. apríl. Þá lögðu Reykvíkingar í fyrsta sinn leið sína í Álþýðubókasafnið, sem þann dag var opnað á Skólavörðu- stíg 3. Síðan eru liðin 60 ár og húsið við Skólavörðustíg, þar sem safninu var fyrst komið fyrir í þremur herbergjum, er því miður ekki lengur til, en safnið hefur vaxið með árunum og nú er það starfrækt með aðalsafni, þremur útibúum og tveimur bókabílum, sem hafa 28 viðkomustaði, og nafni þess hefur á þessu tímabili tvisvar verið breytt; fyrst í Bæj- arbókasafn og síðar í Borgarbóka- safn Reykjavíkur. 1 upphafi voru bækurnar 1.000 talsins. í dag er bókakosturinn 323 þúsund bækur, starfsmenn sex tugir í 48 stöðu- gildum, opnunartími er að jafnaði 60 tímar á viku, en húsnæðið hef- ur ekki stækkað í samræmi við umfang safnsins og aukna og fjöl- breytta starfsemi, enda hefur þröngt og óhentugt húsnæði alla tíð hamlað starfseminni og gerir enn. Markmiðið hefur í stórum dráttum alltaf verið hið sama: — að gefa börnum og fullorðn- um kost á því að lesa góðar bækur og veita lánþegum þjónustu með því að nýta safnkostinn sem best, og: — að gera safnið að notalegum og gagnlegum dvalarstað. Forsjá safnsins var falin Sigur- geir Friðrikssyni, sem nokkru áður hafði lokið námi í bókasafnsfræð- um í Kaupmannahöfn og hafði hann ferðast um Norðurlöndin til að skoða bókasöfn. Hann lagði mikið kapp á að byggja upp gott safn og efla starfsemi þess. Um það ber m.a. ferð hans til Banda- ríkjanna og Bretlands glöggt vitni, en leyfi frá störfum til þeirrar ferðar fékk hann tveimur árum eftir að hann tók við Alþýðubóka- safninu. Hann kostaði sig af eigin fé og hlaut engan styrk til farar- innar, en kom heim reynslunni ríkari og hafði þá í fórum sínum m.a. góðan stofn af enskum fræði- bókum. Lengi býr að fyrstu gerð og eflaust er það mikils virði fyrir bókasafn Reykvíkinga, að grunnur þess var lagður af svo dugmiklum og fróðum manni. Alþýðubókasafnið var stofnað að tilhlutan bæjarstjórnar Reykjavíkur 18. nóvember 1920. Stofnfé var 10.600 kr. íbúar höfuð- staðarins voru á þessum tíma í kringum 20 þúsund. Reykvíkingar létu ekki á sér standa, þegar svo vel var boðið, gerðu þeir sér tíðar komur á Skólavörðustíginn og notuðu safnið mjög mikið. Fimm árum eftir opnun þess var það flutt í Ingólfsstræti 12. Það hús er en á sínum stað. Reykjavíkurbæ var sagt upp húsnæðinu þar upp úr 1950 og festi þá bærinn kaup á húseigninni Þingholtsstræti 29A fyrir bókasafnshús, en það var byggt sem íbúðarhús 1916. Enn SAPn pvri r ALiLA Þar sem í ár er 60 ára afmæli Borg- arbókasafns Reykjavíkur, var safnið og starfsemi þess sérstaklega kynnt á Reykjavíkurvikunni. Og plakat vikunnar var helgað safninu. Það gefur tií kynna fjölbreytnina í höf- undum og bókavali með þeim Tóm- asi Guðmundssyni, Halldóri Lax- ness, Hamminway, Agöthu Christie, Múnínálfunum og Línu Langsokk. þann dag í dag er hluti aðalsafns til húsa í Esjubergi. Þrjú útibú voru sett á stofn á fjórða og fimmta áratugnum og starfsemi bókabíla hófst í kringum 1970. I tilefni Reykjavíkurviku höfum við komið fyrir bókasafni fyrir börn og fullorðna hér á austurgangi Kjarvalsstaða og barnadeild í fé- lagsmiðstöðinni við Gerðuberg, þar sem bráðlega verður opnað útibú frá Borgarbókasafni. Borgarmál kynnt í safninu Á einum stað má líta á yfir- skriftina borgarmál. Er það af því tilefni, að nýlega var hafin upplýs- ingastarfsemi um Reykjavíkur- borg og felst hún í því að fundar- gerðir nefnda og stjórna borgar- innar eru aðgengilegar fyrir not- endur safnsins, svo og bæklingar og annað opinbert, prentað efni frá borgarstofnunum. í vetur var haldið námskeið fyrir starfsmenn safnsins þar sem þeim var kynnt starfsemi borgarinnar til þess að þeir geti betur sinnt þessu verk- efni. Söfnin eru opin til kl. 21.00 á kvöldin, þangað kemur fjöldi fólks og því geta þau verið tengiliður milli borgarbúa annars vegar og borgarstjórnar og stofnana borg- arinnar hins vegar. Ég vona, að þetta sýnishorn af almennings- bókasafni gefi nokkra vísbendingu um þá fjölbreytni, sem safn þarf að búa yfir og þann svip, sem hægt er að skapa á nútímasafni með þeim innréttingum, sem nú eru fá- anlegar. Við lifum í tæknivæddu upplýsingaþjóðfélagi Bókasöfnin eru sjálfsagður hlekkurí því þjónustuneti, sem tæknin skapar og nýja miðla þarf að taka inn í starfsemi þeirra. Herborg Gestsdóttir á að baki 43ja ára starfsævi í Borgarbóka- safni. í viðtali, sem Elín Pálma- dóttir, formaður stjórnar safns- ins, átti við hana og birt var í af- mælisritinu í vor, komst Herborg svo að orði um safngestina í Ing- ólfsstræti 12: „Svo komu sumir bara til að hlýja sér og líta í bók,“ — ég vona, að safnið verið alltaf staður þar sem menn koma til að hlýja sér i besta skilningi þess orðs ásamt því, að það þróist og breytist í takt við tímann. Ég þakka stórn og framkvæmda- stjóra Reykjavíkurviku ánægju- legt samstarf við undirbúning þessarar afmælishátíðar. Einnig þakka ég starfsfélögum mfnum í safninu mjög góða samvinnu að vanda, svo og öðrum, sem átt hafa hlut að máli. Elfa Björk Gunnarsdóttir eftir Gísla Sigurbjörnsson Fortíð Þau höfðu ekki úr miklu að spila, því að atvinna var lítil og stopul. Þau bjuggu í litla húsinu, sem foreldrar hans höfðu átt, sem var ein hæð, kjallari og ris, ekki var það stórt í fermetrum. í kjall- aranum var þrottahús og geymsl- ur fyrir matföng og netin, en hann átti hlut í báti. Bðrnin voru fjögur og oft var þröngt í búi. En dugnað- ur, eljusemi og sparsemi var þeim í blóð borin, og þrátt fyrir allt voru þau ánægð og hamingjusöm. Þau voru öll sett til mennta og námslán þekktust ekki þá. í þá daga, fyrir 80 árum, þekktust hvorki tryggingar né styrkir, að- eins sveitastyrkur, og hann forð- uðust allir eins og heitan eldinn. En tímarnir breytast og menn- irnir með. Fortíðin er liðin, hún kemur ekki aftur, nema kannski stöku sinnum, þegar einhver hugs- ar um hana og það gera ekki nógu margir. Væri það gert, mætti margt af fortíðinni læra. Allar framfarir eru byggðar á reynslu, hugviti og dugnaði þeirra, sem á undan eru gengnir. íslendingar eru fljótir að gleyma, svampurinn er óspart notaður, ekkert var að gert, allt var ógert, það erum við í dag, sem fundum upp púðrið og það erum við, sem öllu ráðum. Árangurinn af starfi okkar sést alls staðar og verður sjáanlegri með hverju árinu sem líður. Við setjum heimsmet í verðbólgu og skuldum. Við hugsum ekkert um fólkið, ekki heldur framtíðina. Þetta gengur einhvern veginn, og við flökkum út um öll lönd út á greiðslukort og krít. Framtíðin, hver verður hún? Den tid, den sorg. Fyrirhyggjuleysið er tak- markalaust. NútíÖ Þetta er allt í besta lagi, atvinn- an hefur verið næg undanfarin ár. Að vísu þurfum við öðru hverju að fá stúlkur frá Ástralíu eða bara frá Danmörku í fiskvinnsluna, en Heimsframleiðsla á grávöru: Spáð er samdrætti í blá- refi en aukningu í minki ÚTLIT er fyrir 15% samdrátt í heild- arframleiðslu á blárefaskinnum í öll- um heiminum í ár, mikla aukningu á öðrum refaskinnum og 10% aukn- ingu í framleiðslu minkaskinna. Þessu spáir Paal Röiri, fram- kvæmdastjóri Osla Skinnauksjonar S/L eftir því sem segir í fréttabréfi Sambands íslenskra loðdýrarækt- enda. Hann spáir 5% aukningu á minkaskinnaframleiðslunni í Finnlandi og Svíþjóð, 18% aukn- ingu í Danmörku, 15% samdrætti í Noregi og 5% aukningu í Banda- ríkjunum. Heildarframboðið á minkaskinnum aukist því í um 28 milljónir skinna sem er 10% aukning frá fyrra ári. Paal Röiri spáir að óbreytt framleiðsla verði í Noregi á blárefaskinnum, 25% samdráttur í Finnlandi, 15% aukning í Svíþjóð og 5% sam- dráttur í Danmörku. Norðurlönd dragi því saman um 20%, auk þess sem hann gerir ráð fyrir sam- drætti í Póllandi vegna fóðurerfið- leika. Heildarsamdráttur í heim- inum er því áætlaður um 15%. En hinsvegar er spáð mikilli aukn- ingu á framleiðslu annarra refa- skinna svo sem shadow, blue silver og silfurref. Samband íslenskra loðdýra- ræktenda gerir ráð fyrir að út- flutningur refaskinna frá íslandi vegna framleiðslu þessa árs verði 21—22 þúsund refaskinn og 20—22 þúsund minkaskinn. Framleiðslan verður í raun og veru talsvert meiri, en eins og komið hefur áður fram í Mbl., þá hafa verið veitt leyfi fyrir um 2.000 refalæðum á ný bú og er því hluti heildarfram- leiðslunnar seldur sem lífdýr. Tónleikar í Sjallanum og í Grímsey BERGÞÓRA Árnadóttir hefur verið á tónleikaferð um Norður- land. Á fimmtudag verða tónleik- ar í Sjallanum á Akureyri og á föstudag verða tónleikar í Gríms- ey- Sögustundir fyrir börn hafa legnst af verið fastur liður í dagskrá Borgarbókasafns, en voru á Reykjavíkurviku fluttar úr sínu venjulega umhverfi í barnadeildirnar á Kjarvalsstöðum og Gerðubergi. Er þessi mynd frá slíkri sögustund. Krakkarnir hlusta vel, eins og venjulega. INNLENT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.