Morgunblaðið - 31.08.1983, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR
197. tbl. 70. árg.
MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1983
Prentsmiðja Morgunblaösins
„Get ekki staðið
í þessu lengur“
Jerúsaletn, 30. ágúst. AP.
MENACIIEM Begin, forsætisráð-
herra ísraels, hefur ritað afsagnar-
bréf og mun skýra frá því á morgun
hvenær hann afhendir það forseta
landsins.
Þegar samráðherrar Begins
gengu á fund hans til að reyna í
síðasta sinn að telja honum
hughvarf komu þeir að honum þar
sem hann var að skrifa afsagn-
arbréfið. „Ég get ekki staðið í
þessu lengur," sagði Begin við
ráðherrana, sem báðu hann þá að
geyma bréfið í nokkra daga þar til
þeir hefðu valið eftirmann hans.
Begin lofaði að láta þá vita á
morgun, miðvikudag, hvort hann
— sagði Begin og
skýrir frá því í dag
hvenær hann afhend-
ir afsagnarbréfið
yrði við því.
Afsögnin tekur ekki gildi fyrr
en forseti, Chaim Herzog, hefur
fengið það í hendur, en ekkert
virðist geta komið í veg fyrir að
Begin standi við ákvörðun sína.
Hann hefur verið við stjórnvölinn
í sex ár, samið frið við Egypta, háð
umdeilt stríð í Líbanon og sett sitt
óafmáanlega mark á málefni Mið-
austurlanda. Nú finnst honum nóg
komið.
Átta samráðherrar Begins úr
Herut-flokknum, sem er aðili að
Likud-bandalaginu, ætluðu að
koma saman síðar í dag og reyna
að finna eftirmanninn. Var jafn-
vel búist við, að samkomulag næð-
ist um það síðar í dag eða á morg-
un. Að því er útvarpið í ísrael
sagði, eru mestar líkur á að núver-
andi utanríkisráðherra, Yitzhak
Shamir, verði forsætisráðherra og
að Yoram Aridor, fjármálaráð-
herra, taki við embætti hans. Nú-
verandi aðstoðarforsætisráðherra,
David Levy, er einnig nefndur sem
líklegur eftirmaður Begins.
MENACHEM Begin skýrir samráðherrum sínum frá því að hann sé ákveð-
inn í að segja af sér embætti. Hann skrifaði afsagnarbréfíð í gær en ætlar að
bíða eitthvað með að senda það forseta ísraels til formlegrar staðfestingar.
AP
HERMAÐUR úr líbanska stjórnarhernum með hendur yfir höfði gefst hér upp fyrir manni úr vopnuðum sveitum drúsa og shíta, sem í þrjá daga hafa haldið uppi
árásum á stjórnarherinn og hermenn úr alþjóðlega gæsluliðinu. Fjórir gæsluliðar hafa verið drepnir en í gær snerust Bandaríkjamennirnir til varnar samtímis því
sem Líbanonsher lét til skarar skríða. AP
Hóta að
sprengja
flugvél-
ina í lofti
París, 30. ágúst. AP.
Flugræningjarnir fjórir, sem
hafa franska þotu á valdi sínu
ásamt 15 gíslum a.m.k., hótuðu í
kvöld að fara frá Teheran í íran
og sprengja vélina í loft upp yfír
írak. Vélin hefur verið fyllt ben-
síni en ekki er vitað hvort franir
leyfa henni að fara eftir þessa
síðustu yfírlýsingu ræningjanna.
Flugvélin hefur nú haft við-
komu í fjórum borgum frá því
henni var rænt sl. laugardag.
f ranskir embættismenn stóðu í
samningaviðræðum við flug-
ræningjana í allan dag en án
nokkurs árangurs. Ræningj-
arnir höfðu í þrígang hótað að
sprengja flugvélina í loft upp
en létu ekki verða af því.
Þrjú ár frá stofnun Samstöðu:
Viðbúnaður
her og lögreglu
Varsjá, 30. áyúst. AP.
STJÓRNVÖLD í Póllandi hafa bann-
að Lech Walesa að ávarpa fund fyrir
framan skipasmíðastöðvarnar f
Gdansk á morgun þegar þrjú ár
verða liðin frá því að þau samþykktu
að leyfa stofnun frjálsra verkalýðsfé-
laga í landinu. Stjórnin hefur nú uppi
mikinn viðbúnað vegna morgundags-
ins og hafa varnarmálanefndir
Gdansk-borgar og Varsjár verið
kvaddar saman til að leggja á ráðin
um hvernig best verði að kveða niður
mótmæli almennings ef til þeirra
kemur.
Jerzy Urban, talsmaður stjórn-
arinnar, sagði fréttamönnum í
dag, að Lech Walesa hefði verið
bannað að flytja ræðu á morgun, á
afmælisdegi Samstöðu, og að yfir-
völdin væru reiðubúin að grípa til
þeirra aðgerða, sem þyrfti, til að
kveða niður öll mótmæli. Walesa
lét yfirvöld vita af því í sfðustu
viku, að hann hygðist leggja
blómsveig að minnismerki Sam-
stöðu í Gdansk á morgun og flytja
þar ræðu „ef skoðanabræður mínir
safnast þar saman".
Varnarmálanefndir ýmissa
borga í Póllandi, t.d. í Gdansk og
Varsjá, voru kvaddar saman í dag
til að skipuleggja aðgerðir hers og
lögreglu ef til mótmæla skyldi
koma á morgun. í gær létu yfirvðld
dreifa þúsundum flugrita meðal
verkamanna í Huta-stálverksmiðj-
unum fyrir utan Varsjá þar sem
þeir voru hvattir til að skella
skoilaeyrum við áskorunum Sam-
stöðu.
Bandaríkjamenn í
bardögum í Beirut
Beinit, 30. ágúst. AP.
LÍBANSKI herinn réðst í dag til at-
lögu á sjó og landi gegn hermönnum
drúsa og shíta í Vestur-Beirut samtím-
is því sem bandarískir hermenn í al-
þjóðlega gæsluliðinu áttu í hörðum
bardögum í grennd við fíugvöllinn í
borginni.
Líbanski stjórnarherinn lét til
skarar skríða með því að flytja
mörg hundruð hermanna með þyrl-
um og skipum að ströndinni við
Cadmos-hótelið þar sem flestir
bandarísku sendiráðsmennirnir
hafast við nú en drúsar og shítar
hafa margoft hótað að skjóta á hót-
elið. Þaðan var ráðist inn í borgina
og er haft eftir sjónarvottum, að
átökin hafi verið afar hörð og
sprengjugnýrinn ærandi. Ríkisút-
varpið í Líbanon sagði, að Amin
Líbanski stjórnar-
herinn lét einnig til
skarar skríða gegn
vopnuöum sveit-
um drúsa og shíta
Gemayel, forseti, hefði fyrirskipað
árásina eftir að hafa ráðfært sig við
Shafik Wazzan, forsætisráðherra,
og forseta þingsins, Kamel Assad.
Bandarískir landgönguliðar, sem
haldið hafa uppi gæslu við flugvöll-
inn í Beirut, svöruðu í dag skothríð
frá hermönnum drúsa og shíta og
sendu tvær fallbyssuþyrlur til gagn-
árásar. Mörgum fallbyssukúlum var
skotið að stöðvum bandarísku her-
mannanna frá hæðunum fyrir ofan
borgina og er haft eftir sumum
heimildum, að Sýrlendingar hafi
tekið þátt í skothríðinni. Þær fregn-
ir hafa þó ekki verið staðfestar.
Fjórir franskir hermenn féllu í
morgun þegar þeim var gerð fyrir-
sát og hafa þá sex hermenn úr
alþjóðlega gæsluliðinu fallið í val-
inn. Skotið var einnig á breska her-
menn í morgun en án þess að til
manntjóns kæmi.
Walid Jumblatt, leiðtogi drúsa,
lýsti í dag yfir fullum stuðningi við
stríðsmenn drúsa og shíta og
greindi jafnframt frá ýmsum skil-
yrðum sem hann setur fyrir sátta-
viðræðum við Amin Gemayel, for-
seta Líbanons.