Morgunblaðið - 31.08.1983, Blaðsíða 24
EVRÓPUMÓT
ÍSLENSKRA HESTA
Eyrópumótin lykill af framför-
um í íslenskri hestamennsku
Evrópumót er í hugum margra ann-
ar af tveimur hápunktum íslenskrar
hestamennsku, en þau hafa verið
haldin svo að segja annað hvert ír frá
1970. I>að var árið 1969 að eigendur
íslenskra hesta í Evrópu ásamt ís-
lendingum stofnuðu Evrópusamband
eigenda íslandshesta, skammstafað
FEIF, og var Gunnar Bjarnason aðal-
hvatamaðurinn að stofnun þessa fé-
lagsskapar. llpphaflega voru átta
þjóðir í þessum félagsskap en eru nú
orðnar tíu, og fyrir liggur umsókn
hæði Finna og Kanadamanna. Fari
svo að Kanadamenn fái inngöngu
sem allar líkur eru á, breytist þetta
að sjálfsögðu í alþjóðasamband, og
einnig eru miklar Ifkur á að Banda-
ríkjamenn sæki um inngöngu innan
fárra ára.
Fyrsta Evrópumótið 1970 olli
milum straumhvörfum í íslenskri1
hestamennsku. Á þessu móti
kynntust menn ýmsum nýjungum
sem voru okkur framandi og á það
bæði við um reiðmennsku almennt
og ýmsan útbúnað svo sem beisl-
isbúnað og ýmis hjálpartæki.
Spruttu oft á tfðum upp miklar
deilur þegar farið var að innleiða
allar þessar nýjungar, og töldu
sumir að hin erlenda reiðlist ætti
lítið erindi hingað og myndi hún
aðeins spilla fyrir ef eitthvað væri.
Það hefur hinsvegar komið á
daginn að þessi bylting, ef svo má
að orði komast, hefur gert það að
verkum að áhugi fyrir hesta-
mennsku hefur stóraukist og
skipta þeir orðið þúsundum sem
stunda hestamennsku og virðist
sem þeim fjölgi stöðugt. Námskeið
eru haldin árlega út um allt land
bæði í reiðmennsku og járningum.
Mikill áhugi virðist vera meðal
hestamanna fyrir Evrópumótum
því mikill fjöldi fer nú orðið á mót-
in til að fylgjast með spennandi
keppni, og má nefna að á mótinu í
Noregi voru á fjórða hundrað Is-
lendingar.
Meðal keppnismanna er mikil
samkeppni um sæti í landsliði ís-
lands í hestaíþróttum og fylgir því
ákveðinn gæðastimpill að ná því
marki. Menn leggja mikið á sig við
þjálfum hesta fyrir úrtökukeppn-
ina því til mikils er að vinna. Hér;
áður fyrr var ákveðinn kjarni
manna nokkuð öruggur með sæti í!
liðinu, en nú er svo komið að eng-
inn getur talið sig öruggan fyrir-
fram. Ungir og efnilegir reiðmenn
hafa komið fram hin seinni ár og
skákað hinum eldri og reyndari. Er
þetta uppskeran af þeirri þróun
sem segja má að hafi byrjað eftir
fyrsta Evrópumótið.
Fram að þessu höfum við átt
góðu gengi að fagna á þessum mót-
um og verður vonandi framhald á
því. En til þess að svo verði megum
við til að hlúa að og viðhalda sam-
starfi okkar við aðrar þjóðir.
Það þýðir ekki að leggja árar í
bát og segja sem svo að nú höfum
við lært nóg, heldur verðum við að
fylgjast vel með allr þróun sem á
sér stað í reiðlistinni, tileinka
okkur það sem vel hentar og kasta
því fyrir róða sem ekki telst til j
bóta. Óneitanlega hefur læðst að
manni sá grunur að viss stöðnun
hafi átt sér stað í framþróun reið-
mennskunnar hérlendis og má í því
sambandi nefna síversnandi gengi
okkar í fjórgangi og tölti i síðustu
Evrópumótum. Það skyldi þó ekki
vera að við hefðum vanrækt
grunngangtegundirnar, fet, brokk
og stökk. Öll getum við verið sam-
mála um að tölt og skeið séu eðal-
steinarnir í hæfileikum íslenska
hestsins, en eigi að síður megum
við ekki gleyma því að það er fyrst
og fremst fjölhæfnin sem gerir ís-
lenska hestinn að þeim kostagrip
sem hann er.
Segja má þátttaka okkar í Evr-
ópumótum sé að vissu leyti trygg-
ing gegn stöðnun í íslenskri reiðlist
en ekki megum við heldur gleyma
góðu máltæki sem segir, að hollur
sé heimafenginn baggi.
ia? uij hpaxn
ts J 'j
Mótið haldið í fögru fjallahéraði skammt frá Bonn
Staðurinn sem mótið verður hald-
ið á að þessu sinni heitir Koderath í
Eifel-héraði, sem er suðvestur af
Bonn. Annars hafa upplýsingar um
mótsstaðinn verið heldur af skorn-
um skammti, en þó hefur heyrst að
vellirnir séu góðir og er þá væntan-
lega átt við bæði hringvöllinn og
skeiðbrautina.
Roderath er eins og áður sagði
í Eifel, sem er fallegt fjallahérað
og er landbúnaður aðalatvinnu-
greinin og mikið um vínrækt.
Næsta borg við Roderath er Bad
Munstereifel og eru tíu kílómetr-
ar þangað.
Á Evrópumótum hefur aðstaða á mótstað ávallt verið eins og best gerist á hverjum tíma og hefur farið batnandi með hverju móti sem haldið er.
Þjóðverjar eru metnaðarfullir menn og má búast við að vel verði vandað til komandi móts þannig að þeim verði sómi af. Þessi mynd er af mótsvæðinu
í Skiveren í Danmörku 1977 og er verið að setja mótið.