Morgunblaðið - 06.09.1983, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1983
3
Bítlaæðið rifjað upp í Broadway
Tólf söngvarar syngja rúmlega 50 lög frá „BíUatímanum“
Flestir helstu dægurlagasöngv-
arar landsins munu taka þátt í lid-
lega tveggja tíma langri skemmtun
med tónlist frá „Bítlatímanum"
svonefnda í veitingahúsinu Broad-
way síðast í þessum mánuði. For-
sprakki skemmtunarinnar og
stjórnandi hljómsveitarinnar verð-
ur Gunnar Þórðarson.
„Þetta verður tóniist frá árun-
um 1963—1970, bítlamúsík, ís-
lenskt efni og fleira", sagði
Gunnar Þórðarson í samtali við
blaðamann Morgunblaðsins i
gærkvöldi. „Þetta verða rúmlega
fimmtíu lög og verður stiklað á
ýmsu.“
Hljómsveit Gunnars verður
styrkt með strengjakvartett, en
hljómsveitin hefur leikið fyrir
dansi í Broadway í sumar við
góðar undirtektir. Söngvararnir,
sem koma fram og syngja sem
bítilóðir væru, eru Pálmi Gunn-
arsson (sem gengur nú til liðs
við hljómsveit Gunnars Þórðar-
sonar), Jónas R. Jónsson, Rúnar
Júlíusson, Björgvin Halldórsson,
Sigursteinn Hákonarson (Steini
í Dúmbó), Engilbert Jensen,
Þuríður Sigurðardóttir, Pétur
W. Kristjánsson, Magnús og Jó-
hann og þeir Þorgeir Ástvalds-
son og Halldór Kristinsson. Þá
er von til að sérstakur „leyni-
gestur" komi fram.
Fyrirhugað er að skemmtunin
verði á föstudagskvöldi — og
hugsanlega endurtekin ef aðsókn
verður góð. Síðar í haust er jafn-
vel von á frekari uppákomum 1
tengslum við þetta skemmtana-
hald, að sögn Gunnars Þórðar-
sonar.
Hluti hópsins, sem tekur þátt f „bítlakvöldunum" í Broadway. Fremstir eru
Pálmi Gunnarsson, Jónas R. Jónsson, Gunnar Þórðarson og Sigurður Karls-
son. í aftari röð eru Ásgeir Steingrfmsson, Sverrir Guðjónsson (með tvö barna
sinna), Sigurður Long, Edda Borg og Jón Kjell. Alls munu 25—30 listamenn
taka þátt í skemmtununum. — Ljósm. Mbl. KEE
Helgarpóst-
urinn seldur
starfsfólki
Stjórn Vitaðsgjafa hf., útgáfufélags
Helgarpóstsins, hefur ákveðið að selja
fimm starfsmönnum blaðsins hlutafé-
lagið. Verður væntanlega gengið end-
anlega frá sölunni í dag eða allra
næstu daga, að sögn Bjarna P. Magn-
ússonar, stjórnarmanns í Vitaðsgjafa
hf.
Kaupendurnir fimm eru Ingólfur
Margreisson, ritstjóri, Hallgrfmur
Thorsteinsson, ritstjórnarfulltrúi,
Guðmundur Jóhannesson fram-
kvæmdastjóri, Ingvar Halldórsson
dreifingarstjóri og Áslaug Nielsen,
auglýsingastjóri.
Kaupverðlð, samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins, er 1,2 milljónir
króna og fylgir því engin skuldayf-
irtaka þannig að hinir nýju eigend-
ur taka við útgáfufélaginu á sléttu.
„Það eru aðeins tæknileg atriði
eftir, nánast aðeins handavinna við
gerð samningsins," sagði Bjarni P.
Magnússon i samtali við blaðamann
Morgunblaðsins í gærkvöld. „Þetta
hefur verið ákveðið og það er hvergi
skortur á vilja til að frá þessu verði
gengið. Okkur sýnist þetta vera
vænlegur kostur og I fullu samræmi
við þá kennisetningu okkar Alþýðu-
flokksmanna, að atvinnutækjum sé
best borgið í höndum starfsfólksins.
Sú hugmynd hefur alltaf legið að
baki útgáfu Helgarpóstsins og verð-
ur það áfram,“ sagði Bjarni P.
Magnússon.
Helgarpósturinn verður eftir sem
áður prentaður í Blaðaprenti en
unninn að öðru leyti á Alprenti, sem
er til húsa á sama stað og ritstjórn
og aðrar deildir blaðsins.
Tannlæknadeild
andvfg fjölgun
nemenda í vetur
HÁSKÓLARÁÐ hefur, í trássi við
Tannlæknadeild, tekið ákvörðun um
að 9 nemendum skuli hleypt inn á 2.
ár tannlæknanáras í stað 8 eins og
verið hefur undanfarin ár, en kennslu-
aðstaða í Tanngarði, hinu nýja húsi
tannlæknadeildar, er miðuð við þann
nemendafjölda. Er það vegna þess að
tveir urðu jafnir í 8. og 9. sæti á sam-
keppnisprófum, sem haldin eru í lok 1.
námsárs, en þau þreyttu um 30 nem-
endur.
Sigfús Þór Elíasson, forseti
Tannlæknadeildar sagði í samtali
við Morgunblaðið að Tannlækna-
deild væri ósamþykk þessari
ákvörðun Háskólaráðs, vegna þess
að það gæti orðið erfitt að sjá fleiri
nemendum en 8 fyrir verklegri
kennslu, þegar þar að kæmi, þar
sem allur búnaður og kennarafjöldi
væri miðaður við töluna 8. Aðspurð-
ur um hvort tannlæknadeild hyggi á
einhverjar aðgerðir, sagði Sigfús
ekki geta sagt um það, en hins vegar
væri það mjög slæmt fordæmi sem
Háskólaráð gæfi með því að fjölga
nemendum og hefði í för með sér
röskun á náminu, sem engan veginn
yæru að öllu leyti fyrirséðar.
Síminn er
90451185455
(ef þú hringir beint)
Hafskip hf. hefur flutt starfsemi markaðs-
deildar sinnar að verulegu leyti til
stærstu samgönguhafna erlendis.
Hagræðið er ótvírætt. Þú getur verið í
beinu sambandi við þann stað sem þér
hentar þegar þér hentar.
Okkar menn hafa sérþekkingu á flutn-
ingum hver á sínu svæði. Það sparar
tíma og eykur öryggi. Slíkterómetanlegt
því tíminn í vöruflutningum er dýrmæt-
ur. Þá er ekki síður mikilvægt að vita að
íslenskiraðilargæta íslenskra hags-
muna erlendis.
Þurfir þú að afla þér nákvæmra upplýs-
inga samstundis um vöruflutninga milli
staða á meginlandi Evrópu og til áfram-
haldandi flutninga heim til íslands (eða
öfugt) er einfaldast og áhrifaríkast að
nýta sér símatæknina og ofangreinda
þjónustu Hafskips.
Starfsfólk Kaupmannahafnarskrif-
stofunnar þau Árni Árnason, Sólklar
Haraldsson, Svend Skriver, Morentsa
Poulsen og Hólmfríður Gunnarsdóttir
munu svara og leysa strax úr erindi þínu.
Viljirðu frekar nota telex, er númerið
19745.
Þessi þjónusta er til þæginda fyrir þig.
Notfærðu þér hana.
Okkar maður, - þinn moóur.
SS HAFSKIP HF.