Morgunblaðið - 06.09.1983, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 06.09.1983, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1983 Seltjarnarnes — Vesturbær Fimmtudaginn 8. sept. hefj- ast á vegum skólans dag og kvöldtímar, í léttum æfingum fyrir konur á öllum aldri. Innritun og upplýsingar í síma 15359 e.h. Ballettskóli Guöbjargar Björgvins, íþróttahúsinu Seltjarnarnesi, Litla sal. stress manager Fyrirtækið TIME MANAGER INTERNATIONAL, sem bjó til og skipuleggur námskeiðið TIME MANAGER, sem náð hefur gífurlegum vinsældum um allan heim, hefur nú útbúið nýtt námskeið sem nefnist STRESS MANAGER. Mikil undirbún- ingsvinna hefur farið fram síðast liðin 2 ár við skipulagingu | og undirbúning þessa námskeiðs. Stjómunarfélaginu hefur tekist að fá þetta námskeið hingað til íslands, en námskeiðið hefur göngu sína í fyrsta skipti á Norðurlöndunum nú í september. MARKMIÐ: Eftir setu á námskeiðinu munu þátttakendur hafa - öðlast þekkingu á streitu og áhrifum hennar - öðlast hvatningu til þess að breyta lífsstíl sínum - fengið í hendumar áhöld og tækni sem hægt er að nota til þess að hafa áhrif á og minnka steitu í hinu daglega lífi. EFNI: - Hvað er streita? - Hvaða áhrif hefur streita á okkur, og af hveiju er hún vandamál? - Helstu grandvallaratriði við streitustjómun. - Hvernig má þekkja helstu einkenni streitu. - Hvað hefur áhrif á streituþol einstaklingsins. - Hvemig ná má árangri við minnkun á streitu. Á námskeiðinu verður dreift umfangsmiklum námsgögnum auk æfinga og “biodots" hitamæla. ÞÁTTTAKENDUR: Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem hafa með höndum sjálf- stætt starf í fyrirtækjum, stofnunum, bönkum eða félaga- samtökum. __ LEIÐBEINANDI: Dr. Janelle M. Barlow, Ph.D. frá Univer- sity of Califomia, Berkley. Dr. Janelle M. Barlow hefur sjö ára reynslu sem leið- beinandi á streitunámskeiðum í Banda- ríkjunum, og hún er einn af aðalhöf- undum námskeiðsins STRESS MANA- GER. Þar sem þetta er í fyrsta skipti sem námskeiðið er haldið á Norðurlöndunum mun Dr. Barlow annast kennslu á því, en framvegis munu skandinaviskir kennarar annast kennsluna. Þetta er því einstakt tækifæri til að njóta hæfileika þessa einstaka og vel menntaða leiðbein- anda. TÍMI - STAÐUR: 19. og 20. september kl. 8.30-18 báða dagana. Hótel Saga, hliðarsalur. TILKYNNIÐ PÁTTTÖKU í SÍMA 82930 ATH: Starfsmenntunarsjóður Starfsmannafélags ríkis- stofnanna greiðir þátttökugjald fyrir félaga sína á þessu námskeiði og skal sækja um það til skrifstofu SFR. STJÓRNUNARFÉLAG ÍSIANDS iS»23 Engin viðurkenning á ábyrgð Sovétmanna Moskvu, 5. september. AP. SAMKVÆMT nýrri frásögn Sovét- manna um suður-kóreönsku far- þegaþotuna á hún að hafa litið út líkt og bandarísk könnunarflugvél af gerðinni RC-135. Samkvæmt sömu frásögn skaut sovézki flug- maðurinn aðeins viðvörunarskotum í grennd við farþegaþotuna eftir ítrekaðar en árangurslausar tilraun- ir til þess að ná sambandi við hana. Engin viðurkenning kom hins vegar fram á því, að farþegaþotan hefði verið skotin niður. Það var Semyon Romanov, yfir- maður flugvarna Sovétríkjanna, sem skýrði frá þessu á sunnudag í viðtali við TASS-fréttastofuna I nákvæmustu frásögn, sem enn hefur verið gefin af hálfu Rússa af því, sem á að hafa gerzt. Hann ítrekaði fyrri fullyrðingar Rússa um að farþegavélin hafi flogið án loftsiglingaljósa og „svaraði ekki öllum fyrirmælum flugmanns okkar, sem i langan tima gerði til- raunir til þess að fá aðkomuvélina til þess að lenda á næsta sovézka flugvelli. Sovézka flugmanninum tókst ekki, þrátt fyrir tilraunir sínar, að koma á fjarskiptasam- bandi við aðkomuvélina", var ennfremur haft eftir Romanov. Hann tók það fram, að sovézki flugmaðurinn hefði gefið merki með vængjum flugvélar sinnar og blikkað ljósum, en það hefði engin áhrif haft á kóreönsku vélina. Samkvæmt heimild í Moskvu var Yuri Andropov, forseti Sovét- ríkjanna, í orlofi fyrir utan Moskvu, þegar suður-kóreanska vélin var skotin niður. Samkvæmt sömu heimild hefði það hins vegar engu breytt, þótt hann hefði verið til staðar, því að hann myndi ekki hafa verið spurður. Andropov hefði hins vegar verið kallaður til höfuðborgarinnar á föstudag, er vaxandi viðbrögð um allan heim tóku að segja til sín. Brezka blaðið Sunday Times heldur því fram, að sá, sem gaf fyrirskipun um að skjóta farþega- þotuna, hafi verið Vladimir Govo- rov hershöfðingi, sem sé yfirmað- ur hersins í austasta hluta Sovét- ríkjanna, og að aðalráðgjafi hans hafi verið Alexander I. Koldunov, flugmarskálkur og aðstoðarvarn- armálaráðherra. Farþegaþotur tvisvar áður skotnar niður Moskvu, 5. september. AP. TVISVAR áður a.m.k. hafa óvopnaó- ar farþegaflugvélar verið skotnar niður, en í bæði skiptin játuðu yfir- völd í viðkomandi ríkjum ábyrgð sína. Arið 1955 skutu tvær búlgarskar orrustuþotur ísraelska farþega- flugvél niður og fórust allir, sem um borð voru, eða 68 manns. Búlg- örsk yfirvöld báðust afsökunar á verknaðinum, borguðu bætur og refsuðu ráðamönnum innan hers- ins, sem ábyrgir voru. I öðru tilviki skutu ísraelar niður líbýska farþegaflugvél með 107 Stærðarmunur á njósnaflugvél og farþegaþotu New York, 5. september. AP. TALSVERÐUR stærðarmunur var á kóreönsku þotunni sem Rússar skutu niður á Japanshafi og RC-135 njósnaflugvél bandaríska flughers- ins, sem var á flugi á svipuðum slóð- um og kóreanska þotan. RC-135 er eitt afbrigði af Boeing 707 þotunni, en kunnust afbrigða af þessari flugvélartegund eru A WACS-flugvélarnar og KC-135 tankflugvélarnar, en báðar flug- vélagerðirnar má títt sjá á Kefla- víkurflugvelli. Aðalmunurinn á flugvélateg- undunum tveimur.er sá að far- þegaþotan er 24 metrum, eða þriðjungi lengri, og tvöfalt þyngri en Boeing 707. Einnig er farþega- þotan auðþekkjanleg á sérkenni- legri lögun fremst á búknum, þar séftf ðfjðfftkfefr heflflar er -.. manns innanborðs. Israelar báðust ekki formlega afsökunar en greiddu aðstandendum fórnar- lambanna bætur. Vika leið áður en Búlgarar báð- ust afsökunar, sem þá sögðu að orrustuflugmennirnir hefðu skotið á flugvélina „í óðagoti" eftir að hafa fylgt henni eftir 200 kílómetra í búlgarskri lofthelgi. Þeim hefðu orðið á þau mistök að reyna ekki áður að neyða flugvélina til lend- ingar. Báru Búlgarar því við að flugvélin hefði verið í njósnaflugi. Þegar ísraelar skutu niður líb- ýsku flugvélina, sökuðu málgögn Moskvustjórnarinnar Israela um „blóðugt viðbjóðsverk". Hvarf kóreönsku þotunnar við Sakhalín-eyju minnir þó hvað mest á atvik frá 1978 þegar önnur kóre- önsk farþegaþota átti í hlut. Sov- ézkar orrustuþotur skutu á þotuna, sem villtist inn í rússneska loft- helgi við Múrmansk, með þeim af- leiðingum að tveir farþegar týndu lífi. Vegna skotárásarinnar urðu flugmennirnir að nauðlenda þot- unni. Rússar viðurkenndu að skotið hefði verið að þotunni og að hún hafi verið neydd til lendingar, en játuðu aldrei að hún hefði verið hæfð. Nítján börn fórust með farþegaþotunni New York, 5. september. AP. NfTJÁN börn voru í hópi þeirra, sem fórust með farþegaþotunni, er Rússar skutu niður í síöustu viku, en alls voru 269 manns af 12 þjóðern- um með vélinni, er hún lagði af stað frá Kennedy-flugvelli í New York misst af fluvélinni sunnudaginn á undan, en leigubíllinn, sem skyldi aka honum á flugvöllinn, tafðist sökum óveðurs. Bandaríski þing- maðurinn Larry McDonald missti einnig af þeirri vél. Frú Chong Metcalf, 30 ára gömul, hugðist heimsækja eiginmann sinn, David, sem er bandarískur her- maður óg hafði fyrir skömmu verið fluttur til Suður-Kóreu til þess að taka þar við nýrri stöðu. Hún hafði með sér tvær dætur þeirra, þriggja og sjö ára. áleiðis til Seoul f Suður-Kóreu. Tilviljun réð því um suma far- þegana, að þeir tóku sér far með einmitt þessari vél. Rebecca Scruton, 28 ára gömul ekkja og tveggja barna móðir, átti að fara með vélinni laugardaginn þar á undan, en gleymdi þá vegabréfinu og fór því með þriðjudagsvélinni i staðinn, þar sem hún mætti ör- lögum sínum. Bill Hong, kennari frá Suður- Karólínu hafði unnið farmiða sinn sem verðlaun í golfkeppni. Takeshi Nakazawa, framhalds- skólakennari frá Japan, hafði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.