Morgunblaðið - 06.09.1983, Síða 22

Morgunblaðið - 06.09.1983, Síða 22
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1983 liT Minning: TlZKUBLAO — FASHION MAGAZINE ARMULA 18 105 RE YKJAVIK SIMI82300 er ekki tími til kominn, aö þú gerist áskrifandi? líf er svolítið öðruvísi Asta Jónsdóttir frá Eiðsstöðum Hinn 27. ágúst lést að heimili sínu Túngötu 43 frú Ásta Jóns- dóttir húsmóðir. Hún var fædd 11. september 1895 að Eiðsstöðum við Bræðra- borgarstíg. Foreldrar hennar voru hjónin Jón Guðmundsson sjómaður fæddur í Ánanaustum og Þórunn Einarsdóttir úr Skólabænum við Suðurgötu. Ásta var elsta barn foreldra sinna og fyrirmynd fjögurra yngri systkina, sem voru mjög samrýnd. Hún giftist hinn 28. ágúst 1919 unnusta sínum Þorsteini Árnasyni vélstjóra, en hafði áður starfað á Franska spítalanum hjá merkis- konunni Maríu Maack. Þau Ásta og Þorsteinn eignuð- ust sjö börn, Ingigerði, Árna, Þór- unni, Þorstein, og tvíburara Gyðu og Garðar, en eina dóttur misstu þau aðeins fimm mánaða gamla. Glæsilegt heimili Ástu fyrst að Eiðsstöðum og síðar að Túngötu bar vitni um þá röggsemi og þann áhuga sem hún sýndi í verki fyrir fjölskylduna og velferð hennar. Glæsilegur barnahópur var aðal MICROLINE tölvuprentari á aðeins kr. 9.900! Við höfum nú flutt starfsemi okkar í nýtt og rúmgott húsnæði í Síðumúla 6. Af þessu tilefni höfum við ákveðið að bjóða tölvueigendum Microline 80 tölvuprentara á sérstöku tilboðs- verði kr. 9.900 og gildir tilboðið út september. Við viljum ennfremur benda á að vegna hagstæðra innkaupa hefur verð á öllum gerðum MICROLINE prentara lækkað stórlega, eða um ca. 40%. MICROLINE Mest seldu tölvuprentarar á íslandi. MÍKR Síöumúla6 Sími39666 heimilisins að Túngötu 43 og hjá Ástu var gott að njóta frænd- seminnar við að rifja upp atburði og þáttaskil í lífi fjölskyldunnar, en Ásta var sér vel meðvituð um uppruna sinn og var stolt fyrir hönd sinnar heimaslóðar. Hún hafði lifandi áhuga fyrir fallegum fötum og klæddist sjálf oft íslenskum búningi. Það er stutt síðan við hjónin heimsóttum Ástu, sem þrátt fyrir háan aldur hafði frábært minni og var fróð um liðna atburði og Iíð- andi stund. Það var yndisleg kvöldstund sem við áttum saman við eld minninga þessarar ágætu dóttur Reykjavíkur. Þess má geta að Ásta starfaði mikið á vegum Reykvíkingafélags- ins og var heiðursfélagi þess. Ásta hafði mjög ákveðnar skoð- anir á mönnum og málefnum og var ófeimin við að láta þær í ljósi, en undir ákveðnu yfirbragði brá fyrir góðri kímnigáfu. Hún studdi alla tíð Sjálfstæðis- flokkinn með ráðum og dáð, en hafði megnustu óbeit á innan- flokksdeilum sem þjáð hafa flokk- inn um nokkurt skeið. Það er langur tími liðinn síðan ung starfsstúlka dansaði á tröpp- um Franska spítalans í Reykjavík geislandi af gleði þegar von var á unnustanum af hafinu. En nú er fallin í valinn fallega rósin frá Eiðsstöðum. Löngu og gæfuríku ævistarfi er lokið. Á þeim tímamótum lífs og dauða þegar leiðir skilur er ljúft að minnast samfylgdarinnar við góða og umfram allt trausta manneskju. Hjartans þakkir fyrir veganest- ið sem ég hlaut í minn mal. Bless- uð sé minning Ástu frænku. Haukur Hjaltason Húsgagnasýning Kíktu vió, þu færð örugglega eitthvað við þitt hæfi KM- , .. Langholtsvegi 1 1 1, Reykjavík, HUSGOGN símar 37010 - 37144.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.