Morgunblaðið - 06.09.1983, Side 37

Morgunblaðið - 06.09.1983, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1983 45 Fast sumarstarf á tjörninni Jón Guðmundsson skrifar: Velvakandi! Þegar Reykjavíkurvika stóð yfir og barnahátíðin var haldin í Hljómskálagarðinum, fór ég, eins og margir aðrir foreldrar, með börnin mín niður að Tjörn. Var þarna margt til gamans gert og undu börnin sér sæl og ánægð við íþróttir og leiki allan daginn. Mest spennandi þótti að fá að sigla um stund á Tjörninni, enda veður hið ákjósanlegasta. Eftir að hafa séð hversu mikið er hægt að gera fyrir krakkana þarna, þá dettur mér í hug að for- vitnast um hvort ekki sé hægt að hafa bátaleigu á Tjörninni sem fastan þátt í sumarstarfi borgar- innar. Margir myndu taka þeirri tilbreytingu fegins hendi og eiga sér ánægjulegar stundir á Tjörn- inni þegar vel viðraði. Þarna mætti kenna börnum að róa og leyfa þeim að spreyta sig á kapp- róðri. Borgaryfirvöld gætu annað hvort rekið starfsemi þarna með þremur eða fleiri umsjónar- mönnum á eigin vegum, eða látið hana í hendur einhverju skáta- eða íþróttafélagi. Rennibekkir Stærðir: 400x1000 irtm, 400x1500 mm. og 200x480 mm. G. Þorsteinsson & Johnson h.f. Armúla 1. — Sími 8 55 33 Oþarfi í útvarpi og sjónvarpi Starri skrifar: Velvakandi. Það var full ástæða til skrifa þeirra sem birtust í dálkum þín- um Velvakandi góður, í dag 19. ágúst, og hafi Eyþór Þórðarson á Neskaupstað þökk fyrir að hreyfa málinu. Er furða þótt mönnum blöskri sumt í rekstri ríkisútvarpsins, þegar þessi stofnun er sífellt að barma sér og fara fram á hækk- anir á afnotagjaldi. Eyþór getur um ýmsa liði, sem fella mætti niður og myndi spara fé án þess að nokkur tæki eftir. En það er af svo mörgu að taka, að varla er hægt að ætlast til þess að Eyþór myndi eftir þvi öllu. Júlí- sjónvarpið var óþarft með öllu, enda var boðið upp á „rusl“, sem fáir höfðu ánægju af að horfa á. Mætti gjarnan taka aftur upp fyrri hátt og loka þennan sumarmánuð, sem fólk er að jafnaði í ferðalögum eða vildi geta haft tengsl við vini og ná- granna, án þess að hafa þau öll glápandi á skerminn meðan á samræðum stendur. Sá háttur sjónvarpsmanna, að þylja hver sína frétt, líta hver til annars og apa eftir amerískum, er í raun- inni út í hött. Þetta „passar" ekki hér. Sjónvarpsþulurnar eru með öllu óþarfar. Það er nánast hlægilegt að lesa dagskrána með eigin augum og þurfa svo að hlusta á hana lesna fyrir mann aftur, rétt eins og maður sé ekki læs. Danir voru með þessar „puntudúkkur" til að byrja með, en eru löngu hættir því. Ég se»> „puntudúkkur“; skki í óvirð- lugárskyni, mér finnst bær við- feldnar og elskulegar stúlkur, en allsendis óþarfar. Þarna mætti spara mikla fjármuni. íslensku leikritin, sem sum hver hafa verið sýnd í sjónvarpi, önnur sí- fellt flutt í útvarpi, eru mörg ekki þess virði að heyrast eða sjást. „Brútalitet" og klám á ekki að sjást á skermi hins al- menna borgara né heldur heyr- ast í útvarpi. Það á að tilheyra sérklúbbum þeirra manna, sem hafa þesskonar smekk. Nú í kvöld voru Albert Guðmundsson og Ragnar Arnalds aðal til- hlökkunarefnið. En mikill and- skotans asi var á stjórnandan- um. Hann gat ekki framlengt þennan ágæta þátt um nokkrar mínútur, þegar án efa öll þjóðin skemmti sér og farið var að lifna yfir samræðunum. Þá þurfti að stöðva þáttinn í miðj- um klíðum til þess að sýna fá- dæma vitlausan kappaksturs- þátt, skrípaleik, sem varla á er- indi til ökuníðinga á íslandi. Ég held að varla sé á bætandi. Ann- ars er svo margt sem spara mætti í rekstri þessa dæma- lausa ríkisfyrirtækis að Albert ætti að snúa sér að því, fyrst af öllu. Þar þarf að lofta út og hreinsa til, svo ekki sé meira sagt. Sagt var: Þessi vegur er mikið lengri en hinn. Rétt væri:.. miklu lengri. ..cniJTj'nj* 0901 junym shuuíjív .inaaaaúil utrwi Geröu þaö sjálfur IgSaéni SPÓ, eik,fu mahoj 40, 50 og 2-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.