Morgunblaðið - 10.09.1983, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1983
3
Fyrstu útsendingar
á Rás 2 í nóvember:
Útvarpað í
8 tíma á
dag til að
byrja með
*
Rætt við Þorgeir Astvaldsson, forstöðumann
„FYRSTU útsendingar verða
væntanlega í nóvember. Forráöa-
menn útvarpsins hafa tekið um
þaö ákvörðun, að miða fyrstu út-
sendingartíma rásar 2 við hefð-
bundinn vinnutíma fólks — við
munum því fyrst í stað útvarpa frá
klukkan tíu á morgnana til sex á
kvöldin. Þessi tími verður vænt-
anlega fljótlega tekinn til endur-
skoðunar og þá lengdur frekar en
hitt,“ sagði Þorgeir Ástvaldsson,
forstöðumaður rásar 2 hjá Ríkis-
útvarpinu, þegar Morgunblaðs-
menn hittu hann að máli í væntan-
legu húsnæði rásarinnar í nýja út-
varpshúsinu við Háaleiti síðdegis í
gær.
„Barnið fæðist ekki fullskap-
að,“ hélt Þorgeir áfram. Það
verður að taka byrjunarskref og
leyfa þessu að þróast á mark-
vissan hátt. Hugmyndin er að
byrja að útvarpa á rás 2 klukkan
tíu á morgnana og halda áfram í
tvo tíma. Klukkan tólf á hádegi
verða rásir eitt og tvö tengdar
saman — meðal annars til þess
að ná fréttum. Samtengingunni
lýkur væntanlega klukkan tvö og
þá verður útvarpað áfram á rás 2
til klukkan sex. Þannig byrjum
við með átta tíma samfelldri
dagskrá."
— Hefði ekki verið hægt að
byrja með útvarpi allan sólar-
hringinn?
„Það má vel vera að það hefði
verið æskilegra — að byrja með
24 tíma dagskrá, þrautskipu-
lagðri með þrautþjálfuðu starfs-
fólki," svaraði Þorgeir, „en þess
ber að gæta að þetta eru mjög
dýrar framkvæmdir og framhald
starfseminnar fer eftir því
hvernig tekst til í byrjun. Það er
til dæmis fyrirhugað að útvarpa
síðar á síðkvöldum eða um helg-
ar — raunar er ákveðið, að þegar
helgarútvarpið byrjar á rás tvö
þá verði það næturútvarp. Það
getur vonandi hafist sem allra
allra fyrst enda er ætlunin að
næturútvarp á rás 2 komi í stað
næturútvarps rásar eitt. Því efni
verður jafnframt útvarpað á
langbylgju rásar eitt þannig að
það á að heyrast um allt land.
Um helgarútvarp rásar 2 að degi
til verður ekki að ræða til að
byrja með.“
Þorgeir verður einn af sjö
fastráðnum starfsmönnum rásar
2. Á næstunni taka til starfa
tveir tæknimenn undir leiðsögn
Ólafs Guðmundssonar deildar-
verkfræðings RUV, sem hefur
haldið utan um tæknilega hlið
mála. Síðan verða tveir starfs-
menn ráðnir til afgreiðslustarfa
og tveir „verkstjórar", annar
með auglýsingar á sinni könnu,
hinum verður ætlað að hafa með
höndum stjórn ýmissa daglegra
Þorgeir Astvaldsson í glugga aöalupptökusalar rásar 2: Öldugangur í léttu tónlistinni rétt eins og mannlífinu.
Morgunblaðið/FriÖþjófur.
mála innanhúss. „Það verður
ekkert dagskrárgerðarfólk fast-
ráðið til að byrja með — raunar
verður það eitt af einkennum
stöðvarinnar, að fólk verður
lausráðið til dagskrárgerðar til
lengri eða skemmri tíma til að
sinna einstökum verkefnum,"
sagði Þorgeir. „Því fólki verður
útveguð aðstaða hér enda er gert
ráð fyrir að fjórir dagskrárgerð-
armenn að minnsta kosti geti
verið við vinnu í einu í því sem
við köllum „vinnslusal". Ég er
mjög ánægður með þetta fyrir-
komulag — ég held að það muni
auka fjölbreytni dagskrárinnar.
En svo er eins vfst, að einhverjir
lausráðnir muni ílengjast þegar
fram í sækir þótt ekkert hafi
verið ákveðið um það ennþá."
Þegar Morgunblaðsmenn
ræddu við Þorgeir í gær var allt
á fleygiferð í nýja útvarpshúsinu
og iðnaðar- og verkamenn á
hverju strái. Rás 2 fær til um-
ráða um 450 fermetra húsnæði,
sem smám saman er að taka á
sig mynd. I októberbyrjun á það
húsnæði að vera tilbúið til notk-
unar að öðru leyti en því að inn-
setning véla og tækja og tenging
þeirra verður eftir. Gangi allt
samkvæmt áætlun verður hægt
að fara að útvarpa í nóvember,
eins og Þorgeir sagði í upphafi.
— En hvað mun svo rás 2
flytja okkur? Topp tíu frá
morgni til kvölds?
„Alls ekki,“ sagði Þorgeir.
„Létt tónlist mun einkenna
dagskrána og við munum út-
varpa sem mest beint. En þetta
verður létt tónlist af öllu tagi —
það verður öldugangur í henni
eins og mannlífinu, enda er höf-
uðmarkmiðið að vera í takt við
mannlifið í landinu. Það sem ég
stefni að er að þetta verði opið
útvarp. Útvarp, sem verði í góðu
sambandi við daglegt líf — út-
varp sem vinni sem mest í nú-
inu, ef má taka svo til orða. Við
munum geta tekið á móti gestum
í beinar útsendingar, farið heim
til fólks eða á vinnustaði og út-
varpað beint og verið í síma-
sambandi við fólk úti í bæ eða út
um land án þess að það þurfi að
stífla símakerfi hússins. 1 því
augnamiði höfum við fengið full-
komið símakerfi, sem er í fullu
samræmi við það sem gerist á
útvarpsstöðvum erlendis. Nú,
svo verður eitthvað um samspil
á milli rásanna tveggja — hlust-
endur eiga að geta valið á milli
og því verður þess gætt, að það
verði ekki sama efni eða sams-
konar á báðum rásunum í einu.
Og auk tónlistar verður vænt-
anlega eitthvað um endurtekið
efni af rás eitt.“
— Hvað með leiknu auglýs-
ingarnar — verða þær fluttar í
ameríska stílnum, þannig að þær
komi inn á milli laga eða frétta?
„Um auglýsingar hefur ein
stefnumarkandi ákvörðun verið
tekin í þessu sambandi: Auglýs-
ingar eiga ekki að fá að brjóta
upp dagskrána mjög óvænt. Við
gerum ráð fyrir 4—6 auglýs-
ingamínútum á klukkustund en
það hefur enn ekki ýerið ákveðið
hvort við verðum með einn aug-
lýsingatíma á klukkustund eða
hvort þeim verður skipt eitthvað
meira niður. Við höfum haft
hliðsjón af reglum óháðu, bresku
útvarpsstöðvanna í þessu sam-
bandi og munum fljótlega móta
okkar eigin reglur um flutning
auglýsinga. Það má ýmislegt
læra af Bretanum um útvarp,"
sagði Þorgeir Ástvaldsson, for-
stöðumaður rásar 2 — og var þar
með rokinn, enda í miklu að at-
ast.
Leitin við Eyrar-
bakka árangurslaus
LEITIN að bræörunum Þórði og Sig-
fúsi Markússonum, sem fórust með
vélbátnum Bakkavík frá Eyrar-
bakka á miðvikudaginn, hefur enn
ekki borið árangur. Leitað var í all-
an gærdag og gengnar fjörur vestur
með ströndinni. Froskmenn köfuðu
niður í lón úti fyrir ströndinni og út
alla innsiglinguna en urðu einskis
varir. Næstu daga verður haldið
áfram að hafa gætur á reka og ganga
fjörur.
Þriðji bróðirinn, Vigfús Mark-
ússon, sem komst lífs af þegar
Bakkavíkin fórst, kom heim af
sjúkrahúsi í gærmorgun og er við
góða líkamlega heilsu.
Æskulýðsmessa
í Dómkirkjunni
Á MORGUN, sunnudag 11. septem-
ber, verður æskulýðsmessa í Dóm-
kirkjunni og hefst hún kl. 11 f.h. Sr.
Þórir Stephensen prédikar og flutt
verður tónlist, sem nýtur vinsælda í
röðum ungs fólks.
Nú eru skólar að hefjast og unga
fólkið er allsstaðar að búa sig undir
vetrarstarf, svo ekki ætti að vera
fjarri lagi að koma saman í kirkju
og biðja um blessun yfir þá hluti
alla. Því er og efnt til þessarar
æskulýðsmessu.
Jónas Þórir Þórisson verður við
orgelið, Graham Smith leikur á
fiðlu, þær Hildigunnur Rúnarsdótt-
ir og Marta Guðrún og Hildigunnur
Halldórsdætur syngja negrasálma,
og svo leiðir Dómkórinn almennan
söng. Ungt fólk flytur bænir og
texta.
Við, sem að þessu stöndum, von-
um að ungt fólk sæki þessa messu
og finni þar eitthvað sem talar til
þess. Ég skírskota þar ekki síst til
fermingarbarna Dómkirkjunnar frá
fyrri árum. En svo hygg ég, að það
sem þama verður flutt, höfði ekki
síður til annarra aldurshópa, þannig
að þeir þurfi ekki að fráfælast slíka
messugjörð. Þar á alls ekki að skapa
kynslóðabil, heldur á fólk á öilum
aldri að sameinast i þjónustu við
skapara sinn og Drottin.
Þórir Stephensen.
Inntökupróf fyrir þá sem vilja komast í
dansflokkinn, veröur í Drafnarfelli 4,
sunnudaginn 11. sept. kl. 14.30.
Upplýsingar í
/j4/ M síma 74444
M kl. 13—16 í dag.