Morgunblaðið - 10.09.1983, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1983
9
faaigM Œdfl
Umsjónarmaður Gísli Jónsson 208. þáttur
Ónefndur Reykvíkingur
sendi mér á dögunum pésa
nokkurn sem er raunalegt
dæmi um hroðvirkni og óvand-
að málfar. Fyrirtæki þáð, sem
gefur út pésann, nefnist í hon-
um fyrst Rekstrarstofan, en
kynnir sig síðan sjálft þannig:
„Tarkenton & Company USA
er samstarfsaðili Rekstrar-
stofnunar (leturbreytingar eru
sendanda) um jákvæða fyrir-
tækjastjórnun."
Á næstu síðu er tilkynnt um
námskeið sem sett verði
stundvíslega kl. 13.30 tiltekinn
dag af framkvæmdastjóra
Rekstrarstofnunar. Fer nú að
koma upp efi, hvort fyrirtækið
heiti Rekstrarstofa eða
Rekstrarstofnun. Síðan er
ástæða til þess að spyrja hvort
orðin jákvæð fyrirtækjastjórnun
muni ekki merkja góða stjórn
fyrirtækjanna.
Satt best að segja virðist
margt í kynningarpésa þessum
vera heldur bágborin þýðing
úr ensku. Auk margs konar
óvandvirkni einkennist ritling-
urinn af fleirtöluáráttu og
mjög óljósri framsetningu.
Þrjú af atriðunum á dagskrá
þess námskeiðs sem auglýst er,
heita markmiðasetning, upp-
lýsingastreymi og hvatninga-
stjórnun. Um konu í Banda-
ríkjunum segir að störf hennar
hafi aðallega beinst að styrk-
ingu á afköstum fyrirtækja,
bættu stjórnskipulagi og boð-
leiðum hjá fyrirtækjum í raf-
eindaiðnaði, fataiðnaði, vöru-
dreifingu, flug- og landflutning-
um (svo!) og framleiðsluiðnaði.
Spyr nú sendandi að vonum:
„Er fata- og rafeindaiðnaður
eitthvað annað en framleiðslu-
iðnaður?"
En konan hefur gert fleira:
„Randa Wilbur hefur skrifað
og staðið fyrir framleiðslu á
mörgum þjálfunarnámskeið-
um ..." Og sendandi spyr að
vonum: „Hvað hefur hún skrif-
að, og hvað merkir að standa
fyrir framleiðslu á þjálfunar-
námskeiðum? Hefur hún ef til
vill haldið slík námskeið eða
staðið fyrir þeim?“
Þetta er ekki búið: „Tarkent-
on & Company hefur stuðlað
að verulegri framleiðniaukn-
ingu með breyttri stjórnunar-
hegðun (svo!) í meira en 200
stærri fyrirtækjum. Síðan
fyrirtækið var stofnað 1969
hefur það þjálfað meira en
50.000 stjórnendur til að ná upp
umtalsverðri árangursaukningu
með útvíkkun og uppbyggingu á
stjórnunarvenjum.“ Spreyti
menn sig nú að skilja þetta og
umorða það á íslenskt manna-
mál.
En afrek Tarkenton & Co.
eru ekki upp talin á þessu
hrognamáli: „Tekist hefur að
aðstoða fyrirtæki í mjög fjöl-
breyttum greinum með því að
sameina áhersluatriði sem skila
verulegum árangri í fækkun fjar-
verustunda, minna gegnum-
streymi mannskaps, aukinni
sölu og auknu framleiðsluör-
yggi“
Líklega á þetta að þýða
eitthvað á þá leið, að ráðgjafa-
fyrirtækinu hafi tekist á
margan góðan hátt að fá
starfsfólk til að sækja betur
vinnu sína og starfa lengur á
sama stað. Hafi það svo orðið
til þess að örva söluna og efla
öryggi við framleiðsluna. Eða
þannig.
Að lokum úr þessum ritlingi:
„Hvert mál sem lagt er fyrir er
tekið þeim tökum að það gefi
mælanlega aukningu í afköstum,
framleiðni og starfsgleði. Að-
ferðirnar eru valdar eftir þörf-
um hvers og eins til að falla að
fjölbreytilegum og sérstökum
verkefnum þar sem leitast er
við að hámarka árangur fyrir-
tækjanna."
Umsjónarmaður ætlar ekki
að reyna að umorða þetta.
Honum þykir einsýnt að farið
sé eftir þörfum hvers og eins,
þegar starfsgleðin er mæld,
hvernig sem það er svo fram-
kvæmt.
Sendandi hefur ekki auð-
kennt fleira úr þessum kynn-
ingarpésa. En í vinsemd er
mönnum, sem standa að slíku
lesmáli, ráðlagt að leita til ein-
hvers sem ætla má að sé betur
að sér í íslensku. Ulskiljanlegt
hrognamál minnkar þann
mest sem lætur það frá sér
fara.
Þá er hér enn bréfkafli frá
Skúla Magnússyni í Hvera-
gerði, dagsettur 20. ágúst:
„í síðasta þætti (þeim 205ta)
var rætt um tvítölu og fleir-
tölu persónufornafna. Ég er
sjálfur (ekki „persónulega")
hlynntur tvítölunni vér — oss
— oss — vor. Ástæðan er m.a.
mikil ofnotkun á „við — okkur
— okkur — okkar". Mikið um
eftiröpun og þýðingar úr
skandinavískum málum:
„Hundurinn okkar" og allt það
stagl. Orðmyndin „okkur" er
langt í frá að vera fögur. Góðu
heilli — einsog Gísli bendir á
— mun „vér“ ætla að lifa af í
biblíumáli og jafnvel í hátíða-
ræðum á 17. júní. Hugsum oss
slíka slepju: Gef okkur í dag
okkar daglega brauð. „Við“ er
að réttu lagi ég og þú og bezt
notað í tali tveggja. Veit ekki
hvaðan það er komið — örugg-
lega ekki af Biblíu-lestri,
sennilega meðfætt — en ég
hefi töluvert ríka tilfinningu
fyrir „vér“ um marga, einsog
„vér Islendingar", en „við“ sem
ég + þú.
Ég er ekki eins mikill stuðn-
ingsmaður þéringa. Þéringar
hafa kuldalegan blæ, sem ekki
verður burt skafinn úr tilfinn-
ingunni. Fólk grípur til þér-
inga svotil einungis þegar það
vill halda viðmælanda sínum
fjarri.
Undirrituðum þykir betur
fara á því að þéra þegar um er
að ræða afgreiðslu ókunnugra
t.d. í búð eða á skrifstofu. Þá
er ekki um að tefla persónuleg
samskipti, og þúun kann að
tákna að viðskiptavinur geri
sig full-heimakominn. Þetta er
nú samt að leggjast af — og
verður sjálfsagt ekki við snúið.
En hvernig skal ávarpa For-
seta íslands (skrifa vísvitandi
stórt F í F.í.) og titla, sérstak-
lega þegar svo vill til að forset-
inn er kona?
Enn eitt: Vér nútíðarmenn
brúkum ef. persónuforn. sem
eignarfornöfn. í fornu máli
tíðkuðust beygð eign.f.n. (í
kyni, föllum og tölum) í þeirra
stað. Vor, vorn, vorum, vors og
yðvar (r), yðvarn, yðvörum,
yðvars. Undirritaður stóð sig
að því að grípa til efn. „yðvar"
í upphöfnum texta. Vill nú
ekki Gísli gera grein fyrir
þessum efn. þegar rúm leyfir í
þættinum?"
Jú, þetta vill umsjónarmað-
ur gera fyrr en síðar.
29555 — 29558
Einbýlishús óskast
Höfum verið beðnir að útvega fyrir mjög fjársterk-
an kaupanda ca. 200—300 fm einbýlishús á
Reykjavíkursvæðinu. Má vera á byggingarstigi.
Eignanaust skíphoití 5.
Þorvaldur Lúövíksson Sími 29555 og 29558.
EFTIRLÝSTAR
Höfum veriö beönir aö útvega fyrir fjársterka kaupendur
eftirtaldar íbúðir. í báöum tilfellum eru mjög góöar
greiðslur í boöi.
2ja herb. íbúö í Hafnarfiröi, helst í blokk í noröurbænum.
3ja til 4ra herb. íbúð í Reykjavík, stór bílskúr skilyröi.
Fasteignasalan Gerpla,
Suðurgötu 53, sími 52261.
Gissur V. Kristjánsson hdl.
esió
reglulega af
ölíurn
fjöldanum!
Saad
Opiö í dag 1—3
í Lundunum
270 fm giæsilegt einbýlishús á
góðum staö. Tvöf. bílskúr. Verð
4,3 millj.
Arnartangi, Mos.
140 fm gott einbýlishús á einni
hæö. Tvöfaldur bílskúr. Tilboð
óskast. Einkasala.
Sérhæö í Hlíöum
160 fm 7 herb. glæsileg sér-
hæö. Arinn í stofu. Bflskúr.
Verð 3,1 millj.
Viö Heiöarás
340 fm fokhelt einbýli á góöum
staö. Teikn. á skrifstofunni.
Endaraðhúsí
Suöurhlíöum
300 fm glæsilegt endaraöhús á
góöum útsýnisstaó. Húsiö afh. í
sept. nk. Möguleiki á sér íbúö í
kj. Bein sala eöa skipti á sér-
hæö koma til greina. Teikn. og
upplýs. á skrifst.
í austurbænum Kóp.
220 fm gott endaraðhús á góö-
um staö (Hjöllunum). Bílskúr.
Verö 2,9—3 millj. Skipti á minni
eign koma til greina.
Glæsilegt einbýlis-
hús viö Barrholt
140 fm 6 herb. nýlegt einbýlis-
hús m. 40 fm bílskúr. Fallegur
blóma- og trjágaröur. Verö 3,5
millj.
Raöhús í Selásnum
200 fm vandaö raöhús á tvelm-
ur hæöum. 50 fm bílskúr. Húsiö
er laust nú þegar.
Viö Brekkubyggö
3ja—4ra herb. vandaö raöhús.
Bílskúr. Gott útsýni. Allt sér.
Fasteignin Lykkja I
Kjalarnesi
er tll sölu. ibúöarhús: gamalt
steinhús ca. 100 fm auk kjall-
ara. 160 fm ágæt hlaöa auk
gamalla gripahúsa og hlööu. 1
hektari eignarlands.
Penthouse viö
Krummahóla
160 fm skemmtileg penthouse-
íbúð á 6. og 7. hæð. Stæöl í
bflgeymslu. Á 6. hæö eru svalir
í noröur en á 7. hæö stórar suö-
ursvalir. Stórkostlegt útsýni.
Verð 2,4—2,5 millj.
Viö Skipholt
5 herb. 117 fm góö endaíbúö á
4. hæö. Bílskúrsréttur. Verð
1600 þús.
Viö Drápuhlíð
4ra herb. 115 fm efri sérhæö
ásamt bílskúr. Ákveðin sala.
Verð 1,9—2 millj.
Hæö viö Kvisthaga
— skipti
5 herb. 130 fm 1. hæö m. bíl-
skúr við Kvisthaga. Fæst í
skiptum fyrir 3ja—4ra herb.
íbúö i vesturborginni eöa viö
Espigerði.
Vió Ljósheima
4ra herb. 90 fm íbúö á 7. hæð í
lyftuhúsi. Verð 1450 þú«.
Við Holtagerði Kóp.
3ja herb. 80 fm ibúð á jaröhæö
í tvíbýlishúsi. Verö 1350 þús.
Við Æsufell
3ja herb. 90 fm góö íbúö á 4.
hæö. Verö 1400 þús.
Viö Hamraborg
3ja herb. rúmgóö 102 fm íbúð á
4. hæö. Bílhýsi. Frábært útsýni.
Verð 1400—1500 þúe.
Við Hraunbæ
2ja herb. góö íbúö á 1. hæö.
Verð 1.100 þús.
í Smáíbúöahverfi
2ja herb. góö kjallaraíbúö. Sór
inng. Laus nú þegar. Verö 930
þús.
Einstaklingsíbúð
vió Flúöasel
45 fm einstaklingsíbúö. Verð
900 þús.
, 25 EtcnnmiÐLunin
X'!?B'Tf/Jt ÞINGHOLTSSTRÆTI 3
~ SIMI 27711
Sðlustjórl Sverrir Kristinsson
ÞorieHur Ouðmundsson sðlumaður
Unnstoinn Bock hrl., simi 12320
Mróifur Halldórsson Iðgfr.
Kvöldsími sölumanns 30483.
Hafnarfjörður
Nýkomiö til sölu m.a.:
Hólabraut
nýtt 250 fm parhús, 2 hæöir og
kjallari meö innb. bílskúr. Mjög
fallegt útsýni.
Noröurbraut
2ja—3ja herb. íbúö á jaröhæö í
eldra steinhúsi. 20 fm útihús
fylgir.
Móabarö
3ja herb. íbúö á efri hæð í fjór-
býlishúsi. Bílskúr, mikiö útsýni.
Verö 1,4 millj.
Suðurvangur
3ja—4ra herb. falleg og vönduö
íbúö á 3. hæö (efsta hæð). Verð
1400—1450 þús.
Brattakinn
2ja herb. rúmgóð risíbúö í timb-
urhúsi.
Álfaskeið
2ja herb. íbúö á 3. hæö, meö
bílskúr. Verö 1,2 millj.
Nönnustígur
Járnvariö timburhús hæö og
ris. Um 100 fm alls. á róiegum
staö.
Mávahraun
6—7 herb. steinhús á einni
hæö. 200 fm með bílskúr.
Hamarsbraut
5 herb. járnvarið timburhús.
Hæð og ris á rólegum og fögr-
um útsýnisstað.
Laufvangur
4ra—5 herb. mjög falleg íbúö á
3. hæö. Verö 1650 þús.
Sléttahraun
2ja herb. íbúð á 3. hæð. Verð
1,1 millj.
Hringbraut
4ra herb. í steinhúsi. Góöur
bflskúr.
Lækjargata
3ja herb. nýstands. risíbúö í
timburhúsi. Verð 1050 þús.
Hringbraut
3ja herb. 65 fm risíbúö í stein-
húsi. Fallegt útsýni. Verð 1050
þús.
Garðavegur
3ja herb. risíbúö í timburhúsi.
Álfaskeiö
3ja herb. íbúö á 1. hæð. Sér
þvottahús og nýtt eldhús. Bíl-
skúr fylgir. Verö 1450 þús.
Hverfisgata
2ja herb. falleg ibúö á jaröhæö.
Verð 850—900 þús.
Holtsbúö Garðaoæ
125 fm finnskt timbur-eininga-
hús. 3 svefnherb., sána, biiskýli,
hornlóö.
Barmahlíð Rvk.
6 herb. aðalhæö 170 fm ásamt
bilskúr. Þvottahús innaf eld-
húsi. Suöursvalir. Verö 2,4 millj.
Granaskjól Rvk.
Glæsileg efri hæö 145 fm í tví-
býlishusi. Allt sér.
Vogar Vatnsleysu-
strandarhreppi
130 fm vandaö timbur-eininga-
hús. Skiþti möguleg á elgn á
höfuöborgarsvæöinu. Laus 1.
október. Verö 1,4 millj.
Opiö 1—4 í dag.
FASTEIGNASALA
Árna Gunnlaugssonar
Austurgötu 10 — 8:50764
VALGEIR KRISTINSSON, HDL.
AUCLÝSINGASTOFA
MYNDAM0TA HF