Morgunblaðið - 10.09.1983, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 10.09.1983, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1983 17 íþróttarannsóknir mjög margvíslegar — samstarfsnefnd rannsóknarráða íþrótta sambanda á Norðurlöndum fundaði hér Barðaströnd: Flestir að ljúka heyskap DAGANA 29. og 30. ágúst var hald- inn að Hótel Esju fundur samstarfs- nefndar rannsóknarráða íþróttasam- bandanna á Norðurlöndum, en þess- ir fundir hafa verið haldnir árlega síðastliðin 12 ár en þetta er í fyrsta skiptið sem hann er haldinn á ís- landi. Á fundinum voru haldnir margir fyrirlestrar varðandi íþróttir en fundinn sóttu um 50 manns. íslendingar hafa ekki oft setið þessa fundi þar sem þeir hafa ekki tækifæri til að stunda íþrótta- rannsóknir en á hinum Norður- löndunum er veitt 1% af tekjum íþróttasambandanna og svarar það til um 5 milljóna króna árlega. Iþróttarannsóknir á Norðurlönd- unum, og raunar víðar um heim, eru margvíslegar og ná meðal annars til lífeðlisfræði, læknis- fræði, félagsfræði, sálarfræði, íþróttaslysa, hreyfitækni og íþróttasögu en í því síðastnefnda ættum við að geta staðið framar- lega eins mikil söguþjóð og við er- um. Þrátt fyrir að rannsóknir á íþróttamönnum fari fram á Norð- urlöndunum þá hafa íþróttasam- böndin þar ekki yfir rannsókna- stofum að ráða en þau styrkja hins vegar ýmsar stofnanir sem rannsóknir stunda og áhuga hafa á að leysa hin ýmsu vandamál sem snúa að íþróttum. Hér heima eru aftur á móti litlar sem engar rannsóknir í gangi en þó hafa ýmsir menn gert minniháttar rannsóknir. Þórólfur Þórlindsson, prófessor við Háskólann hér, gerði eina slíka á 1200 börnum á aldrin- um 12—16 ára og hélt hann fyrir- lestur um rannsóknina og niður- stöður hennar á fundinum. A. Morgan, prófessor við Há- skólan í Osló, var fundarstjóri á fundinum og við spurðum hann hverskonar rannsóknir það væru sem gerðar væru á Norðurlöndun- um. „Þessar rannsóknir eru mjög mismunandi. Sumir eru að rann- saka hvernig hægt er að ná sem bestum árangri og er þá mest tek- iö tillit til mataræðis og hvenær og hvernig haga á æfingum, aðrir eru að kanna hvernig íþróttamenn æfa og hversvegna. Ein rannsókn er í gangi í Noregi núna og má vænta niðurstöðu á næstunni. Þessi rannsókn náði til nokkuð margra íþróttamanna og voru þeir spurðir, en ekki rannsakaðir, um hvað það vissi um lyfjanotkun og það kom mér mikið á óvart hversu lítið fólkið vissi um þessa hluti sem þó virðast vera nokkuð al- gengir meðal íþróttafólks." — Er mikilvægt að hafa sam- starf milli Norðurlanda á þessu sviði? „Já, það er það og svona fundir eru mjög mikilvægir til að skipt- ast á skoðunum. Þið getið lært miklu meira af rannsóknum sem gerðar eru í Noregi en þeim sem gerðar eru í Bandaríkjunum því fólkið hér og í Noregi á miklu meira sameiginlegt. Það er einnig mikilvægt fyrir okkur að hafa ís- land með f þessu því þið eruð svo fámenn að það lyggur við að hér sé hægt að koma á fót rannsókna- stofu sem næði til allra lands- manna,“ sagði Morgan að lokum. lnnrimúla, Barðaströnd, 8. september. HÉR HEFUR verið góður þurrkur síðan á höfuðdag og er útlit með heyskap að verða gott. Þeir sem verka í vothey eru flestir búnir með heyskapinn og aðrir ljúka honum um helgina ef þurrkurinn helst. Tún eru þó blaut og erfið yfirferðar og í gær voru 3 dráttarvélar fastar á einu og sama túninu hér á næsta bæ. Þó nú hafi aðeins rofað til er þetta sumar það óþurrkasamasta sem elstu menn muna. Hrefnu- veiðunum frá Brjánslæk er lokið, en þær hafa gengið frekar illa í sumar vegna ótíðar. Skelveiðarn- ar byrja fljótlega éftir helgi og að líkindum munu tveir bátar héðan stunda þær og leggja upp á Brjánslæk. SJ.Þ. BILABORG HR Smiöshöföa 23 sími 812 99 EinstaW'íekit __ trPíð. ^ ryiuo — - „ytti! ________ verð aou> ..... 284. 307.900 315.590 V .... V-SÆ Gerð 1 6262dyraCo^P----_-----***' að Vlð Þetta etu án e» áðsta{að. btta uPP > *aup eru Uandmuerotna maZDa , töKum LrílJndriíið íyrir veturmn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.