Morgunblaðið - 10.09.1983, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 10.09.1983, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1983 Aðalfundur Stéttarsambands bænda Fækkun á sauð- fé komi ekki niður á jaðarsvæðunum FUNDURINN samþykkti ályktun þar sem vakin er athygli á mikilvægi sauðfjárbúskapar í sumum héruðum, þar sem takmarkaði möguleikar eru á að stunda annan búrekstur. Taldi fundurinn að frekari sam- dráttur í sauðfjárrækt mætti ekki verða hjá þeim, sem þyrftu að byggja afkomu sína á henni, en þess í stað kæmi fækkun, ef nauð- synleg reyndist, niður á þéttbýli og hjá þeim bændum sem hafa sauðfjárrækt sem aukabúgrein. Einnig yrði fullt tillit tekið til landgæða og ástands beitilanda í þessu efni. Hluti framleiðslunefndar fund- arins lagði fram bókun í fram- haldi af samþykkt tillögunnar, þar sem þeir lýsa þeirri skoðun sinni að bændur í strjálbýlum sveitum, sem stæðu tæpt og treystu á sauðfjárbúskap, ætti ekki að beita verðskerðingu við uppgjör afurða þeirra, heldur greiða bændunum fullt verð fyrir afurðir sínar. Ágúst Gíslason, Botni, nær og Kristófer Kristjánsson, Köldukinn, fjær. Aukin skógrækt í tilefni af 40 ára af- mæli lýðveldisins A AÐALFUNDINUM var ályktað um skógrækt. Ályktunin fer hér á eftir: „Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1983 telur að skógrækt geti orðið veigamikill þáttur í íslenskum landbúnaði. Því felur fundurinn stjórn sam- bandsins að vinna að því í sam- vinnu við Skógrækt ríkisins og Búnaðarfélag íslands að í tilefni af 40 ára afmæli íslenska lýðveld- isins á næsta ári taki Alþingi upp sérstaka árlega fjárveitingu til skógræktar. Þeirri fjárveitingu verði varið til að koma upp skóg- arteigum og/eða skjólbeltum á þeim bújörðum sem skilyrði hafa til þess.“ Framsögumaður tillög- unnar sagði að það sem í þessari ályktun fælist væri hugsað sem viðbót við bændaskógana svoköll- uðu sem komnir eru áleiðis í nokkrum héruðum. Frá aðalfundi Stéttarsambands bænda. Frá vinstri: stjórnarmennirnir Gunnar Guðbjartsson fyrrv. formaður Stéttar- sambandsins; Böðvar Pálsson, Búrfelli, Gísli Andrésson, Hálsi; og Ingi Tryggvason, formaður Stéttarsambands bænda. Haukur Steindórsson, Þríhyrningi, er í ræðustóli. MorgnnbUíió/HBj. Könnun á fjárhagsstöðu bænda: Skuldir bænda allt að 5 þús. kr. á hvert ærgildi Á MILLI 140 og 150 bændur hafa óskað fjárhagsaðstoðar sem Stéttar- sambandið hefur haft í hyggju að beita sér fyrir að lokinni könnun á fjárhagsstöðu bænda. Dræm þátttaka var í könnuninni og telja þeir sem unnið hafa að þessari könnun öruggt að miklu fleiri þurfi á aðstoð að halda. Sigurður J. Líndal bóndi á Lækj- armóti í Víðidal hefur unnið úr svörum bændanna og lagði hann bráðabirgðaskýrslu fyrir aðalfund Stéttarsambands bænda á Reykj- um. 112 bændur skiluðu það full- nægjandi svörum að hægt var að taka svör þeirra í tölulegan sam- anburð. 86 þeirra voru bændur inn- an við fertugt og 68 þeirra voru með sauðfjárbú. Virðist vandi sauðfjár- bænda og ungra bænda vera mestur og segir Sigurður í skýrslu sinni að mjög greinilegur munur sé á fjár- hagsstöðu yngri og eldri bænda. Meðalstærð búa þessara 112 bænda var 381 ærgildi. Hver bóndi átti fasteignir að meðaltali fyrir 863 þúsund að fasteignamati og skulduðu að meðaltali 694 þúsund, þar af voru lausaskuldir tæpur helmingur að meðaltali. Á sauðfjár- búunum eru skuldir 2342 kr. að meðaltali á hvert ærgildi, 1289 kr. á kúabúunum og 1381 kr. á ærgildi á blönduðu búunum. Skuldhæstu ein- staklingarnir skulda um eða yfir 5 þúsund kr. á hvert ærgildi eða tæp- ar 2 milljónir á meðal búkönnunar- innar. Á þessum 112 búum er tap af landbúnaði að meðaltali 75 þúsund krónur, brúttótekjurnar eru 459 þúsund og gjöldin 534 þúsund, þar af 191 þúsund vextir og verðbætur. Sigurður Líndal segir í greinar- gerð sinni að flestir bændanna hafi lagt í miklar fjárfestingar svo sem jarðakaup, íbúðarbyggingar og byggingu peningshúsa. Telji flestir þeirra fjárfestingu ástæðu fjár- hagsvandans og er áberandi hækk- un skulda vegna fjárfestinga á ár- unum 1981 og 1982. Segir Sigurður að erfitt sé að meta áhrif fjárfest- inga en augljóst að þau séu mikil og í mörgum tilvikum greinileg orsök þess að aðstoðar sé óskað. Segir hann að sjá megi dæmi þess að jarðnæði sem ungir bændur hafa til eignar eða afnota nægi ekki til að standa straum af nauðsynlegri fjár- festingu. Aðalfundur bænda ályktaði Stéttarsambands meðal annars um lánamál. í ályktuninni eru fyrri samþykktir um lánamál ítrekaðar og sérstaklega bent á nokkur eftir- farandi atriði: Nefnd sú er nú vinn- ur að könnun á fjárhagsstöðu bænda ljúki störfum sem fyrst og skili áliti og aðgerðir verði miðaðar við að breyta lausaskuldum og skammtímalánum í lán til lengri tíma með viðráðanlegum kjörum; iánstími fjárfestingalána verði lengdur í allt að 40 ár. Lán til jarða- kaupa verði hækkuð stórlega og Stofnlánadeild gert kleift að lána út á fleiri vélar og tæki en nú er. Til þess að auðvelda þá breytingu er lagt til að vextir á eldri óverð- tryggðum lánum verði hækkaðir. Þá er lagt til að nýjar búgreinar verði studdar sérstaklega. Afleysinga- og forfallaþjónusta bænda: Eftirspurnin hefur aukist gífurlega í ár Á ÞESSU ári hefur eftirspurn bænda eftir forfalla- og afleysingaþjónustu aukist gífurlega og er Ijóst að fjár- veiting ársins til þessarar þjónustu Frumvarpsdrög um atvinnuréttindi í landbúnaói: Gæði þjónustunnar verði tryggð og atvinnuréttindin vernduð Á AÐALFUNDINUM voru til um- fjöllunar drög að frumvarpi til laga um atvinnuréttindi í landbúnaði. A fundinum fékk sérstök starfsnefnd frumvarpsdrögin til umfjöllunar og gerði hún á þeim nokkrar breyt- ingar. Ákveðið var síðan að frum- varpsdrögin þannig breytt verði send öllum búnaðarfélögum og bún- aðarsamböndum til kynningar á fé- lagsfundinum og það afgreitt á aðal- fundum búnaðarsambandanna í vor. Verði það tekið til endanlegrar af- grciðslu á aðalfundi Stéttarsam- bandsins næsta haust og síðan lagt fyrir Alþingi. í september síðastliðnum leitaði Stéttarsamband bænda samstarfs við Landbúnaöarráðuneytið og Búnaðarfélag íslands um að settur yrði á stofn starfshópur til að semja frumvarp til laga um starfsréttindi í landbúnaði. Starfshópurinn gerði þau drög sem iögð voru fyrir Stéttarsam- bandsfundinn. í greinargerð með frumvarps- drögunum segir að markmið lag- anna sé annars vegar að tryggja öryggi og gæði þeirrar þjónustu sem landbúnaðurinn veiti og hinsvegar að vernda atvinnurétt- indi þess fólks sem þessa atvinnu stundar og aflað hefur sér þekk- ingar á sviði Iandbúnaðar á svip- aðan hátt og lög um iðnfræðslu og lög um verslunaratvinnu gera. Segir að með aukinni sérhæfingu á flestum sviðum sé ekki óeðlilegt að þetta sjónarmið komi einnig fram varðandi störf við landbún- að. Við samningu frumvarpsdrag- anna athugaði starfshópurinn einkum tvær leiðir að því er varð- ar réttindi er búrekstrarleyfi veiti. Annarsvegar þá leið að öðrum en þeim sem hafa búrekstrarleyfi verði óheimilt að framleiða búvör- ur til sölu. Hinsvegar að lögin skapi þeim sem hafa búrekstrar- leyfi vissan rétt umfram þá sem hefja búskap án slíks leyfis. Er þar meðal annars átt við forgang að lánum og framlögum til land- búnaðarins og forgang að rétti til að framleiða búsafurðir til sölu. í báðum tilvikum myndu starfandi bændur halda réttindum sinum við gildistöku laganna og fengju þeir sjálfkrafa útgefið búrekstr- arleyfi. í frumvarpsdrögum sínum gerði starfshópurinn ráð fyrir að síðari kosturinn verði valinn, en aðalfundur Stéttarsambandsins lagði til að báðar leiðirnar yrðu valdar. Fundurinn lagði til að búrekstr- arleyfi veiti „réttindi til fram- leiðslu búsafurða til sölu, lána úr lánasjóðum landbúnaðarins, opinberra framlaga til landbúnað- arins og forgang á ábúð á ríkis- jörðum svo og öðrum jörðum og jarðarpörtum í opinberri eign sem ætlaðar eru til búvörufram- leiðslu". f frumvarpsdrögunum er gert ráð fyrir að sérstök nefnd annist úthlutun búrekstrarleyfa en í drögunum eru reglur um hvaða skilyrðum menn, félög og stofnan- ir þurfi að fullnægja til að eiga rétt á að fá útgefið búrekstrar- leyfi. nægir hvergi nærri til þess að sinna þeim beiðnum um aðstoð sem ber- ast. Þetta kemur fram í skýrslu Inga Tryggvassonar, formanns Stéttar- sambands bænda, sem hann lagði fram á aðalfundinum. Segir Ingi að þessi aukna eftir- spurn komi vafalítið til vegna þess að bændur hafi nú áttað sig betur en áður á því hver réttur þeirra er, sérstaklega eftir að út kom bækl- ingurinn „Hver er réttur þinn“ í febrúar síðastliðnum. Heildar- kostnaður ársins er nú áætlaður 11 milljónir króna eða sem svarar 55—57 stöðugildum en fjárveiting á árinu er 5,5 milljónir. Segir Ingi það ljóst, að í algert óefni stefni með þessa starfsemi ef ekki fáist viðbótarfj ármagn. Samkvæmt lögum er heimilt að ráða í 60 stöðugildi við forfalla- þjónustuna. Fjárveiting hefur hins vegar aðeins fengist fyrir hluta af þessum störfum, en verið smám saman aukin ár frá ári. Frá miðju síðastliðnu ári var veitt fé til 36 stöðugilda og frá miðju þessu ári bætast 4 við. Segir Ingi í skýrslu sinni, að þetta hafi ekki komið verulega að sök fram til þessa þar sem bændur hafi verið seinir að átta sig á því hver réttur þeirra er á þessu sviði og hefur því fjárveitingin nægt til þess að hægt væri að sinna þeim beiðnum um aðstoð sem borist hafa. Hins vegar hafi eftirspurnin aukist mjög á þessu ári eins og áður sagði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.