Morgunblaðið - 10.09.1983, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 10.09.1983, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1983 43 • Bresku stórhlaupararnir Steve Owett og Steve Cram háóu mikið einvígi í gærkvöldi í mfluhlaupi á Crystei Palace-leikvanginum í Lund- únum. Heimsmeistarinn í 1500 m hlaupi, Cram, sigraði í hlaupinu en niöi ekki að setja nýtt heimsmet. Tími hans var 3:52,56 m(n. Á mynd- inni mé sjá hvar Cram sigrar Owett. &TDK TRKT nnrl fourthmost! FlasKhack to Steve Cram Steve Cram: „Ég er sá besti“ — Cram sigraði Owett í mílunni í gær London, 9. september. AP. BRESKI stórhlauparinn og heimsmeistarinn Steve Cram sígraði í gærkvöldi félaga sinn, heimsmethafann í 1500 m hlaupi Steve Owett, er þeir mættust í míluhlaupi á Crystal Palace- leikvanginum í London í mflu- hlaupi. Cram sigraði ( hlaupinu sem var geysilega spennandi frá upphafi til enda á 3 mínútum 52:56 sek. Owett varð annar, fókk tímann 3,52:71 mín. Einvígi þeirra félaga hafði vakið gífurlega at- hygli og var uppselt á Crystal Palace-leikvanginum ( gær jafn- framt var sjónvarpaö beint frá mótinu víða um Evrópu. Margir áttu von á því að nýtt heimsmet yrói sett í mflunni en svo varð nú ekki. „Ég var ekki viss um sigur minn fyrr en ég komst yfir marklínuna rétt é undan Owett. Og jafnframt vonast ég til að hafa sannfært menn um það aö ég er nú besti 1500 m og míluhlaupari heims,“ sagöi Cram viö fréttamenn AP eftir keppnina. Cram varö heimsmeistari í 1500 m hlaupi í Helsinki í síöasta mán- uöi, og jafnframt hefur hann unniö þaö mikla afrek aö hafa ekki tapaö míluhlaupi nú í rúmlega tvö ár. Þriöji maður í hlaupinu í gær varö Waigwa frá Kenya, hljóp á 3,55:78 mín. Þess má geta aö Owett setti nýtt heimsmet í 1500 m hlaupi nú fyrir nokkrum dögum og hljóp þá viö frekar erfiöar aöstæöur. Hann lýsti þá yfir aö hann gæti gert enn bet- ur. Owett hefur veriö í fremstu röö um langt skeiö og viröist sífellt geta bætt viö sig þó svo aö hann hafi nú tapaö í gærkvöldi. Cram hefur veriö í mikilli framför og stendur nú ekki lengur í skuggan- um af þeim Owett og Coe. Aðalfundur Þróttar • Aðalfundur knattspyrnufélags- ins Þróttar og aðalfundur hand- knattleiksdeildar félagsins veróa í Þróttarheimilinu laugardaginn 17. september. Hverjir nsla f UEFA-sætið? — Gífurleg barátta á botninum ÁTJÁNDA og síðasta umferó í 1. deild íslandsmótsins ( knatt- spyrnu fer fram um helgina. Mót- ið klárast ekki þar sem liö ÍBV á eftir aö leika tvo leiki sem fresta Surfti. ÍA hefur þegar tryggt sér ilandsmeistaratitilinn og er mjög vel að honum komiö. En baráttan nú í síóustu umferöinni stendur um fallið niöur ( 2. deild svo og UEFA-sæti. Leikirnir ( sfö- ustu umferðinni eru þessir: 18. umferö: í sig veöriö í síöustu leikjum eiga tvo leiki eftir og hafa 14 stig. Þeir standa því nokkuö vel að vígl. ÍBK á leik á heimavelli gegn ÍBÍ og meö sigri geta þeir komiö sér í 17 stig. Ef viö lítum á efri liöin þá má sjá aö liö KR þarf aöeins 1 stig til þess aö tryggja sór sæti ( UEFA- keppninni ef UBK missir eitt af þeim fjórum stigum sem þeir eiga möguleika á aö fá. Liö ÍBV er nú þegar komið í Evrópukeppni bikar- hafa þar sem þeir léku til úrslita í bikarkeppni KSÍ gegn ÍA. Sá möguleiki er líka fyrir hendi aö Þór frá Akureyri komist í UEFA-keppnina svo og Víkingar, sigri þeir Valsmenn á morgun. Vinni bæöi liðin meö sama marka- mun fer Þór í Evrópukeppnina þar sem liðiö er meö hagstæöara markahlutfall. Allir leikirnir í 1. deild í dag hefjast kl. 14.00. — ÞR. • Þórsarar og Víkingar kljást um boltann um síöustu helgi. Bæöi lið eiga möguleika á UEFA-sæti. Allt fer þó eftir úrslitunum í Eyjum í dag. 10.9. ÍBKrÍBI 10.9. Þór:UBK 10.9. ÍBV:KR 119. Þróttur.ÍA 10.9. Valur:Vík. Og fyrir þessa síöustu umferö er staöan (deildinni svona: ÍA 17 11 2 4 29:11 23 KR 17 5 9 3 18:19 19 Þór 17 5 7 5 19:17 17 Víkingur 17 4 9 4 19:18 17 Þróttur 17 6 5 6 24:31 17 UBK 16 5 6 5 19:16 16 ÍBV 15 5 5 5 25:20 15 ÍBK 17 7 1 9 21:27 15 Valur 16 5 4 7 24:30 14 ÍBÍ 17 2 9 6 16:25 13 Staöan getur varla veriö jafnari og þaö er ekki gott að spá um þaö hvaöa lið þaö verða sem falla niöur. Ljóst er þó aö róður ísfirð- inga veröur þungur. Þeir eiga aö- eins einn leik eftir og hafa 13 stig. Valsmenn sem hafa verið aö sækja Ellert til ítalfu Formaður KSÍ, Ellert B. Schram, kom ekki heim meó landsliöinu í knattspyrnu í fyrra- kvöld. Hann fór til Italíu þar sem hann situr stjórnarfund hjá knatt- spyrnusambandi Evrópu, UEFA, og jafnframt veröur minningar- athöfn um nýlátinn forseta UEFA, Artemio Franchi. Ellert sagöi aö þaö yröi vand- fundinn eftirmaöur í hans staö. Franchi heföi verö mjög vinsæll maður meöal starfsmanna sinna og unniö mikiö og óeigingjarnt starf fyrir sambandið um langt ára- bil. Þá var hann í forystuhóp þeirra sem fóru meö knattspyrnumál í heimalandi sínu, ítalíu. — ÞR. Carl Zeiss Jena, móther jar ÍBV á þriðjudag: Leikur agaða og skemmti- TBl7) lega knattspyrnu • Austur-þýska knattspyrnuliöiö Carl Zeiss Jena. Á ÞRIÐJUDAGINN veröur leikur ÍBV og a.-þýska liðsins Carl Zeiss Jena í Evrópukeppni fé- lagsliöa á Kópavogsvellinum og hefst viöureignin kl. 18.00. Carl Zeiss Jena er eitt þekkt- asta knattspyrnufólag þeirrar miklu íþróttaþjóöar Austur- Þjóöverja og þykir leika mjög ag- aöa og skemmtilega knatt- spyrnu. Þaö er því tvímælalaust mjög áhugavert fyrir knatt- spyrnuáhugafólk hér aö sjá þetta góöa liö í keppni viö Eyjamenn. Carl Zeiss Jena á sér ekki langa sögu aö baki en þeim mun glæsilegri. Félagiö var stofnaö áriö 1954 og hóf aö leika í Ober- liga (1. deild) áriö 1957 og hafn- aöi þá í 4. sæti. Félagið hefur þrisvar orðiö DDR-meistari, 1963, 1968 og 1970. 9 sinnum hefur félagið hafnaö í 2. sæti í Oberliga og 4 sinnum í 3. sæti. Óneitanlega glæsilegur ferill. Raunar hefur félagiö ekki nema einu sinni hafnaö neöar en í 6. sæti í deildarkeppninni öll þessi ár. Þá er þaö athyglisvert aö á þessum 26 árum hefur félagiö haft aöeins tvo þjálfara, G. Buschner 1957—1971 og H.J. Meyer hefur veriö þjálfari liösins frá 1971 og er enn. Carl Zeiss Jena hefur 4 sinnum orðið bikarmeistari, siöast áriö 1980. Félagiö hefur 15 sinnum leikiö í Evrópukeppnum, alls 77 leiki. Félagiö hefur sigraö í 37 leikjum, gert 14 sinnum jafntefli og tapaö 26 leikjum. Markahlut- fallið er 126—98 mörk. Bestum árangri hefur félagiö náö í Evrópukeppni bikarhafa 1980—'81 þegar liöiö lék til úr- slita í keppninni viö Dynamo Tbil- issi en tapaöi leiknum 1—2. Á leiö sinni í úrslitin lagöi Carl Zelss Jena aö velli ekki ómerkari liö en AS Roma, Valencia, Newport County og Benfica. i liöi Carl Zeiss Jena eru marg- ir þekktir og snjallir leikmenn. Má þar til nefna Rúdiger Sschuphase varnarleikmann og framherjann Anreas Bilau sem báöir eru fastamenn í a-þýska landsliöinu. Jurgen Raab fram- herji er í Olympíuliöi A-Þýska- lands. Þá eru í liðinu tveir leik- menn sem leika meö B-landsliö- inu. Þá má geta um markvörö liðsins, Hans-Ulrich Grapenthin, en hann hefur tvívegis veriö val- inn knattspyrnumaöur ársins í DDR. Þaö er því alveg Ijóst að það veröa engir aukvisar sem mæta Eyjamönnum á Kópavogsvellin- um á þriöjudaginn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.