Morgunblaðið - 10.09.1983, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 10.09.1983, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1983 29 jffleööur á tnorgun Guðspjall dagsins: Matt. 6.: Enginn kann tveímur herrum að þjóna. DÓMKIRKJAN: Æskulýösmessa kl. 11. Jónas Þórir Þórisson, Graham Smith og 3 ungar stúlk- ur úr Garöabæ sjá um tónlistina ásamt dómkirkjukórnum. Ungt fólk les bænir og texta. Sr. Þórir Stephensen. LANDAKOTSSPÍTALI: Messa kl. 10. Organleikari Birgir Ás Guö- mundsson. Sr. Hjalti Guömunds- son. ÁRBÆJARPRESTAKALL: Guös- þjónusta í safnaöarheimili Ár- bæjarsóknar kl. 11 árd. Organ- leikari: Jón Mýrdal. Sr. Guö- mundur Þorsteinsson. ÁSPRESTAKALL: Guösþjónusta að Noröurbrún 1, kl. 11. Sr. Árnl Bergur Sigurbjörnsson. BREIDHOLTSPREST AKALL: Guösþjónusta í Breiöholtsskóla kl. 14. Sr. Lárus Halldórsson. BÚST AÐAKIRKJA: Guösþjón- usta kl. 11. Organleikari Guöni Þ. Guömundsson, prestur sr. Sol- veig Lára . Guömundsdóttir. Sóknarnefnd. ELLIHEIMILIÐ GRUND: Messa kl. 10. Sr. Lárus Halldórsson. FELLA- OG HÓLAPRESTA- KALL: Guösþjónusta í menning- armiöstööinni viö Geröuberg kl. 14. Haustfermingarbörn beöin aö koma. Sr. Hreinn Hjartarson. FRÍKIRKJAN í REYKJAVÍK: Guösþjónusta kl. 14. Skírn. Guö- spjalliö í myndum, sunnudags- póstur handa börnum, afmælis- börn boðin sérstaklega velkom- in. Barnasálmar og smábarna- söngvar, framhaldssaga. Viö hljóðfæriö Pavel Smidt. Sr. Gunnar Björnsson. GRENSÁSKIRKJA: Guösþjón- usta kl. 11. Organleikari Árni Ar- inbjarnarson. Kvöldmessa kl. 20.30 sunnudag. Altarisganga. „Ný tónlist." Almenn samkoma nk. fimmtudagskvöld kl. 20.30. Sr. Halldór S. Gröndal. H ALLGRÍMSPREST AKALL: Messa kl. 11. Organleikari Hörö- ur Áskelsson. Sr. Karl Sigur- björnsson. Guösþjónusta kl. 14. Jón Sætran prédikar. Sr. Miyako Þóröarson, heyrnleysingjaprest- ur. LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10. Sr. Karl Sigurbjörnsson. HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Tómas Sveinsson. BORGARSPÍTALINN: Messa kl. 10. Sr. Tómas Sveinsson. KÓPAVOGSKIRKJA: Guösþjón- usta í Kópavogskirkju kl. 11 árd. Sr. Árni Pálsson. LANGHOLTSKIRKJA: Guös- þjónusta kl. 14. Prestur sr. Sig- urður Haukur Guöjónsson, org- anleikari Jón Stefánsson. Sókn- arnefndin. LAUGARNESKIRKJA: Laugar- dagur: Guösþjónusta Hátúni 10B, 9. hæö kl. 11. Sunnudagur: Guösþjónusta kl. 11. Þriöjudagur 13. sept. bænaguösþjónusta kl. 18. Sr. Ingólfur Guðmundsson. NESKIRKJA: Guösþjónusta kl. 11. Miövikudagur, fyrirbæna- messa kl. 18.20. Sr. Frank M. Halldórsson. SELJASÓKN: Guösþjónusta Ölduselsskóla kl. 14. Smári Óla- son tekur viö störfum sem organisti safnaöarins. Fimmtu- dagur, 15. sept., fyrirbænasam- vera Tindaseli 3, kl. 20.30. Sóknarprestur. HVÍT ASUNNUKIRK J AN Fíla- delfía: Safnaöarguösþjónusta kl. 14. Ræöumaöur Keith Parks frá Kanada. Almenn guösþjónusta kl. 20. Sami ræðumaöur. Fórn til skálans. HJÁLPRÆÐISHERINN: Vetrar- starfiö hefst. Sunnudagaskóli kl. 11. Bæn kl. 20 og kl. 20.30. Hjálpræöissamkoma. Brigadier Ingibjörg og Óskar Jónsson stjórna og tala. DÓMKIRKJA KRISTS Konungs Landakoti: Lágmessa kl. 8.30. Hámessa kl. 10.30. Lágmessa kl. 14. Alla rúmhelga daga er lág- messa kl. 18 nema á laugardög- um þá kl. 14. FELLAHELLIR: Kaþólsk messa kl. 11. KFUM & KFUK, Amtmannsstíg 2B: Samkoma í upphafi starfs. Nýjum starfsmönnum fagnaö. Ræðumaöur sr. Jónas Gíslason. BESSASTAÐAKIRKJA: Guös- þjónusta kl. 11. Álftanesskóli settur. Sr. Bragi Friöriksson. KAPELLA ST. Jósefssystra Garðabæ: Hámessa kl. 14. VÍÐIST AÐASÓKN: Guðsþjón- usta kl. 11. Sr. Siguröur Helgi Guömundsson. HAFNARFJARÐARKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Gunn- þór Ingason. FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: Guös- þjónusta kl. 14. Viö orgeliö Jó- hann Baldursson. Sr. Bernharöur Guömundsson prédikar. Safnað- arstjórn. KAPELLA St. Jósefsspítala: Messa kl. 10. KARMELKLAUSTUR: Hámessa kl. 8.30. Rúmhelga daga messa kl. 8. KÁLFATJARNARKIRKJA: Guös- þjónusta kl. 14. Stóru-Vogaskóli settur. Sr. Bragi Friöriksson. HVALSNESKIRKJA: Messa kl. 14. Sóknarprestur. KIRK JUVOGSKIRKJA: Messa kl. 14. Sóknarprestur. AKRANESKIRKJA: Messa kl. 10.30. Sr. Björn Jónsson. Tónlistarskóli Akraness: Menntamálaráðu- neytið fer ekki að lögum um greiðslur Akranes, 5. september. TÓNLISTARSKÓLINN á Akranesi er nú aö hefja vetrarstarf sitt. Er þaö fjölbreytilegt eins og undanfarin ár. Aösókn að skólanum er mikil og nú þegar er fólk á biðlista til að komast í söng og gítarnám. Skólinn fékk til umráða nýtt húsnæði á síöastliðnum vetri og var það húsnæði sem áður hýsti bæjarskrif- stofurnar á Kirkjustræti 8. Bæjarstjórn Akraness mótmælti í júlímánuði síðastliðnum túlkun Menntamálaráðuneytisins á lögum um tónlistarskóla. Ráðuneytið hefur á undanförnum misserum gengið meira og meira í berhögg við lögin. Fyrst með því að meina öllum sem vilja, aðgang að skólanum og síðan með því að endurgreiða laun kenn- ara eftir sínum reglum. í samtali við Jón Karl Einarsson, skólastjóra Tónlistarskólans á Akranesi um þetta mál, sagði hann að í lögum um Tónlistarskóla stæði að sveitarfélög eigi endurkröfurétt á 50% af laun- um kennara miðað við gildandi kjarasamninga. Gildandi samning- ar á Akranesi eru samningar kenn- ara við Akraneskaupstað. Greiðslur frá ráðuneytinu hafa síðan dregist þannig að miðað við bókhaldsstöðu bæjarins er fjárveiting til skólans uppurin. Það er vegna þess að ráðu- neytið stendur ekki í skilum og hluta af því sem þeir skulda, ætla þeir sér ekki að greiða, sagði Jón að lokum. Fréttamaður Mbl. bar þessi um- mæli undir Ingimund Sigurpálsson, bæjarstjóra á Akranesi. „Það er rétt, við höfum mótmælt túlkun menntamálaráðuneytisins á kostn- aðarþátttöku ríkisins í launakostn- aði tónlistarkennara. Lög kveða á um að ríkissjóður eigi að greiða helming af launakostnaði kennar- anna miðað við gildandi kjarasamn- inga, en gildandi kjarasamningur við tónlistarkennara á Akranesi er kjarasamningur Akraneskaupstað- ar og starfsmannafélags Akranes- kaupstaðar. Lögin kveða mjög skýrt á um þetta atriði að mínu mati og ég hef ekki ástæðu til að ætla að glögg- um starfsmönnum ráðuneytisins sjáist yfir fleirtölumynd lagagrein- arinnar, gefist þeim á annað borð tækifæri tii að lesa lögin yfir í hinu daglega amstri. Ég er því ekki í nokkrum vafa um að staðið verði í skilum við þessa skuld, en það sem sveitarfélögunum kemur verst, þeg- ar svona mál koma upp er hins veg- ar það að raungildi endurgreiðslna rýrnar verulega þegar greiðslur dragast á langinn á verðbólgutím- um,“ sagði Ingimundur að lokum. J.G. Fjórir meðlimir ritnefndar, en þeir eru frá vinstri: Halldór E. Sigurösson, Þór Vilhjálmsson, Steingrímur Jónsson og Leó E. Löve. Ljósm. Mbi. ói.k.m. ísafoldarprentsmiðja gefur út bók til heiðurs Ólafi Jóhannessyni ísafoldarprentsmiðja mun í næsta mánuði gefa út rit til heiðurs Ólafi Jóhannessyni, fyrrverandi ráðherra, og verða í bókinni greinar eftir sam- ferðamenn Ólafs. Fjalla sumar grein- anna um Ólaf sjálfan og störf hans, en aðrar fjalla um lögfræðileg efni og samtíðarsögu, sem tengjast fræða- og stjórnmálastörfum Ólafs. Þá verður í bókinni ítarlegt viðtal við Ólaf, sem Gylfi Gröndal ritar, og einnig verða þar nokkur stutt viðtöl við nokkra samstarfsmenn Ólafs, en þau skrifar Tómas Karlsson. Ritnefnd verksins skipa þeir Þór Vilhjálmsson, forseti Hæstaréttar, Björn Sveinbjörnsson, hæstarétt- ardómari, Halldór E. Sigurðsson, fyrrverandi ráðherra, Leó E. Löve, lögfræðingur, og Steingrímur Jónsson, bókavörður. Meðlimir rit- nefndar, að Birni Sveinbjörnssyni undanteknum, kynntu verkið á blaðamannafundi i gær og kom fram á fundinum að um væri að ræða að nokkru leyti ævisögu ólafs, séða frá annarra bæjardyr- um. Töldu þeir a bókin myndi hafa bæði sagnfræðilegt og löfræðilegt gildi og má nefna að 5—6 greinar fjalla um lögfræðilegt efni. Áætlað er að bókin verði um 320 blaðsíður að stærð, prýdd fjöl- mörgum myndum, sem bæði eru fengnar frá ólafi sjálfum og úr dagblöðum. Fram kom á fundinum að handrit bókarinnar væri nær tilbúið, en eftir væri að prenta hana. Var sérstaklega tekið fram að þeir sem þess óskuðu, gætu gerst áskrifendur að bókinni og fengið nafn sitt í heillaóskaskrá, „tabula gratulatoria" sem prentuð verður fremst í bókinni. Munu áskriftarlistar liggja frammi í bókaverslunum. Höfundar ritgerðanna í bókinni eru þessir: Ágúst Þorvaldsson, Al- freð Þorsteinsson, dr. Ármann Snævarr, Björn Bjarnason, Bogi Sigurbjörnsson, Eiríkur Pálsson, Eiríkur Tómasson, Grímur Gísla- son, dr. Guðmundur Alfreðsson, Guðmundur Eiríksson, Halldór E. Sigurðsson, Jóhann Þorvaldsson, dr. Jóhannes Nordal, Leó E. Löve, Magnús Torfi ólafsson, Páll Pét- ursson, dr. Páll Sigurðsson, Stefán Guðmundsson, Þór Vilhjálmsson og Þórarinn Þórarinsson. IAUGARDAGUR OHÐim 104 E/DISTORG111 VörumarkaðurinD hf. i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.